Morgunblaðið - 25.05.1985, Qupperneq 1
48 SIÐUR OG LESBÓK
STOFNAÐ 1913
116. tbl. 72. árg.
LAUGARDAGUR 25. MAI 1985
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Sabra-búðirnar að
falla í hendur shíta
Beirút, 24. maí. AP.
FÁMENNT lid palestínskra skæru-
liða varðist enn í kvöld í Sabraflótta-
mannabúðunum í Beirút en að þeim
sóttu hundruð hermanna shíta og ein
deild úr stjórnarhernum, sem gengið
hefur til liðs við trúbræður sína. Voru
bardagarnir mjög blóðugir og búist
við, að flóttamannabúðirnar féllu
fljótt
„Það er barist um hvern fer-
metra en Palestínumennirnir verj-
ast vel,“ sagði einn foringja í
Amal-hreyfingunni, herliði shíta-
múhameðstrúarmanna, en bætti
því við, að flestir palestínsku
skæruliðanna hefðu flúið úr búðun-
um í skjóli myrkurs. „Þeir skildu
þessa menn eftir til að berjast við
okkur og þeir eru dauðans matur.“
Talið er, að Palestínumennirnir
hafi komist úr búðunum eftir göng-
um, sem vitað er, að þeir grófu
fyrir mörgum árum, og að þeir séu
nú komnir til Bourj Barajneh-
búðanna í þriggja km fjarlægð.
Þær eru einnig umsetnar en þar
eru nokkur hundruð palestínskra
skæruliða til varnar.
Ekki er vitað hve margir hafa
fallið í átökunum um palestínsku
flóttamannabúðirnar en í yfirfull
líkhúsin í Beirút hefur verið komið
með þaðan á fjórða hundrað líka
síðan þau hófust. Þá eru særðir
menn ótaldir, sem skipta án efa
hundruðum eða þúsundum. Með
hermönnum Amal-hreyfingarinnar
berjast einnig hermenn úr 6. her-
deild stjórnarhersins, sem aðallega
er skipuð shítum, en þeir taka ekki
lengur við skipunum frá herfor-
ingjum stjórnarinnar.
Með árásunum á flóttamanna-
búðirnar vilja shítar koma í veg
fyrir, að skæruliðar Palestínu-
manna komi sér aftur fyrir í Líb-
anon en þaðan voru þeir reknir eft-
ir innrás ísraela árið 1982.
St. Helens:
Sprengigos í vændum?
Vaneoaver, Bandarfkjunum. 24. mai. AP.
JARÐSKJÁLFTUM f og við eldfjallið SL Helens í Washingtonríki í
Bandaríkjunum hefur fjölgað mjög síðustu daga og fjallstoppurinn bólgn-
að. Búast jarðfræðingar við, að nýtt gos, jafnvel sprengigos, verði í
fjallinu innan tveggja vikna.
Jarðskjálftavirkni hófst í St.
Helens fyrir viku og hefur síðan
aukist með degi hverjum. Búast
jarðfræðingar við nýju gosi innan
tveggja vikna og vegna þess, að
kyrrt hefur verið í fjallinu í átta
mánuði, hallast þeir að þvi, að
umbrotin hefjist með sprengi-
gosi. Ekki er þó búist við, að það
nái nema til fjallsins sjálfs og
næsta umhverfis. Fjallstoppur-
inn hefur lyfst um nokkra senti-
metra dag hvern í heila viku og
gasútstreymi er mikið.
St. Helens gaus í maí árið 1980
eftir 123 ára hlé og týndu þá 57
manns lífi. Fjallið gaus aftur í
september sl. litlu gosi.
Níu ára
drengur deyr
úr alnæmi
Stokkhólmi. 24. mai. AP.
LÆKNAR í Stokkhólmi greindu
frá því f dag, að níu ára gamall
piltur hefði látist í sjúkrahúsi f
borginni af völdum alnæmis eða
áunninnar ónæmisbæklunar
(AIDS).
Pilturinn þjáðist af dreyra-
sýki og smitaðist er honum var
gefinn blóðvökvi, sem fluttur
var inn frá Bandaríkjunum.
Fyrr á þessu ári lést 13 ára
gamall dreyrasjúklingur í Sví-
þjóð úr alnæmi og barst smitið
einnig með bandarískum blóð-
vökva. Alls hafa ellefu manns
látist úr alnæmi í Svíþjóð.
Símamynd/AP
Lfk 32 þeirra 60 manna, kvenna og barna, sem biðu bana sl. miðvikudag
þegar bílsprengja sprakk í Beirút, voru borin til grafar í fyrradag. Konan á
myndinni missti barnið sitt og bugaðist við útförina, barði kistuna og barm-
aði sér ákaflega.
Simamynd/AP
Irína Kristi og fjölskylda hennar komu tii Vínar í Austurríki í gær öllum að óvörum. Hefur hún verið helsti tengiliður
Andrei Sakharovs og konu hans, Yelenu Bonner, við umheiminn og telur Irina, að sú sé ástæðan fyrir því að þeiir
hjónum var leyft að fara brott.
Sakharov örvæntir og
er vís til örþrifaráða
— segir Irina Kristi, náinn vinur hans
Vío, 24. m»L AP.
IRINA Kristi, sá vina sovéska andófsmannsins Andrei Sakharovs, sem síðast
sá hann augliti til auglitis, kom í dag öllum að óvörum til Vínar í Austurríki
ásamt manni sínum og syni. Sagði hún, að Sakharov væri fullur örvæntingar
og vís til að grfpa til einhverra örþrifaráða.
lrina kom ásamt fjölskyldu
sinni með flugvél frá sovéska flug-
félaginu Aeroflot og á blaða-
mannafundi eftir komuna sagði
hún, að hún hefði verið eini tengi-
liður Sakharovs við umheiminn og
því hefðu stjórnvöldin viljað losna
við hana. Irina og maður hennar,
Sergei Genkin, sem bæði eru
stærðfræðingar, höfðu í þrjú ár
reynt að fá brottfararleyfi frá
Sovétrikjunum og kom það flatt
upp á þau þegar þeim var allt f
einu skipað að taka saman föggur
sínar og koma sér burt.
Irina sagði, að bréf, sem hún
hefði fengið frá Yelenu Bonner,
eiginkonu Sakharovs, bentu til, að
hann væri mjög örvæntingarfull-
ur og líklegur til einhverra ör-
þrifaráða Hefði hann verið i
hungurverkfalli fram til miðs apr-
ílmánaðar en þá fluttur í sjúkra-
hús og matur neyddur ofan í hann.
Irina fór til Gorki, þar sem Sakh-
arov er í útlegð, fyrir ári en var þá
handtekin, flutt aftur til Moskvu
og var í stofufangelsi í fjóra mán-
uði ásamt manni sínum.
Irina Kristi var rekin úr vinnu
árið 1968 vegna starfa hennar að
friðarmálum og hefur siðan haft
ofan af fyrir sér með einka-
kennslu. Hún og maður hennar
hafa verið undir eftirliti KGB frá
því á sjöunda áratugnum.
England:
Ö1 kneyf-
að með
aðvörun
Sheirwld. Knglandi, 24. nuí. AP.
í BJÓRKRÁ nokkurri í Shef-
field í Englandi hefur verið
bruggað svo sterkt öl, að af því
verður aðeins seldur hálfur
skammtur í einu, tæp mörk, og
fylgir með miði þar sem varað er
við styrkleikanum.
Roger Nowill, eigandi krár-
innar „Frosksins og páfa-
gauksins", segir, að ölið verði
tilbúið til sölu í næsta mánuði
og muni fyrst um sinn a.m.k.
fylgja hverri könnu miði þar
sem menn verða minntir á
hvað þeir ætli að láta ofan í
sig. Bjórinn verður sex sinn-
um sterkari en venjulegt,
breskt öl og sá næststerkasti,
sem um getur. í Guinness-
metabókinni segir, að sterk-
asti bjórinn sé þýskur.
Þeir eru margir, sem hafa
áhyggjur af þessum sterka
bjór, og t.d. segir Arthur
Kaufman, sálfræðingur í
Sheffield, að hann geti sem
hægast komið mönnum inn í
eilífðina. „Margir stáliðnaðar-
mannanna hér i borg eru van-
ir að drekka 16—18 merkur á
kvöldi af venjulegum bjór en
ef þeir ætluðu að leika það eft-
ir með þetta sull gæti það rið-
ið þeim að fullu,“ sagði hann.
Það er ekki aðeins, að ölið
hans Rogers, sem hann kallar
„Roger and out“, verði sterkt,
heldur má segja það sama um
verðið. Mörkin á að kosta 1,25
pund (rúmlega 65 kr ísl.) en
mörk af venjulegum bjór kost-
ar nú 46 pence (tæplega 21 kr.
ísl.).