Morgunblaðið - 18.05.1985, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. MAÍ 1985
45
sjóðinn næstu árin og málinu
haldið vakandi innan UMSB. En
það var skilyrði fyrir styrkveit-
ingu úr sjóðnum að skólinn yrði á
heitum stað.
Svo er það árið 1941, að Staf-
holtstungnahreppur kaupir spildu
úr Laugalandi ásamt hitaréttind-
um fyrir skóla, kirkju og aðrar
opinberar byggingar. Árið eftir
gefur hreppurinn land og hita til
stofnunar húsmæðraskóla en með
þeim skilyrðum að barnaskóli fái
samsvarandi réttindi, ef af stofn-
un hans yrði. Húsmæðraskóli
Borgfirðinga tekur síðan til starfa
árið 1946 og er staðurinn þá skírð-
ur Varmaland en fram að þeim
tíma var yfirleitt talað um
Veggjahver.
Arið 1945 er haldinn fundur í
Borgarnesi með skólanefndum,
sýslunefndarmönnum, oddvitum
og Bjarna M. Jónssyni, náms-
stjóra. Þessi fundur benti á 3
lausnir í skólamálum hreppa í
Mýrasýslu. Fyrsta tillagan gekk í
þá átt að byggður yrði einn heima-
vistarskóli fyrir alla hreppana á
heitum stað.
Málið var síðan kynnt í hrepp-
unum og að lokum samþykktu all-
ir hrepparnir að taka þátt í bygg-
ingu heimavistarbarnaskóla að
Varmalandi.
Þá samþykkti sýslunefnd árið
1946 að styðja málið og lagði til
nokkra fjárupphæð.
Næstu árin er málið í höndum
fræðsluráðs Mýrasýslu, sem sækir
nokkrum sinnum um fjárfest-
ingarleyfi fyrir byggingunni.
Þessum umsóknum er ailtaf synj-
að, síðast í maí 1951.
En árið 1950 er kosið nýtt
fræðsluráð, sem i eiga sæti: Anna
Brynjólfsdóttir, sr. Bergur
Björnsson, Daníel Kristjánsson,
Leifur Finnbogason og sr. Leó
Júlíusson. Það heldur sinn fyrsta
fund í júní 1951 ásamt sýslu-
manni, oddvitum, námsstjóra o.fl.
Þar er ákveðið að hefjast handa
við skólabygginguna og eftirtaldir
menn kosnir í bygginganefnd: Sr.
Bergur Björnsson, Jón Stein-
grímsson, sýslumaður, og Andrés
Eyjólfsson, alþingismaður í Síðu-
múla. Fjárfestingarleyfi fékkst þá
um sumarið og í ágúst er sam-
þykkt að byggja skólann eftir
teikningum Sigvalda Thordarson.
Byggingameistari var ráðinn
Kristján Björnsson í Steinum.
Hafist var handa af fullum krafti
vorið 1952 og var byggingin fok-
held fyrrihluta vetrar 1952—’53.
Síðan er unnið með litlum hléum
allt þar til í apríl 1955 að henni
telst að mestu lokið. Kostnaðar-
áætlun var upp á 2 millj. króna.
Hrepparnir gerðu með sér
samning um byggingu og rekstur
skólans sem enn gildir. Hvað
stofnkostnað varðar greiða hrepp-
ar eftir íbúafjðlda að einum
fjórða, gjaldendafjölda að einum
fjórða og tekju- og eignaskatti að
hálfu. Rekstrarkostnaður er
greiddur eftir barnafjölda að
hálfu og tekju- og eignaskatti að
hálfu.
Haustið 1954 er svo ráðnir að
skólanum þeir ólafur Ingvarsson
sem skólastjóri og Bjarni Andrés-
son sem kennari. Fyrsti kennslu-
dagur var 6.des. en vegna fram-
kvæmda gat kennsla ekki hafist
fyrr. Þá var í skólanum heimavist-
arrými fyrir 52 bðrn, 3 kennslu-
stofur og tvær kennaraíbúðir og
ein lítil íbúð fyrir matráðskonu.
Miðað var við að 4 nemendaár-
gangar sæktu skólann, 2 árgangar
í senn og dvöldu nemendur 13 vik-
ur í skólanum í einu.
Vígsla skólans fór svo fram 21.
maí 1955 og er þeirra tímamóta
minnst nú. Var þetta mikil hátíð
með kórsöng og ræðuhöldum, þar
sem menntamálaráðherra, Bjarni
Beqfdiktsson, talaði meðal ann-
ars, en sr. Bergur Björnsson,
prestur í Stafholti, vigði skólann.
Þá flutti Halldór Helgason, skáld
á Ásbjarnarstöðum skólanum
kvæði.
En þótt að þessum mikilvæga
áfanga væri náð þurfti brátt að
huga að frekari framkvæmdum.
Gömul og ófullkomin sundlaug
var við Veggjahver og var brátt
hafist handa við byggingu nýrrar,
sem vígð var árið 1959. Þá varð
fljótlega ljóst að auka varð heima-
vistarrými vegna fjölgunar bekkj-
ardeilda. Árið 1964 var byrjað á
nýrri heimavistarálmu og komst
hún í gagnið veturinn 1966—’67.
Voru þar herbergi fyrir 24 nem-
endur og ennfremur skólastjóra-
íbúð og setustofa. Þá voru og
byggðir kennarabústaðir á árun-
um 1974—’77.
Árið 1972 var byrjað á byggingu
íþróttahúss og félagsheimilis. Var
fyrst hafist handa við byggingu
baðklefa við sundlaugina en síðan
við sjálft íþróttahúsið. Er þvi nú
svo til lokið. Er þar um að ræða
einhverja bestu aðstöðu til
íþróttaiðkana i sveit á landinu. En
auk þess að vera íþróttahús er það
félagsheimili fyrir 4 hreppa og
hefur hlotið nafnið Þinghamar.
Þá standa nú yfir framkvæmdir
við nýja mötuneytisbyggingu, sem
vonandi tekst að ljúka á næsta ári
auk þess sem í þeirri byggingu
hafa verið teknar í notkun íbúðir
fyrir kennara, húsvörð og ráðs-
konu.
Nú eru alls 9 fastráðnir kennar-
ar við skólann og stundakennarar
8. Nemendur eru 139 á aidrinum
6—14 ára frá 80 heimilum. Vegna
heimavistarfyrirkomulagsins er
um nokkuð skerta skólasetu að
ræða. Reynt er að draga úr áhrif-
um hennar með heimanámsað-
stoð. Fara kennarar þá milli heim-
ila og aðstoða nemendur.
Vart verður svo við þetta mál
skilist, að ekki sé getið þáttar
Daníels heitins Kristjánssonar,
fyrrum skógarvarðar á Hreða-
vatni. Hann sat í fyrstu skóla-
nefndinni og varð síðan formaður
hennar til 1978. Það er víst óhætt
að segja, að hann hafi aldrei spar-
að tíma eða fyrirhöfn þegar um
málefni skólans var að ræða. Að
öllum öðrum ólöstuðum var hann
sá, sem mest mæddi á.
Skólastjórar við skólann hafa
aðeins verið 3 á þessu tímabili.
Eins og áður sagði var ólafur
Ingvarsson fyrst ráðinn skóla-
stjóri og var hann til ársins 1965.
Þá tók Valgeir Gestsson við skóla-
stjorn og var til 1975, en þá tók við
stjórn skólans Vigþór H. Jörunds-
son. Ýmsir fleiri hafa starfað
lengi við skólann s.s. kennararnir
Jón Hermannsson og Guðlaugur
Torfason og matráðskonan Elísa-
bet Jónsdóttir.
Formenn skólanefndar frá upp-
hafi hafa verið þeir sr. Bergur
Björnsson, þá Daníel Kristjánsson
og núverandi formaður er Davíð
AAalsteinsson, alþingismaður.
Fréttaritari.
Viltu losna við bakverkinn
og eymslin í hálsinum?
Pá skaltu reyna heilsudýnu og -kodda frá
Bay Jacobsen, viðurkennda framleiðslu sem skilar
ótrúlegum árangri.
Dýnan sér um að dreifa
þunga líkamans í svefninum,
þannig að blóðstreymi haldist
jafnt um allan skrokkinn, hún
heldur góðum hita á bakinu og
hefur notaleg nuddáhrif á
vöðvana.
Ummál: 70/80/90x190 cm.
Þykkt: Aðeins 3 cm og því
leggst hún ofan á dýnu sem
fyrir er.
Þyngd: 1,9 kg.
Verð: 3.260.- kr.
r'
Vinsamlegast sendið mér:
□ .....stk. heilsudýnu, breidd ..
□ ....stk. kodda á kr. 1.390.-
NafiL_____________________________
Koddinn tryggir höfðinu
og hálsinum rétta hvíldarstöðu
og réttur þéttleiki ásamt
góðum hita gerir það að
verkum að þú vaknar með
slaka háls- og axlarvöðva eftir
góðan nætursvefn.
Ummál: 45x55 cm.
Þykkt: 9-11 cm.
Verð: 1.390.- kr.
. cm x 190, á kr. 3.260,-
Simanr.
Heimili;
Póstnr.:
Sveitarfél.
Klippið seðilinn út og sendið með pósti til: Bústoð Pðsthólf 192 230 Keflavík
V____________________________________________________________________________________________y
Hvernig vœri að slá til strax í dag og senda okkur
útfylltan pöntunarseðilinn og við sendum þér vöruna
um hæl ípóstkröfu. 14 daga skilafrestur.
DREIFING
AlSLANDt
BUSTQÐ
Sími: 923377
230 Keflavík
.......
VTNNINGAR DREGNIR ÚT 3. JÚNÍ
OG AFTUR
500
VINNINGAR 10. JÚNÍ.
AÐAL VINNINGAR DREGNIR ÚT 17. JÚNÍ.
BÍLLÁRSINS, OPEL KADETT,
HLAUT EINNIG VIÐURKENNINGUNA
„GULLNA STÝSIÐ 1985“
11BÍLAR
5 DR„ 1,3 L, 60 HA.
OG
SEM AÐ AUKl HLAUT ÖRYGGISVERÐLAUN
AFPA: „PRIX DE LA SÉCURITÉ\
HAPPDRÆTTI
SLYSAVARNAFÉLAGS ÍSLANDS
9 OPEL KADETT GL
2 OPEL KADETT GSI
I