Morgunblaðið - 21.05.1985, Blaðsíða 4
Undanúrslit bandaríska körfuboltans:
Celtics tapaði fjórða
leiknum gegn 76ers
BOSTON Cettics og Phila-
delphia 76ers mættust tvívegis
um helgina • úrslitum austur-
deildar NBA ( körfuknattleík og
unnu liöin sitt hvort leikinn.
Báöir leikirnir fóru fram í Phila-
delphia. Boston vann fyrri leikinn
á laugardag 105:94 og þar meö
haföi liöiö unniö þrjá sigra en
Philadelphia engan. En á sunnu-
dag vænkaöist hagur síöar-
nefnda liösins er þaö sigraöi
Boston, meistarana frá því í
fyrra, 115:104. Staöan því sam-
anlagt 3:1 fyrir Boston en þaö liö
sem vinnur fleiri leiki af sjö kemst
í úrslitaleikinn.
Þaö hefur aldrei gerst í sögu
NBA-deildarinnar aö liö sem
komiö er 0:3 undir í undanúrslit-
um hafi komist í úrslit og aöeins
fjórum sinnum hefur þaö gerst
aö liö sem er 1:3 undir samanlagt
hafi komist i úrslit.
j fyrri leiknum, á laugardag,
skoraöi Larry Bird 26 stig fyrir
Celtics, Danny Ainge geröi 17,
Robert Parish 14, Kevin McHale
14. Parish tók 13 fráköst í leikn-
um.
Julius Erving, besti maður
Philadelphia alla jafna, skoraöi
aöeins fimm stig í leiknum, en
Larry Bird gætti hans eins og sjá-
aldurs auga síns i þessari viöur-
eign. Andrew Toney var stiga-
hæstur heimamanna með 26
stig, Charles Barkley geröi 23
stig og Moses Malone 18, en
þess má geta aö Malone tók flest
fráköst í leiknum, 18.
Andrew Toney varö aftur
stigahæstur Philadelphia-leik-
mannanna i siöari viðureigninn
er liö hans sigraöi. Hann geröi 26
stig og Maurce Cheeks 22. Phila-
delphia hafði forystu allan tím-
ann. Þetta var í fyrsta skipti í fjór-
um viöureignum liöanna sem
leikmönnum Philadelphia-liösins
tókst aö hafa hemil á Larry Bird.
Hann skoraöi „aöeins“ 14 stig í
leíknum en meöalskor hans i
fyrstu þremur leikjunum haföi
veriö 24,3 stig í leik. Stigahæstur
Celtics-leikmannanna var Kevin
McHale meö 25 stig. Dennls
Johnson geröi 19.
AP/Sfmamynd
• Á götum Rainers prins í Mónakó vann Frakkinn Alain Prost sinn átjénda sigur í Formula 1-kappakstri um helgina. Ók hann McLaren sínum til
sígurs eftir spennandi keppni, en mikiö var um óhöpp á brautini vió Monte Carlo.
Vann með tóman tank!
— Frakkinn Alain Prost sigraði í Monaco-kappakstrinum um helgina
HANN var sannarlega lánsamur
Frakkinn Alain Prost í Monte
Carlo Formula 1 kappakstrinum í
Monaco um helgina. Hann sigraði
á McLaren Porsche, en þaö mátti
ekki tæpara standa því keppn-
isbíll hans kom meö tóman bens-
íntank í markl „Þessi sigur hjálp-
ar mór til aó gleyma því aö ég var
dæmdur Irá keppni á Ítalíu fyrir
tveim vikum eftir aö hafa komið
fyrstur í mark. Keppnin um
heimsmeistaratililinn er núna
fyrst aö veróa hörö og það er Ijóst
aö McLaren, Lotus og Ferrari
veröa toppbílarnir," sagói Prost
eftir sigurinn.
Italir rööuðu sér í næstu sæti á
eftir Prost. Michel Alboreto á Ferr-
ari varö annar, Elio de Angelis á
Lotus Renault þriöji og Andrea de
Cesaris kom honum næstur. Er
greinilegt aö hinir blóðheitu Italir
hafa bæöi djörfung og hug auk
aksturstækni til aö ná árangri í
kappakstri. Er ekki ólíklegt aö Itali
geti oröiö heimsmeistari í ár, en
eftir Monoco-kappaksturinn er El-
io de Angelis meö forystu í stiga-
keppninni meö 20 stig, Prost hefur
18 stig sem og Michel Alboreto.
Óhöpp settu svip á Monaco-
kappaksturinn og strax í rásmark-
inu óku þrír keppnisbílar saman.
Arrows-bíll Gerhard Berger og
Renault Patrick Tamaby nudduö-
ust saman, og lentu aftan á Ferrari
Svians Stefan Johansson. „Bíllinn
var eins og ormur á brautinni eftir
höggiö sem hann fékk viö árekst-
urinn og lét ekki aö stjórn. Hann
kastaöist upp í loft og festingar á
afturfjööruninni brotnuöu. Viö
reyndum aö lagfæra bílinn en þaö
var vonlaust og ég hætti eftir einn
hring. Þaö er ekkert eins sárt og
aö veröa aö hætta í byrjun, en þaö
er mikil hætta á óhöppum í rás-
markinu þegar 20 bílar æöa af
staö á ööru hundraöinu," sagöi
Stefan um atvikiö.
Patrick Tambay neyddist einnig
til aö hætta eftir óhappiö. En þeir
félagar voru ekki einir um það, því
árekstrar og útafkeyrslur uröu
margar áöur en hringjunum 78 var
lokiö, aöeins 11 af 20 luku keppni.
Brasilíumaöurinn Ayrton Senna
náöi forystu i byrjun og virtist ætla
aö skilja keppinautana eftir þegar
vélin bræddi úr sér í tólfta hring,
en slíkt er ekki algengt í Ferrari-
keppnisbílunum. Landi hans Al-
boreto tók forystuna, en keppnin
um næstu sæti var hörö. I sautj-
ánda hring reyndi Brasilíu-
maöurinn Nelson Piquet aö kom-
ast fram úr Ricardo Patrese, en sá
síöarnefndi hindraöi þaö meö því
aö aka í veg fyrir Piquet, löglega
þó. Brabham Piquet lenti á grind-
verki við brautina og afturfjöðrunin
hrundi og eldglæringar stóöu aftur
úr bílnum, Patrese fór einnig út af
og skemmdi bílinn. Fyrir aftan þá
snerist Jaques Laffite heilan hring
er hann foröaöist aö aka á hlutina,
sem flogið höföu af árekstrarbil-
unum. Nokrum andartökum síöar
tapaöi Alboreto forystunni er hann
lenti í olíupolli, sem bílarnir höföu
skiliö eftir á brautinni. En sex
hringjum síöar náöi hann aftur for-
ystunni af Prost á McLaren, sem
ók þó vel. Félagi hans hjá McLar-
en, Niki Lauda, fór útaf og lenti á
dekkjabakka, sem varnaöi því aö
bíllinn lenti á svæöi áhorfenda, en
billinn stórskemmdist og hann datt
út.
Prost náöi aftur forystu þegar
Alboreto fór inn á viögeröarsvæð-
iö til aö láta skipta um dekk í 32.
hring. Viö þaö lenti hann í fjóröa
sæti á eftir de Angelis og de Ces-
aris, en tókst aö skríöa fram úr
báöum áöur en yfir lauk. Prost hélt
þó fyrsta sætinu óáreittur og gat
slakaö á undir lokin, sem var hon-
um kærkomiö því brautin var orðin
hál vegna bleytu.
„Þegar Alboreto komst fram úr
mér vissi ég aö ég gat bara beðið
eftir bilun eöa óhappi,“ sagöi
Prost. „Þetta var spurning um aö
biöa tækifæris og þegar aftur-
dekkin hjá Alboreto skemmdust
vissi ég aö sigurinn yröi auöveld-
ur.“ Prost lauk keppni meö tóma
bensíntanka og olían lak af vélinni.
Bretinn Nigel Mansell varö hepp-
inn aö fljúga ekki útaf er hann lenti
í óliupolli undan bíl Prost á 260 km
hraöa. Bíll hans strauk varnargirö-
ingu en slapp án skemmda. Fyrr-
um heimsmeistara, Finnanum
Keke Rosberg á Williams Honda,
tókst í fyrsta skipti i langan tíma aö
Ijúka keppni, en varö þó aftarlega
á merinni.
Unnar Stefánsson skoraói eina
mark leiksins á Ólafsfiröi.
Ósann-
gjarnt
á Olafs-
firði
NJARÐVÍKINGAR sóttu dýrmæt
stig til Ólafsfjaróar á sunnudag,
er þeír sigruöu Leiftur, 1—0, í 2.
deildarkeppnínní í knattspyrnu.
Þessi úrslit voru í hæsta máta
ósanngjörn eftir gangi leiksins,
en þaö eru jú mörkin sem ráöa og
því fór sem fór. Jafnræói var á
meö lióunum í fyrri hálfleik, en
Leiftur tók öll völd á vellinum í
þeim síóari og sótti látlaust en
uppskar ekki mark. Njarövíkingar
Leiftur — UMFN
0:1
skoruóu strax á þriöju mínútu
leiksíns og þar vió sat.
Markiö kom eins og áöur segir á
3. mín. Tekin var hornspyrna og
skoraöi Unnar Stefánsson, fallegt
skallamark, gjörsamlega óverj-
andi. Liöin skiptust á aö sækja þaö
sem eftir var fyrri hálfleiks, en
hvorugu liöinu tókst aö skapa sér
hættuleg marktækifæri.
Síöari hálfleikurínn var algjör-
lega eign Leiftursmanna, þeir sóttu
án afláts en ekkert gekk upp viö
mark Njarövíkinga. Vörn þeirra var
föst fyrir og var varla um neitt
marktækifæri aö ræöa i hálfleikn-
um.
Njarövíkingar héldu fengnum
hlut, með góðri baráttu og brutu
bókstaflega allar sóknaraögeröir á
bak aftur.
Úrslit leiksins voru því í hæsta
máta ósanngjörn og hefði Leiftur
átt skiliö öll stigin þrjú úr þessum
leik, en ef ekki er hægt aö koma
knettinum yfir marklínuna er ekki
gott viö því aö gera.
Leikurinn var ekki vel leikinn og
var baráttan í fyrirrúmi. Nýliöarnir i
Leiftri eru því enn án stiga í deild-
inni, eftir tvo leiki.
Veöur var hiö besta meöan á
leiknum stóö, 15 stiga hiti og sól,
en leikurinn ekki í samræmi viö
veöriö.
Ekki er hægt aö fjalla um neinn
leikmann öörum fremur, því leik-
menn voru mjög jafnir aö getu í
báöum liöum.
— JÁ/VBJ