Morgunblaðið - 22.05.1985, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ 1985
37
Jafnréttis- og
fjölskyldumál
LANDSFUNDUR Sjálfstæðisflokksins var í brennidepli í
aprflmánuði. Þessa fundar hafði verið beðið með nokkurri
eftirvæntingu og urðu þar líflegar umræður. Fjöidi álykt-
ana var samþykktur og hefur þeim flestum verið gerð góö
skil í fjölmiðlum. Landsfundur og ályktanir hans móta
stefnu flokksins í hinum ýmsu málaflokkum. Kjarninn í
stefnu Sjálfstæðisflokksins er að hver einstaklingur hafl
frelsi og skilyrði til að njóta hæfileika sinna og atorku.
Baráttan fyrir einstaklingsfrelsi og jöfnum möguleikum
karla og kvenna fer því saman.
Á fundinum var eftirfarandi ályktun samþykkt:
Ályktun um jafnréttis- og til skólanna. Við þessu þarf að
fjölskyldumál samþykkt á 26.
landsfundi Sjálfstæðisflokks-
ins 1985.
Sjálfstæðismenn vilja
standa vörð um heimilið, —
hornstein samfélagsins.
Heimilið er og verður mikil-
vægasti uppeldisstaðurinn en
á undanförnum árum hefur
uppeldi og mótun einstakl-
inganna færst í æ ríkari mæli
bregðast á þann hátt að efla
samstarf heimila og skóla.
Brýna þarf fyrir foreldrum
nauðsyn þess, að taka virkan
þátt í skólastarfi barna sinna.
Auka þarf fræðslu í skólum
um jafnrétti og jafna ábyrgð
kynjanna. Landsfundurinn
fagnar starfi hóps á vegum
menntamálaráðherra sem
vinnur m.a. að tillögum um
Frá ísafirði
Landsþing á ísafirði
15. LANDSÞING Landssambands sjálfstæðiskvenna verður
haldið á ísaflrði dagana 7. til 9. júní nk. Á þinginu verður
fjallað um efnið: „Nútímakonan, heima og heiman“. Fjögur
erindi verða flutt: Esther Guðmundsdóttir fjallar um konur í
forystuhlutverki, Geirþrúður Charlesdóttir fjallar um mennt-
unarmöguleika kvcnna, Oddrún Kristjánsdóttir um konur og
atvinnulíf, og Ragnheiður Ólafsdóttir um réttindi heimavinn-
andi fólks.
Sjálfstæðiskvennafélag ísa-
fjarðar bauðst til að sjá um
framkvæmdahlið þessa lands-
þings og ákvað stjórn LS að
taka því tilboði. Voru stjórn-
arkonur sammála um að eðli-
legt væri að reyna að halda
landsþing utan Faxaflóasvæð-
isins.
Síðastliðið haust var haldinn
fulltrúaráðsfundur LS í Val-
höll á Þingvöllum. Tókst sá
fundur mjög vel og voru þar
samþykktar ýmsar ályktanir
og fimm þeirra gefnar út í sér-
stökum bæklingi, „Stefnu-
mörkun fyrir framtíðina", sem
dreift var í fimm þúsund ein-
tökum.
Sjálfstæðiskonum um allt
land er bent á, að þær geta sótt
þetta landsþing þótt ekki sé
starfandi félag sjálfstæðis-
kvenna í þeirra heimahéraði.
Anna Borg, framkvæmdastjóri
LS, (sími 91-82900 og 91-82779
kl. 9—12 virka daga) veitir all-
ar nánari upplýsingar og henni
þarf að tilkynna þátttöku fyrir
17. maí nk.
samfelldan skóladag og skóla-
máltíðir.
Efnahagslegt öryggi varðar
fjölskylduna miklu og vinna
verður að því markmiði að ein
dagvinnulaun standi undir
eðlilegri framfærslu meðal-
fjölskyldu. Líta ber jöfnum
höndum á konur og karla sem
fyrirvinnu fjölskyldunnar. Á
vinnumarkaðinum eiga konur
og karlar að njóta sömu rétt-
inda og sömu laun á að greiða
fyrir jafnverðmæt og sam-
bærileg störf. Stefnumótun
aðila vinnumarkaðarins um
jafnrétti kynjanna mundi
stuðla að því að uppræta kyn-
bundin launamun. Skatta-
reglur verði þannig að skatt-
byrði heimilisins fari ekki eft-
ir því hvernig fyrirvinnur þess
skipta með sér verkum við öfl-
un tekna.
Landsfundur Sjálfstæðis-
flokksins bendir á nauðsyn
þess að atvinnulífið taki fullt
tillit til þess, að foreldrar bera
jafna ábyrgð á börnum sínum.
Réttinda hverskonar sem
tengjast heimili og fjölskyldu
eiga því bæði karlar og konur
að njóta. Það er hagur at-
vinnulífsins að ganga til móts
við þróun samfélagsins með
sveigjanlegan vinnutíma og
hlutastörf. Mikilvægt er að
hið opinbera gangi á undan
með góðu fordæmi í þessum
efnum.
Meta þarf heimilisstörf sem
reynslu í hliðstæðum störfum
á almennum vinnumarkaði.
Heimavinnandi fólk njóti bóta
frá Tryggingastofnun ríkisins
og lífeyrisréttinda til jafns við
aðra vinnandi þjóðfélags-
þegna. Við uppbyggingu dag-
vistaraðstöðu fyrir börn þarf
að taka tillit til mismunandi
þarfa og huga að fjölbreyttum
möguleikum til að mæta þeim.
Leggja þarf áherslu á að mis-
munandi rekstrarform verði
viðurkennd og geti starfað
hlið við hlið.
Launamunur milli karla og
kvenna er enn við lýði þrátt
fyrir að konum og körlum séu
með lögum tryggð sömu laun
fyrir sömu vinnu. Áríðandi er
að karlar og konur njóti sömu
réttinda á öllum sviðum.
Sjálfstæðismenn leggja
áherslu á að konur séu hvatt-
ar til virkari þátttöku við
mótun samfélagsins og hafna
þeirri leið að beitt sé tíma-
bundnum forréttindum.
Launamunur karla og
kvenna stafar m.a. af einhæfu
náms- og starfsvali stúlkna.
Nauðsynlegt er því að hvetja
þær til að sækja inn á fleiri
brautir. Námskynningar og
kynningu á uppbyggingu ís-
lensks atvinnulífs þarf að efla
í skólum landsins. Sérstaka
áherslu verður nú að leggja á
fræðslu um áhrif tækni- og
tölvubyltingarinnar, þannig
að þær breytingar styrki
stöðu kvenna á vinnumarkað-
inum.
Við lok kvennaáratugar
Sameinuðu þjóðanna er ljóst
að mikilvægir áfangasigrar
hafa unnist. Brýnasta bar-
áttumál næstu ára er afnám
launamisréttis milli kynj-
anna. Að því máli verða karl-
ar og konur að vinna hlið við
hlið. Einstaklinga á að meta á
grundvelli hæfileika þeirra en
ekki kynferðis.
Einstaklingsfrelsi er jafn-
rétti í reynd.
Launamál kynjanna
— staðreyndir
LANDSSAMBAND sjálfstæöis-
kvenna hvetur sjálfstæðiskonur
og karla til að kynna sér sam-
antekt Framkvæmdanefndar
um launamál kvenna um stað-
reyndir á stöðu kvenna á vinnu-
markaðnum. Esther Guð-
mundsdóttir og Guðrún Sigríður
Vilhjálmsdóttir tóku saman all-
ar þær kannanir sem gerðar
hafa verið, bæði á vegum opin-
berra aðila og innan stéttarfé-
laga, á stöðu kvenna og karla í
launamálum.
Hefur Framkvæmdanefnd
um launamál kvenna, sem
Landssamband sjálfstæðis-
kvenna á aðild að, gefið þessa
samantekt út. Launamál kynj-
anna er og verður meðal
þeirra mála sem fjallað verður
um á næstu árum þar til fullu
jafnrétti er náð á vinnumark-
aðnum. Samantektin hlýtur
að verða eitt besta gagnið í
höndum þeirra sem vilja
vinna þessu málefni lið.
Umbætur í vegamálum
- ein besta fjárfestingin
EFTIRFARANDI ályktun var
samþykkt á fundi fram-
kvæmdastjórnar Landssam-
bands sjálfstæðiskvenna á
mánudag: Framkværadastjórn
LS. hvetur ríkisstjórn íslands til
að athuga sérstaklega, á hvern
hátt hagkvæmast verði staðið
að lagningu bundins slitlags á
áfangann milli Reykjavíkur og
Akureyrar.
Athuganir sérfræðinga
hafa ótvírætt leitt í ljós, að
umbætur í vegamálum er ein
besta fjárfesting, sem við ís-
lendingar eigum nú kost á.
Góðar og öruggar samgöngur
stuðla að aukinni framleiðni á
öllum sviðum og tryggir betur
en nokkuð annað hagsmuni
strjálbýlisins.
llmsjón: Sólrún Jensdóttir, Björg Einarsdóttír