Morgunblaðið - 07.06.1985, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. JÚNÍ 1985
47
Réttur
ttoúsins
Margrét Þorvaldsdóttir
Dæmið ekki aðra menn
og gefíð ykkur ekki forsendur fyrirfram
því það er enginn sem ekki á sér framtíð.
Allt á sér stund og stað.
— segir í Talmud.
Látum þessa fornu speki verða
orð til umhugsunar á þessum logru
vordögum þegar allt líf er endurvak-
ið og menn strengja heit sín.
Góðir málsverðir örva ætíð já-
kvæðar hugsanir eins og t.d. þessi
austur-asíski pönnuréttur sem er
Fiskur með
tómata-
karrý
700 gr fiskflök
3 msk. hveiti
1 tsk. salt
3 msk. matarolía
1 stór laukur (saxaður)
1 hvítlauksrif (pressað)
3 meðalstórir tómatar (skornir í
litla teninga)
% tsk. karrý
1 bolli mjólk
1. Fiskflökin eru roðflett og bein
öll fjarlægð. Flökin eru síðan
skorin í fremur stór stykki og
þerruð vel með bréfaþurrku.
Hveiti og salti er blandað saman í
lítinn plastpoka og eru fiskstykk-
in, eitt og eitt í einu, hrist með
hveitinu þannig að þau fái léttan
hveitihjúp. Þau eru látin standa
smástund og þorna.
2. Á pönnu eru hitaðar 2 msk. af
matarolíu og eru fiskstykkin
steikt á báðum hliðum. Þau eru
síðan tekin af pönnunni áður en
þau eru soðin í gegn.
3. Því næst er 1 msk. af matar-
olíu bætt á pönnuna. Saxaður
laukur og pressað hvítlauksrif eru
steikt í feitinni við meðalhita eða
þar til laukurinn er orðinn Ijós-
brúnn en ekki brasaður. Karrýið
er sett út í og steikt með í mínútu
eða svo. Því næst er mjólkinni
bætt út í ásamt niðurskornum
tómötunum og er suðan látin
koma upp.
4. Að síðustu eru fiskstykkin sett
á pönnuna og soðin i sósunni í
u.þ.b. 2 mín. Pannan er hrist var-
lega af og til, hveitið af fiskinum
jafnar sósuna. Bætið við salti eftir
smekk.
Pönnuréttur sem þessi þykir
bæði bragðmildur og góður og er
einnig kaloríusnauður. Hann er
borinn fram heitur með soðnum
grjónum.
Það tekur ekki lengri tíma að
útbúa þennan fiskrétt en það tek-
ur að sjóða grjónin. Til að spara
tíma er hagkvæmast að byrja á
því að setja þau í pott og sjóða á
meðan fiskurinn er matreiddur.
Sem ábæti á sumardegi er alltaf
vinsælt að bera fram niðurskorna
ávexti ferska og niðursoðna eins
2 epli
2 appelsínur
1—2 banana
1 lítil dós ferskjur
Ávextirnir eru skornir niður
fremur smátt. Hluti af ferskjusaf-
anum er settur með ávöxtunum og
blandað vel. Þeir eru bornir fram
vel kældir.
Verð á hráefni
700 gr ýsuflök kr. 84.00
3 tómatar kr. 23.00
1 laukur kr. 7.00
pk. grjón kr. 14.00
kr. 128.00
OMAR
fer á kostum í
|\ ^
WAT
Omar rifjar upp og flytur léttmeti frá liðnum arum ásamt
frábærum nýjum þáttum eins og honum einum er lagið.
Kvöldverður framreiddur frá kl. 19.00.
STÓRHLJÓMSVEIT
GUNNARSÞÓRÐARSONAR
ásamt Björgvin, Þuríði og
-***'x' O IaÍI/O AIIA
Bítlainnrásin í Broadway
Muniö Tremelos 14. júnínk.
Hljómsveitin Fásinna frá Egilstöðum sem kosin var hljómsveit
ársins á hljómsveitakeppni sem haldin var í Atlavík sumarið '84
og varð í 3. sæti á músíktilraunum Tónabæjar skemmtir hjá
okkur í kvöld, hljómsveitin er nú í upptöku og er plata frá þeim
væntanleg á markaðinn í lok mánaðarins.
Hittumst í kvöld með Fásinnu.
Meiriháttar
dans-tískuþáttur
frá dansnýjung Kollu
og
tískuversluninni
Sonju.
Nú fer hver að
verða síðastur
til að sjá þetta
feykivinsœla
atriði, en það
verður aðeins
í kvöld.
Að sjálfsögðu
mœta Módelsport
á svœðið og sýna
okkur nýjustu
sumarlínuna
Sýtún