Morgunblaðið - 18.05.1985, Síða 2

Morgunblaðið - 18.05.1985, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. MAÍ 1986 Verðlagshöftin hverfa: Oll hámarks- álagning afnumin — nema á olíuvörum 1. JÚNÍ næstkomandi verður af- numin hámarksálagning heildsölu og smásölu á verslunarvörum á borð við fatnað og vefnaðarvöru, bús- áhöld, járnvörur, íþróttaáhöld og sportvörur, myndavélar og sjónauka og fleira. Hefur þá verið aflétt ákvæðum um hámarksálagningu á öllum vörum nema olíuvörum, sem um gilda reglur um hámarksverð. Ákvörðun um þetta var tekin á fundi Verðlagsráðs sl. miðvikudag, að sögn Georgs Ólafssonar, verðlags- stjóra. Reglur um hámarksálagningu hafa verið afnumdar í áföngum síð- an í mars á síðasta ári, þegar aflétt var ákvæðum um hámarksálagn- ingu á matvörum í samræmi við ákvæði í málefnasamningi ríkis- stjórnarinnar. Forsenda þess að ákvæði um hámarksálagningu séu felld úr gildi er að fyrir hendi sé nægileg samkeppni í viðkomandi grein, sagði verðlagsstjóri. Ekki er ljóst hve mikil áhrif þess- ar aðgerðir hafa haft á vöruverð en þó er talið, að einstaka vörutegund- ir hafi heldur lækkað í verði. „Það er of snemmt að segja til um hver áhrifin hafa orðið,“ sagði Georg Ólafsson, „en Verðlagsstofnun mun að sjálfsögðu áfram halda uppi verðgæslu með verðkönnunum og fleiri aðgerðum, auk þess sem fylgst verður með samkeppni í verslun og þjónustu.“ Fulltrúar verkalýðshreyfingar- innar í Verðlagsráði hafa greitt at- kvæði gegn því að hámarksálagning sé afnumin. BHMR reynir að fá kjaradómi hnekkt — og höfðar mál fyrir Félagsdómi LAUNAMÁLARÁÐ Bandalags háskólamanna (BHMR) mun á næstunni höfða mál fyrir Félagsdómi til að fá hnekkt nýgengnum dómi Kjaradóms um laun og starfskjör BHM-félaga í opinberri þjónustu. Launamálaráðið fer með málið fyrir hönd tveggja aðildarfélaga sinna, Stéttarfélags lögfræðinga í ríkisþjónustu og Kjarafélags verkfræðinga, sem hafa óskað eftir heimild til að hefja málareksturinn. Formlega er réttur til slíks í höndum beildarsam- takanna. Þessi tvö félög, sem og fleiri félög innan BHMR, telja sig ekki geta unað niðurstöðu Kjaradóms og telja auk þess, að dómurinn hafi ekki farið að lögum við uppkvaðningu dóma um sérkjarasamninga félag- anna á dögunum, að því er Birgir Björn Sigurjónsson, hagfræðingur BHMR, sagði f samtali við blaða- mann Mbl. Félögin telja að Kjaradómur hafí ekki farið aö lögum með því að taka ekki fullt tillit til ákvæða um að Dagur ljóðsins í DAG er dagur Ijóðsins og munu Ijóðskáld lesa upp Ijóð sín í Iðnó á tímabilinu frá klukkan 14 til 16. Á Akureyri hefst hins vegar lestur Ijóða í Sjallanum klukkan 17. Enn- fremur verður Ijóðalestur í nokkrum sjúkrahúsum. í Reykjavík verður upplestur í Iðnó og hefst hann kl. 14. Eftirtal- in skáld munu lesa þar: Einar Bragi, Einar Ólafsson, Jóhann Hjálmarsson, Ingibjörg Haralds- dóttir, Matthías Johannessen, Nf- na Björk Árnadóttir, Sigfús Bjartmarsson, Sigurður Pálsson, Steinunn Sigurðardóttir, Vilborg Dagbjartsdóttir, Þorsteinn frá Hamri, Þór Eldon og Þórarinn Eldjárn. Á Akureyri verður upplestur í kjallara Sjallans og hefst hann kl. 17. Þar munu eftirtalin skáld lesa ljóð sín: Bragi Sigurjónsson, Brynjólfur Ingvason, Einar Kristjánsson, Eirfkur Stefánsson, Guðlaugur Arason, Guðmundur Frímann, Kristján frá Djúpalæk, Kristján Pétur Sigurðsson, Krist- ján Arngrfmsson, Jón Laxdal, Martin Næs, Nick Cariglfa, ólöf Sigríður Valsdóttir, Sigurður Ing- ólfsson, Skafti Helgson og Sigurð- ur Pálsson. Eftirtalin skáld munu skipta sér niður á Landspítala, Hrafnistu og Kleppspitala: Dagur, Elísabet ->orgeirsdóttir, Gylfi Gröndal, Jón rá Pálmholti, Kristfn Bjarnadótt- r, Sigmundur Ernir Rúnarsson, Porri Jóhannsson, Þóra Jónsdóttir og Þórarinn Eldjárn. ríkisstarfsmenn skuli hafa sam- bærileg laun og þeir, sem starfa hjá einkafyrirtækjum, og að ekki hafi verið tekið efnislega á öllum þeim gögnum, sem lögð voru fram í mál- unum. „Þetta var afgreitt í ráðinu fyrr í vikunni enda vitað af ókyrrð f fíeiri félögum," sagði Birgir Björn. „Við munum ræða við forystumenn þess- ara félaga á næstu dögum en ég geri ráð fyrir að málið fari hratt af stað strax í næstu viku.“ Kjarafélag verkfræðinga hefur ákveðið, eins og fram kom f Mbl. nýlega, að segja sig úr BHMR vegna óánægju með niðurstöðu Kjara- dóms í máli félagsins gegn fjár- málaráðherra. David Steel, leiðtogi Frjálslynda flokksins í Bretlandi (fyrir miðju), við komuna til Reykjavíkur í ger. David Steel við komuna tO Reykjavíkur: Frjálslyndir orðnir næst- stærsti flokkur Bretlands Situr hér fund framkvæmdastjórnar Alþjóðasambands frjálslyndra „VIÐ böfum sótt mjög á bæði gagnvart íhaldsflokknum og Verkamanna- flokknum og samkvæmt síðustu skoðnakönnunum erum við í öðru sæti, aðeins hálfu prósenti fyrír neðan Verkamannaflokkinn en talsvert fyrir ofan íhaldsflokkinn. Nú njótum við stuðnings um þriðjungs kjósenda, sem er veruleg aukning frá síðustu þingkosningum." Þannig komst David Steel, leið- togi Frjálslynda flokksins í Bret- landi að orði í gær, er hann var spurður um stöðu flokk síns f brezkum stjórnmálum nú. Steel er kominn til íslands ásamt ýms- um kunnum stjórnmálamönnum úr röðum frjálslyndra flokka víða um heim í því skyni að sitja hér fund framkvæmdastjórnar Al- þjóðasambands frjálslyndra (Lib- eral International), sem fram fer f Reykjavík nú um helgina. Þetta er fyrsti fundur fram- kvæmdastjórnar Alþjóðasam- bands frjálslyndra á Islandi, síð- an Framsóknarflokknum var veitt aðild að sambandinu 1983. Þetta er samband frjálslyndra lýðræðisflokka úr öllum heimin- um. Nú eiga 32 frjálslyndir stjórnmálaflokkar aðild að sam- bandinu. Tólf af þessum flokkum eiga aðild að ríkisstjórninni f löndum sínum, þ. e. í Vestur- Þýzkalandi, Frakklandi, ítalfu, Hollandi, Belgíu, íslandi, Austur- ríki, Finnlandi, Danmörku, ísra- el, Sviss og Panama. Helztu umræðuefni fundarins hér verða staða frjálslyndra flokka gagnvart stjórnmálastefn- um til hægri og vinstri, tengsl Al- þjóðasambands frjálslyndra við pólitisk öfl f Bandaríkjunum, stjórnmálaþróun í Mið- og Suð- ur-Amerfku og undirbúningur ársþings Alþjóðasambands frjálslyndra, sem haldið verður f Madrid í október nk. Auk David Steels sækja ýmsir kunnir stjórnmálamenn fundinn nú. Þeirra á meðal eru ítalski þingmaðurinn Giovanni Malag- odi, sem er forseti Alþjóðasam- bands frjálslyndra, Helmut Scháfer, talsmaður Frjálslynda- flokksins f Vestur-Þýzkalandi f utanríkismálum, Pár Olav Sten- báck, leiðtogi Sænska þjóðar- flokksins í Finnlandi og fyrrver- andi utanríkisráðherra þar f landi, Hans Rossbach, formaður Vinstri flokksins í Noregi, Anton- io Garrigues, forseti Parti Ref- ormista Democratica á Spáni og Mordechai Virshubski, leiðtogi Shinui-flokksins í ísrael. Af hálfu Framsóknarflokksins sækja fundinn m.a. Steingrfmur Hermannsson forsætisráðherra, en hann er einn af varaforsetum Alþjóðasambands frjálslyndra. 1000 Lakes Economy Run f Finnlandi: Bensínstífla kom í veg fyrir sigur Jóns og Ómars BRÆÐURNIR Jón og Ómar Ragnarssynir tóku nýlega þátt í 1000 Lakes Economy Run, sparaksturskeppni, sem haldin var í Finnlandi. Eftir fyrri dag keppninnar voru þeir í fyrata sæti, en urðu að hætta keppni daginn eftir er bfllinn sem þeir óku bilaði. Alls tóku áttatfu og nfu bilar frá fjölmörgum Evrópulöndum þátt í ýmsum flokkum í sparakst- urskeppninni. Þeir Jón og ómar óku Daihatsu Charade. Þegar keppendur höfðu lokið fyrri hluta leiðarinnar voru stigin reiknuð út og kom þá f ljós að bræðurnir voru í fyrsta sæti. Bifreið Þeirra hafði eytt að meðaltali 4,357 lítr- um af hundraði. Næsti bill, einnig Daihatsu, eyddi 4,399 lítrum á Jón og Ómar Ragnaresynir við Daihatsu bflinn rétt áður en keppnin hófst hundraði, en þriðji bíllinn eyddi 4,634 Iftrum. „Eftir að keppni hófst daginn eftir og við höfðum ekið þrjár leiðir þá stoppaði bíllinn skyndi- lega,“ sagði Jón Ragnarsson f samtali við Morgunblaðið. „Nú, og við urðum bara að hætta. Vélarlokið er innsiglað fyrir keppnina og ekkert hægt að gera við. Það sem þessu olli var bens- ínstífla í aukabensíntanki. Þessi aukatankur er smíðaður sérstak- lega og er hægt að taka hann úr bflnum og vigta. Einhver óhrein- indi hafa leynst I tanknum og sf- an orðin full, svo bfllinn stoppaði. Reyndar höfðum við einnig orðið varir við þetta daginn áður. Þetta var alveg grátlegt og kom flatt upp á marga því við vorum í ffnu formi. Það kom t.d. i ljós að þegar líða tók á nóttina eyddu bilarnir meiru. Það var vegna þess að menn voru orðnir þreyttir og ekki eins vandvirkir. Þetta kom hins vegar ekki fyrir hjá okkur því við erum ýmsu vanir úr „Sumargleðinni" o.fl. Ég er alveg sannfærður um að við hefðum haldið fyrsta sætinu hefði þetta ekki komið fyrir,“ sagði Jón. Nafn manns- ins sem lést í Norðurárdal MAÐURINN, sem lést þegar bif- reið valt skammt fyrir ofan bæinn Hvamm í Norðurárdal í Borgar- firði, hét ófeigur Baldursson, lög- reglumaður á Akureyri. ófeigur heitinn var 45 ára gamall, ættaður frá ófeigsstöðum í Köldukinn. Hann varð lögregluþjónn á Akur- eyri árið 1967 og síðastliðin 10 ár hefur hann starfað sem rannsókn- arlögreglumaður, þar af yfir rann- sóknardeild lögreglunnar á Akur- eyri síðastliðin 4 ár. Ófeigur Baldursson lætur eftir sig eiginkonu og dóttur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.