Morgunblaðið - 13.06.1985, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 13.06.1985, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. JÚNÍ1985 37 Laxinn þreyttur á opnunardegi í Kjósinni. Heppnir veiðimenn í Núpalandi Stangaveiði hófst í Laxá í Að- aldal í löndum Núpa og Kjalar þann 10. júní eins og neðar í ánni og þeir sem hófu veiðina höfðu heldur en ekki heppnina með sér, fengu tvo laxa fyrsta daginn, 12 og 17 punda þunga. Þótti það hin ágætasta byrjun, því happdrætti er með veiði á þessu svæði svo snemma og sum árin veiðist þar ekki bein fyrr en lengra líður á veiðitímann. Ekki hefur bæst við aflann svo vitað sé, enda hefur áin ekki verið nýtt síðan í opnuninni. Tregfiski í Norðuránni Það rætist lítið úr í Norðurá, þó gekk betur hjá þeim hópi sem hætti á hádegi í gær heldur en hinum sem var á undan. Sá hóp- ur náði einum laxi og greip sá seinheppni lax agnið hjá á einum veiðimarnanna er aðeins sjö mínútur voru eftir af þriggja daga veiðitíma hópsins. Frést hefur að hópurinn sem hætti í gær hafi náð eitthvað um 20 löx- um og er það stórum betri frammistaða, en engin uppgrip þó. Ef til vill þokkalegt þó miðað við skilyrðin, bjart veður og lítið vatn. Þá eru komnir rétt rúm- lega 40 laxar á land úr Norðurá. Hvað með Langá? Veiði hefst í Langá á Mýrum á laugardaginn kemur, 15. júní. Langá hefur verið í miklum öldudal síðustu sumrin, en reyn- ist spár fiskifræðinga réttar, gæti áin rétt rækilega úr kútn- um í sumar. Ingvi Hrafn Jóns- son, fréttamaður með meiru, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að best væri að segja sem minnst um horfurnar, „ég verð þarna fyrir vestan fyrstu dag- ana, en geri mér engar sérstakar vonir, maður fær kannski einn lax eða tvo. Ég sá nokkra laxa í Sjávarfossi í vikunni svo þeir eru eitthvað farnir að stinga sér upp. Annars býst ég ekki við að það komi neitt að ráði í ána fyrr en í júnílok eða framan af júlí. En ef það bregst er ég hræddur um að eitthvað meira en alvar- legt sé á seyði og þá verði að stokka upp veiðimálin hér á landi,“ sagði Ingvi Hrafn. Kór Langholtskirkju meinað að yfirgefa hótel í Miinchen Kór Langholtskirkju varð fyrir nokkrum töfum á söng- ferð sinni um Mið-Evrópu á þriöjudaginn þegar kórnum var meinað að yfirgefa hótel í Miinchen. Astæðan var sú að greiösla fyrir dvöl kórsins hafði ekki borist hótelinu vegna misskilnings, að því er segir í frétt frá Guðlaugu Guðmundsdóttur, kórfélaga. Kórinn og fylgdarlið hans, alls 90 manns, hafði dvalist á hótelinu í þrjá daga og ætlaði að halda til Innsbruck á þriðjudaginn. Hótel- stjórnin kvikaði ekki frá þeirri reglu að halda gestunum þar til full greiðsla hefði borist. Málinu lyktaði loks þannig að greiðslu- trygging var send til bjargar kórnum og gat hann þá haldið ferð sinni áfram. Ferð kórsins er nú rúmlega hálfnuð og sagði Guðlaug að söng- ur kórsins héfði vakið mikla at- hygli þar sem kórinn hefði komið fram og hefðu gagnrýnendur á dagblöðum í Vín lokið lofsorði á frammistöðu hans. Kórinn söng fyrir fullu húsi í Karlskirkjunni í Vín, Dómíní- kanakirkjunni í Krems og svo í bænum Pernitz, sunnan við Vín. Einnig söng kórinn í Salzburg og Múnchen, þar sem tónleikarnir voru teknir upp fyrir vestur-þýska rikisútvarpið. Kór Langholtskirkju er nú í Innsbruck og heldur þar eina tón- leika áður en haldið verður til ít- alíu. Þar syngur hann á fjórum stöðum, þ. á m. Kirkju Heilags Markúsar í Feneyjum og dóm- kirkjunni í Flórens. Bókasýning í Háskóla- bókasafni SÝNING á bókum og tímaritum sem útgáfufyrirtækið Blackwell Scientif- ic lhiblications í Oxford hefur gefið Háskólabóksafni, verður opnuð í anddyri Háskóla íslands í dag, - fimmtudag, kl. 14. Gjöfin er veitt í tilefni af heim- sókn forseta íslands, frú Vigdísar Finnbogadóttur, til Oxford árið 1982. Forgöngu að gjöfinni hafði hinn danski Per Saugman, for- stjóri Blackwell-útgáfunnar. Gjöfin felur það í sér, að Há- skólabókakasafni gefst kostur á því um árabil, að velja endur- gjaldslaust þau útgáfurit Blackwell-forlagsins, sem talin eru koma að gagni við kennslu og rannsóknir í Háskóla tslands. Hefur safnið þegar tekið á móti um 1.200 bindum bóka og tíma- ritsárganga. Bækurnar taka til allflestra greina sem stundaðar eru við Há- skólann. Mikið er um rit í læknis- fræði, hjúkrunarfræði og náttúru- vísindum og talsvert um rit í hag- fræði, heimspeki og málvísindum. Margar gjafabókanna og sýnis- horn allra tímaritanna liggja frammi á sýningunni. Sýningin stendur til 25. júní og er opin alla virka daga frá kl. 9 til 17. (ílr fréttatilkynningu.) Landssamtök hjartasjúklinga: 3 milljónir kr. náðust með merkjasölu Landssamtök hjartasjúklinga stóðu fyrir merkjasölu um síðustu helgi, en fénu sem safnaðist verður varið til tækjakaupa handa væntan- legri hjartaskurðlækningadeild Landspítalans. „Undirtektir voru alveg frábær- ar um allt land og eiga allir sem stóðu að söfnuninni og þeir sem merki keyptu þakkir skildar fyrir framlag sitt,“ sagði Ingólfur Vikt- orsson, formaður landssamtak- anna. Hann sagði að heildarágóði af merkjasölunni hefði verið rúm- lega þrjár milljónir króna, en af því falla tæplega þrjár milljónir í hlut samtakanna sjálfra. Merkin voru seld um allt stór- Reykjavíkursvæðið og á um 50 stöðum víðs vegar um land. Ingólf- ur sagði að merkin hefðu selst upp úti á landi og legið við skorti á merkjum í Reykjavík. „Það gæti vel farið svo að þetta yrði árlegur viðburður," sagði Ing- ólfur, en þetta var í fjórða skipti sem landssamtökin hafa á einn eða annan hátt hjálpað til við að efla tækjabúnað ríkisspítalanna. Hátíðahöld í Reykjavík á 17. júní: Skemmtisigling á Tjörninni og golf í Hallargarðinum HÁTÍÐAHÖLD í Reykjavík á 17. juní verða með fjölbreyttu sniði sem endranær. Æskulýðsráð Reykjavíkur hefur haft veg og vanda af öllum undirbúningi hátíðahaldanna og var dagskráin á þjóðhátíðardaginn kynnt fréttamönnum á dögunum. Þau hafa ásamt fleirum haft veg og vanda af undirbúningi hátíðahald- anna á 17. júní. F.v.: Gísli Árni Eggertsson, æskulýðs- og tómstunda- fulltrúi, Þórunn Gestsdóttir, varaformaður Æskulýðsráðs Reykjavíkur, og Ólafur Jónsson, forstöðumaður Tónabæjar. Austurvöllur Dagskráin á 17. júní hefst kl. 10 með því að forseti borgar- stjórnar, Magnús L. Sveinsson, leggur blómsveig frá Reykvík- ingum, á leiði Jóns Sigurðssonar í kirkjugarðinum við Suðurgötu. Klukkan 10.40. verður þjóðhátíð- in sett á Austurvelli með ávarpi Kolbeins H. Pálssonar, for- manns Æskulýðsráðs Reykja- víkur. Þá mun forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir, leggja blómsveig frá íslensku þjóðinni að minnisvarða Jóns Sigurðsson- ar og forsætisráðherra, Stein- grímur Hermannsson, flytur ávarp. Að síðustu flytur fjall- konan ávarp sitt, Karlakór Reykjavíkur syngur og Lúðra- sveit verkalýðsins leikur. Guðsþjónusta hefst í Dóm- kirkjunni kl. 11.15. Séra Agnes M. Sigurðardóttir predikar og dómkórinn syngur undir stjórn Marteins H. Friðrikssonar. Ein- söngvari er Magnús Jónsson. Skemmtisigling á Tjörninni Frá kl. 11—12 munu félagar úr Fornbílaklúbbi íslands aka gömlum bifreiðum um borgina og kl. 13.30 gangast þeir fyrir hópakstri vestur Miklubraut og Hringbraut, umhverfis Tjörnina og að Kolaporti. Þar verður svo sýning á bifreiðum Fornbíla- klúbbsins frá 14.30 til 17. Frá kl. 13—19 getur fólk skemmt sér við mini-golf í Hall- argarðinum eða fengið róðrabát að láni hjá siglingaklúbbi Æsku- lýðsráðs Reykjavíkur og farið í skemmtisiglingu á suðurhluta Tjarnarinnar eftir vandlega merktum leiðum. Kl. 13.30 koma unglingar saman og tefla á úti- taflinu við Lækjargötu. Skák- sveitir úr tveimur skólum borg- arinnar aðstoða við taflið. Glímu- og golfsýning Ýmislegt verður um að vera í Hljómskálagarðinum á þjóðhá- tíðardaginn. Frá kl. 14—18 verða skátafélagar með tjaldbúðir og útileiki og kl. 14.30—15.15 gang- ast íþróttamenn fyrir glímu- og golfsýningu. Kl. 17.30 verður leikþáttur fyrir börn með þeim Randver Þorlákssyni, Sigurði Sigurjónssyni og Erni Árnasyni. Leikþáttur þessi verður fluttur tvisvar á Lækjartorgi fyrr um daginn. Skrúðganga Safnast verður saman við Hlemmtorg kl. 14 og tuttugu mínútum síðar gengið í skrúð- göngu áleiðis niður Laugaveginn og Bankastrætið. Lúðrasveitin Svanur leikur undir stjórn Kjartans Óskarssonar og skátar ganga með fána í broddi fylk- ingar. Þá munu félagar úr Þjóð- dansafélagi Reykjavíkur taka þátt í göngunni í þjóðbúningum. Reiðsýning o.fi. í miðbænum Margt verður til skemmtunar í miðbænum frá kl. 14.30—17. Leikþáttur fyrir börn, sem getið var um hér að framanverðu, verður fluttur á Lækjartorgi kl. 14.30 og 16 og Sultuleikhúsið skemmtir kl. 15 og 16.45. Klukk- an 15.45 sýna félagar úr Félagi tamningamanna, hestaíþróttir í Lækjargötu og 14.50 láta þeir fé- lagar Bjössi bolla og Jón Páll gamminn geysa þar. Klukkan 17 munu félagar úr Vélflugfélagi íslands fljúga flugvélum sínum yfir borgina. Rétt er að geta þess að börn sem verða viðskila við foreldra sína, verða í umsjá gæslufólks i Menntaskólanum í Reykjavík. Dagskrá fyrir aldraða í Gerðubergi í Breiðholti verð- ur blönduð dagskrá fyrir aldraða frá kl. 15—18, í umsjá Hermanns Ragnars Stefánssonar. Anna Guðmundsdóttir, leikkona flytur gamanmál, sýndir verða sam- kvæmisdansar og Sigfús Hall- dórsson og Elín Sigurvinsdóttir flytja lög eftir Sigfús, svo dæmi séu tekin. Á Kjarvalsstöðum verður blönduð dagskrá fyrir fólk á öllum aldri frá kl. 16—18. Þar mun íslenska hljómsveitin leika og Þjóðdansafélag Reykja- víkur sýna dansa og kynna ís- lenska búninga. Reykjavíkurmót í sundi Klukkan 15 hefst í sundlaug- inni í Laugardal Reykjavíkur- mótið í sundi, en það er haldið ár hvert. Kl. 16 fer fram knatt- spyrnuleikur á Laugardalsvelli milli úrvalsliðs drengja í Reykjavík og landsliðs drengja og kl. 17.15 fer þar fram knatt- spyrnuleikur milli úrvalsliðs kvenna í Reykjavík og landsliðs kvenna. Kvöldskemmtun á Lækjartorgi — hljóm- leikar í Laugardalshöll Frá kl. 19.30 til 12.00 leika Hljómsveit Magnúsar Kjart- anssonar, Rikshaw og Léttsveit ríkisútvarpsins fyrir dansi á Lækjartorgi. Klukkan 21 hefjast hljómleikar í Laugardalshöllinni sem standa til 00.30. Á hljóm- leikunum koma fram hljóm- sveitirnar Mezzoforte, Grafík, Gipsy og tónlistarmaðurinn Megas. Forsala aðgöngumiða hefst sunnudaginn 16. júní í miðbænum og í Laugardalshöll kl. 14—18. Miðaverð er krónur 100. Sjónvarpað verður beint úr Laugardalshöll milli kl. 22 og 23 og útvarpað verður á rás 2 á sama tíma.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.