Morgunblaðið - 28.04.1985, Blaðsíða 62
SUNNO&AgUfc'ga/AjMtfL 1985 /
62
V insældas vindl?
Myndbönd
Árni Þórarinsson
Listarnir yfir vinsælustu
myndböndin á leigunum um land
allt sem DV og NT birta vikulega
verða æ undarlegri. Ég verð að
játa að því betur sem ég fylgist
með þessum listum þeim mun trú-
legra finnst mé að þeir séu ekki
alls kostar heiðarlega samansett-
ir. Þá á ég ekki við að viðkomandi
blöð falsi listana, heldur miklu
frekar að einhverjar af þeim leig-
um sem leitað er upplýsinga hjá
reyni að stýra vinsældunum með
því að tefla fram sumum spólum
frekar en öðrum. Ég vil ekki full-
yrða þetta blákalt en tilkoma
sumra mynda á þessum listum er
gjörsamlega óskýranleg með
hliðsjón af öllum venjulegum
markaðslögmálum og vinsælda-
straumum.
Ég nefndi um daginn myndina
Summer Girl sem verið hafði á
þessum listum um hríð án nokk-
urra sjáanlegra verðleika, — ann-
ars fíokks amerísk sjónvarps-
framleiðsla. Og nú í aprílmánuði
hefur haldið frekar stöðugu sæti á
lista DV mynd með titlinum The
Stranger Within. Ég hafði aldrei
heyrt hennar getið, hvorki að
góðu né slæmu, svo mér þótti for-
vitnilegt að fiska hana upp á
næstu leigu. Ekki hafa margir
tekið þessa spólu vegna spennandi
umbúða. Utaná er muskuleg mód-
elmynd af ófrískri konu. Ekki hef-
ur leikhópurinn höfðað sérstak-
lega til islenskra myndbanda-
neytenda — Barbara Eden,
George Grizzard, David Doyle Ne-
hemia Parsoff eru frambærilegir
sjónvarpsleikarar vestra en ekki
stjörnur með sérstakt aðdráttar-
afl hér. Ekki er leikstjórinn, Lee
Philips, viðurkennt stórmenni í
bandarískri kvikmyndagerð. Og
ekki er myndin splunkunýtt sýn-
ishorn af bandarískum bíómynd-
um; The Stranger Within er eld-
gömul sjónvarpsmynd, nánar til-
tekið gerð 1974.
Og efnið: Velstæð hjón hafa
árangurslaust reynt að eignast
barn, en eiginkonan þolir ekki
barneign af heilsufarsástæðum og
því lætur maki hennar „taka sig
úr sambandi“, eins og sagt er.
Skyndilega verður konan samt
ófrísk. Auðvitað grunar eigin-
manninn fyrst framhjáhald, en
frúin heldur stöðugt fram sak-
leysi sínu. Eftir því sem líður á
meðgöngutímann verður óléttan
æ torkennilegri; konan gerist sjúk
í salt og svart kaffi, hefur níst-
ingskulda í húsinu, og verður æ
önugri og undarlegri, drekkur í
sig heilu doðrantana með fingur-
gómunum og svo framvegis.
Áhorfandi er ekki lengi að koma
auga á það — og talsvert á undan
öðrum persónum — að þarna hef-
ur frjóvgun ekki átt sér stað með
eðlilegum hætti.
Það eru nokkur nýstárleg smá-
atriði í handriti Richard Mathe-
son sem skilað hefur gegnum tíð-
ina mörgum ágætum verkum
fyrir kvikmyndaiðnaðinn í Holly-
wood, einkum á sviði vísinda-
skáldskapar og furðusagna. En
The Stranger Within er samt
groddalega unnin samsuða úr
Rosemary’s Baby og Close En-
counters of the Third Kind sem
rétt dugir til að þekja tvo klukku-
tíma í óseðjandi dagskrá amer-
ískra sjónvarpsstöðva. Svo virðist
sem einhver íslenskur innflytj-
andi myndbanda hafi keypt fyrir
slikk heilan lager af þessari ódýru
og tilþrifalitlu framleiðslu úr
imbakassanum vestra síðasta
áratug eða svo og dembir honum
inn á myndbandamarkaðinn hér
með litlum upplýsingum, eins og
um nýjar bíómyndir sé að ræða. ’
Og það undarlega gerist — þetta
rusl fer inn á vinsældalista ís-
lenskra myndbandaleiga. Það
þarf enginn að segja mér, að slíkt
gerist eftir eðlilegum lögmálum
framboðs og eftirspurnar.
Stjörnugjöf: The Stranger Within *'A
Eggjakaka með osti
Glóðað brauð
Ostborgari
Fiskibakstur (gratín)
Spaghetti Bolognese
Ostbakaðar pönnukökur
Lasagne
Ostasósa
Kartöflubakstur (gratín)
Ostakex
Ostbaka (Pie)
Ostafrauð (soufflé)
Lauksúpa
Ostafondue
Ostabrauð
Kræklingabakstur (gratín)
Hvernig væri kosturinn eff enginn
væri osturinn?
Getum við t.d. hugsað okkur
Spaghetti Bolognese, ffiski-
bakstur eða ostatertu án osts?
Það er næstum óhugsandi.
Ostur er óviðjafnanlegt krydd.
Það þarff ekki endilega að
bak’ann eða bræð’ann. Ef við
notum RIVO ostariffjárnið góða
getum við riffið ostinn beint út í
súpuna, sósuna eða grænmet-
issalatið.
Betri nýting.
RIVO er kjörið áhald ffyrir allar
gerðir ffastra osta, t.d. Gouda-,
Maribo, óðals- og gráðaosta.
Með RIVO nýtirðu ostinn til ffulls.
RSTO
[N^^gTAm^ARNH
RIVO - rífur án þess að mylja ostinn
Parsons-
grautur í
sömu skál
Hljómplötur
Sigurður Sverrisson
Keats
Keats
EMI/Fálkinn
Keats er einhvers konar af-
brigði af Alan Parsons Project
og ber þess öll merki. Ekki að-
eins er tónlistin afar keimlík því
sem gerist á plötum Parsons,
heldur er yfirbragðið allt svo að
segja eins, enda stjórnar Pars-
ons sjálfur upptökum og hljóð-
færaleikararnir eru a.m.k.
nokkrir úr sveit hans. Keats er
því ekki annað en nýtt vöru-
merki fyrir sömu afurðina.
Það fer ekki hjá því að tónlist
Keats og þar af leiðandi Parsons
sé orðin dálítið klisjukennd nú
um miðjan níunda áratuginn,
eftir að hafa verið lítt eða
óbreytt svo lengi sem menn
muna. „Tempóið" í lögunum er
„sloppy" (þvílík íslenska) og all-
an ferskleika vantar í þau. Það
er engu líkara en menn séu
þarna í vinnu frá 9—5 og eitt
verkefnanna hafi verið að gefa
út þessa plötu. Andagiftin er
a.m.k. ekki til staðar. Kannski
ósanngjarnt að gera kröfur til
slíks þegar menn á borð við þá,
sem skipa Keats, eru búnir að
vera í eldlínunni i áraraðir.
Ég efast ekki um að einlægir
aðdáendur Alan Parsons munu
kaupa þessa plötu og þykja hún
góð. Að mæla með henni fyrir
aðra væri hins vegar ekkert ann-
að en ósanngirnin uppmáluð.
Dönsk gaman-
mynd í Nor-
ræna húsinu
í HAUST sýndi kvikmyndaklúbbur-
inn Norðurljós dönsku gamanmynd-
ina „Slá fsrst Frede“, en hún er
fyrsta myndin í gamanmyndaflokkn-
um um andhetjuna Frede Hansen.
Sunnudaginn 28. apríl kl. 16.00
verður sýnd önnur myndin í þess-
um myndaflokki, „Slap af Frede“.
Hún er beint framhald þeirrar
fyrri og er í sama „geggjaða
gríns“-stílnum. Frede vesalingur-
inn flækist aftur inn í hættulega
veröld njósnara, þvert gegn vilja
sínum, og lendir í hinum ótrúleg-
ustu ævintýrum.
Leikstjóri er Erik Balling, en í
aðalhlutverkum eru Morten
Grundvald, Ove Sprogoe, Dirch
Passer, Clara Pontoppidan o.fl.
Myndin er f litum og með dönsku
tali.
Aðgangskort kvikmyndaklúbbs-
ins frá því í haust gilda á sýning-
una, en auk þess verður hægt að fá
aðgöngumiða við innganginn á kr.
50.-.
(Frétutilkynning.)