Morgunblaðið - 22.05.1985, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ 1985
19
Vörn fyrir
Dynjanda
— eftir Eirík
Bjarnason
Höfuðdjásn Vestfjarða og raun-
ar einn fegurstur foss á Islandi
hefur mátt sæta því að vera rang-
nefndur eða uppnefndur oft á tíð-
um hin síðari ár og það af beztu og
skilríkustu mönnum.
Þorsteini sál. Jósefssyni þeim
mæta manni varð það á í bók sinni
Landið þitt, 1. útg. Hafði hann þó
næmara auga og eyra en margur
annar fyrir fögrum nafngiftum og
hversu örnefni eru iðulega samof-
in landi, þjóð og sögu.
Hallgrími Jónassyni rithöfundi
og ferðagarpi blöskraði svo þessi
árátta að uppnefna Dynjanda og
kalla Fjallfoss, að hann tók sér
penna í hönd til varnar Dynjanda
og birti í Tímanum, 29. jan. 1978:
„Náttúrudjásn í hættu“. Ég tek
mér bessaleyfi og vitna í þessa
grein Hallgríms: „Fossinn Dynj-
andi í Arnarfirði er sem náttúru-
gersemi og það sama fyrir Vestur-
land og Gullfoss er Suðurlandi og
Seljalandsfoss og Skógarfoss eru
Eyjafjallasveitunum." — „Dynj-
andi er gimsteinn í náttúruríki
landsins." — „Þegar ég var bárn
sá ég mynd af þessu vatnsfalli. Þá
hét það Dynjandi." — „Megi svo
Vestfirðingar og þjóðin öli ávallt
njóta fegurðar og áhrifa þessa
næstum óviðjafnanlega náttúru-
fyrirbæris, sem Dynjandi í Arnar-
firði er.“
Svo fórust Hallgrími Jónassyni
orð.
Sízt mun Hallgrím hafa órað
fyrir því, að svo hrapallega færi,
sem nú er komið á daginn. Sjálft
Náttúruverndarráð (NVR) hefur
nú tekið af öll tvímæli og illu heilli
sett upp fagurlitað skilti við Dynj-
anda og á er letrað skýrum stöfum
Fjallfoss.
Mig uggir að einhverntíma hefði
verið send sending að vestan af
minna tilefni, hvað þá fyrir aðra
eins óhæfu, meðan þar voru menn
sem eitthvað kunnu fyrir sér.
Fróðlegt væri að vita hvaðan
NVRi kemur vitneskja um þessa
nafngift og þá hvenær Dynjandi
var sviptur nafni.
Það er ekki einasta, að Dynjandi
sé einn fegurstur fossa. Hann ber
einkar fagurt nafn, sem honum
hefur verið sett af óskeikulli
smekkvísi og næmri tilfinningu
fyrir máli og náttúru. Sama má
reyndar segja um fjöldann allan
af vestfirzkum örnefnum. Hvað
segja menn t.d. um annesin: Kóp-
ur, Barði, Göltur, Öskubakur, Rit-
ur, Kögur? Finnst nokkrum sem
smekklausir menn hafi komið þar
við sögu?
I vestfirzkri sóknarlýsingu frá
1839 (höf.: séra Sigurður Jónsson,
Hrafnseyri) segir svo: „Þegar
komið er inn með þessu fjalli, er
komið í hinn vestari botn fjarðar-
ins að þeim bæ, sem heitir iTynj-
andi, hver eð dregur nafn af stór-
um fjallfossi árinnar, sem rennur
hjá bænum.“ (Ath.: fjallfoss er hér
samheiti, ritað með litlum staf.
Sóknalýsingar Vestfj. II bls. 19,
útg. Rvík 1952.) Hér er það sem sé
svart á hvítu. Á máli klerksins
margfróða heitir fossinn afdrátt-
arlaust Dynjandi.
„Mig uggir að ein-
hverntíma hefdi verið
send sending að vestan
af minna tilefni, hvað
þá fyrir aðra eins
óhæfu, meðan þar voru
menn sem eitthvað
kunnu fyrir sér.“
Svo hefur fossinn þótt aðsóps-
mikill, að ekki einungis bærinn
sem undir honum stóð bar nafn
hans. Áin, sem hann verður í, heit-
ir Dynjandisá og fellur af Dynj-
andisheiði í Dynjandisvog. Þor-
valdur Thoroddsen telur, að foss-
inn dragi nafn sitt a dunum mikl-
um, sem jafnan heyrast frá fossin-
um, þegar hann fer dynjandi niður
hlíðina stall af stalli. „Dunandi
fossinn kallar þig til sín; hann
breiðir fram af bergi hvítan
skrúða," segir í Hulduljóðum Jón-
asar.
Á kyrru kvöldi má heyra dyn
hans langar leiðir, meira að segja
handan fjarðar. Og ekki lætur
hann minnst að sér kveða á vorin,
þegar hann brýtur af sér vetrar-
fjötrana, ryður fram klakastíflum
og ísflykki byltast og endastingast
með dunum og dynkjum niður
bergstallana og með svo miklum
fyrirgangi, að fólki varð ekki
svefnsamt í bænum undir fossin-
um.
En hvenær var Dynjandi skírð-
ur upp? Spyr sá, sem ekki veit. Ég
læt ósagt við hverja kunni að vera
að sakast, en víst er, að hér hefur
hörmulega og óhönduglega til tek-
ist, að ekki sé meira sagt.
Dynjandi hét fossinn í munni
prófastsins, föður Jóns Sigurðs-
sonar. Dynjandi heitir hann á
bókum Þorvaldar Thoroddsen
(Lýs. ísl. I bls. 321, mynd nr. 56).
Dynjandi heitir hann á máli Arn-
firðinga og velflestra Vestfirð-
inga. Dynjandi er hann nefndur á
frímerki, sem út var gefið 1935. I
Arnardalsætt er heilsíðumynd af
fossinum Dynjanda í Arnarfirði
(mynd nr. 4, I. bindi). Ekki vissi
Hallgrímur Jónasson betur en
fossinn héti Dynjandi frá önd-
verðu.
Þá heitir Dynjandi foss einn í
Jökulfjörðum norður og einnig
bær, sem ber nafn hans.
Dynjandi heitir og foss í Víði-
dalsdrögum eystra. Báðir hinir
síðastnefndu fossar eru áþekkir
dynjanda í Arnarfirði ásýndum,
þótt ekki séu þeir jafningjar hans
að mikilleik og prúðu yfirbragði.
Getur tilviljun ein ráðið, að þess-
um fossbræðrum hefur verið valið
eitt og sama nafn? Nei, það held
ég sé af og frá. Hér hafa málhagir
menn og smekkvísir lagt orð í
belg. Snjallari nafngift mun vand-
fundin. Treystir sér einhver að
andmæla því?
Til þess að auka enn á fegurð
sína og sundurgerð hefur Dynj-
andi getið af sér fimm fossa, sem
hver heitir sínu nafni: Hundafoss,
Dynjandi I Arnarfirði.
Strokkur, Göngumannafoss, Hrís-
vaðsfoss og Sjóarfoss (Bæjarfoss).
Von mín er sú, að Dynjandi megi
ávallt bera tignarheitið sem hon-
um sómir og verði ætíð öldnum og
óbornum til unaðsbóta. Ég særi
NVR til þess að reka af sér slyðru-
orð, fella þessa níðstöng og senda
út í hafsauga, en setja upp nýtt
skilti og betrumbæta þann veg, að
Dynjanda verði þar ekki ofaukið.
NVR getur með engu móti vikist
undan því, öðru verður ekki unað.
Skylt er í þessu sem öðru að hafa
heldur það er sannara reykist.
Höíundur er augnlæknir í Reykja-
rík.
STOPP!
Nú ættirðu að renna við
og skoða notaða bíla í rúmgóðum
og björtum sýningarsal okkar.
Mikið úrval góðra og notaðra bfla
BÍLATORG
„Neöst í Nóatúni
eru vidskiptavinir okkar
efstir á blaði."
NÓATÚNI 2 ■ SlMI: 621033
Það eru bílarnir frá MITSUBISHI
sem eru vinsælastir hérlendis
Samkvæmt skýrslu Hagstofunnar er mest seldi bíllinn:
MITSUBISHI
GALANT B* LANCER B* COLT
TREDIA m* SPACE WAGON
PAJERO B* L-300
Dómgreind
blfreidaelgenda bregst ekki!
•¥ Þeir vita að MITSUBISHl verk-
smiðjurnar eru ávallt í fararbroddi
varðandi tæknibúnað og hönnun
sinna bíla.
w* Þeir vita að MITSUBISHI fram-
leiðir trausta bíla, sem halda verð-
gildi sínu við endursölu.
»> Þeir vita að MITSUBISHI sér inní
ókomna tíð og að frá þeim koma
hugmyndirnar, sem eiga eftir að
skapa framtíðarbílinn
H HEKIA HF
J.Laugavegi 170 -172 Sirni 21240
PRISMA