Morgunblaðið - 07.06.1985, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. JÚNl 1986
5
Kolbeinsey Ljóam Polke Hellberg/Dagens Nyheter
Leiðangur til Kolbeinseyjar í sumar
NÚ HEFUR verið ákveðið að fara í leiðangur f Kolbeins-
e; í sumar til þess að kanna ástand hennar. Þetta er gert
í framhaldi af því að Vitamálastjóra hefur verið falið aö
endurskoða tillögur sem lagðar voru fram árið 1983 um
framkvæmdir á eynni.
Kolbeinsey liggur rúmar 36 sjómílur norð-norð-
vestur af Grímsey. Hún er grunnlínupunktur og frá
henni er fiskveiðilandhelgi okkar íslendinga reiknuð.
Kolbeinsey er að mestu úr móbergi sem brotnar hratt
niður og minnkar eyjan stöðugt, bæði vegna ágangs
sjávar og ekki síst hafíss. Nú er svo komið að hætta
er á að eyjan hverfi i sjó, en við það minnkar land-
helgin svo um munar.
Kolbeinsey kom til umræðu á Alþingi fyrir
skömmu. I máli Stefáns Guðmundssonar kom m.a.
fram að Kolbeinsey mun hafa verið mæld árið 1580 og
reyndist hún þá vera 753 metrar frá norðri til suðurs
og 113 metrar frá austri til vesturs. Þá var hún 113
metrar á hæð. Þegar eyjan var mæld árið 1932 reynd-
ist hún vera 113 metrar frá norðri til suðurs og 75
metrar frá austri til vesturs og 10 metrar á hæð. Við
síðustu mælingu árið 1978, var hún aðeins 37,7 metr-
ar frá norðri til suðurs og 42,8 metrar frá austri til
vesturs.
Stefán spurði hvað liði framkvæmd þingsályktun-
artillögu sem var samþykkt 20. apríl 1982 þar sem
rfkisstjórn er falið að sjá um að sjómerki verði sett
upp sem allra fyrst á Kolbeinsey.
Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra sagði
m.a. í svari sínu að í október 1982 hafi Vitastofnun
íslands verið falið að gefa umsögn eða koma með
tillögur um hvað gera skuli á Kolbeinsey og barst
svar frá stofnuninni í júní 1983.
Þar kemur m.a. fram að nauðsynlegt er talið að
styrkja yfirborð eyjarinnar með steinsteypu til að
hindra niðurbrot hennar. Kostnaðaráætlun var einn-
ig lögð fram og er talið að kostnaður muni nema
samtals um 8,6 milljónum króna, en þá var miðað við
júni 1983. Enn hefur engin fjárveiting fengist til
framkvæmda á Kolbeinsey.
Handbók um kirkju-
söfnuði Reykjavík-
urprófastsdæmis
ÚT ER KOMIN handbók á vegum
Reykjavíkurprófastsdæmis, sem hefur
að geyma upplýsingar um alla söfnuði
innnan prófastsdæmisins, starfsmenn
þeirra, kirkjur og presta. Er þetta
fyrsta handbókin, sem gefín befur ver-
ið út á vegum Rcykjavíkurprófasts-
dæmis, aö því er segir í frétt frá dóm-
prófastinum í Reykjavfk.
Söfnuðirnir innan prófastsdæmis-
ins eru þessir: Árbæjarsöfnuður;
Ásprestakall; Breiðholtssöfnuður;
Bústaðaprestakall; Digranessöfnuð-
ur; Dómkirkjusöfnuðurinn/Dóm-
kirkjuprestakall A og B; Fella- og
Hólasöfnuður: Grensássókn; Hall-
grímssöfnuður; Háteigssöfnuður;
Kársnesprestakall; Langholts-
prestakall; Laugarnessöfnuður;
Nesprestakall; Seljasókn; Seltjarn-
arnessöfnuður.
Handbókina er hægt að nálgast á
skrifstofu dómprófasts i Bústaða-
kirkju eða í Kirkjuhúsinu, Klappar-
stíg 27.
Ný íslensk
frímerki
TVÖ NÝ frímerki munu koma út á
vegum Póst- og símamálastofnunarinn-
ar þann 20. júní næstkomandi.
Fyrra frímerkið er helgaö hundr-
að ára afmæli Garðyrkjufélags Is-
lands en það var stofnað 26. mai 1885
i þeim tilgangi að „glæða áhuga
landsmanna á garðyrkju" eins og
segir í bæklingi gefnum út vegna út-
gáfu frimerkisins. Það sýnir silfur-
reyni sem gróðursettur var við Aðal-
stræti 9 fyrir rúmum hundrað árum.
Hið seinna er tileinkað ári æskunn-
ar, en Sameinuðu þjóðirnar hafa út-
nefnt árið 1985 alþjóðaár hennar
undir kjörorðunum: Þátttaka — þró-
un — friður.
Þröstur Halldórsson hefur teiknað
bæði frímerkin, en á frímerkinu sem
tileinkað er ári æskunnar, sést jafn-
framt hið opinbera merki ársins sem
Ameríkumaðurinn Lee Kaplan
hannaði.
í fréttatilkynningu frá Póst- og
símamálastofnuninni segir að í til-
efni EFTA-ráðstefnu i Reykjavík,
verði sérstakur dagstimpill notaður
á pósthúsinu R-1 miðvikudaginn 19.
júní næstkomandi.
Einnig verður sérstakur dag-
stimpill í notkun á ráðstefnu nor-
rænna svæfingarlækm', sem haldin
verðui- I Háskólr. íslands (Odda),
fimmtudagin,! 27. jún' 1985.
BUR — Isbjörninn:
Tvær sérfræðinganefnd-
ir vinna að áiitsgerðum
A VEGUM Bæjarútgerðar Reykjavfk-
ur og Hraðfrystihússins fsbjarnarins
vinna tvær nefndir sérfræðinga undir
stjórn Ólafs Nílssonar, löggilts
endurskoðanda, að álitsgerð um hag-
kvæmni samvinnu, eða sameiningar
fyrirtækjanna. Nefndirnar starfa af
fullum krafti, að sögn Brynjólfs
Bjarnasonar forstjóra BÚR, en ekki
hefur veríð tímasett hvenær þær
Ijúka störfum.
Önnur nefndin er skipuð endur-
skoðendum og á hún að athuga
fjárhagsskipan beggja fyrirtækj-
anna. Vinna uppgjör og leggja mat
á eignir þeirra og skuldir. Hin
nefndin er skipuð verkfræðingum
og tæknifræðingum og vinnur að
úttekt á hinni tæknilegu hlið
rekstrarins. Brynjólfur sagði að
lokinni þessari undirbúningsvinnu
væri fyrirhugað að þessir menn
legðu fram sameiginlegar tillögur
um framtíðarskipan rekstrar fyrir-
tækjanna.
EITTHVAÐ ODYRT?
Hvern vantar ekki ódýrt, ekki aö tala um þegar þaö er líka gott
Á Vöruloftinu Sigtúni 3,
2. hæð, hafa orðið miklar breytingar og þar er
nú mjög góður stórútsölumarkaður.
Á börnin í sveitina
Peysur frá kr. 195
Gallabuxur frá kr. 99
Æfingaskór kr. 299
Gúmmístígvél kr. 299
h dömur
Jakkar frá kr. 250
Greiöslusloppar kr. 685
Kvenskór fá kr. 195
Æfingaskór kr. 695
Á herrs
Stakir jakkar frá kr. 995
Blússur frá kr. 995
Skyrtur frá kr. 190
Vinnubuxur frá kr. 399
Reiöstigvé! frá kr. 389—685
Gúmmístígvei frá kr. 350.
Snyrtivörur
Hárnæring 30 glös kr. 94
Hárlagningarvökvi 30 glös kr. 94 o.ffl.
Strechbuxur margir litir verö kr. 1195
allar stæröir
Úrval af bolum frá kr. 190—250
Jogging-gallar S-M-L. Gott verö.
Æfingaskór kr. 695
Áklæöi og gardínuefni í miklu úrvali.
KARNABÆR - BELGJAGERÐIN - VÖRULOFTIÐ
Siglufjörður:
Lionsmenn hreins-
uðu Strákagöng
Siglurirói. 5. júní.
FJÖRUTÍU Lionsmenn á Siglufirði
unnu þarft og gott verk síðastliðna
nótt við að hreinsa Strákagöngin.
Mikill jarðvegur berst inn í
göngin á veturna og vorin svo að
oft er ástandið inni í göngunum
ekkert betra en á holóttum vegi.
Til verksins notuðu þeir Lions-
menn tvær hjólaskóflur og einn
bíl.
Fyrir þetta verk fá Lionsmenn-
irnir greitt frá Vegagerðinni og
ágóðann af vinnunni ætla þeir að
nota til kaupa á tæki fyrir sjúkra-
húsið.
Göngunum var lokað kl. 22.00 í
gærkvöld og var unnið við hreins-
un í alla nótt.
Fréttaritari