Morgunblaðið - 02.06.1985, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 02.06.1985, Blaðsíða 16
16 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. JÚNÍ 1985 Ólafur Ólafsson útgerðarmaður sagðist ekki geta látið þessa hausa fram hjá aér fara. Hann var búinn að gella og kinna hátt í 60 kílógrömm um morguninn. Útgerðin á TVEIK TOGARAK eru gerðir út frá Seyðisfirði, Gullver- ið, tveggja ára gamall 450 tonna skuttogari í eigu út- gerðarfyrirtaekisins Gullberg hf., og Ottó Wathne, sjö ára og 299 tonna í eigu samnefnds fyrirtækis. Ottó Wathne var áður í eigu Fiskvinnslunnar hf., og hét þá Gullberg, en sl. haust var togarinn seldur hlutafélaginu Ottó Wathne, sem aftur seldi togbátinn Ottó Wathne til Hafrannsóknarstofnunar um svipað leyti og ber sá nú nafnið Dröfn. Hlutafélagið Gullberg hf. er í eigu útgerðar- mannsins Olafs Ólafssonar og skipstjórans Jóns Pálssonar, en þeir eru jafnframt stærstu hluthaf- arnir í fyrirtækinu Gullberg hf. Eigendur Ottós Wathne eru hins vegar skipstjórarnir Páll Ágústs- Seyðisfirði son og Trausti Magnússon, Hreiðar Valtýsson frá Akureyri, auk bæjarins og verkalýðsfélagsins. Ottó Wathne hinn nýi leggur upp hjá Fiskvinnslunni % af afla, en V3 hjá fyrirtækinu Norðursild hf., sem Hreiðar Valtýsson á. Norðursíld tekur einnig allan afla smábátanna, sem eru um 20 að tölu. Þegar okkur Morgunblaðsmenn bar að garði voru báðir togararnir úti, en við hittum útgerðarmanninn Ólaf Ólafsson í vinnslusal hraðfrystihúss Fisk- vinnslunnar þar sem hann í óða önn að kinna. Hann sagðist hafa lært það 14 ára gamall á vertíð i Grindavík og alltaf haft gaman af því síðan. ólafur sagði að Gullverið hefði fiskað vel í vetur, landað 1700 tonnum frá áramótum. Pétur Björnsson beitingamaóur hefnr beitt lengi fyrir þá Ágúst og Árna. Sagðist nú reyndar vera orðian „Helv. stirður", og kenndi giktinni um, en Árni sagði að það væri haugalygi, hann væri enn í fullu fjöri og með betrí beitingamönnum. Pétur lét a.m.k. ekki spjall Árna og blaðamanns trufla sig við að beita bjóðin. Ósáttur við „helgarfríin “ Rætt við Árna Jón Sigurðsson, „nýgræðing" í útgerð á Seyðisfirði ÁRNI JÓN SIGURÐSSON segist vera nýgræðingur í útgerð, „var að vísu á sjó í gamla daga á Gullberginu sem þá var, en síðastliðin 18 ár hef ég unnið í Vélsmiðju Seyðisfjarðar," segir hann — eða þar til í fyrra, að hann festi kaup á „bátsflaki", sem hann gerði upp og er nú rétt byrjaður á sinni fyrstu sjálfstæðu útgerð. Við hittum á Árna í beitingaskúr Ágústs Sigurjónssonar, þeim snyrtilegasta á landinu, eins og einn vegfarandi orðaði það, og lágu þar við festar 11 tonna bátur Ágústs, Auðbjörg NS 200, og „bátsómyndin" fyrrverandi, sem Árni hafði gert upp, en bar nú lítil merki fortíðar sinnar, þetta var hinn rennilegasti bátur, sem nýsmíðaður og greinilega fær í flestan sjó: Rex NS 3 heitir hann, 6 tonna. „Hann mætti vera 5 tonnum stærri," sagði Árni, „þá væri mað- ur ekki ofurseldur þessum bann- settu „helgarfríum", sem búið er að skikka smábátaeigendur til að taka,“ og átti við þá ráðstöfun sjávarútvegsráðherra að banna bátum undir 10 tonnum að róa á laugardögum og sunnudögum. „Þetta eru skuggalegar ráðstaf- anir og mjög óréttlátar," sagði Árni. „Þeir eru búnir að fiska upp í kvótann fyrir sunnan, og allt komið úr böndum, og þá á að straffa okkur sem erum að byrja. Það er erfitt að sætta sig við svona lagað. Það er 11 tíma stím á miðin út af Langanesi, og það er helv. jhart að þurfa að draga inn línua á miðnætti föstudagskvölds og MorKunblaðið/ RAX Árni tyllir sér á pallinn fyrir framan 6 tonna bát sinn, Rex NS 2. REX

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.