Morgunblaðið - 07.06.1985, Blaðsíða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. JÚNÍ 1985
Stuttar þingfréttir
„Starfsfólk flýr dagvistarstofnanir“:
Þingskaþaumræða
um dagvistarmál
Starfsmenn sveitarfélaga en ekki ríkisins,
sagði menntamálaráðherra
Það var fjölmenni á þingpöllum í gær, fóstrur og smábörn, þegar
Krístín S. Kvaran (BJ) kvaddi sér hljóös um þingsköp en ræddi einkum
þann vanda dagvistarstofnana, sem til væri kominn vegna flótta starfs-
fólks frá þeim af kjaralegum ástæóum. — Ragnhildur Helgadóttir
menntamálaráóherra kvað starfsfólks dagvistarstofnana ekki ríkis-
starfsmenn heldur starfsmenn sveitarfélaga. Kjaramál þess heyrðu sveit-
arfélögum frekar til en ríkinu. í önnum síðustu þingvikna væri erfítt um
vik að koma við utandagskrárumræðu svo til fyrirvaralaust. Þar að auki
hafí ekki verið beint til sín efnislegum spurningum varðandi þetta mál.
Verði það gert sé hún að sjálfsögðu reiðubúin, eftir eðlilegt tóm til
gagnaöflunar, til að veita allar þær upplýsingar, sem eftir væri leitað og í
sínu valdi stæði að gefa.
Kristín S. Kvaran (BJ) vitnaði
til frétta í fjölmiðlum um flótta
starfsfólks af dagvistarstofn-
unum, vegna lakra kjara. Þessi
flótti sérhæfðs fólks frá dagvist-
arstofnunum skapaði mikinn
vanda, sem bitnaði ekki sízt á
yngstu borgurum en jafnframt
foreldrum, sem störf stunduðu
utan heimilis. Hún harmaði að
menntamálaráðherra hafi ekki
verið í stakk búinn til að standa
að utandagskrárumræðu um
þetta mál strax í dag. Þess vegna
hafi hún valið þann kost aö
kveðja sér hljóðs um þingsköp,
til að vekja athygli á þessum
vanda, sem brýnt væri að bregð-
ast við.
Ragnhildur Helgadóttir
menntamálaráðherra benti á að
starfsfólk dagvistarstofnana
væri ekki ríkisstarfsmenn held-
ur starfsfólk sveitarfélaga í
flestum tilfellum og kjör þess
heyrðu því frekar undir sveitar-
stjórnir en ríkisstjórn. Ástæður
þess að hún hafi ekki talið rétt
að hefja utandagskrárumræður
um þetta mál í dag, í miklum
starfsönnum á þingi, væru fyrst
og fremst tvær. Hin fyrri sú að
ekki hafi verið beint til sín
ákveðnum, efnislegum spurning-
um, til að svara. Sú síðari að
venja væri að ráðherrum gæfist
tóm til gagnasöfnunar og undir-
búnings þegar til utandagskrár-
umræðna væri stofnað. Hún
væri hins vegar reiðubúin til að
svara efnislegum spurningum,
sem heyrðu þessum málaflokki
til, með eðlilegum umþóttunar-
tíma.
Hófst nú hin harðasta hríð
stjórnarandstöðuþingmanna að
menntamálaráðherra, en þeir
töldu að ráðherrann hefði átt að
verða við tilmælum um utandag-
skrárumræður þá þegar. Til
máls tóku: Guðrún Helgadóttir
(Abl.), Jóhanna Sigurðardóttir
(A), Kristin Halldórsdóttir
(Kvl.) og Svavar Gestsson (Abl.).
Karvcl Pálmason (A), sem
gegndi störfum þingdeildarfor-
seta, áminnti hvern ræðumann-
inn á fætur öðrum um það, að
hér væri þingskaparumræða
leyfð og þá ætti ekki að ræða
efnisatriði mála, en allt kom
fyrir ekki. Hann fékk þau svör i
lokin frá þingdeildarmönnum,
sem til máls tóku, að hann hefði
í raun talað oftast í umræðunni!
Lög
Alþingi
ÞAÐ er oft talað um „laga-
regn“ rétt fyrir þinglausnir.
Ekki er hægt að tala um ský-
fall hjá löggjafanum enn sem
komið er, en smáskúrir gerir,
næstum hvern dag. Meðal laga
sem afgreidd hafa verið á síð-
ustu dægrum eru:
• 1) Siglingalög, mikill laga-
bálkur, sem fékk fréttalega
meðferð hér á þingsíðu með-
an þau vóru enn í frum-
varpsformi.
• 2) Lög um breytingu á
tekjuskattslögum (nr.
75/1981). Breytingin varðar
nýjan lið, 8. tölulið A—liðar
30. greinar laganna, sem orð-
ist svo: „Helming greiddra
meðlaga með barni sem er
innan 18 ára aldurs, þó að
hámarki sömu fjárhæð og
helming barnalífeyris sem
greiddur er skv. 14. gr. laga
um almannatryggingar".
• 3) Lög um fjárhagslegan
stuðning við tónlistarskóla.
Neðri deild Alþingis af-
greiddi frumvarp til laga um
sérstaka tekjuöflun vegna
húsnæðismála til efri deildar
í gær, eftir að hafa fjallað
um frumvarpið í einn dag.
Frumvarpið var lagt fram
síðastliðinn miövikudag.
Sama þingdeild afgreiddi
einnig frumvarp um
greiðslujöfnun fasteignaveð-
lána til einstaklinga til
seinni deildar.
Mengunarvarnir í
fiskimjölsverksmiðjum
Atvinnumálanefnd sameinaðs
þings flytur breytingartillögu við
áður fram komna tillögu um
mengunarvarnir í fiskimjölsverk-
smiðjum. Breytingartillagan felur
ríkisstjórninni, verði hún sam-
þykkt, að „gera áætlun um varan-
legar úrbætur í mengunarmálum
fiskimjölsverksmiðja í samvinnu
við eigendur og samtök þeirra, svo
og yfirvöld heiibrigðismála. Áætl-
unin miðist við að lágmarkskröf-
um um mengunarvarnir verði full-
nægt í öllum starfandi fiskimjöls-
verksmiðjum...“
Utflutnings-
verzlun — rök-
studd dagskrá
Stjórnarliðar í atvinnumála-
nefnd sameinaðs þings leggja til
að tillögu til þingsályktunar um
frelsi í útflutningsverzlun verði
vísað til ríkisstjórnarinnar með
rökstuddri dagskrá, i trausti þess
„*ð viðskiptaráðuneytið hafi við
framkvæmd útflutningsmála" þau
stefnumið að leiðarljósi að rétt sé
að auka athafnafrelsi útflutnings-
greina.
í greinargerð segir að viðskipta-
ráðherra hafi, með auglýsingu
sem tók gildi 1. janúar 1984,
ákveðið að „útflutningur á lang-
flestum iðnaðarvörum yrði undan-
þeginn útflutningsleyfum. Þá hef-
ur viðskiptaráðherra komið fram
breytingu á öðrum reglum sem
snerta útflutnings- og gjaldeyr-
ismál. Útflutningur á landbúnað-
arvörum og sjávarafurðum er háð-
ur eftirliti viðskiptaráðuneytisins
en í sumum greinum sjávarafurða
ríkir í reynd útflutningsfrelsi. —
Meiri hluti nefndarinnar telur að
rétt sé að auka athafnafrelsi út-
flutningsgreina. öllum verði
heimilaður útflutningur sem upp-
fylla lágmarkskröfur um verð og
gæði framleiðslunnar ...“
Barnshafandi
skipverji
Kristín Halldórsdóttir og Guð-
rún Agnarsdóttir, þingmenn
Kvennalista, flytja breytingatil-
lögu við frumvarp til sjómanna-
laga.
„Ef kona, sem er skipverji, verð-
ur barnshafandi, getur hún krafizt
lausnar úr skipsrúmi ef hagsmun-
ir hennar og barnsins krefjast
þess og á hún þá aðeins rétt á
kaupi fyrir þann tíma sem hun var
í skipsrúminu. — Ef kona fær
lausn úr skipsrúmi eftir ákvæðum
1. mgr. skal útgerðarmaður, sé
þess nokkur kostur, veita henni
annars konar starf á sinum veg-
um, óski konan þess.“
Markaðsverkefni
sjávarútvegs-
ráöuneytis
Steingrímur J. Sigfússon (Abl.)
hefur óskað skriflegs svars sjávar-
útvegsráðherra við fyrirspurnum
um markaðsverkefni ráðuneytis-
ins. Hann spyr m.a.: 1) hvað líði
störfum markaðsnefndar ráðu-
neytisins? 2) hvaða árangur hafi
orðið af þvi átaki sem nefnt var
„markaðsátak sjávarútvegsráðu-
neytis ... ? 3) við hvaða erlenda
aðila hafi verið rætt í tengslum
við þetta verkefni... ? 4) hvernig
ráðuneytið hyggist bregðast við
óskum YEMEN um samvinnu á
sviði fiskvinnslu og fiskveiði-
tækni? 5) hver sé heildarkostnað-
ur ráðuneytisins vegna þessa
verkefnis?
Skráning skipa
Samgönguráðherra hefur lagt
fram frumvarp til laga um breyt-
ingu á lögum um skráningu skipa.
Þar er lagt til að ráðljerra sé
heimilt, ef sérstakar ástæður
mæla með því, að leyfa skráningu
skipa hér á landi sem íslenskir að-
ilar reka, en er ekki í þeirra eigu.
Samkvæmt gildandi lögum verða
skip, sem skráð eru á íslandi að
vera að 3/5 hlutum í eigu íslend-
inga.
Lækkun
bindiskyldu
Lagt hefur verið fram frumvarp
til laga, þar sem gert er ráð fyrir
að bindiskylda innlánsstofnana
við Seðlabanka verði lækkuð í
15%. Flutningsmenn eru fjórir
þingmenn stjórnarandstöðunnar,
þau Eiður Guðnason, (A) Kristín
Ásgeirsdóttir, (K) Ragnar Arn-
alds (Abl.) og Stefán Benedikts-
son, (Bj). Frumvarpið er sam-
hljóða frumvarpi Eyjólfs Konráðs
Jónssonar, (S) sem fellt var fyrr í
vetur, en gengur þó ekki eins
langt.
í greinargerð segir:
„Seðlabankinn hefur nú laga-
heimildir til að binda allt að 38%
af sparifé landsmanna. Fram hef-
ur komið opinberlega að í frv. til
laga um Seðlabanka íslands, sem
bankamálaráðherra hefur boðað
að flutt verði, séu ákvæði um 15%
bindiskyldu. Bindiskyldan er nú í
raun 18%, en með því að lækka
hana í 15% mundu losna tæplega
800 milljónir króna.
Flm. þykir einsýnt að lækka
skuli bindiskylduna þegar í stað
og losa þannig fé til að létta
greiðslubyrði húsbyggjenda án
þess að til nýrrar skattheimtu
þurfi að koma. I þeim tilgangi er
þetta frumvarp flutt.“
Meiri hluti fjárhags- og við-
skiptanefndar hefur mælt með
samþykkt frumvarpsins, en hann
skipa Eyjólfur Konráð Jónsson, og
Valdimar Indriðason, Sjálfstæðis-
flokki, Eiður Guðnason, Alþýðu-
flokki, Kristín Ásgeirsdóttir,
Kvennalista og Ragnar Arnalds,
Alþýðubandalagi.