Morgunblaðið - 07.06.1985, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. JÚNÍ 1985
Sigurgeir Þorgeirsson talsmaður Sigtúnshópsins:
„Við gleðjumst, en margt
óleyst enn aftur í tímannu
HÚSNÆÐISHÓPURINN svonefndi, sem gjarnan hefur verið nefndur Sig-
túnshópurinn, hefur lýst ánægju sinni yfir því að hreyfing skuli vera komin á
málin, og að stjórnvöld hafa ákveóið að veita umtalsverðum fjármunum til
húsnæðislána á næstu 18 mánuðum, umfram það sem gert var ráð fyrir
upphaflega. Hópurinn telur þó, að ekki sé nóg að gert fyrir þá húsbyggjendur
og íbúðarkaupendur, sem hvað verst hafa farið út úr svokölluðu misgengi
kaupgjalds og lánskjara undanfarin ár. Þetta upplýsti Sigurgeir Þorgeirsson,
einn talsmanna húsnæðishópsins.
„Við lýsum ánægju yfir því að
það er komin hreyfing á málin,"
sagði Sigurgeir, „þótt það sé alveg
ljóst að með þessum ráðstöfunum
verður ekki allt leyst. Sérstaklega
verður margt óleyst aftur í tím-
ann, vegna þess vandamáls, sem
skapast hefur á undanförnum ár-
um.“
Sigurgeir sagði að það væri
engu að síður ljóst að það væru
stórar fjárhæðir, sem verið væri
að taka inn í húsnæðiskerfið, og
það fjármagn hlyti að bæta hag
Húsnæðisstofnunar á þessu ári og
þeirra sem nú þyrftu að leita til
hennar. „Við gleðjumst yfir þessu,
og teljum þetta að verulegu leyti
ávinning af þeirri baráttu og því
umtali sem fram hefur farið nú í
vetur," sagði Sigurgeir. Hann
sagðist að vísu hafa kosið að lof-
orð um skattafrádrátt til þeirra
sem verst hefði lent í misgenginu,
væru afdráttarlausari, og að hús-
byggjendur myndu fylgjast náið
með framvindu þeirra mála, nú á
næstunni.
Sigurgeir var spurður hvernig
honum litist á þær leiðir sem vald-
ar hefuðu verið til þess að afla
fjárins: „Ég gagnrýni þær leiðir
Vörubílstjórar
verða áfram í ASÍ
VERKTAKAR í Vinnuveitendasambandi Islands hafa oft á síðustu fímmtán
árum boðið Landssambandi vörubflstjóra að ganga í Verktakasamband ís-
lands, að því er Herluf Clausen, formaður landssambandsins, sagði í samtali
við blm. Morgunblaðsins. f blaðinu á miðvikudag var sagt frá því að fyrsta
viðræðufundi VSÍ og vörubflstjóra um hugsanlega gerð nýs kjarasamnings
hefði lyktað með því, að verktakar hafí boðið bflstjórunum að færa sig yfír
borðið.
„Þetta kemur ekki til greina af
okkar hálfu, samstaðan hjá okkur
og í Alþýðusambandinu er góð og
engin ástæða fyrir okkur til að
fara — auk þess sem bílstjórar eru
að sjálfsögðu launþegar og ekkert
annað," sagði Herluf Clausen.
„Það hefur gerst áður að samning-
um við okkur hefur verið sagt upp
af Verktakasambandinu og okkur
hótað að þeir samningar yrðu ekki
endurnýjaðir. Slíkt hefur engin
áhrif á okkur — við erum í ASIog
verðum það áfram."
Herluf sagði að hann hefði trú á
að samningar milli verkalýðs-
hreyfingarinnar og atvinnurek-
enda gætu tekist á grundvelli
þeirra tillagna og hugmynda, sem
settar hefðu verið fram af VSÍ og
ASÍ. „Aðalatriðið er að kaupmátt-
ur sé tryggður,“ sagði hann, „og
það gerist náttúrlega ekki nema
menn byrji að tala saman, eins og
nú er að gerast. Þessar tillögur
VSÍ eru ekki fullkomnar og hljóta
að breytast eitthvað í viðræðum
en ég trúi ekki öðru, en að við
náum saman á endanum."
ekkert - hvorki söluskattshækkun-
ina né aðrar hækkanir. Ég gleðst
yfir því að þeir skuli hafa horfið
frá því að taka erlend lán. Menn
verða að átta sig á því, þó þeir séu
ekki hrifnir af skattheimtu yfir
höfuð, að erlend lántaka til svona
verkefna er ekkert annað en fram-
vísun á skatta til síðari tíma. Það
er ennþá lítilmannlegri leið heldur
en að þora að taka skattana jafn-
óðum,“ sagði Sigurgeir.
Kirkjudagur
á Kálfatjörn
HINN ÁRLEGI kirkjudagur
Kálfatjarnarsatnaðar verður
næstkomandi sunnudag, 9. júní.
Guðsþjónusta hefst í kirkj-
unni kl. 2 e.h. Þórhildur Ólafs,
guðfræðingur, prédikar og
formaður sóknarnefndar, Jón
Bjarnason, flytur ávarp.
Kirkjukórinn syngur og tví-
söng og einsöng flytja Guðrún
Egilsdóttir, Þórdís Símonar-
dóttir og Guðmundur Sigurðs-
son. Organisti er Jón Guðna-
son.
Að lokinni kirkjuathöfn
mun Kvenfélagið Fjóla selja
kaffiveitingar í Glaðheimum í
Vogum.
Kirkjudagar þessir hafa
ávallt verið hinir ánægju-
legustu og er ekki að efa, að
enn muni margir velunnarar
Kálfatjarnarkirkju fjölmenna.
A
REYKJAVÍK
Aðalfundur
Aðalfundur Hafskips hf. verður haldinn föstudaginn 7. júní
í Súlnasal Hótels Sögu.
Fundurinn hefst kl. 16:30.
Stjórn Hafskips hf.
Hluthafar eru vinsamlegast beðnir að hafa með sér aðgöngukort og atkvaeðaseðla,
sem send voru út með fundarboði.
Ásmundur Sveinsson ásamt verkinu Dýrkun.
Ásmundarsafn:
Konan og kvenímynd
á ríka hlutdeild í
verkum Ásmundar
— segir Gunnar B. Kvaran, listfræðingur
„Hugmyndin að sýningunni, „Konan í list Asmundar Sveinssonar“ kom
meðal annars upp í stjórn safnsins, vegna þess að nú dregur að lokum
kvennaáratugarins,“ sagði Gunnar B. Kvaran, listfræðingur og forstöðumað-
ur Ásmundarsafns, en á morgun, laugardaginn 8. júní, verður sýningin opnuð
og stendur hún fram í aprfl á næsta ári.
„Konan og kvenímyndin á ríka
hlutdeild í verkum Asmundar og
kemur allsstaðar fram á ólíkum
timabilum á listferli hans. Hún
fær í hvert sinn ákveðið yfirbragð
hvers tímabils, jafnvel ákveðið
trúaryfirbragð, en er alltaf með og
fær að njóta sín. Kynnir sjálfa sig
og sína vinnu eins og til dæmis í
myndverkunum „Þvottakonan",
„Kona við strokk" eða „Kona og
barn“. Konan í verkunum er yfir-
leitt tengd frjósemishugtaki eða
hún er í hlutverki verndarans.
Þetta á sér auðvitað sögulega
skýringu. í listnámi Ásmundar
voru kveneinkennin ákveðin við-
miðun, en vert er að taka eftir því
að ólíkt kvenímynd annarra Evr-
ópumyndhöggvara fyrr og síðar þá
er erótísk túlkun á konum í verk-
um Ásmundar hverfandi. Hans
túlkun er fyrst og fremst innilegt
samband, til dæmis milli konu og
manns eða samband móður og
barns,“ sagði Gunnar að lokum.
Á meðan Ásmundur var á lífi
voru í safninu yfirlitssýningar á
verkum hans og eins var fyrsta
árið eftir að Reykjavíkurborg fékk
safnið að gjöf. Stjórn safnsins hef-
ur síðan samþykkt að á hverju ári
verði sýning safnsins tileinkuð
einhverju ákveðnu efni úr verkum
hans og í fyrra var sýning á
„Vinnan í list Ásmundar“.
Eins og fyrr segir er viðfangs-
efni sýningarinnar í ár „Konan í
list Ásmunar Sveinssonar" og er
sýningunni skipt í fjórar einingar
og sýnt er í fjórum sölum safnsins.
„Kona og barn“ uppi í Kúlunni;
„Kona og karl“ niðri í kúlunni;
„Kona við vinnu“ i Pýramídunum
og „Kona sem tákn“ í Skemmunni.
Ásmundarsafn gefur út níu kort
með myndum af konum í mynd-
verkum listamannsins í tilefni af
sýningunni og auk þess 36 lit-
skyggnur, sem sýna yfirlit yfir
listferil Ásmundar. Litskyggnun-
um fylgir bók, sem hefur að geyma
inngang um ævi og list Ásmundar
og skýringar við hverja mynd.
Ásmundarsafn er opið yfir
sumarið alla daga kl. 10—17. Og
yfir veturinn, þriðjudaga, fimmtu-
daga, laugardaga og sunnudaga kl.
14-17.
18 !i l! íí f 1! ír 'iri. II! r:| «N II «a 8« s ■ Sr* 81! 18 Sl
■■ ■ ■ asi Hfi~ B'4 ww «B ■ «' Wl'
» » ii 8H s. 1. 8. iN Éa Ak RB II 18 8« 81 81
»a «■ aa aa aiH msk aiH su BB ss SB i« ᥠ«W r«' mm
!! » » 81 88 88 88 SR sS ss 88 ■ ■ ■ ■ 88 s: Sf gj
1 ■ ■ » SB I 88 11 II 1 i: II 08 »# us 8« B» BS 88 »» r 81 S! 88 K :: is I 1
Morgunblaðið/Július
Hús Jónasar Hallgríms-
sonar á Þjóðminjasafninu
Nýlega kom til landsins líkan þetta af húsinu nr. 22 við Sankt Pet-
ersstræde í Kaupmannahöfn. I þessu húsi bjó Jónas Hallgrímsson
síðustu ár ævi sinnar frá 1835—45. Líkanið er varðveitt á Þjóðminja-
safninu en hingað komið fyrir tilstilli menntamálaráðuneytisins. Dönsk
arkitektastofa sá um smíði líkansins, en húsið á að hafa litið svona út í
kringum 1840, aðeins 50 sinnum stærra.