Morgunblaðið - 28.04.1985, Side 57
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. APRlL 1985
57
f umræddum sjónvarpsþætti
gafst mér ekki kostur á að svara
þessari spurningu hvað ferðalög
snertir. Alit bendir til að álíka
margir taki sér ferð til útlanda í
sumar og sl. sumar, en á síðasta
ári fóru nærri 90 þús. íslendingar
utan. Aðeins um V* þessa fjölda
fór í skipulagðar ferðir á vegum
íslensku ferðaskrifstofanna og
notfærði sér lægstu fargjöldin og
ódýra, samningsbundna gistingu.
Hinir hafa ferðast „á eigin vegum“
og án þess að notfæra sér hagstæð
samningsgjöld ferðaskrifstofanna.
Við því er ekkert að segja, og
frelsið til að ferðast hvert sem er
að eigin vild er einn af horn-
steinum frelsis og lýðræðis. Hlut-
föllin eru önnur í nágrannalönd-
unum, þar sem um 70% farþeg-
anna ferðast í skipulögðum ferð-
um og spara sér stórfé.
Ný ferðatíska —
eða Spánn mesta
ferðamannaland heims?
íslendingar eru nýjungagjarnir
og fljótir að elta tískuna frá öðr-
um þjóðum. Talað er um „ferða-
tísku íslendinga“ sem hafi mikið
breyst að undanförnu. óneitan-
lega hefur fjölbreytni í ferðalög-
um aukist mikið, jafnframt þvf að
ferðalög hafa aukist og er það vel.
Hin „nýja ferðatíska" íslendinga á
sér samt nærri engar hliðstæður
erlendis.
Sú hætta blasir við, að mark-
aðsdreifingin verði of mikil, og
rekstrareiningar of smáar, þannig
að útkoman verði óhagkvæm bæði
fyrir framleiðendur og neytendur
á jafnlitlum markaði og ísland er.
Ekki hafa verið leidd rök að þvf að
íslendingar hafi „sérþarfir“ á
ferðalögum umfram aðra ferða-
menn, nema að þvf leyti að þeir
eru öðrum kröfuharðari. Þeir eru
kröfuharðir um gott veður, góðan
aðbúnað og þjónustu, sem telja
verður f háum gæðaflokki miðað
við það sem aðrar þjóðir eiga að
venjast.
Samkvæmt skýrslu OECD var
aukning ferðamanna mest í Portú-
gal, Spáni, Grikklandi og Nýja
Sjálandi á sl. ári og f janúar stað-
festi Travel Trade Gazette að
Spánn stefndi í að verða mesta
ferðamannaland heims með ca. 44
milljónir ferðamanna á sfðasta
ári.
Eru ákveðin markaðsöfl að
verki að búa til „nýja ferðatísku"
fyrir íslendinga, sem ekki er í takt
við það sem öðrum þjóðum finnst
eftirsóknarvert: öruggt veður,
framandi og forvitnilegt mannlff,
fjölbreytni og lágt verðlag? Og
þessi tegund ferðalaga tryggir enn
háan kaupmátt krónunnar. Skipu-
lagðar þriggja vikna ferðir til sól-
arlanda með góðri gistingu kosta á
bilinu 20—30 þús. kr. Fullyrða má,
að farþeganum er spöruð önnur
eins upphæð eða meiri með hag-
stæðum samningum um flug og
gistingu. Tími er kominn til, að
þessi starfsemi sé metin að verð-
leikum. Þama er stuðlað að stór-
felldum sparnaði f þjóðfélaginu og
kjarabótum fyrir almenning. Ef
hinum 90 þús. íslendingum, sem
nú ferðast til útlanda á ári, væru
sparaðar 25 þús. kr. hverjum nem-
ur sá sparnaður á þriðja milljarð
á ári.
Ferðamannalandið
Sviss — Hvers vegna
ferðast Svisslendingar?
Varla verður því mótmælt, að
Sviss er eitt fegursta land heims.
Ferðaiðnaður er þar mjög há-
þróaður og vegir góðir. Samt ferð-
ast Svisslendingar manna mest.
Hvers vegna? Þeir kunna að ferð-
ast og velja sér leiðir og dvalar-
staði. Landið er vel staðsett og
stutt að aka til margra landa. En
Sviss er oft vætusamt og loftslagið
svalt. Þeir leita því til sólar-
stranda, bæði í Suður-Evrópu og í
/Xuglýsinga-
siminnjr22480
fjarlægar álfur — og ferðast
fljúgandi, því að það sparar tfma
og peninga.
Við eigum líka fallegt land, og
við verðum bæði meiri og betri fs-
lendingar með því að kynnast því.
En það kemur ekki f stað utan-
landsferða og þeirrar marghátt-
uðu reynslu og lífsnautnar að
kynnast heiminum og fjölbreytni
hans.
Við eigum að notfæra okkur
tekjur af erlendum ferðamönnum
út í æsar í stað þess að láta þá
vaða um landið og skilja ekkert
eftir sig, nema náttúruspjöll, eins
og nú á sér stað í stórum stíl. Að
minnsta kosti ætti að leyfa ís-
lensku ferðaskrifstofunum, sem
annast móttöku erlendra ferða-
manna, að flytja inn tollfrjáls
matvæli til jafns við þá erlendu
ferðamenn, sem koma hingað með
farartæki sín og allar vistir til ís-
landsdvalar án þess að greiða
neina tolla, skatta eða gjöld af
neinu tagi og gefa íslenskum yfir-
völdum langt nef, hlæja að kerfinu
og hverfa á braut án þess að
greiða skatt fyrir not sín af land-
inu né íslenskum vegum og veg-
leysum.
Gleðiiegt sumar og fararheill.
Reykjavík 26. apríl 1985.
Höfuudur þessarar greiaar er for-
stjóri Ferðaskrifstofunnar Útnýnar
og formaður Félags ísl. ferða-
skrifstofa.
„Nemendur" úr Hlýðniskólanum sýndu leikni sína
HLÝÐNISKÓLI HundarækUrfé-
lags íslands gekkst fyrir hlýðni-
sýningu við Félagsmiðstöðina (
Þróttheimum á sumardaginn
fyrsta.
Nokkrir „nýútskrifaðir nem-
endur“ skólans, flestir af golden
retriever-tegund, sýndu þar
leikni sína með aðstoð eigenda
sinna, við mikinn fögnuð við-
staddra. Voru hundarnir látnir
gera ýmsar hlýðniæfingar, s.s.
ganga í hringi, leggjast þétt hlið
við hlið og draga litinn poodle-
hund í kerru. Þá var Hunda-
ræktarfélagði einnig með kaffi-
sölu i félagsmiðstöðinni þar sem
menn gátu sest niöur og hlýjað
sér.
Guðrún Guðjónsen, formaður
Hundaræktarfélags íslands,
sagði i samtali við blm. að
Hlýðniskólinn hefði verið stofn-
aður sl. vetur og heföu færri
komist að en vildu á námskeið
skólans til þessa. Sagði Guðrún
að vonir stæðu til að halda
hlýðnikeppni þegar að fleiri
„nemendur hefðu útskrifast“ úr
Hlýðniskólanum.
NÝJUNG Á ÍSLANDI:
Stækkanir beint eftir skyggnum (slides)
Handunnor staekkanir stœrðir ffrá
13x18 sm til 60x90 sm.Góðir litir.
Mikil skerpa. Frábœr ending.
MÓTTÖKUSTAÐIR: REYKJAVÍK MYNDVERK: Ármúla 17a. Ljósmyndaþjónustan hf: Laugavegi 178. Ljósmynda-
vörur hf: Skipholti 31.Amatör: Laugavegi 82.Fótó-Húsið: Þingholtsstræti l.Tyli hf: Austurstræti 7.Hans Petersen hf: Bankastræti 4.
Hans Petersen hf: Austurveri. Hans Petersen hf: Glæsibæ. AKUREYRI Filmuhúsið: Hafnarstræti 106.HÚSAVÍK Ljósmyndastofa
Péturs: Stóragarði 15. ÍSAFJÖRÐUR Leo Ljósmyndastofa: Hafnarstræti 7.KEFLAVÍK Ljósmyndastofa Suðurnesja: Hafnargötu
79. SAUÐÁRKRÓKUR Ljósmyndaþjónustan: Kirkjutorgi 3. VESTMANNAEYJAR Fótó Ljósmyndaþjónusta: Strandvegi 51.
myndverk
Ármúla 17a 108 Reykjavík. Sími 91-31827