Morgunblaðið - 25.05.1985, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 25.05.1985, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. MAt 1985 Málaferlin í Póllandi: Sovétríkin: Nefnd stofnuð til að verja Antonov Ákærur um aðild hans að banatilræði við páfa sagðar uppspuni Réttarhlé vegna veik- inda Adams Michnik (ktansk, 24. mmí. AP. RÉITARHÖLDUNUM yfir þrcmur leiðtogum Samstöðu, óháðu verkalýðs- hreyfingarinnar í Póllandi, sem hófust í Gdansk í gær, hefur verið frestað til 3. júní, vegna þess að Adam Michnik, sem er einn hinna ákærðu, er veikur. Fregnir þessar eru hafðar eftir Teresu Mieloch, systur andófs- rnannsins Bogdan Lis, sem bar vitni við réttarhöldin í morgun. Pólska útvarpið hefur staðfest fréttina. Frú Mieloch sagði, að rétt- arhöldin i morgun hefðu hafist klukkan 11.00, tveimur tímum á eftir áætlun og ekki staðið nema í tíu mínútur. „Svo virðist, sem þeir hafi verið að bíða eftir Michnik," sagði frú Mieloch í samtali viö fréttamann AP í dag. „Hann gekkst undir læknisskoðun í fanga- klefanum í morgun, en ég veit ekki hvað amar að honum." Frú Mieloch sagði, að hinum ákærðu heföu í morgun verið veitt leyfi til að ræða einslega við verj- anda sinn. Upphaflega var beiðni þess efnis synjað og lýstu þrímenn- ingarnir þvl yfir við upphaf rétt- arhaldanna í gær, að ef slíkt leyfi yrði ekki veitt mundu þeir ekki eiga neitt samstarf við réttinn. Samstöðuleiðtogarnir þrír, Michnik, Bogdan Lis og Wladislav Frasyniuk, eru ákærðir fyrir að hafa ætlað að efna til uppþota og skipuleggja ólöglegar verkfallsað- gerðir. Þeir geta átt yfir höfði sér allt að fimm ára fangelsisdóm. Bill Smith handfjatlar hluta af verólaunafénu sem hann vann í Las Vegas í dag. AP/Símamynd Heimsmeistari í póker krýndur Spilar í minningu föður sem tapaði öllu Lm Vefaa. 24. maf. AP. BILL SMITH, 51 árs gamall Dallasbúi, sigraði í heimsmeistara- keppninni t póker sem haldin var í Las Vegas síðustu daga, en lauk í dag með sigri hans gegn síðasta keppinautnum, T.J. Cloutier. Alls kepptu 140 pókerspilarar og var um útsláttarkeppni að ræða. Smith hreppti metupphæð í verðlaunafé, 700.000 dollara. „Eg byrjaði að spila póker sem atvinnugrein í Nýju Mexíkó árið 1958. Pabbi var haldinn þessari ástríðu, en var afleitur og tapaði öllu sem hann átti. Það var farið illa með hann og ég sór þess eið að vinna aftur allt sem hann tapaði og gera svo enn betur. Það hefur tekist," sagði Smith sigri hrósandi. Potturinn var aldrei stærri en í úrslita- leiknum milli Smiths og Cloutiers og á endanum gafst sá síðast- nefndi upp er eftir að Smith vann risaupphæð með fullu húsi gegn þrennu Cloutiers. Moslmi, 24. mai. AP. SOVÉSKA fréttastofan TASS greindi frá því í dag, að stofnuð hefði verið nefnd til varnar Búlgar- anum Sergei Antonov, sem ákærður hefur verið fyrir aðild að samsæri um að myrða Jóhannes Pál páfa árið 1981. Fréttastofan sagði, að nefndin hefði verið stofnuð „að frumkvæði almennings í Sovétríkjunum". Að sögn TASS er Vladimir Kar- pov, ritstjóri bókmenntatímarits- ins Novy Mir (Nýr heimur), for- maður nefndarinnar. Að auki eiga sæti í henni fulltrúar verkalýðsfé- laga, kvenfélaga, æskulýðssam- taka, vísindamanna, listamanna, rithöfunda, lækna og lögfræðinga. f tilkynningunni segir, að nefndin „Rafmagnsköttur á markað í Kína Peking, 23. mu. AP. MALGAGN kínverska kommúnista- flokksins, Alþýðublaðið, birtir í dag, fimmtudag, forsíðufrásögn, þar sem segir frá 24 ára gömlum uppfinn- ingamanni úr hópi bænda, sem orð- inn er ríkur á „rafmagnsketti", er hann fann upp og setti á markað. Kveður blaðið uppfinninga- manninn, sem heitir Sun Hanc- heng, hafa notfært sér reynslu- sína af rafvirkjastörfum í hern- um, er hann bjó til rottugildruna, en hún gefur lágspennt raf- magnshögg við minnstu snertingu, nægilega kröftugt til að drepa dýrið. „Meistari rafmagnskattarins," eins og blaðið kallar uppfinninga- manninn, fékk nokkra félaga sina úr bændastétt i lið með sér til að stofna verksmiðju til fjöldafram- leiðslu á gildrunum. Græddust honum um 7000 dollarar (tæplega 300.000 ísl.kr.) á fáeinum mánuð- um. Alþýðublaðið gat ekki um verð á gildrunum, en kvað þarna fundna heppilega aðferð til að drepa rott- ur án eiturs. Rottur eru meiriháttar plága í Kína, og í nýlegum blaðafregnum var talið, að þar væru um 4 millj- arðar rottna, eða fjórar á hverja manneskju. hyggist verja Antonov gegn ósönnum sökum, sem hann sé bor- inn. Ekki er upplýst með hvaða hætti nefndin ætlar að starfa eða hvernig hún aflar fjár. Tyrkinn Mehmet Ali Agca, sem dæmdur var i ævilangt fangelsi fyrir að reyna að ráða Jóhannes Pál páfa af dögum, fullyrti eftir að dómurinn yfir honum var kveðinn upp, að hann hefði ekki verið einn að verki. Sagði hann að Sergei Antonov og tveir aðrir Búlgarar, sem ekki er vitað hvar eru nú niðurkomnir, hefðu aðstoðað sig. Réttarhöld í málinu hefjast á ný í Róm á mánudag. Sovéskir fjölmiðlar hafa að und- anförnu fjallað mikið um ásakan- irnar á hendur Antonov og full- yrða, að þær hafi ekki við nein rök að styðjast. Um sé að ræða póli- tískt samsæri, sem bandaríska leyniþjónustan standi á bak við, og sé markmiðið að ófrægja Sov- étríkin og önnur sósíalistaríki. Frá stríðinu skæruliða. f El Salvador. Stjórnarherinn hefur höggvið skörð f sveitir Uppgjafa skæruliðaleiðtogi í E1 Salvador: Vopnasendingar frá Nicaragua aðeins dropar af fyrra hafi Sui Salvador. 24. maf. AP. MIGUEL Castellanos, einn af helstu leiðtogum vinstri sinnaðra skæruliða í El Salvador, sem gaf sig fram við stjórnarherinn í aprfl síðastliðnum, sagði í klukkustundar löngu viðtali við fréttamann AP í dag, að vopna- sendingar frá Nicaragua, sem áður sáu skæruliðum ríkulega fyrir vopn- um, hefðu sem næst þornað upp í seinni tíð, „vopnin koma í dropatali miðað við áður og það gætir mikils skorts á skotfærum. Þá náðu skæru- liðar áður miklu magni vopna af stjórnarhernum, en árveknin hefur aukist á þeim bæ og sú leið ber nú lítinn árangur," sagði Castellanos. Castellanos hefur verið viðrið- inn baráttu vinstri sinna i landinu síðustu tíu árin og lengst af talinn einn helsti leiðtoginn. Skæruliðar sjálfir staðfestu mikilvægi hans með því að lýsa fyrst yfir opin- berlega að hann hefði verið hand- tekinn. Síðan, er ljóst var að hann hafði gefið sig fram af frjálsum vilja, afneituðu þeir honum og sögðu hann hafa verið eiturpeð. Hinn 35 ára gamli Castellanos sagði það ekki hafa verið auðvelt fyrir sig að ganga í berhögg við sannfæringu sína I stjórnmálum, „Ég fór að íhuga þetta alvarlega fyrir um ári og lengi var ég ekki viss hvað ég ætti til bragðs að taka. Á endanum fyllti allt ofbeld- ið mælinn, ég fékk viðbjóð af mannvígunum sem framin eru á báða bóga, bræður vegandi bræð- ur í þessu litla landi. Þetta er sjúkt. Þá ákvað ég að gefa mig fram,“ sagði Castellanos í viðtal- inu. Um vopnaflutninga frá Nicar- agua sagði Castellanos ennfremur: „1980—81 höfðu skæruliðar bol- magn til að hafa 3000 manns und- ir vopnum frá Nicaragua. Fyrst fengum við vopnasendingar með flugvélum, síðan sjóleiðina og loks landleiðina. Árið eftir bættust 4000 vopnaðir skæruliðar við fyrir tilstuðlan vopnanna frá Nicaragua og þá höfðum við bolmagn til að ná miklu af vopnum af stjórnar- hernum. Þannig náðum við þyngri vopnum og hættulegri sem við höfðum ekki notað áður. Stjórn- arherinn tók sig hins vegar á og fór smám saman að herða tökin og loka flutningsleiðunum og smám saman fór að bera á skorti og nú er sá skortur alvarlegur," sagði Castellanos. Hann sagði einnig að nú væru skæruliðar um 5000 tals- ins, en þeim hefði fækkað mikið I seinni tíð vegna manntjóns. „Flestir sem ég byrjaði með eru nú löngu fallnir," sagði Castellanos. Bandarikjastjórn og sérfræðingar stjórnarhersins hafa til þessa álit- ið að skæruliðar séu liklega um 11.000 talsins, en þeir hafa jafn- framt viðurkennt að sú tala kunni ef til vill að vera í hærra lagi og þeir eru að endurskoða hana í ljósi framburðar Castellanosar. Cast- ellanos óttast um líf sitt og fjöldi lífvarða fylgir honum hvert fót- mál. „Einhverjum í samtökunum kann að þykja að það verði að gera eitthvað í mínu máli, af- greiða mitt mál,“ eins og Castell- anos komst sjálfur að orði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.