Morgunblaðið - 07.06.1985, Side 26
26
MORGUNBLAIMÐ, FÖSTUDAGUR 7. JtJNÍ 1985
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir JÓHÖNNU KRISTJÓNSDÓTTUR
Sri Lanka:
Voðaverkum ætlar ekki
að linna og stjórnin ræð-
ur ekki neitt við neitt
ENGINN endir virðist á þeim hormungum, sem dynja yfir Sri Lanka;
skæruliðar Tamila í austurhluta landsins hafa síðustu daga og vikur látið
enn meira að sér kveða og segja að þeir muni ekki láta af hermdarverk-
um fyrr en Tamilum verði leyft að stofna sérstakt ríki, Eelam. Bardagar
halda áfram þrátt fyrir að ýrasir forsvarsmenn Tamila hafi lýst því yfir að
þeir vilji setjast að samningum við Jayawardene forseta og aðra ráða-
menn og binda endi á ofsóknir og hrylling sem hefur farið eins og eldur
í sinu um Sri Lanka. í fyrstu var ókyrrðin mest í norðurhluta landsins,
þar sem Tamilar eru fjölmennastir, en hún hefur síðan breiðzt út með
hörmulegum afleiðingum og eins og venjulega er það saklaust fólk sem
fyrir mestum hrellingum verður.
• •
Oryggissveitir stjórnarinnar
eiga í vök að verjast að því
er segir bæði í skeytum AP og í
síðasta eintaki Far Eastern Ec-
onomic Review. Svo er nú komið
að Sinhalesar hvar sem er á
eynni telja sig ekki óhulta og
grimmdarlegar árásir herskárra
Tamila eru tíðari. En það eru
auðvitað ekki aðeins Sinhalesar
sem eru óttaslegnir, óbreyttir
borgarar af kynþætti Tamila
taka til fótanna þegar sést til
hersveita Sinhalesa, enda
skæruliðar Tamila ekki einir um
hryðjuverkin sem eru unnin í
nafni sjálfstæðis og friðar á
þessari fallegu eyju.
Fréttamenn segja að eitt lítið
atvik sem gerðist á dögunum
sýni glöggt hvernig andrúms-
loftið er; skriðdrekasveit Sinhal-
esa kom inn í lítið Tamila-þorp
og borgarar flýðu bæinn snar-
lega og leyniskyttur Tamila hófu
skothríð á Sinhalesana. Það kom
í ljós að hermennirnir höfðu
komið inn í þorpið til að kaupa
vistir.
Allar ferðir eru stórhættu-
legar, ráðist er á bíla sem út-
lendingar eru í og þeir reknir út
og mega þakka fyrir ef þeir eru
ekki barðir með byssuskeftum
áður en bílarnir eru ýmist teknir
af þeim eða kveikt í þeim. Gildir
þá einu þótt á ferð séu friðsamir
ferðamenn. Einkum eru það
skæruliðar Tamila sem hafa
áreitt fólk á ferð, en öryggis-
sveitir Sinhalesa eru sannarlega
ekki saklausar af slíkum aðgerð-
um.
Fréttir herma að æ erfiðara
gangi að fá Sinhalesa í öryggis-
eða jafnvel lögreglusveitir,
vegna þess að þeir óttist atlögur
úr launsátri frá Tamilum og
fjöldi manns hefur flúið land og
treystist ekki til að búa við
ógnarástandið.
Eftir því sem opinberar tölur
Gert að sárum ungrar stúlku eftir
árás Tamila í Anuradhapura
segja hafa 230 manns látist á
eynni síðustu tvær vikurnar, ör-
yggissveitarmenn, skæruliðar og
óbreyttir borgarar og eru þeir
flestir eða 148. Hætt er við að
þessar tölur séu hærri.
Þótt ástandið sé slæmt í aust-
urhluta landsins er það þó sýnu
flóknara í norðurhlutanum
kringum borgina Jaffna, höfðuð-
vígi Tamila á Sri Lanka. Undan-
farna mánuði hefur það svæði
verið nánast einangraö frá öðr-
um hlutum landsins og mjög
takmarkaöar fréttir berast það-
an. Að því er Far Eastern Econ-
omic Review hefur eftir sínum
manni í Colombo hefur örygg-
issveitunum tekizt að halda þar
sæmilegum friði enda eru þær
fjölmennastar þar.
Furðulegt verður svo að telj-
ast hvernig stjórn Juniusar Ja-
yawardene forseta hefur haldið
á þessu máli. Fyrst eftir að
ókyrrðin sem nú er fór að vaxa,
talaði forseti fjálglega um nauð-
syn samninga og þjóðarsáttar.
Hann lét jafnvel að því liggja að
hann væri tilbúinn að gera ein-
hverjar þær breytingar á skipan
mála sem tryggðu rétt Tamila,
enda blandast engum hugur um
að Tamilar eru í reynd annars
flokks borgarar í sínu eigin
landi. Eftir að skæruliðar Tam-
ila fóru að herja á öryggissveitir
og óbreytta borgara snerist for-
setanum hugur og talaði um að
hann myndi ekki láta hryðju-
verkamenn neyða sig til samn-
inga. Indverjar og ýmsir aðrir
hafa reynt að miðla málum, það
hefur ekki borið nokkurn árang-
ur. Og enn heldur blóðbaðið
áfram og það er engu líkara en
enginn ætli að reyna að gera
neitt.
Að vísu stendur ríkisstjórnin
nú andspænis því að verða að
taka afstöðu til skæruliðaárásar
sem var gerð á borgina Anura-
dhapura, sem er héraðshöfuð-
borg í Mið-Sri Lanka. Tamilar
höfðu ekki verið fyrirferðar-
miklir í þessari borg, sem er m.a.
fræg fyrir fögur Búddamusteri
og mikla trúariðkun. Dulbúnir
sem hermenn rændu 25 skæru-
liðar strætisvagni, létu aka hon-
um um borgina og skutu út um
gluggana á hvern sem fyrir varð.
í kjölfar þessa voðaverknaðar
urðu svo óeirðir í grennd við hið
heilaga tré, sem sagt er að
Búdda hefi setið undir þegar
hann fékk vitrun sína.
Frá Anuradhapura héldu
skæruliðarnir herskáir og
ánægðir með „afrek" sín til
Vilpattu-þjóðgarðsins. Fréttir
voru sendar til lögreglustöðvar í
grenndinni og vegatálmanir
voru settar upp, en allt kom fyrir
ekki og í Wilpattu voru 25
manns skotnir til bana.
Þannig heldur stríðið og lífið
og dauðinn áfram að vera það
sem er daglegt líf fólksins á Sri
Lanka. Stjórnin er tvístígandi og
á báðum áttum; hermdar- og
hefndarverkin halda áfram,
skæruliðar bíta í skjaldarrendur
og hrósa sér af sem flestum og
ljótustum manndrápum. Enginn
er öruggur lengur og heiftin og
hatrið, ofstækið og hryllingur-
inn setur allt svipmót á Paradís-
areyjuna, sem liggur þarna í
Indlandshafinu eins og tár sem
fallið hefur af hvörmum Ind-
lands.
(Ileinildir F«r Eutern Economic Reriew, AP.)
Öryggissveitarmenn Sinhalesa í Jaffna
Papandreou vill
bæta samskiptin
við Bandaríkin
Aþenu, 6. júm. AP.
ANDREAS Papandreu forsætisráðherra Grikklands gaf í skyn í dag að hann
stefndi enn að því að loka bandarískum herstöðvum í Grikklandi þegar
núverandi fimm ára samningstímabili lýkur, árið 1988.
Papandreu sagði á blaðamanna-
fundi sem hann hélt í dag að hann
hefði áhuga á því að samskipti
Grikkja og Bandaríkjamanna
yrðu í framtíðinni betri en á liðn-
um árum. Hann sakaöi fjölmiðla
menn um að eiga sinn þátt í að
kynda undir tortryggni milli
Grikkja og Bandaríkjamanna.
Papandreu sagði ennfremur að
Bandaríkjamenn yrðu að taka
meira tillit til vandamála sem
Grikkir ættu við að stríða, einkum
innan Atlantshafsbandalagsins
vegna Tyrkja. Forsætisráðherr-
ann sagðist ekki búast við neinum
sérstökum viðræðum við Tyrki,
um ekkert væri að ræða við þá
meðan Tyrkir hersætu hluta Kýp-
ur. Papandreu sagði að stjórn sín
myndi halda áfram að vinna að
þeim áætlunum að Balkanskagi
verði kjarnorkuvopnalaust svæði
„en allt slíkt tekur langan tíma,“
bætti hann við. Athygli vakti
hversu hófsamur Papandreu var í
orðum, einkum og sér í lagi hvað
varðar Bandaríkin.
Commercial Fishing:
Markúsarnetið
fær góða dóma
f BRESKA sjávarútvegsritinu „Commercial Fishing", þriðja hefti þessa
árs, er ítarleg grein um „Markúsarnetið", björgunarnetið, sem Markús
heitinn Þorgeirsson sjómaður í Hafnarfirði fann upp og er nú til taks í
mörgum íslenskum fiskiskipum. Er farið mjög lofsamlegum orðum um
björgunarnetið og iagt til að það verði lögleitt í Bretlandi.
Höfundur greinarinnar gerir ari og þess vegna skipti meira
mjög nákvæma grein fyrir notk- máli þar að ná þeim strax um
un netsins og birtir teikningar borð, sem falla útbyrðis. Við
máli sínu til skýringar. Segir þessar aðstæður hafi kostir nets-
hann, að aðstæöur um borð í ís- ins komið hvað best i ljós og taki
lenskum og breskum fiskiskipum það þá björgunarhringnum og
séu mjög svipaðar, en við ísland líflínunni langt fram.
sé sjórinn hins vegar miklu kald-
Aquino-máiið:
Eini sjónarvottur
morðsins sat í fang-
elsi í Hong Kong
Manilla, Kilippscyjuin. 6. júni. AP.
EINA vitnið sem hefur borið að hafa
séð filippeyskan hermann skjóta
stjórnarandstöðuleiðtogann Benigno
Aquino játaði í dag að hún hefði set-
ið í fangelsi í Hong Kong og reynt
tvívegis að svipta sig lífi, en sagði
jafnframt við Aquino-réttarhöldin í
dag, að fortíð hennar breytti engu
um það sem hún sá út um flugvél-
argluggann.
Stúlkan heitir Rebecca Quijano
og eftir atburðinn á flugvellinum
var lengi talað um hana sem
grátkonuna þar sem að henni setti
mikinn grát eftir að hún sagði í
votta viðurvist hvað hún hefði séð.
Seinna hvarf hún sjónum og hefur
skýrt svo frá að hún hafi ekki þor-
að fyrir sitt litla lif að koma fram
með vitnisburð sinn fyrr en eftir
að Agrava-skýrslan var birt,
vegna þess að hún óttaðist um lif
sitt.
Saksóknari fékk síðan talið
hana á að bera vitni og í dag var
hún yfirheyrð af verjanda og kom
þá fram að hún hefði setið í fang-
elsi. Rebecca hefur lýst skilmerki-
lega hvað hún hafi séð og hefur
fram að þessu ekki fundizt nein
, ERLENT,
gloppa í frásögn hennar. Frétta-
skýrendur telja auðsætt að verj-
andinn hafi grafið upp gamlar
ávirðingar til þess að veikja traust
á henni.
Útgefandi Der
Spiegel dæmdur
í fíkniefnamáli
Tempio Paiumnu, Snrdinlu, 5. júnl. AP.
í DAG var Rudolf Augstein, útgef-
andi tímaritsins Der Spiegel, dæmd-
ur til 16 mánaða fangelsisvistar skil-
orðsbundið fyrir að kaupa og eiga
hass, að því er frá var skýrt í fréttum
á Ítalíu.
Vinur Augsteins, Luther Henn-
ing, hafði sent réttinum yfirlýs-
ingu þess efnis, að þau 40 grömm
af hassi sem fundist höfðu I fórum
Augsteins á flugvellinum á Sard-
iníu árið 1979, hefðu verið í sinni
eigu, en ekki útgefandans. Aug-
stein hefði ekki einu sinni vitað
um, að fíkniefnið var í ferðatösku
hans, að því er sagði í fréttunum.
Rétturinn dæmdi Henning til
átta mánaða fangelsisvistar fyrir
meinsæri, og var dómurinn yfir
honum einnig skilorðsbundinn.
í fréttunum voru báðir menn-
irnir sagðir hafa verið heima hjá
sér í Vestur-Þýskalandi, er dóm-
arnir voru upp kveðnir, en sam-
kvæmt ítölskum lögum er unnt að
rétta í máli, þó að sakborningur sé
fjarstaddur.