Morgunblaðið - 07.06.1985, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. JÚNÍ 1985
............................. ■■ ■■■
Gönguferðir hjá
Ferðafélaginu
FERÐAFÉLAG íslands gengst fyrir
tveimur gönguferðum um helgina.
Kl. 10 á sunnudag verður ekið til
Þingvalla og gengin gömul þjóðleið
frá Svartagili í Brynjudal, og heitir
hún Leggjabrjótur.
þetta er grýttur háls en leið hef-
ur verið rudd um hann. Þessi leið
var fjölfarin að fornu og er hún
mörkuð vörðubrotum. Sama dag
kl. 13 verður ekið í Brynjudal,
gengið með Brynjudalsá í
Þrengsli, þar sem er fallegur foss.
Miðvikudaginn 12. júní er síðasta
gróðurræktarferð Ferðafélagsins í
Heiðmörk.
(tlr rréttatilkynningu)
Samtök kvenna á
vinnumarkaðinum:
Efna til
fundar
um samn-
ingamálin
SAMTÖK kvenna á vinnumarkaði
efna til fundar að Hallveigarstöðum,
mánudaginn 10. júní nk. kl. 20.30,
undir yfirskriftinni „Lausa samn-
inga í haust — skýrar kröfur".
Frummælendur verða Dagbjört
Sigurðardóttir, sem ræðir samn-
ingamálin innan ASÍ og sérstak-
lega VMSl; Sigríður Kristinsdótt-
ir, sem ræðir horfur í kjaramálum
innan BSRB og Birna Þórðardótt-
ir, en erindi hennar nefnist
„Hvers krefjumst við og hvernig
náum við því fram?“ Fundarstjóri
verður Margrét Pála Ólafsdóttir.
Að loknum framsöguræðum
verða almennar umræður.
Samtök kvenna á vinnumarkaði
hafa hvatt félaga i Kvennafylk-
ingu Alþýðubandalagsins,
Kvennaframboðinu, Kvennalist-
anum, Sambandi Alþýðuflokks-
kvenna og konur úr Bandalagi
Jafnaðarmanna að mæta á fund-
inn.
(Úr (rétutilkjnningu.)
Leiðrétting
ORÐIÐ ekki féll því miður niður á
einum stað í myndlistarþætti
Valtýs Péturssonar um sýningu
Bat-Yosef í blaðinu í gær. Þar átti
að standa: „ ... og hefur hún ekki
valdið honum nokkrum vonbrigð-
um*.
Nýtt Líf
komið út
ÞRIÐJA tölublað þessa árs af tfma-
ritinu Nýtt líf er nú komið út.
Meðal efnis í tímaritinu er við-
tal við Sigríði Einarsdóttur, fyrstu
konuna sem Flugleiðir hf. hefur
ráðið til starfa sem flugmann hjá
félaginu. Þá er fjallað um
MS-sjúkdóminn og rætt við
nokkra sem haldnir eru honum.
Spjallað er við Guðna Guð-
mundsson, rektor Menntaskólans í
Reykjavík, og nokkrir nemenda
hans segja sögur af honum í létt-
um dúr.
Þá er rætt við stúlkurnar tvær
sem báru sigur úr býtum f Elite-
keppninni sem Nýtt Líf stóð að
ásamt Elite-fyrirsætufyrirtækinu.
í tímaritinu er jafnframt að finna
greinar um bókmenntir, listir,
matargerð, sálarfræði, húsbúnað
o.fl.
Nýtt Líf er 116 bls. að stærð og
prýtt fjölda litmynda. Ritstjóri
tímaritsins er Gullveig Sæmunds-
dóttir.
(FrétUtilkyDning.)
Oxsmá í tónleikaferð um
Norður- og Austurland
HUÓMSVEITIN Oxsmá fer í tón-
leikaför um Austur- og Norðurland
7. til 17. júní og í frétt frá hljómsveit-
inni segir að nýútgefin hljómplata,
„Rip Rap Rup“, verði með í förinni.
Á föstudagskvöldið 7. júní leik-
ur hljómsveitin í Sindrabæ á Höfn
í Hornafirði, á laugardagskvöld í
Egilsbúð Neskaupstað og í Herðu-
breið Seyðisfirði að kvöldi hins 9.
júní. Síðan verður hljómsveitin í
Valaskjálf Egilsstöðum mánu-
dagskvöldið 10. júnf, Miklagarði
Vopnafirði þriðjudagskvöldið 11.
júní og f félagsheimili Húsavikur
að kvöldi miðvikudagsins 12. júnf.
Á fimmtudagskvöldið 13. júní spil-
ar hún í Sjallanum á Ákureyri og
föstudagskvöldið 14. júní í Sæborg
f Hrísey og í Víkurröst á Dalvík
laugardagskvöldið 15. júnf. Sfð-
ustu tónleikarnir verða að lokum f
Fellsborg á Skagaströnd sunnu-
dagskvöldið 16. júní.
VIÐIR
Mesta úrval
af Grillmat
Grillpinnum og
Kryddlegnu kjöti.
í Mjóddinni:
kynnum
FÖR0YA BJÖR
frá Færeyjum.
Eplarúllur með Mjúkís
MAR sjólaxog Reyksfldarpasta
Kynnum og gefum að smakka
Rjómatertustykkí frá Kringlunní ng?
með Sherry og Fromage mr
kynningarverð - ^ ^ 00
AÐEINS
Sigmar B. Hauksson sæikerí
kynnir bók sýna „99 auðveldir réttir‘
með sýnikennslu.
í Starmýri: MAR sjólax-og Reyksfldarpasta
Nýtt á íslandi!
Aprica
Bamavagninn með miklu
möguleikana. Bamavagn
og kerra í einu.
Leiðbeinandi á staðnum
Fyrir sumarið
HUMMEL
TRIMMGALLAR: Verð frá kr.
Los Angeles glansgallar 1.685.00
Osaka 51 M 1.985.00
USA Sport glansgallar 1.495.00
Montora 1.538.00
og Lucena frá 4-14 1.185.00
.66
Mjúkís 1 ltr.
Súkkulaði
Vanillu jW
TILBOÐ
Niðursagaðir
lambaframpartar
159"
pr.kg.
Lambakjöt
í 1/1 skrokkum
niðursagað AÐEINS
.00
pr. kg.
169
Opið til kl. 21 í Mjóddinni ATH. Lokað á
en til kl. 19 í Starmýri Laugardögum
og Austurstræti. j sumar?