Morgunblaðið - 22.05.1985, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ 1985
7
Tæplega 4 millj. farþega til
og frá Lúxemborg í 30 ár
— í dag eru liðin 30 ár frá fyrsta Lúxemborgarflugi Loftleiða/Flugleiða
ÞRJÁTÍU ár eru í dag, 22.
maí, liðin frá fyrsta flugi
Loftleiða/Flugleiöa til Lúx-
emborgar. Loftferðasamn-
ingur milli íslands og Lúx-
emborgar var gerður nokkru
áður. Alls hefur félagið flutt
tæplega 4 n illjónir farþega
til og frá Lúxemborg á þessu
tímabili. Fyrsta árið sem
flogið var þangað voru fluttir
589 farþegar, í ár er gert ráð
fyrir að þeir verði 285 þús-
und. í sumar lenda þotur
Flugleiöa 19 sinnum í viku á
Findel-flugvelli í Lúxemborg,
sem nýlega hefur verið
stækkaður. Einar Aakrann
hefur annast skrifstofustjórn
á skrifstofu félagsins í Lúx-
emborg allt frá opnun í maí-
mánuði 1955, en Einar er
norskur að uppruna.
Fram til þess að Lúxem-
borgarflugið hófst hafði félag-
ið stundað nokkurt leiguflug
yfir Atlantshaf, m.a. með inn-
flytjendur frá Suður-Evrópu
til Suður-Ameríku. Heimleiðis
var flogið með ávexti, sem
seldir voru á íslandi. Reglu-
bundið áætlunarflug yfir Atl-
antshaf hófst svo árið 1952.
Þegar Lúxemborgarflugið
hófst vorið 1955 var flogin ein
ferð í viku, en bæði var, að
flutningar til og frá Lúxem-
borg voru þá litlir, og einnig
var Skymaster DC-4-flugvélin
ekki nógu hagkvæm, miðað við
þau fargjöld sem í gildi voru.
Skymaster-flugvélarnar höfðu
fyrst 44 sæti og síðan var sæt-
um fjölgað og tóku þær þá 60
farþega. Það var ekki fyrr en
Cloudmaster DC-6-B-flugvél-
ar, sem voru mun hagkvæmari
í rekstri, voru teknar í notkun
á þessum leiðum, að flug til
Lúxemborgar varð arðvæn-
legt, segir í fréttatilkynningu
frá Flugleiðum í tilefni af 30
ára afmælinu.
í fréttatilkynningunni segir
ennfremur: „Fyrir 30 árum
var flugvöllurinn í Lúxemborg
lftið notaður, enda ekkert
flugfélag starfandi í landinu.
Forráðamenn höfðu þó mikinn
áhuga á flugstarfsemi og voru
opnir fyrir öllum möguleikum
þar að lútandi. Þeir lögðu því
engar hömlur af neinu tagi á
slíkt flug varðandi fargjöld
eða tíðni ferða. Loftleiðir
höfðu í ársbyrjun 1953 auglýst
lægri fargjöld yfir Atlantshaf
en önnur áætlunarfélög, þar
eð nokkuð var tekið að þrengja
að félaginu í Þýskalandi og
einnig á Norðurlöndum.
í fyrstu ferð til Lúxemborg-
ar var flogið frá íslandi til
Hamborgar 21. maí 1955, en
daginn eftir til Lúxemborgar,
þar sem tekið var á móti
flugvél, áhöfn og gestum með
viðhöfn. Flugmálaráðherrar
landanna fluttu ræður þar
sem þeir létu í ljósi ósk um
langa og góða samvinnu, sem
báðum þjóðum yrði til ávinn-
ings. Þykir mönnum nú, 30 ár-
um síðar, sem orð þessi hafi
komið fram.“
Nýleg útboð Vega-
gerðarinnar:
Lægstu til-
boð rúmlega
70 % af áætlun
NÝLEGA voru opnuð tilboð í tvcimur
útboðum Vegagerðar ríkisins. Lægstu
tilboð í þessi verk voru rúm 70% af
kostnaðaráætlun vegagerðarinnar. Er
það nokkuð hærra en verið hefur í
útboðum vegagerðarinnar í vor en
lægstu tilboð hafa farið niður í þriðj-
ung af kostnaðaráætlun og oft verið
um helmingur af áætlun.
Þrettán verktakar buðu í styrk-
ingu 25 km af Austurlandsvegi um
Víðidal og Möðrudal. Ellefu boð
voru undir kostnaðaráætlun og var
lægsta tilboðið 70,5% af áætlun, en
það var upp á 2.180 þús. og kom frá
Afli á Vopnafirði. Kostnaðaráætlun
hljóðaði upp á 3.092 þúsund kr.
Tak hf. í Búðardal bauð lægst í
styrkingu 9,3 km. kafla af Vestur-
landsvegi í Norðurárdal, 2.717 þús.
kr. Tilboð Taks er 71,5% af kostn-
aðaráætlun sem er 3.800 þúsund kr.
Tónlistar-
skóli Árnes-
sýslu 30 ára
Selfoss, 21. maí.
TÓNLISTARSKÓLI Árnessýslu og
tónlistarfélag sýslunnar verða 30 ára
á þessu ári. I tilefni afmælisins verða
haldnir afmælistónleikar i íþróttahús-
inu á Selfossi miðvikudaginn 22. maí
kl. 20.30.
Á afmælistónleikunum verður
minnst 30 ára afmælis tónlistarfé-
lagsins og Tónlistarskóla Árness-
ýslu. Á dagskrá tónleikanna verður
saga tónlistarskólans flutt af Páli
Lýðssyni.
Flutt verður verk eftir Hallgrím
Helgason fyrir fiðlu, selló og píanó
og verða flytjendur auk Hallgríms
Pétur Þorvaldsson og Þorvaldur
Steingrímsson. Jónas Ingimund-
arson mun Ieika einleik á píanó
Már Magnússon syngur einsöng við
undirleik Jónasar Ingimundarson-
ar. Kór Fjölbrautaskólans mun
syngja og Lúðrasveit Selfoss leikur
einnig. Kjartan óskarsson mun
leika einleik á klarinett við píanó-
undirleik Jónasar Ingimundar-
sonar. Sigrún Gestsdóttir syngur
einsöng við undirleik Björgvins Þ.
Valdimarssonar. Loks mun Einai
Magnússon leika einleik á píanó.
Sig. Jóns.
Daun Eifel sumarhúsin hafa reynst meö afbrigdum vel, enda leitun
aö vandaörl sumardvalarstaö. Ræði er glstiaðstaöan einstök og nágrenniö
sérstaklega spennandi. Þar má nefna Móseldalinn með hinni fornu róm-
versku verslunarborg Trier og gullfallegum bæjum eins og Cochem, Enkirch
eða Bernkastel, Eifelvötnin meö sólbaös- og íþróttaaðstöðu, dýragaröa, hina
heimsfrægu kappaksturbraut Niirburgring og hinn slórkosllega skemmli-
garö Fantasíuland með gullgrafarabæ. Kínahverfi, breiðstræti frá Berlín,
víkingaskipum og óteljandi öörum tryllitækjum og skemmtiatriðum.
Það er líka meö ólíkindum ódýrl aö lifa í Daun Eifel.
Brottfarir: Alla sunnudaga frá 31. mars.
Eeröatilhögun: Flogiö til Lu.xemborgar. paöan er um 2ja klst. akstur til Daun
Eifd. A Continental bílaleigunni liggja frammi leiðbeiningar um leiðina á
íslensku. Þaö er hvergi auðveldara að leggja út í Evrópuferðina en í
Luxemborg.
Dvalartími: 1—4 vikur.
Verö: án bílaleigubíls frá kr. 14.437 - meö bílaleigubíl frá kr. 15.692 -
Barnaafsláttur: 2—11 ára fá kr 6.500,- íafslátt.
DAUN EIFEL er margfalt betri en veröiö gefur til kynna.
Feröaskrifslofan Úrval viö AuslurvöU, sími (9D-26900. w QOTT FÓLK