Morgunblaðið - 20.06.1985, Blaðsíða 35
MORGUNBLADID, FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 1985
35
MorRunblaðiö/RAX
Frí fundi norrænna bankalögfræðinga í ráðstefnusal Hótels Loftleiða.
Fundur norrænna bankalögfræðinga:
Aðalerindið um
opinbera skrán-
ingu verðbréfa
NÚ STENDUR yfir fundur norrænna bankalögfræðinga í ráðstefnusal Hót-
els Loftleiða. Þingið var sett í gær með ræðu Þórðar Ólafssonar formanns
stjórnar félags bankalögfræðinga. Viðstaddur setninguna var Matthías A.
Matbiesen bankamálaráðhcrra.
Að sögn Þórðar hafa norrænir
bankalögfræðingar starfað saman
um langt árabil, eða allt frá því
fyrir fyrri heimsstyrjöld, og hist
reglulega annað hvert ár um langa
hríð. Á þessum fundum eru tekin
fyrir og rædd ýmis mál fræðilegs
efnis er varða starfsemi banka-
stofnana og lögfræðinga þeirra.
íslenskir bankalögfræðingar hafa
tekið þátt í þessu samstarfi frá
árinu 1977 en mótið er nú haldið í
fyrsta sinn hér á landi.
Erlendir gestir eru 73 talsins en
þátttakendur eru alls 93. Að mök-
um meðtöldum eru nú staddir hér
á landi um 150 erlendir gestir í
tengslum við mótið.
Aðalerindi ráðstefnunnar er
flutt af Allan Pedersen deildar-
stjóra Den Danske Bank (af 1871)
og fjallar það um opinbera skrán-
ingu verðbréfa. Síðan skipta gestir
sér í hópa sem hver tekur fyrir
sjálfstætt verkefni. Þau fjalla um
ábyrgðir bankastofnana á greiðsl-
um miili landa, starfsemi banka
og annarra fjármögnunarfyrir-
tækja og mörkin þar á milli,
ábyrgð banka á ráðgjöf og upplýs-
ingum og að lokum um upplýs-
ingar til þriðja aðila um hag eða
fjárhagsstöðu viðskiptaaðila
bankanna.
„Öll þau atriði sem tekin eru
fyrir á ráðstefnunni eru mjög í
deiglunni hér,“ sagði Þórður með-
al annars. „Nú er mikill vöxtur í
verðbréfasölu sem hófst með
stofnun ýmissa verðbréfafyrir-
tækja og á næstunni hefjast opin-
ber viðskipti með verðbréf á kaup-
þingi Seðlabankans. í fyrrinótt
var samþykkt frumvarp frá neðri
deild Alþingis um viðskiptabanka
sem væntanlega verður að lögum í
dag eða á morgun og eiga þau eftir
að gjörbreyta bankastarfsemi í
landinu."
„Þó ísland sé nokkuð á eftir hin-
um Norðurlöndunum hvað varðar
þróun í bankamálum er mjög mik-
ilvægt að geta rætt við erlenda
starfsbræður okkar og skipst á
gögnum. Á fundum sem þessum er
einnig stofnað tii persónulegra
kynna, sem ekki eru síður mikil-
væg og þekkingin sem hver miðlar
öðrum kemur okkur íslendingum
að góðu gagni þótt síðar verði,“
sagði Þórður að lokum.
Síðustu sýningar
Þjóðleikhússins
LEIKÁRI Þjóðleikhússins lýkur nú
um næstu helgi og í þessari viku
verða allra síðustu sýningar á þrem-
ur verkefnum leikhússins.
Valborg og bekkurinn, eftir
danska leikskáldið Finn Methling,
sem gengið hefur fyrir fullu húsi á
Litla sviðinu í vor, rennur sitt
skeið á enda nú í vikunni og verð-
ur síðasta sýning á verkinu
fimmtudaginn 20. júní kl. 20.30.
Leikstjóri sýningarinnar er Borg-
ar Garðarsson, en með hlutverkin
í leiknum fara þau Guðrún Þ.
Stephensen og Karl Ágúst Úlfs-
son, en Sigurður Alfonsson og
Reynir Jónasson skiptast á um að
þenja nikkuna og leika undir i al-
kunnum alþýðusöngvum sem
prýða verkið.
íslandsklukkan, eftir Haildór
Laxness, hefur fengið mjög góða
aðsókn og verið uppselt undanfar-
ið. Siðasta tækifærið til að sjá
sýninguna í Þjóðleikhúsinu verður
á föstudagskvöld (21. júní). Leik-
stjóri þessarar uppfærslu er
Sveinn Einarsson, en með helstu
hlutverkin fara Helgi Skúlason,
Tinna Gunnlaugsdóttir, Þorsteinn
Gunnarsson, Haraid G. Haralds-
son, Róbert Arnfinnsson, Sigurður
Sigurjónsson, Hjalti Rögnvalds-
son og Guðrún Þ. Stephensen.
Síðustu sýningarnar á söng- og
dansieiknum Chicago, eftir Bob
Fosse, Fred Ebb og John Kander í
leikstjórn Benedikts Árnasonar og
Kenn Oldfield, verða á fimmtu-
dagskvöld og á laugardags- og
sunnudagskvöld. Með helstu hlut-
verkin í sýningunni fara Sigríður
Þorvaldsdóttir, Carol Níelsson,
Pálmi Gestsson, Margrét Guð-
mundsdóttir, örn Árnason og Sig-
urður Sigurjónsson, að ógleymdri
Gyðu Sverris, sem slegið hefur í
gegn í hlutverki Mary Sunshine.
Þá er íslenski dansflokkurinn
ásamt fleiri dönsurum einn helsti
burðarás þessarar hressilegu sýn-
ingar.
Útifundur í Breiðholti:
Alrangt að ég hyggist
byggja á fornminjum
— sagdi Jón H.
Björnsson, eigandi
Alaska
Jón H. Björnsson boðaði til fundar i bæjarhóli Breiöholts á þriðjudag. Hér flytur
hann tölu sína. Fundarmenn af yngri kynslóðinni fylgjast með.
JÓN H. Björnsson garðarkitekt boðaði
til almenns fundar á bæjarhóli Breið-
holts á þriðjudag kl. 18:00. AA sögn
Jóns var tilefnið Trestun borgarstjórnar
á að staðfesta samþykki byggingar-
nefndar fyrir húsbyggingu hans á fundi
hennar 6. júní „til þess að kynna sér
málið betur vegna tiltekinna mót-
mæla,“ og vegna greinar í DV 15. júní.
Á fundinn mættu m.a. íbúar úr
Skóga- og Seljahverfi, Þór Magnús-
son þjóðminjavörður og Ólafur Guð-
mundsson fornleifafræðingur. Fund-
arstjóri var Jes Einar Þorsteinsson
arkitekt, en fundarritari var Auður
Benediktsdóttir.
Fyrstur tók til máls fundarboð-
andinn, Jón H. Björnsson, og rakti
forsögu málsins. Sigurður sagði að
hallað hefði verið réttu máli í DV í
grein um málið 15. júní. í henni segir
í fyrirsögn: „Ætlar að byggja einbýl-
ishús á fornminjum — nágrannarnir
æfir“. „Þetta er æsingagrein og al-
rangt að ég hyggist byggja á forn-
minjum, þær eru ekki þar sem fyrir-
hugað er að ég reisi hús mitt. Stað-
urinn er mér kær og það var mér
ánægjuefni er staðurinn var frið-
lýstur,“ sagöi Jón.
Þór Magnússon þjóðminjavörður
greindi frá sögu staðarins. Hann
sagði: „Tilgangur friöunarinnar var
fyrst og fremst að friða gamalt
kirkjustæði, kirkjugarð og bæjar-
stæði. Ekkert bendir til að grunnur
hússins nái inn i fornminjarnar.
Húsbygging þar mun ékki raska
fornminjum að því er ég sé best.“
Sigurður Thoroddsen nágranni
Jóns sagði mál þetta snúast um það
grundvallaratriði hvort leyfilegt
ætti að vera að byggja á svæði, sem
sýnt væri „grænt“ í aðalskipulagi,
þ.e. svæði sem ætti að vera útivist-
arsvæði.
Aðrir sem tóku til máls á fundin-
um voru: Hilmar Guðlaugsson,
formaður byggingarnefndar, Þuríð-
ur Isólfsdóttir, Elín Þorsteinsdóttir,
Guðmundur Ólafsson fornleifafræð-
ingur, Gunnar Alexandersson og
Gunnlaugur Johnson.
Verndaöu kaupmáttinn
tryggöu þér IGNIS á afsláttarverði
igé hskkar ekki kloM í trystimiiii þíiuini!
★ Staögreiösluverö
RAFIÐJAN SF,
Ármúla 8, 108 Reykjavík, sími (91)82535