Morgunblaðið - 04.06.1985, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚNÍ 1985
29
Suöur-Afríka:
Shcharansky
í skiptum fyrir
njósnara Rússa
Jóhanncsarborg, 3. júni. AP.
Blaðið Sunday Times í Suður-Afríku heldur því fram að farið geti svo að
sovézki andófsmaðurinn Anatoly Shcharansky hljóti senn frelsi. Segir blaðið
að nú eigi sér stað samningaviðræður háttsettra manna. Þar er m.a. rætt um
hugsanleg skipti á suður-afríska sjóliðsforingjanum Dieter Gerhardt, sem
afhjúpaður var sem njósnari Sovétmanna, og Shcharansky.
Blaðið segir gyðingaleiðtogann
Ronald Greenwald í New York, sem
er fulltrúi suður-afrískra yfirvalda,
taka þátt í samningaviðræðunum.
Hefur hann reynst ófáanlegur til að
skýra frá gangi viðræðnanna.
Reyndi hann árangurslaust að
semja um skipti á sovézkum njósn-
ara í S-Afríku og Shcharansky
1981.
Shcharansky er einn kunnastur
andófsmanna úr röðum sovézkra
gyðinga. Hann var árið 1978 dæmd-
ur í 13 ára nauðungarvinnu. Ger-
hardt var dæmdur í ævilangt fang-
elsi í janúar fyrir njósnir fyrir
Rússa. Hann var yfirmaður flota-
stöðvarinnar í Simonstown, nærri
Höfðaborg. Suður-afrískir embætt-
ismenn telja að Sovétmenn sé um-
jög áfram um að fá Gerhardt til
Sovétríkjanna til að geta gengið úr
skugga um hversu miklu hann hafi
Ijóstrað upp um umsvif sovézku
leyniþjónustunnar, KGB. Leyni-
þjónustur Bretlands og Bandaríkj-
anna komu við sögu er hann var
afhjúpaður sem sovézkur njósnari.
Alþjóðaólympíunefndin:
Samaranch rekur
framkvæmdastjórann
Berlín, 3. júní. AP.
Frú Monique Berlieux, framkvæmdastjóri Alþjóðaólympíunefndarinnar
(IOC) um 14 ára skeið, hefur verið rekin úr starfl, sem fól í sér mikil völd
innan ólympíuhreyfingarinnar. Ástæðan er sögð ágreiningur hennar og Juan
Antonio Samaranch forseta (IOC).
Berlieux var ráðin framkvæmda-
stjóri IOC til ársloka 1988 og hefur
nefndin nú skipað þriggja manna
nefnd til að ganga frá málalokum
við hana. Ágreiningur hefur verið
með Berlieux og Samaranch nær
allt frá því hann var kosinn forseti
IOC 1980. Hefur þetta verið opin-
bert leyndarmál, en upp úr sauð ný-
lega er Samaranch ákvað að flytj-
ast búferlum til Lausanne í Sviss,
þar sem höfuðstöðvar IOC eru.
Gngin yfirlýsing hefur verið út
gefin um uppsögnina af hálfu IOC
og frú Berlieux neitar að láta nokk-
uð eftir sér hafa.
lótió okkur visa
leióina meóoes
ósviknum
gceóingi
ÞEKKING- REYNSLA - ÞJÓNUSTA
FÁLKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8
SÍMI 84670
Verslunin hættir
— Allt á aö seljast —
brautir &
^gluggatjöld hf
1 KJÖRGARÐI, SÍMI 22207
Stórisar í öllum breiddum
Millistykki í eldhús
frá kr.
Urval af baðherbergisefnum
Sængurfatnaður — dúkar — hand-
klæði — diskaþurrkur — diskamottur
Tilbúnar gardínur
frákr. 280
Bómullarefni
frá kr
100
Kjörgarði