Morgunblaðið - 07.06.1985, Qupperneq 2
2
MORGtJNBLAÐIÐ. FÖ3TUOAQUR 7. JÚNl 198g
Morgunbladid/Júlíus
Páll Gíslaðon fráfarandi forseti
borgarstjórnar óskar Magnúsi L
Sveinssyni til hamingju með kosn-
ingu sem forseti borgarstjórnar í
upphafi borgarstjórnarfundarins f
g*r.
Magnús L.
Sveinsson
forseti borg-
arstjórnar
MAGNUS L Sveinsson var kosinn
forseti borgarstjórnar á fundi borgar-
stjórnarinnar í gær. Tók hann vió af
Páli Gíslasyni, sem ekki gaf kost á
sér til endurkjörs. Var Páil sfðan
kjörinn 1. varaforseti borgarstjórnar í
stað Magnúsar og Katrín Fjeldsted 2.
varaforseti. Hlutu þau atkvæði
sjálfstæðismanna í borgarstjórn en
fulltrúar minnihlutans skiluðu auðu.
Magnús tók við fundarstjórn í upp-
hafi fundarins og þakkaði hann
traustið og þakkaði Páli gott starf
sem forseti borgarstjórnar.
Sigurjón Fjeldsted (S) og Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir (Kvl.)
voru kosin skrifarar borgarstjórn-
ar og Hilmar Guðlaugsson (S) og
Gerður Steinþórsdóttir (F) til vara.
Á fundinum f gær var kosið i borg-
arráð og ýmsar nefndir og stjórnir
á vegum borgarinnar. I borgarráð
voru kosin: Magnús L. Sveinsson,
Ingibjörg Rafnar og Hulda Valtýs-
dóttir frá meirihlutanum og Sigur-
jón Pétursson (Abl.) og Kristján
Benediktsson (F) af hálfu minni-
hlutans.
Reykjavík:
400 starfsmenn fisk-
iðjuvera missa vinnuna
— óbrúanlegt bil milli aðila í sjómannadeilunni segir sáttasemjari ríkisins
RÚMLEGA 400 manns, sem starfa í fiskvinnslu í Reykjavík, missa vinnuna í
dag vegna verkfalls félaga f Sjómannafélagi Reykjavíkur. Þetta er starfsfólk
ísbjarnarins og Bæjarútgerðar Reykjavíkur (BÚR), sem sagt var upp í síðustu
viku vegna fyrirsjáanlegs hráefnisskorts í fiskiðjuverunum. í Hraðfrystistöð-
inni í Reykjavík og í fiskiðjuverinu á Kirkjusandi er búist við að hægt verði að
halda fullri atvinnu að minnsta kosti út næstu viku. Sáttafundur í kjaradeilu
Sjómannafélags Reykjavfkur og útvegsmanna verður í fyrsta lagi haldinn um
miðja næstu viku.
„Þetta er í þriðja sinn á sex mán-
uðum, sem konunum f BÚR er sagt
upp með viku fyrirvara," sagði
Ragna Bergmann, formaður
Verkakvennafélagsins Framsókn-
ar, j samtali við blm. Morgunblaðs-
ins í gær. Flestir þeirra, sem nú
hefur verið sagt upp, eru konur og
flestar í Framsókn. „Þetta sýnir
betur en nokkuð annað við hvaða
öryggisleysi starfsfólk f fiskvinnslu
býr — það á alltaf yfir höfði sér
að missa vinnuna með viku fyrir-
vara. Það er því ekkert undarlegt
að hinn fasti kjarni f fiskvinnsl-
unni fari sffellt minnkandi — fólk
er hætt að láta bjóða sér að búa við
þetta öryggisleysi," sagði Ragna.
Guðlaugur Þorvaldsson rfkis-
sáttasemjari sagði í gær að ekki
yrði boðaður fundur f deilu sjó-
manna og útvegsmanna fyrir helg-
ina. „Ég hef rætt við deiluaðila
þrisvar í dag og niðurstaðan er sú,
að bilið á milli þeirra er óbrúanlegt
eins og er. Það verður haldinn
fundur þegar annar hvor aðilinn
óskar þess. Berist okkur engin slík
beiöni munum við hér hjá embætt-
inu kalla til fundar um eða upp úr
miðri næstu viku,“ sagði rfkissátta-
semjari.
Að loknum vinnudegi i dag munu
alls um 120 manns hafa misst
vinnu sína f fiskiðjuveri ísbjarnar-
ins, þar af hætta um 90 manns í
dag. Áður hafði látið af störfum
vegna hráefnisskorts skólafólk og
að auki hafði hópur skólafólks ekki
hafið störf enn. Búist er við að eftir
verkfallið hefji 140—150 manns
vinnu í ísbirninum. Nærri 300
manns missa vinnu sína í Bæjarút-
gerðinni í dag og í gær, fyrst og
fremst konur.
Meirihluti þessa fólks fær
greiddar atvinnuleysisbætur eftir
að það hefur verið atvinnulaust í
tvær vikur, þannig að búast má við
að allt að 400 manns tryggi afkomu
sína á þann hátt þegar Ifður á mán-
uöinn. Fullar bætur eru nú 705,36
krónur á dag eða rétt rúmlega 3.500
krónur á viku.
Óvíst að forgangsmál
nái fram fyrir þingslit
— sagði Þorsteinn Pálsson formaður Sjálfstæðisflokksins á fundi Varðarfélagsins
í RÆÐU sem Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, flutti á fundi
Varðarfélagsins í Reykiavík í gærkvöldi kom fram, að eftir landsfund flokks-
ins sömdu hann og Olafur G. Einarsson, formaður þingflokks sjálfstæð-
ismanna, við Steingrím Hermannsson, formann Framsóknarflokksins, og Pál
Pétursson, þingflokksformann framsóknarmanna, um framgang mála á Al-
þingi, sem hafa skyldu algjöran forgang fyrir þinglok. Taldi Þorsteinn óvíst, að
þau næðu fram en sjálfstæðismenn myndu reyna til þrautar að vinna þeim
brautargengi fyrir þingslit sem rætt er um að verði fyrir 17. júní.
Þau mál sem hér um ræðir
snerta í fyrsta lagi nýsköpun at-
vinnumála, en undir þann lið falla
m.a. frumvörp um nýskipan sjóða-
mála, Framkvæmdastofnun og
landbúnaðarmálin. I öðru lagi er
frumvarpið um afnám einkaréttar
ríkisins á útvarpsrekstri. í þriðja
lagi eru ráðstafanir í húnæðismál-
um og í fjórða lagi að stjórnar-
flokkarnir nái saman um stefnu í
kjarnorku- og afvopnunarmálum.
Aðeins síðasti liður þessa sam-
komulags er kominn til fram-
kvæmda og með þeim hætti að allir
flokkar sameinuðust um tillögu i
afvopnunarmálum, en eins og
Þorsteinn Pálsson benti á hefur
hún verið túlkuð með mismunandi
hætti.
Formaður Sjálfstæðisflokksins
gerði grein fyrir þeim tillögum sem
lagðar hafa verið fram um hækkun
söluskatts og eignarskatts til að
mæta vanda húsbyggjenda og
standa undir lánveitingum til ný-
bygginga á þessu ári. Hann sagði,
að með öllu hefði verið ógerlegt að
leysa þennan vanda með erlendum
lánum og þess vegna hefðu aðeins
skattahækkanir komið til álita.
Söluskattshækkunin leiddi til þess
að framfærsluvísitala hækkaði um
0,4 stig og kæmi sú hækkun mest
niður á þeim sem verðu fé til kaupa
á söluskattsskyldum vörum. For-
ystumenn launþegasamtaka væru
almennt andvigir hækkun sölu-
skatts en hins vegar væru þeir tals-
menn þess, meðal annars á vett-
vangi Sjálfstæðisflokksins, að
Minnir á Austantjaldslönd
- segir Þorvaldur Valsson
„ÞESSI FRAMKOMA útlendingaeftirlitsins í garð þessa manns er algjör
hneisa. Að það skuli vera hægt að neita manninum um að koma hingað sem
ferðamaður í heimsókn til venslafólks sfns, er náttúrlega fyrir neðan allar
hellur, og minnir ekki á neitt nema það sem erum stöðugt að heyra að gerist
í austantjaldslöndunum,“ sagði Þorvaidur Valsson, eiginmaður annarrar
pólsku systurinnar sem Pólverjinn Mikael Drzymklwfki ætlaði að heim-
sækja í fyrradag, en útlendingaeftirlitið sendi manninn úr landi í gær, án
þess að hann hefði nokkurn tíma fengið að koma inn í landið.
Var Pólverjinn settur í fangelsi
þegar við komuna, og var þar
þangaö til í gærmorgun aö hann
var sendur utan til Kaupmanna-
hafnar á nýjan leik.
Þorvaldur sagði að útlendinga-
eftirlitið hefði borið það fyrir sig,
að hér væri pólsk stúlka sem væri
tengd pólsku systrunum, og væri
hún hér án dvalarleyfis, þar sem
umsókn hennar um endurnýjun á
dvalarleyfi hefði enn ekki verið
svarað. Þorvaldur sagði að stúlk-
an hefði lagt inn umsókn sfna í
desember sl. þannig að nú væri
liðið hálft ár, án þess að dóms-
málaráðuneytið hefði svarað um-
sókninni. Sagði Þorvaldur að út-
lendingaeftirlitið segði að með
umsókn um 3ja til 6 mánaða dval-
arleyfi væri þessi Pólverji bein-
linis að gefa það til kynna að
hann hygðist einnig setjast að
hérna.
Þorvaldur sagði jafnframt:
„Það hefði verið hægur vandinn
fyrir útlendingaeftirlitið að leysa
þetta mál á manneskjulegri hátt
en það gerði, með þvf að veita
honum þriggja mánaða dvalar-
leyfi, eins og ferðamenn fá. Þá
hefði hann getað komið og heim-
sótt okkur, og farið að svo búnu.
Hann kom hingaö án vegabréfs-
áritunar, vegna þess að við gátum
ekki náð sambandi við hann f
Póllandi þegar við vissum um
synjunina. Við fengum ekki bréfið
um synjun frá ráðuneytinu f
hendur fyrr en á mánudaginn var,
og það var of seint. Við marg-
reyndum það, og sendum honum
einnig telexskeyti, en þvf miður
var hann farinn frá Póllandi, þeg-
ar skeytiö barst.“
Þorvaldur sagði að hann og svili
hans, Friðjón Steinarsson, sem
kvæntur er hinni pólsku systur-
inni, hefðu gert allt sem í þeirra
valdi stóð í fyrrakvöld til þess að
fá þessari ómanneskjulegu
ákvörðun breytt, en árangurs-
laust.
„Þetta er fjölskylda okkar sem
er að koma f heimsókn, en henni
er meinað um það. Stúlkurnar
Morgunblaðift/Þorkell
Þeir Friðjón Steinarsson tollvörður (Lv.) og Þorvaldur Valsson loftskeyta-
maður ásamt pólskum eiginkonum sínum, Reginu og Janínu, á beimili
Þorvaldar og Janínu í gær.
taka þetta svo nærri sér, að þær
telja að þeim sé ekki lengur lfft f
þessu landi. Þær sjá fram á það,
að ef þær búa hér áfram, þá fái
þær aldrei aftur ættingja sína f
heimsókn,“ sagði Þorvaldur.
Jón Helgason, dómsmálaráð-
herra, staðfesti ákvörðun útlend-
ingaeftirlitsins f fyrrakvöld.
Hann sagði f gær um þetta mál:
„Ég var spurður um þetta mál í
gærkveldi, og fékk þá upplýsingar
um að leitað hefði verið eftir dval-
arleyfi fyrir þennan mann f 6
mánuði fyrir skömmu, og þvf
hefði verið synjað. Hann kom svo
til landsins, án þess að vera búinn
að fá vegabréfsáritun. Það var þvf
ekkert annað að gera. Það eru
mjög margir útlendingar sem
sækja hér um dvalarleyfi til 6
mánaða, og ef það væru ekki ein-
hverjar takmarkanir í þeim efn-
um, þá myndi allt fyllast hér
fljótt af erlendu fólki. Það er
reynsla fyrir því að það leitar hér
eftir atvinnuleyfi, og ræður sig
jafnvel til starfa án sliks leyfis, og
við þvf er verið að sporna."
Jón sagðist jafnframt telja að
eðlilegt væri að veita manninum
dvalarleyfi hér sem ferðamanni,
og taldi að ef hann sækti um slfkt
dvalarleyfi yrði það veitt.
Þorsteinn Pálsson
eignaskattar væru hækkaðir. Sagð-
ist Þorsteinn Pálsson alls ekki líta
þannig á, að hann gengi gegn
stefnu Sjálfstæðisflokksins með
þvf að beita sér fyrir þessum
skattahækkunum.
Hann taldi brýnustu verkefni
stjórnmálanna nú vera þau, að ná
niður viðskiptahallanum, hefja
nýtt hagvaxtarskeið og tryggja friö
á vinnumarkaðnum án verðbólgu.
Að þessu myndi Sjálfstæðisflokk-
urinn vinna en til þess að það tæk-
ist yrði að standa vel að framgangi
mála á Alþingi, halda erlendri
skuldasöfnun í skefjum og ná víð-
tæku samkomulagi í kjaramálum
sem byggði á öðrum grunni en
verðbólgusamningarnir sfðastliðið
haust.
Þegar Þorsteinn Pálsson ræddi
um framgang þess samkomulags,
sem forystumenn stjórnarflokk-
anna gerðu á þingi eftir landsfund
sjálfstæðismanna, vfsaði hann
meðal annars til niðurlagsorða í
stjórnmálaályktun fundarins, þar
sem segir: „Sjálfstæðismenn eru nú
sem ætíð reiðubúnir til þess að
leggja störf sín og stefnu í dóm
kjósenda. Hvort þess verður þörf í
bráð mun ekki síst ráðast af fram-
gangi þessara málefna og því,
hvort um þau næst nauðsynleg
samstaða."
Friðrik Sophusson, varaformað-
ur Sjálfstæðisflokksins, var einnig
frummælandi á fundi Varðar f
gærkvöldi. I ræðu sinni ræddi hann
þróun efnahagsmála og gerði grein
fyrir efni þeirra frumvarpa sem nú
bíða afgreiðslu á Alþingi og sjálf-
stæðismönnum er kappsmál að nái
fram að ganga.