Morgunblaðið - 22.05.1985, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ 1985
51
/\ ^
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 14—15
FRÁ MÁNUDEGI
Frekjuleg framkoma
afgreiðslustúlku
Alma Guðbrandsdóttir, Birki-
grund 6, Kópavogi, skrifar:
Alveg getur gengið fram af
manni þegar maður heyrir um
frekjulega framkomu afgreiðslu-
fólks.
Tengdamóðir mín hefur marg-
sinnis verslað í Elísubúðinni og
oft farið þangað með konur utan
af landi þegar þær hafa ætlað að
kaupa sér kjóla. Alltaf hefur af-
greiðslan verið mjög góð þangað
til hún fór þangað nú í byrjun
mánaðarins í þeim tilgangi að
kaupa sér kjól.
Hún valdi sér nokkra kjóla sem
til greina komu og bað um að fá að
máta þá og var henni vísað á mát-
unarklefann. Skömmu seinna
komu inn hjón og spurði frúin eft-
ir tilteknum kjól með hvítum
kraga. Nú vildi svo til að tengda-
mamma var með þennan kjól og
kom þá afgreiðslukonan og spurði
hvort hún ætlaði að kaupa kjólinn.
Tengdamamma sagðist ekki vita
það þar sem hún væri ekki búin að
máta hann en hún hafði mikinn
áhuga á honum.
Afgreiðslukonan bað hana þá að
láta sig hafa kjólinn því það þyrfti
önnur kona að máta hann og
spurði jafnframt hvort hún væri
ekki að verða búin að nota klef-
ann. Tengdamamma var svo ekki
hálfnuð að máta þegar afgreiðslu-
konan kom aftur og spurði hvort
klefinn færi ekki að losna því það
þyrfti að nota hann.
Ég hef aldrei heyrt annað eins.
Hvað var tengdamamma að gera
annað en að nota klefann og því í
ósköpunum gat hin konan ekki
beðið eftir að klefinn losnaði eins
og venjulega er nú gert. Svona fá-
dæma frekjugangur afgreiðslu-
konu er ekki til að laða að við-
skiptavini enda var tengda-
mamma orðin svo sár og reið yfir
þessari framkomu að hún fór fram
með kjólana og labbaði í fússi út.
Það er alveg öruggt að tengda-
móðir mín stígur aldrei fæti inn í
þessa verslun enda telur hún að
hún hafi í rauninni verið rekin út.
Hún fór svo nokkrum dögum
seinna í Dalakofann, þar sem hún
gat ekki gert upp á milli tveggja
kjóla svo að hún keypti þá báða.
Þar fékk hún alveg ágæta þjón-
ustu sem hún vill hér með þakka
fyrir og kemur örugglega til með
að nota sér þá þjónustu í framtíð-
inni.
Eitthvað bogið við listann
Massa skrifar:
Ég vil taka undir það sem tveir
Duran Duran-aðdáendur skrifa
um listann á rás 2. Ég veit að
margir mæla með lögunum „Save
a Prayer" og „Some Like it Hot“
en samt lækkar annað á meðan
hitt hækkar.
Það væri frábært ef einhver á
rásinni gæti gefið skýringar á
þessu. Svo mættuð þið á rás 2
spila meira af tónlist sem er með
vinsælum hljómsveitum, t.d. Dur-
an Duran, U2, Wham og fleirum.
Einnig er lítið spilað af þunga-
rokki. Þetta er alls ekki réttlátt
fyrir þá sem „fíla“ þungarokk.
Ber er hver að baki
nema sér bróður eigi
Guðbjörg Óskarsdóttir, Kópavogi,
skrifar:
Mig langar að senda Kristni
Snæland kveðju og þakkir fyrir
hversu hressilega hann tók mál-
stað okkar Jóhannesar þegar Sig-
urður Sigurjónsson réðst að okkur
með ósæmilegum skrifum, sem
hvergi gátu staðist og voru með
öllu tilhæfulaus.
Jóhannes var í fullum rétti á
þessum bíl mínum, og reyndar hef
ég alltaf vitað það. En ég sem
þetta skrifa, er sú ekkja sem um
var rætt.
Það er gleðilegt að vita að til eru
menn eins og Kristinn Snæland.
Hann tekur því ekki þegjandi að
menn vaði upp með ósæmilegt tal
um saklaust fólk. Ég vona að
Kristni gangi vel í sínu starfi og
ég óska honum alls góðs.
Aðdáun
Ingþór Sigurbjörnsson skrifar:
Það fyrst reynir manninn ef færi er hrjúft
að flýja ei skyldur og bugast eigi.
Ég gleðst af að sjá hvað þú leiðir ljúft
lasburða manninn á hörðum vegi.
Öskum og biðjum hver efni vönd
sem ykkar á gönguna falla.
Almættið rétti þar ykkur hönd
yfir þá bröttustu hjalla.
Þrautleiðinlegt
skaf tpottaglamur
Hlustandi skrifar:
Þessa dagana glymur í eyrum
hlustenda útvarpsins þrautleiðin-
legt skaftpottaglamur á undan
upplestri tilkynninga. Á undan
dánarfregnatilkynningum breyt-
ist þessi hávaði í langdregið væl,
sem sker í eyrun.
Ekki veit ég hver ræður slíkum
grálísugrautar-samsetningi, en
með þessum hávað^ er „Útvarp
Reykjavík“ orðið að viðundri mið-
að við aðrar útvarpsstöðvar í Evr-
ópu. Svona „Kasserolle-Musik"
heyrist í engri stöð nema „Útvarp
Reykjavík“ og væri betur að þetta
hætti sem fyrst.
Þessir hringdu . .
Vinsældalisti
rásar 2
Strákar úr Vesturbænum
hringdu:
Okkur brá illa um daginn þeg-
ar við heyrðum lagið „A View to
Kill“ í Dægurflugum á rás 2,
þegar þulurinn sagði lagið vera
mjög gott og hvað smápíurnar
myndu bara falla fyrir þessu.
Síðan brá okkur ennþá meira
þegar lagið komst í fimmta sæti
á rás 2 kvöldið eftir.
Kvæðið er um
Guðlaugu
Arason
Katrín hringdi:
Spurt var um kvæði i Velvak-
anda þann 10. maí sl. Kvæðið er
eftir Hannes Hafstein, en spurt
var um hvaða konu orti Hannes í
kvæðinu. Kvæðið er ort um Guð-
laugu Arason, skriftarkennara í
gamla Miðbæjarskólanum. Hún
kenndi mér fyrir 60 árum.
Minnst var á þetta tiltekna
kvæði í minningargrein í Mbl.
þann 24. apríl sl. um Kristínu
Þorvaldsdóttur Arason, en hún
var bróðurdóttur Guðlaugar.
Góða hljómsveit
á Listahátíð
Duran Duran-aðdáandi hringdi:
Nú er mikið skrifað um að fá
U2 til landsins og tel ég það ekki
svo vitlausa hugmynd. Áuðvitað
væri betra að fá betri hljóm-
sveitir eins og t.d. Duran Duran,
Ellilífeyrisþegi hringdi:
Eins og flestum er kunnugt
átti að hækka ellilífeyri og
tekjutryggingu um 7% og 12% í
maí, en svo skeður það einkenni-
lega að þegar ég fékk uppgjörið
fyrir maí, þá lækkaði upphæðin
sem ég fékk um hækkunina og
200 krónum betur. Ég tapa þvi
Paul Young og Prince vegna þess
að þær hljómsveitir mundu fá
fleiri áheyrendur á tónleika
heldur en Ú2. Nú er tími til kom-
inn að fá góða hljómsveit á
Listahátíð því það eru búnar að
vera lélegar hljómsveitir síðustu
árin.
Það myndi borga sig fjár-
hagslega að fá hljómsveitir, sem
eru góðar því þá koma áheyrend-
urnir. Einnig langar mig til að
biðja sjónvarpið að sýna spurn-
ingakeppnina milli Duran Duran
og Spandau Ballet, sem sýnd var
í breska sjónvarpinu fyrir
nokkru.
um 200 krónum á hækkuninni.
Þeir virðast lækka heimilisupp-
bótina til að vega upp á móti
hækkuninni um þetta og meira
til.
Mig langar til að vita hvort
Tryggingastofnun getur farið
með okkur alveg eins og henni
sýnist.
Fæ minna eftir hækkun
Barnaföt í úrvali
Vörumarkaöurinn hf.
Barnafatadeild, Ármúla 1a, 3. hæö, s. 686113.
Microline182/192/193
Ný kynslóð
tölvuprentara!
Kostimir eru ótviræöir:
• Þriöjungi minni og helmingi léttari en áöur.
• Miklu hljóðlátari en áður.
• Fullkomlega aöhæfðir IBM PC og sambæri-
legum tölvum.
• Ttengjast öllum tölvum.
• Prenta 160 stafi á sekúndu, skáletur og
gæðaletur.
• Notandi getur sjálfur hannað eigin leturgerðir.
• Fullkomin varahluta- og viðhaldsþjónusta.
• Til á lager.
Nýjungarnar koma alltaf fyrst frá MICROLINE.
Það er því engin furða að
MICROLINE eru mest
seldu tölvuprentarar á íslandi.
ÍMÍKROl
Skeif unni 11 Sími 685610