Morgunblaðið - 18.05.1985, Síða 13

Morgunblaðið - 18.05.1985, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. MAÍ1985 13 3. tbl. Veru ÚT ER komið þriðja tölublað Veru á þessu ári. í þessari nýju Veru er gluggað í málefni unglinganna, ekki síst stelpnanna. Starfsmenn unglingaheimila og athvarfa spjalla saman um tilveru ungl- inganna og það, sem þeim þykir einkum einkenna veröld krakk- anna. í grein um kynlíf er veifað réttinum til að segja nei. í annarri grein um skólamál er vakin at- hygli á þeirri mismunun sem strákar og stelpur verða fyrir í skólanum og í enn einni grein í þessum málaflokki er fjallað um tónlistarkonuna Cyndi Lauper. Kvennaráðgjöfin fjallar að þessu sinni um hjúskaparslit og sambúðar. Samtal er við Guðrúnu Ágústsdóttur og fjallað er um borgar- og þingmál. (Úr fréttatilkynningu.) lívað fiíu krakkamír? Hynlíf: að vegja ngf? Cyndi I rnper er mgirt öarbie. Er Ufid fi\kur? — eða iurðarber? Ég er kona, því orti ég um líf konunnar Hlýja skugganna Ljóðabók eftir Sigfús Bjartmarsson MÁL og menning hefur sent frá sér ljóðabókina Hlýja skugganna eftir Sigfús Bjartmarsson. Er það önnur ljóðabók Sigfúsar, en sú fyrri hét „Út um lensportið" og kom út árið 1979. í bók Sigfúsar skiptast á stuttar ljóðmyndir og lengri frásagnar- ljóð. Hann leitar víða fanga og sum ljóð hans eru einskonar skáldlegur vitnisburður um ferðir hans til Rómönsku-Ameríku og fleiri framandi landa. Ljóð Sigfús- ar eru tregablandin án þess að vera neitt svartagallsraus og hann reynir að höfða ekki síður til vitsmuna en tilfinninga. Hlýja skugganna skiptist í þrjá hluta með eftirmála. Kápu hann- aði Hilmar Þ. Helgason, en Þórar- Sigfús Bjartmarsson inn öskar Þórarinsson tók mynd- ina aftan á henni. Bókin er 76 bls. að stærð og unnin að öllu leyti í prentsmiðjunni Hólum. Fréttatilkynning Einskonar höfuðlausn Ljóðabók eftir Gyrði Elíasson NÝLEGA sendi Mál og menning frá sér ljóðabókina Einskonar höf- uðlausn eftir Gyrði Elíasson. Þetta er þriðja ljóðabók Gyrðis en hann hefur áður sent frá sér bæk- urnar „Svarthvít axlabönd“ (1983) og „Tvíbreitt (svig)rúm“ (1984). Gyrðir er tilraunamaður í skáldskap. Ljóð hans segja ekki sögu heldur bregða upp leiftur- myndum úr hugarheimi nútímans. Tungutak hans er í samræmi við þetta einskonar „skipulegt ofbeldi gagnvart venjulegu talmáli", en það er stundum talið aðall nú- tímaljóðlistar. Gyrðir leikur sér að margs konar klisjum úr tækni- heimi og borgarmenningu og legg- ur auk þess mikið upp úr umgjörð ljóðanna, svo segja má að þau séu myndir í tvenns konar merkingu, bæði hvað varðar innihald og út- lit. Einskonar höfuðlausn er 44 bls., unnin að öllu leyti í Prentsmiðj- unni Hólum. Mynd á kápu er eftir Sigurlaug Elíasson en Teikn hann- aði kápuna. (Fréttatilkynning.) Rætt við skáldið og rithöfundinn Hall- disi Vesaas, ekkju Tarjei Vesaas, en hún er nú stödd hér á landi Hvað gerir ljóð að góðu ljóði? Það er nú það, ég veit það varla, segir skáldkonan, en það er mikilvægt að Ijóðiö segi eitthvað — sé meira en orðin tóm. Halldis Moren Vesaas heitir hún, skáld og rithöfundur, norsk, komin á efri ár og ekkja hins ást- sæla rithöfundar Tarjei Vesaas. Hún er nú stödd á íslandi í þriðja sinn á ævinni, kom fyrst 1938, og hún undrast yfir þeim stakka- skiptum sem Reykjavík hefur tek- ið: Þessi litli bær, sem var, orðinn að nútíma stórborg, segir hún, með rismikinn vegvísi, áttavita, í henni miðri, og augun sýna að hún á við kirkjuna á Skólavörðuholt- inu, og það rennur upp fyrir blaða- manni að Hallgrímskirkjuturninn fer að verða tákn Reykjavíkur, rétt eins og Eiffel-turninn er nán- ast fólginn í merkingu orðsins „París“. Hún býr í Norræna hús- inu, þar sem hún las úr ljóðum sínum sl. sunnudag. Hún fer aftur til Noregs um helgina. Fyrsta ljóðabók Halldisar Vesa- as kom út árið 1929, þegar hún var 21 árs gömul, og vakti bókin þegar mikla eftirtekt — ekki síst vegna þess hversu ljóð hennar voru rík af þeirri tilfinningu „að vera kona“: Ég orti um lífið, segir hún sjálf, og líf konunnar einfaldlega vegna þess að ég er kona. Það var ekki beinlínis af ásettu ráði, sam- kvæmt „prógrammi". Viðfangsefni fyrstu ljóðabóka Halldisar voru ástin og hamingj- an, en með heimsstyrjöldinni síð- ari breyttist tónninn: Ljóðin verða Halldis Vesaas f garði Norræna hússins. Morgunbladid/RAX alvarlegri, og hún spyr hvers kon- ar vera maðurinn sé — annars vegar geti hann valdið tortímingu og dauða, og hins vegar sýni mennimir ótrúlegan náungakær- leik og samstöðu, þegar á bjátar. Stríð og alvarlegir hlutir setja mark sitt á öll skáld og rithöf- unda, segir hún, og ég var engin undantekning. Eftir Halldisi liggur fjöldi bóka í óbundnu máli, barnabækur, ævi- sögur — hún ritaði m.a. ævisögu eiginmanns síns og rithöfundarins Svens Moren — og bækur um líf þeirra hjóna saman. En það eru áratugir síðan hún hætti að yrkja að ráði, eða eins og hún orðar það sjálf: Eg hætti ekki; ljóðin hættu að koma. En hvers vegna? Það er ekki gott að segja. Kannski hafði ég ort allt sem mér bara að yrkja. Halldís ferðast mikið um heim- inn og les úr verkum sínum, en þess á milli ver hún tímanum mest í þýðingar á leikritum fyrir Norska leikhúsið. Þessa stundina er hún að glíma við Fást. Maður lærir mikið á því að þýða, segir hún, en segist ekki þýða mikið af ljóðum, eins og hún gerði á yngri árum. Skömmu eftir síðari heimstyrjöld komu út í Nor- egi þýðingar hennar á ljóðum Da- víðs Stefánssonar. Halldis Vesaas er viðkunnarleg kona að spjalla við, það skín af henni rósemi og friður, og hún svarar spurningum jafnt með þögninni sem orðum. Agi ljóðsins hvílir yfir henni ennþá, þótt ljóðin „komi ekki lengur“. PARTÝ-GRILL úti og inni Djörf nýjung í matargerö Griliaö á 1, 2, 3 hæöum meö gæöum einskonar höfuð lausn gyrðir eliassqn MAL &MBMNTWG GLOEY HF Aripúla 19 -128 Reyklavik - Pústhóll 8010 - Simi 81620

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.