Morgunblaðið - 07.06.1985, Page 50
50
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. JÚNÍ 1985
2/15 €> 1985 Universal Press Syndicate
„ dytt'i cngum n cma. f?cr í hu^
oí> panta-PLug kl.4.3o ab morgri'."
... a ð þvinya hana, ekki
til fafrmlaya.
TM Reg. U.S. Pat Otf.—all rights reserved
«1985 Los Angeles Times Syndicate
Pabbi hefur alltaf verið á móti
þessum löngu kveðjustundum í
dyragættinni!
Með
morgimkaffinu
... og góður Gvuð ef ég bylti mér
mikið í svefninum viltu þá skjóta
hendi undir mig?
HÖGNI HREKKVÍSI
aÉG VILDI A€> po HÆTTIf? paSSUA HV/ERJOM
ÚT30KGUNARDE6\
4192—7828 tehir að mörgum stúlknanna sem tóku þátt f fegurðarsam-
keppninni sé ekki heimilt að koma fram á vínveitingahúsum.
Þessir hringdu . .
Of ungar stúlkur
í fegurðar-
samkeppnum
4192—7828 hringdi:
Ég var meðal þeirra sem
horfði á fegurðarsamkeppni ís-
lands í sjónvarpinu. Mig langar
að spyrja hvort eigi að leyfa
stúlkum, 16 og 17 ára, að taka
þátt í svona sýningum. Að mínu
mati eru þær ekki einu sinni
búnar að ná persónulegum
þroska á þessum aldri. Ginnig vil
ég spyrja hvort bðrnum á þess-
um aldri sé bannaður aðgangur
að vínveitingahúsum?
Fegurðarsamkeppnum er ég
ekkert á móti sem slíkum, en
mér finnst það vera að bjóða
hættunni heim að hafa svona
ungar stúlkur í keppninni því
mikið er í boði fyrir þær sem
hreppa hnossið og eru þessar
yngstu nógu þroskaðar til að
takast á við vandann ef ske
kynni að þær yrðu númer 1.
Að lokum vil ég láta álit mitt í
ljós. Yngri stúlkur en 19 til 20
ára ættu ekki að taka þátt í feg-
urðarsamkeppnum og einnig
þurfa þessar stúlkur að hafa ein-
hverja málakunnáttu því það er
sá „stóri heimur" sem þær keppa
við að lokum og myndi ég segja
að erfitt sé oft að tjá sig í heima-
landi sínu, hvað þá á erlendri
grund. Eru fleiri sömu skoðun-
ar?
Meiri blús
Valgeir Sveinsson hringdi:
Maður er nú alveg hættur að
geta lesið blöðin án þess að ein-
hver sé kvartandi um að uppá-
haldstónlist viðkomandi sé ekki
leikin í útvarpi. Hvernig væri nú
að aðdaéndur blús-tónlistar fari
að láta heyra frá sér. Einnig vil
ég gagnrýna plötubúðir landsins.
A öllu íslandi er aðeins ein
verslun, sem hefur eitthvað af
blús-plötum í sínum hillum, en
það er „Grammið", en þar sem
ég bý úti á landi er erfitt fyrir
mig að nálgast tónlistina.
Rígur milli
aðdáendahópa
Boggi hringdi:
Mér finnst leiðinlegt að heyra
hvað mikill rígur er á milli
áhangenda ýmissa hljómsveita
eins og „Frankie Goes to Holty-
wood“ og „Duran Duran". Eg
held upp á báðar hljómsveitir og
finnst mér að báðir þessir að-
dáendahópar ættu að fá að vera í
friði með sínar hljómsveitir.
Endursýna
„Ekki ég“
Sara hringdi:
Mig langar til að biðja sjón-
varpið að endursýna myndina
„Ekki ég“ og lengja Skonrokk
um hálftíma.
Frá Alþingi.
Auðir seðlar
Ilaraldur Guónaxon, skrifar:
Stundum hefur verið á það bent
að auðir atkvæðaseðlar geti haft
áhrif, enda þótt kjörstjórnir hafi
oft sett auða seðla og ógilda undir
einn og sama hatt, sem er rangt.
Nú er hart deilt um auðu at-
kvæðin svokölluðu, sem komu
fram við atkvæðagreiðsluna við
úrsögn eða ekki úrsögn úr BSRB.
Auður seðill er ógildur, sagði
Kári Arnórsson skólastjóri, sem
er einn þeirra manna, sem bíður í
ofvæni eftir að losna úr BSRB.
Þetta er skrýtin fullyrðing hjá
skólastjóranum. Ef t.d. nokkrir
kjósendur eru óánægðir með
frambjóðanda flokksins og ákveða
í sameiningu að skila auðu, þá
geta þeir fellt frambjóðandann.
Auðu atkvæðin geta því ráðið úr-
slitum — raunar á fleiri en einn
hátt.
Þá er það enn rangt í skrifi
skólastjórans, að þeir sem skili
auðu taki ekki afstöðu og einnig
það, að sá sem skilar auðu hafi
fyrirfram sætt sig við ákvörðun
meirihlutans.
Nei, aldeilis ekki. I síðustu al-
þingiskosningum voru auðir seðl-
ar fleiri en nokkru sinni fyrr. Þeir
voru mótmæli kjósenda gegn
stöðnuðu flokkakerfi, eða gátu
ekki sætt sig við frambjóðendur,
en alls ekki að þeir legðu blessun
sína yfir úrslitin.
En að slepptum „lögskýringum".
Svo virðist sem verulegur meiri-
hluti kennara vilji ganga úr
BSRB. Þeir hafa kosið að sprengja
samtökin. Og svo illa undu þeir
sambúðinni, blessaðir mennirnir,
að þeir kusu að kasta verkfalls-
réttinum fyrir róða, ef þeir bara
fengju skilnað. Kannski ætla þeir
að hafa þann hátt á að ganga út —
og inn uppá „góð orð og betaling".