Morgunblaðið - 25.05.1985, Side 18
MQ8GUNBLAÐIÐ; LA UGAKDAGUR 25. MAÍ 1985
Fiatagri eykur markaðs-
hlutdeild sína í Evrópu
HAFINN er innflutningur á Fiat-
gri-dráttarvélum á vegum Globus
'if., en í frétt frá fyrirtækinu segir að
' iatagri séu mest seldu dráttarvélar
heiminum. Fiatagri er í eigu ítalska
/iat-fyrirtækisins sem hefur fram-
eitt dráttarvélar og margs konar
andbúnaðarvélar aðrar allt frá ár-
nu 1919. Sala á Fiatagri hefur auk-
izt mjög á síðustu árum og er mark-
tðshlutdeild dráttarvéla frá fyrir-
ækinu nú komin yfir 16% í Evrópu
>g er Fiatagri þannig söluhæsta teg-
■ind í álfunni. Fiatagri rekur fjórtán
erksmiðjur víða um lönd og fram-
eiðir fyrirtækið nú um 80 þúsund
dráttarvélar á ári hverju. Þær Fiat-
.ígri-dráttarvélar sem Globus selur
koma frá Fiatagri-verksmiðjunni í
Bretlandi.
Fiatagri framleiðir margar teg-
undir dráttarvéla, frá 50 upp í 180
hestöfl. í fyrstu mun Globus
leggja áherzlu á innflutning
priggja tegunda, frá 60 upp í 80
hestöfl, en aðrar dráttarvélar
verða afgreiddar eftir pöntunum.
Allar eru dráttarvélarnar með
fjórhjóladrifi og er áherzla á það
lögð að vökvakerfi þeirra sé sér-
staklega fullkomið.
Vélarhús Fiatagri-dráttarvél-
anna er hljóðeinangrað, búið
miðstöð, útvarps- og segulbands-
tæki, fjaðrandi sæti, fullkomnu
mælaborði og opnanlegum hliðar-
og afturgluggum.
Á næstunni fara starfsmenn
Globus hringinn í kringum landið
með Fiatagri-dráttarvélarnar og
er ætlunin að gefa bændum þann-
ig kost á því að kynnast tækjum
þessum af eigin raun. Fyrsti við-
komustaður er Borgarnes, en þar
verða Fiatagri-dráttarvélarnar til
sýnis 28. maí. Síðan liggur leiðin i
Búðardal, Víðihlíð, Varmahlíð, til
Akureyrar, Húsavikur, Egilsstaða,
Hornafjarðar, að Klaustri, í Vík, á
Hvolsvöll og loks til Selfoss, en
þar lýkur sýningarferðinni hinn 9.
júní.
Á blaðamannafundi sem Globus
efndi til ásamt brezkum fulltrúum
Fiatagri kom m.a. fram að fram-
leiðendur telja sig hafa gengið úr
skugga um það að möguleikar
Globus á að veita fullkomna þjón-
ustu eru að öllu leyti í samræmi
við þær kröfur sem Fiatagri gerir
til umboðsmanna sinna, enda hef-
ur Globus áratuga reynslu á þessu
sviði. Forstjóri Globus hf. er Árni
Gestsson, en fyrirtækið hefur um
fimmtiu manns í þjónustu sinni.
Það hefur verið föst regla, að sögn
forráðamanna fyrirtækisins, að
hefja ekki innflutning á nýjum
gerðum landbúnaðartækja fyrr en
þau hafa verið rækilega prófuð
hjá bútæknideild Bændaskólans á
Hvanneyri svo tryggt sé að þau
henti við íslenskar aðstæður. Áuk
Fiatagri-dráttarvéla selur Globus
m.a. Gnýblásara, Kvernelands-
heykvíslar, Howard-heytætara,
Vicon-hjólrakstrarvélar og Har-
vestore-heyturna.
Vignir Jóhannsson
Sýnir í Listmunahúsinu
Svava Sigríður sýnir í Ásmundarsal
Selfoflsi, 22. maí.
LAUGARDAGINN 25. maí opnar
Svava Sigríður Gestsdóttir málverka-
sýningu í Asmundarsal við Freyjugötu f
Reykjavík.
Svava Sigríður er búsett á Selfossi
en fædd og uppalin í Reykjavík. Hún
stundaði nám við Myndlistaskólann í
Reykjavik og síðar í Danmörku.
Svava er einn af stofnendum Mynd-
listarfélags Árnessýslu og hefur
haldið nokkrar sýningar í Listasafni
Árnessýslu.
Þetta er 8. einkasýning Svövu en
síðast sýndi hún í Reykjavík 1983. Á
sýningunni um næstu helgi eru 38
myndir, flestar vatnslitamyndir en
einnig nokkrar tússteikningar.
Sýningin er opin alla daga frá
14—22 og lýkur að kvöldi 2. júní.
Sig. Jóns.
Ég er mjög háður veðri og vindum
íslenska hljómsveitin á æfingu.
íslenska hljómsveitin:
Tónleikar í Vestmannaeyjum og á Akureyri
ISLENSKA hljómsveitin mun nú um
delgina leggja land undir fót. Haidn-
ir rerða tvennir tónleikar, þeir fyrri í
Samkomuhúsinu í Vestmannaeyjum
á nvítasunnudag og hinir síðari í
Íþróttahöllinni á Akureyri á annan í
bvítasunnu. Hefjast hvorir tveggja
tónleikarnir kl. 14.
Efnisskrá tónleikanna er að
hluta til sú hin sama og hljóm-
sveitin lék í Laugardalshöll á
öskudagskvöld. Flutt verða
sveifluverk eftir Stefán S. Stef-
ánsson, Vilhjálm Guðjónsson,
Óíaf Gauk og fíeiri. Að auki leikur
hljómsveitin gítarkonsert eftir
Joseph Fung. Konsertinn var
frumfluttur á síðustu áskriftar-
tónleikum hljómsveitarinnar. 25
tónlistarmenn taka þátt í ferðinni,
stórnandi er Guðmundur Emils-
son.
(tir frétutilkynningu)
Morgunhlaðift/Emilía Bjðrg
Jóhannes Geir listmálari við eitt af olímáfverkum sínum
— Hvar málar þú helst?
.Ég oý í næsta nágrenni við Ell-
iðaárstífluna og mála mikið í Elliða-
árdalnum, Rauðhólunum, Heiðmörk
og i nágrenni hesthúsanna í Vfði-
dal.“
— Þú heldur greinilega mikið upp
á hesta.
Já ég á sjálfur hesta og hef mikið
yndi af þeim. Þeir falla líka vel inn í
landslagið."
— Hvernig vinnur þú myndirnar
þínar?
„Oftast geri ég olfukrítarmyndir
úti og fullgeri þær. Síðan nota ég
þær sem hráefni fyrir stærri olíu-
málverk. Ég máia aidrei olíumyndir
úti eins og gömlu meistararnir
gerðu. Ég er mikið gefinn fyrir frá-
sögn og hef aldrei ánetjast neinni
sérstakri stefnu, hef t.d. aldrei mái-
að abstrakt þó ég hafi mætur á því“
sagði Jóhannes Geir.
Sýning Jóhannesar Geirs stendur í
prjár vikur.
VIGNIR Jóhannsson listmálari opnar í
dag kl. 14 sýningu á verkum sínum í
Listmunabúsinu, Lækjargötu 2. Á sýn-
ingunni eru u.þ.b. 40 olíumálverk, unn-
in á pessu ári og því síðastliðna.
Vignir stundaði nám við Mynd-
lista- og handíðaskóla Islands frá
1974-78 og útskrifaðist úr grafík-
deild. Framhaldsnám í grafík stund-
aði hann við Rhode Island School of
Design og lauk paðan MFA-prófi ár-
ið 1981. Vignir hefur verið búsettur í
New York síðan og unnið að eigin
listsköpun.
Sýning hans, sem er sölusýning, er
opin alla virka daga nema mánudaga
frá kl. 10—18 og um helgar frá kl.
14-18. Hvftasunnudagana er opið frá
kl. 14—22 en lokað þriðjudaginn 28.
maí.
— segír Jóhannes Geir listmálari, sem opnar sýn-
ingu á verkum sínum í Gallerí íslensk list í dag
JÓHANNES Geir listmálari opnar sýn-
ingn á verkum sínum í Gallerí íslensk
list, Vesturgötu 17, í dag. Á sýningunni
eru 10 olíumálverk og 46 myndir mál-
aðar með olíukríL
Jóhannes Geir Jónsson er fæddur
á Sauðárkróki 24. júni 1927. Hann
nam við Handíða- og myndlistaskól-
ann í Reykjavík og Konunglegu aka-
demíuna í Kaupmannahöfn frá
1945-1950.
Jóhannes hefur haldið fjölmargar
einkasýningar og tekið þátt i sam-
sýningum hér á landi og erlendis.
Myndir hans eru í einkaeign heima
ogerlendis, í eigu Listasafns íslands,
Listasafns ASI og héraðssafna víða
um land.
„Ég mála mikið úti í náttúrunni,“
sagði Jóhannes Geir i samtali við
blm. Morgunblaðsins nú í vikunni.
„Ég er mjög háður veðri og vindum,
sérstaklega vissri birtustemmningu
og rýk upp til handa og fóta ef birtan
er sérstök. Þá skiptir ekki endilega
máli hvort úti sé rigning og rok,
bara að birtan sé þannig að litirnir í
náttúrunni njóti sín.“