Morgunblaðið - 28.04.1985, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. APRlL 1985
41
Ég var eitt sinn sessunautur
Sigurðar skólameistara austur yf-
ir Hellisheiði. Það var eins og veg-
urinn yrði nýr og annar við tal
hans og frásagnir. Við vorum
saman þarna kennarar og skóla-
stjóri og Sigurður var glaðastur
okkar allra og söng við raust. Guð
má vita með hvaða lagi en áreið-
anlega var hann einn um það og
sérstakur þar eins og ávailt. Það
var sagt að hann gæti ekki sett
kross á kjörseðil öðru vísi en að
allir sem sáu þekktu hann.
Nokkuð svona verður Stein-
grímur stundum, þegar best lætur
og í verkum sínum, sem vel takast,
sériegur, persónulegur og einstak-
ur.
Mé rþykir alltaf vænt um gesta-
komur, eini maðurinn, sem kemur
til okkar eins oft og þegar maður
væri ekki orðinn sjötugur er
Steingrímur.
Menn gamlast og gleymast, en
gott hjartalag er besta og fegursta
listaverkið og sextíu ár eru eins og
andakt eilífðar hinnar góðu gest-
komu — sameiginlegrar vegferðar
yfir Mosfellsheiði, Hellisheiði og
aðrar torfærur, sem tæknin ein
fær ekki lagt varanlegan veg yfir,
heldur draumurinn um vináttu og
samfylgd af efnivið hins fagra,
góða og sanna.
Líklegast hefur Steingrimur
gert flest málverk frá Þingvöllum
allra málara vorra.
Bjarna Benediktssyni dreymdi
um þjóðarhús á Þingvöllum. Ef til
vill ris það á árunum 2000 til 2030,
og þá sem þinghöll einnig, alþing-
isstaður að nýju, sem svo margan
góðan dreng dreymdi um, en sem
frelsishöll vera með grundvöll, er
vér eigum dýpstan og undirstöður
og súlur vegjanna veglegastar.
Þar yrðu miklir málverkasalir,
Kjarvals, Ásgríms og málara
vorra, sem sýna þessa dagana.
Gestir góðir sem þér á helgum
stað og Steingrímur Sigurðsson
einn þeirra.
Öll ár vaska drengja og batn-
andi, sona og dætra, göfugra feðra
og mæðra, unnandi gróandinni
sem ár æskunnar. Kærar kveðjur,
góði vinur Steingrimur, og heilla-
óskir þér og þínum til handa, lifs
og liðnum, frá okkur hjónum og
fjölskyldu okkar.
Eiríkur J. Eiríksson
Það var í svartasta skammdeg-
inu, á Keflavíkurflugvelli 1953, að
ég sá hann fyrst. Eg var á leið
eftir vinnu að skoða næturlífið á
vellinum. Það var svartamyrkur
og rigningarsuddi er ég kem að
einni af fjölmörgum drykkjubúl-
um vallarins. Hann stóð þar i
suddanum klæddur leðurjakka og
svörtum leðurstígvélum að hnjám,
með gult armbindi — minnti
sterklega á nasistaforingja. Hann
segir formálalaust við mig; „Hvað
vantar þig?“ Ég segi: „Mig langar
í bjór.“ „Þú færð engan bjór, hér
fá eingöngu foringjar og séntil-
menn að drekka." Með þeim orðum
sveiflaði hann sér inn og skellti
dyrunum. Ég sá í gegnum skituga
rúðuna hvar hann sat við barinn
og hvolfdi í sig hverjum bjórnum
á fætur öðrum.
Mér var sagt daginn eftir að
þarna hefði Steingrímur Sigurðs-
son verið á ferð. Hann vann um
þessar mundir sem Security
Guard á vellinum á vegum „Met-
calfe Hamilton-Smith Compani-
es“. Ástandið var hrikalegt á vell-
inum á þessum árum þegar þús-
undir erlendra verkamanna unnu
þar, ásamt íslendingum. Steingr-
imur skrifaði ári seinna og gaf út
frægt rit, sem hann kallaði
Skammdegi á Keflavíkurflugvelli
(skyndimynd af reynslu suður
þar). Rit þetta er algjört „raritet"
í dag og myndi seljast í þúsundum
eintaka ef það yrði endurútgefið.
— Ég fór vestur aftur, fékk nóg af
lífinu sunnan fjalla í bili. Sex ár-
um síðar settist ég að í Reykjavík.
Þá hófust kynni okkar Steingrims
fyrir alvöru, hann hafði verið edrú
árum saman, hafði tekið kaþólska
trú. Mér þótti þetta allt stór-
merkilegt. Hann sagði mér leynd-
armálið seinna.
Eitt sinn er Stgr. sýndi á Akur-
eyri hringdi hann að norðan og
sagði: „Komdu með sex-vélinni.
Það er allt tilbúið og beðið eftir
þér.“ Ég fór og verð vini mínum
þakklátur til æviloka fyrir þá
hjálparhönd sem hann réttri mér
þá. Það verður okkur ævarandi
blessun að hafa kynnst þeim stór-
merka andans manni ólafi
Tryggvasyni sem kenndur var við
Hamraborg á Akureyri. — Árin
liða. Stgr. kaupir og borgar út i
hönd frægt óðal á Stokkseyri,
„Rodgúl“, og flyst þangað með
bömum sínum þrem. Það tók mig
heilt ár að trúa því að bardaginn
við Bakkus væri hafinn á ný eftir
nær 18 ára edrúmennsku, en bar-
daginn stóð í nokkur ár. — Það
var á fallegum laugardagseftir-
miðdegi fyrir 5 árum að ég segir
við Stgr.: „Nú kemur þú með mér á
ABC-fund og slappar af.“ Nei and-
skotinn, er það ekki einhver
sértrúarsöfnuður!“ Hann kom, og
það var örlagaríkt, því fundirnir
eru orðnir að hundruðum. Stofnun
Gólandeildar ber þó hæst og hefur
Stgr. allan veg og vanda af henni.
Minn maður hefur ekki smakkaö
áfengan drykk á sjötta ár, og ekki
nóg með það, heldur er hann gjör-
breyttur maður, hefur náð 97%
árangri í ræktinni, og heldur flug-
inu dásamlega vel. — Það ber ekki
allt upp á sama daginn, og þykir
mér mjög vænt um að hafa fengið
það tækifæri að rétta honum
hjálparhönd í þessum málum. —
Stgr. hefur einnig sigrast al-
gerlega á tóbakinu og lifir algeru
reglulífi í dag, svo fyrirmynd er
að. Er vonandi aö sú „liflina“ sem
hann heldur traustum höndum i
rakni aldrei, og er ég raunar viss
um það, því handtakið er öruggt.
Tólfta spors maður er Stgr. mikill
og er það orðinn fjöldi sem Stgr.
hefur hjálpað og veitt aðstoð i
hretviðrum lifsins.
Kennarinn, blaðamaðurinn, rit-
höfundurinn, listmálarinn og
lífskúnstnerinn Steingrímur Stef-
án Thomas Sigurðsson er sextugur
á morgun, 29. april. Hann er fædd-
ur og uppalinn á mesta mennta-
setri landsins, Menntaskólanum á
Akureyri. Stgr. tók stúdentspróf
einna yngstur (slendinga fyrr og
síðar, eða aðeins 17 ára gamall.
Sigldi sfðan til Bretaveldis til
frekara náms við háskóla þar. Eft-
ir að hafa stúderað bókmenntir
Breta og heimsbókmennirnar um
árabil sneri hann heim og lagði út
á þá braut, sem er erfiðust allra,
listamannsbrautina. Stgr. hefir
komið ótrúlega viða við, starfað
sem blaðamður árum saman,
skrifað fjölda bóka og bæklinga,
sumar bækur hans metsölubækur.
Skrifað og gefið út frægt menn-
ingar- og bókmenntarit, Lif og
list, á sinum tíma, en það er gjör-
samlega ófáanlegt i dag. Haldið
um 60 málvekasýningar hér heima
og erlendis, og svona mætti lengi
telja. T.d. hefur hann þýtt heims-
fræga rithöfunda á íslensku, s.s.
Hemingway og Solsenitsin. Um
Stgr. gæti ég skrifað langt mál, af
svo mörgu er að taka eftir áratuga
vináttu, sem aldrei hefir borið
skugga á. Stgr. hefir lifað hratt og
sterkt þau 60 ár sem að baki eru,
enda ólga i sálinni og maðurinn
óvenjulegur og algjörlega í sér-
umslagi. Stgr. er þiggja barna fað-
ir, þau eru: Steingrimur, listamað-
ur af guðs náð, Jón, stúdent og
lögreglumaður, og Halldóra feg-
urðardís. Glæsilegt fólk, sem hann
getur verið mjög stoltur af.
Stgr. býr einn með sonum sínum
í Stífluseli 1 hér í borg í glæsilegri
íbúð sem hann keypti sér fyrir
nokkrum árum. Já, Stgr. er
óvenjulegur maður eins og ég gat
um. Hann er algjör sólóisti i sínu
lifshlaupi, óháður öllum klíkum og
sjóðum og gefur frat i allan smá-
borgaraskap og finnst „kerfið"
óþolandi, enda uppreisnargjarn og
ósnobbaöur algjörlega.—
Steingrímur. Þetta eru smá-
stiklur úr þinu hraða 60 ára lifs-
hlaupi. Um þig mætti skrifa þykkt
bindi. Það verður gert seinna. Ég
er mjög stoltur af því að þú telur
mig til einna þinna mörgu vina.
Þótt ég meti gjafir þínar mikils er
mér þó vinátta þín og sona þinna
meira virði.
Kæri vinur, ég þakka þér
trausta og óbifandi vináttu um
áratugaskeið og vona að við töl-
umst við tvisvar til þrisvar á dag,
hvar sem við erum staddir næstu
aratugina, eins og við höfum gert
hingað til, og samhæft reynslu
okkar styrk og vonir til að verða
ögn skárri menn dag frá degi, með
von um betra mannlíf. Því sigur
þinn er sigur minn.
Það sem mér finnst lýsa þér
einna best er þegar þú hringdir
eitt sinn í mig frá Stokkseyri og ég
spurði: „Hvernig er veðrið?“ Alveg
dýrðlegt, þreifandi öskubylur og
rok!“
Innilegar hamingjuóskir með
sextíu árin.
Kveðja frá fjölskyldunni Seilu-
granda 2.
Finnbjörn Finnbjörnsson
Þegar litið er til baka og ýmis
atvik og mannleg samskipti skoð-
uð, er sú minning skírust, sem
tengst hefur góðu fólki sem viljaö
hefur manni vel. Það hlýjar ein-
fara eins og mér um hjartarætur,
að til eru menn eins og Steingrím-
ur, sem tilbúnir eru að leggja sál v
sína í að rækta einlæga og trygga
vináttu, jafnvel við fólk sem ekki
býr sjálft yfir þeim sjaldgæfa eig-
inleika. Ófáar ferðir hafa í gegn-
um tíðina verið farnar að Hæðar-
dragi til feðganna samheldnu, til
að njóta með þeim og fáum útvöld-
um ógleymanlegra kvöldstunda.
Stemmningin hjá þeim feðgum er
alveg einstök. Sambland af aust-
rænni duiúö og kaþólskum við-
horfum. Allt heimilið hefur á sér
mjög óvenjulegan blæ. Veggina
prýða sjaldgæfir kjörgripir, jafn- -
vel andlitsmynd af húsbóndanum
máluð af Kjarval, þeim stórbrotna
listamanni. Og ekki má gleyma
kettinum Muhameð, öðru nafni
Mumma, sem á sitt sérstaka af-
drep i einu horni stofunnar, sér-
hönnuðu smáhýsi, sem hefur á sér
japanskt yfirbragð og þeir feðgar
virðast hafa lagt mikinn metnað í
að gera sem glæsilegast og þægi-
legast þeim fjórða heimilisföstum.
í þessu einstaka andrúmslofti á
rökkvuðum vetrarkvöldum hef ég
og sparivinir þeirra feðga, notið
þess að hlusta á rithöfundinn
Steingrím lesa sitthvað skemmti-
legt og fróðlegt úr eigin verkum,
og síðan drukkið rjómasúkkulaði
sem húsbóndinn er sérfræðingur í '
að búa til. Ég hef satt að segja
aldrei smakkað betra súkkulaði. I
lok kvöldsins er skipst hressilega
á skoðunum og sumum stritt
mátulega, en að endingu er svo
gesti fylgt upp á gamlan íslenskan
máta úr hlaði að bíl sínum með
þökkum.
Kæri Steingrímur, ertu virki-
lega orðin sextugur? Þessi síungi
eldhugi og kvenholli séntilmaður
verður búin að fylla sjötta áratug-
inn áður en nótt er úti.
Einhver vitur maður sagði, að
beztu ár frískrar manneskju væru
árin á milli sextugs og áttræðs,
vegna þess að á þeim aldri hafa
flestir náð að losa sig við rangt
gildismat og jafnvel eignast æðru-
leysi sem einfaldar gott og göfugt
dagfar.
DORINT- SUMARHÚSA
ÞORPIDIÞYSKALAH
Nýjasti áfangastaður Flugleiða og fjölskyldufólks á leið í sumarfrí er Dorint-sumarhúsaþorpið í nágrenni
Winterberg í Þýskalandi. Þetta eru söguslóðir Grimmsævintýranna. Sumarfrí í skógivöxnu og hæðóttu
umhverfi W/nferbergereinnigævintýrilíkast. I grenndinni er Rínardalurinn og fjölmargar spennandi
borgir: Marburg, Kassel, Dusseldorf, Köln, Bonn, Koblenz, Mainz og Frankfurt. I Dorint-sumar-
húsaþorpinu eru í boði 4 stærðir íbúða og sumarhúsa. Á svæðinu eru góð veitingahús, krá,
verslun, barnaheimili, sundlaug, sauna, Ijósaböð, tennisvellir, minigolf og keiluspil. Far-
þegar á leið í Dorínt-sumarhúsaþorpið í Winterberg geta valið um að fljúga með Flugleið-
um til Frankfurt eða Luxemborgar. Frankfurt: Rútuferðir til Winterberg. Aðeins
160 km akstursleið. Bílaleigubílar í boði, en þeir fást einnig afhentir í Winterberg.
Luxemborg: Þar eru bílaleigubílar til reiðu. Leiðin til Winterberg er fjöl-
breytt og skemmtileg. Dæmi um verð: Heildarverð fyrir 4 manna fjöl-
skyldu í 2 vikur (flug, íbúð og rútuferðir fráog til Frankf) er kr.72.608.-
en þá á eftir að draga frá afslátt vegna 2 barna (2-11 ára)
kr. 12.800.- Verðið samtals er kr. 59.808.-, eða kr. 14.952.
á mann. Flugvallar-
skattur er ekki
innifalinn.
Fjölskyldustemmning
ásöguslóðum
GrimmsoMntým
Frokari
upplysingar
um Dorlnt-
sumarhusaþorpift
i Wlnterberg veita
söluskrifstofur
Fluglelða,
umboösmenn og
ferftaskrifstofurnar