Morgunblaðið - 18.05.1985, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. MAÍ 198fr
Að túlka lög
— úrsögn úr BSRB
— eftir Kára
Arnórsson
Dagana 2. og 3. maí síðastliðinn
fór fram atkvæðagreiðsla á vegum
Kennarasambands íslands um úr-
sögn úr BSRB.
Ljóst er að mikill meirihluti
(rúm 68%) þeirra sem afstöðu
tóku til úrsagnar hafa samþykkt
að segja sig úr BSRB. f 7. grein
laga BSRB er áskilið að til þess að
úrsögn sé gild þurfi % hluta
greiddra atkvæða. Ekkert er tekið
fram um að auða seðla eða ógilda
skuli telja til þeirra atkvæða er
niðurstöðu ráði. Fyrir því er held-
ur ekkert fordæmi í neinum kosn-
ingum. Auður seðill er ógildur
samkvæmt öllum almennum laga-
skýringum og getur af þeim
ástæðum ekki haft vægi til fram-
dráttar öðru hvoru sjónarmiðinu.
Að skila auðum seðli í atkvæða-
greiðslu er aðgerð í kosningu. Sú
aðgerð felur í sér að viðkomandi
tekur ekki afstöðu. Auður seðill
hefur þá aðeins það vægi að geta
tryggt að nægilegur fjöldi taki
þátt í kosningu svo að hún sé
lögmæt, en hefur engin áhrif á
niðurstöður. Nú var það ekki svo f
þessari atkvæðagreiðslu að krafist
væri ákveðinnar þátttöku svo að
auðu seðlarnir skipta heldur ekki
máli þar.
Þegar hlutfall kjörfylgis fram-
boðslista í kosningum til Alþingis
er reiknað út og þingsætum út-
hlutað, er aðeins tekið mið af gild-
um atkvæðum. Sá sem skilar auð-
um seðli hefur fyrirfram sætt sig
við ákvörðun meirihlutans. Eins
og fram kemur í þingsköpum
BSRB 9. grein er fram tekið að
auðir seðlar skuli ekki teljast
greidd atkvæði. Þingsköp eru m.a.
nánari reglur um tilhögun kosn-
inga. Nú er heimilt samkvæmt
lögum BSRB að greiða atkvæði um
úrsögn á aðalfundi eða þingi við-
komandi félags. Þar ráða þing-
sköp. Það hlýtur að teljast næsta
óeðlilegt að það skipti máli með
hlutfall atkvæða um úrsögn hvort
um er að ræða kosningu á þingi
eða allsherjaratkvæðagreiðslu.
Því er fyllilega eðlilegt að tekið sé
mið af þingsköpum í þessu tilfelli.
Af framansögðu er ljóst að
Kennarasambandi íslands ber að
líta á niðurstöður kosningar fé-
lagsmanna sem gilda úrsögn úr
BSRB þar eð meira en % hlutar
þeirra sem afstöðu tóku til máls-
ins hafa greitt úrsögn atkvæði.
Engin ástæða er fyrir stjórn KÍ
að óska gerðardóms í þessu máli
Kári Arnórsson
„Auður seðill er ógildur
samkvæmt öllum al-
mennum lagaskýringum
og getur af þeim ástæð-
um ekki haft vægi til
framdráttar ööru hvoru
sjónarmiðinu.“
þegar svo skýr vilji mikils meiri-
hluta félagsmanna liggur fyrir.
Höfundur er skólastjóri
Fossrogsskóla.
Lætur af störfum
eftir 40 ára starf
SkagaHtröad, 17. aai.
Þriðjudagskvöldið 14. maí var
Höfðaskóla slitið. í vetur voru í
skólanum 142 nemendur, 10 fast-
ráðnir kennarar og 4 stundakenn-
arar.
f skólaslitaræðu Jóns Pálsson-
ar kom fram að Elínborg Jóns-
dóttir er nú að hætta kennslu
eftir að hafa kennt við Höfða-
skóla i 40 ár. Þakkaði Jón Elín-
borgu heilladrjúg störf í þágu
skólans og færði henni bókargjöf
frá samkennurum hennar. Einn-
ig flutti oddviti Höfðahrepps,
Adolf Berndsen, ræðu og færði
Elínborgu bækur frá hrepps-
nefnd Höfðahrepps. Svo skemmti-
lega vill til að á fjörutíu ára
starfsferli sinum hefur Elínborg
kennt flestum samkennara sinna
og einnig bæði skólastjóranum
og oddvitanum.
Eftir að Elínborg hafði verið
heiðruð kom stjórnarformaður
Kaupfélags Húnvetninga í ræðu-
stól og tilkynnti stórgjöf Kaup-
félagsins til skólans. Var það
tölvubúnaður með tölvu, mynd-
skjá, diskettudrifi, prentara og
öllum tengibúnaði. Verðmæti
þessa búnaðar mun vera um 70
þús. kr. og er hann gefinn f til-
efni af ári æskunnar og einnig
vegna þess að Kaupfélagið verð-
ur 90 ára á þessu ári.
Þaö er ótrúlegt hvað góðir hjólbarðar eins og
BRIDGESTONE gera fyrir bílinn.
Með BRIDGESTONE fæst frábært vegggrip,
rásfesta og mikið slitþol. Tryggðu öryggiþitt og
þinna settu BRIDGESTONE undir bílinn — þeir
iást hjá hjólbarðasölum um land allt.
BILABORG HF.
Smiðshöfða 23, Sími 81299
Tiiiiuuestuiie
GERIR GÓÐAN BIL BETRI!
Bygging nátt-
úrufræðisafns
Blaðinu hefur borist eftirfarandi
frá áhugahóp um byggingu nátt-
úrufræðisafns:
Staða málanna nú:
Fullkomið, alhliða náttúru-
fræðisafn er ein helsta
menningarmiðstöð hverrar þjóð-
ar. Safn sem sýnir, fræðir og kem-
ur okkur í snertingu við lífið sjálft
og umhverfi þess, jörðina. En til
þess að slíkt safn sé starfi sínu
vaxið þarf það, eins og aðrar
menningarstofnanir, aðstöðu, út-
búnað og nægilegt starfslið.
Sýningarsalur Náttúrufræði-
stofnunar Islands, eins og hann
heitir nú, er á 90 m‘ gólffleti á 3.
hæð á óaðgengilegum stað og vita
fæstir af tilveru hans. Aðstaða
starfsmanna til að sinna þörfum
safnsins hefur alltaf verið afar
slæm. Þessu til samanburðar má
hugsa sér, að Þjóðminjasafnið,
Þjóðarbókhlaðan, Listasafn ís-
lands eða Þjóðleikhúsið hefðu 90
m2 gólfflöt til þess að sýna allt
sem þessar stofnanir hafa fram að
færa og aö hljómleikasalur Sin-
fóníuhljómsveitarinnar væri ekki
stærri. Húsakostur þessara stofn-
ana er þó síst of mikill.
Þetta aðstöðuleysi veldur því, að
þjóðin fer á mis við mikilvæga
fræðslu um náttúru landsins og
náttúruvernd og kemur það ekki
síst niöur á skólaæsku landsins.
Auk þess ber að minnast þess, að
erlendir ferðamenn heimsækja ís-
land vegna hinnar sérstæðu nátt-
úru landsins, en hafa nú mjög
takmarkaða möguleika til að nýta
sér þá upplifun til fulls.
Frá áramótum hefur starfað
hópur áhugamanna um byggingu
Náttúrufræðisafns sem væri sam-
boðið íslensku þjóðinni. Hann hef-
ur skoðað sögu þessa máls, rætt
þarfirnar frá ýmsum sjónarhorn-
um og samið greinargerð um
hvernig fyrirhugað safn ætti að
vera og starfa. Þessa greinargerð
er hópurinn að kynna ýmsum aðil-
um um þessar mundir.
Hvað er nú til ráöa?
Að við öll, einstaklingar, fjöl-
skyldur, fjölmiðlar, fyrirtæki,
stofnanir, sveitarfélög, náttúru-
gripasöfn um landið allt, Reykja-
víkurborg, Alþingi og ríkisstjórn,
sameinumst nú sem einn maður
og hrindum þessu mikilvæga máli
í framkvæmd og það sem fyrst.
Þetta verði forgangsmál, því að
hér er um grundvallarmenning-
arstofnun að ræða, sem við mun-
um geta sótt alls konar afþrey-
ingu, fróðleik og hagnýtar upplýs-
ingar til. Auk þess að hjálpa okkur
til að skilja listaverk íslenskrar
náttúru og vernda þau, verður
þetta okkar sterkasta landkynn-
ing í orðsins fyllstu merkingu.
Tökum höndum saman og leys-
um þetta mál.
Á meöan viö bíöum ...
kynnum við þessi mál á ýmsan
hátt síðasta sunnudag hvers mán-
aðar, nema þá sé stórhátíð. í slík-
um tilfellum verður kynningin
næsta sunnudag á undan. Þá mun-
um við fá í lið með okkur ýmsa
aðila til þess að kynna eins og
kostur er hluta af fyrirhuguðu
náttúrufræðisafni.
Einnig verður náttúrufræðidagiir
árlegur viðburður. Fyrsti náttúru-
fræðidagurinn verður haldinn
sunnudaginn 19. maí. Með þessu
vonumst við til að glæða áhuga og
skilning á þessu brýna þjóðþrifa-
máli okkar íslendinga, sem eigum
alla tilveru okkar undir náttúru
landsins.
(Frí ihugahóp um byggingu
nittúruíræðisafns)
Steinþór Eiríksson
sýnir í Hamragörðum
„ÉG MÁLAÐI fyrstu mynd mína
árið 1926. Þá var ég 11 ára gamall.
Ég bélt síðan áfram að mála þar til
ég var um tvítugt en þá tók við
alvara lífsins og ég varð að fara að
vinna fyrir heimili þannig að ég
lagði málverkið á hilluna," segir
Steinþór Eiríksson sem í dag, laug-
ardag, opnar sýningu á 45 olíu-
myndum í Hamragörðum í Reykja-
vfk. Steinþór hefur lengst af verið
búsettur á Egilsstöðum þar sem
hann var fréttaritari Morgunblaðs-
ins um áratugaskeið. Hann verður
sjötugur á þessu ári og kveðst
halda málverkasýninguna í tilefni
af afmælinu.
„Nei, ég hef aldrei lært neitt,
— átti þess aldrei kost að stunda
listnám. Ég byrjaði með vatns-
liti en eignaðist svo olluliti árið
1933 og hef notað þá upp frá því.
Ég starfaði sem vélvirkjameist-
ari á Egilsstöðum milli 20 og 30
ár, en svo gerðist það árið 1966
að ég varð öryrki vegna liðakölk-
unar í mjöðmum. Þá tók ég til
við að mála fyrir alvöru. Mér
datt reyndar aldrei i hug að
nokkur vildi kaupa myndirnar
mínar, en kunningjar mínir voru
að hvetja mig til að halda sýn-
ingu á þeim. Það var eiginlega
fvrir orð vinar míns, Guðgeirs
Agústssonar hjá Samvinnu-
tryggingum, að ég réðst í það að
halda sýningu hér Hamragörð-
um árið 1973 og þá seldist hver
einasta mynd. Það var til þess að
ég fór að taka þetta alvarlega og
þetta mun vera 19. einkasýning
mín. Flestar sýningarnar hafa
verið haldnar á Austurlandi. Ég
vil nú ekki bera mig saman við
mikla listamenn — kannski má
segja að ég sé liðtækur leikmað-
ur. Én tilgangur minn hefur allt-
af verið sá að reyna að gera bet-
ur og betur,“ sagði Steinþór Ei-
ríksson. Langflestar myndanna
eru af landslagi á Austurlandi.
Sýning Steinþórs stendur fram
yfir hvítasunnu.