Morgunblaðið - 26.06.1985, Side 1
48 SÍÐUR
STOFNAÐ 1913
141. tbl. 72. árg.
MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 1985
Prentsmidja Morgunblaðsins
Indversk blöð um Air India-slysið:
Landsmenn hvattír
tíl að sýna stillingu
Delhí, Cork, 25. júní. AP.
BLÖÐ á Indlandi, minnug blóöugra óeirða í kjölfar morðsins í Indíru Gandhi,
hvöttu landsmenn til að fara sér að engu óðslega þótt því væri haldið á lofti að
öfgamenn úr röðum síkha bæru ábyrgð á sprengingu í indversku júmbóþot-
unni, sem splundraðist í lofti skömmu fyrir lendingu í London á sunnudag.
Sögðu blöðin nýjar óeirðir myndu gera að engu tilraunir Rajivs Gandhi forseta
til að koma á sættum heimafyrir og einangra öfgamenn síkha, sem berjast fyrir
stofnun sérstaks ríkis síkha í Punjab.
Dregið var úr leit undan Ir-
landsströndum og bandarískir sér-
fræðingar töldu nær útilokað að
bjarga hljóðritanum, svarta kass-
anum, sem leyst gæti ráðgátuna
um hvað raunverulega gerðist. Er
hljóðritinn á 1.600 metra dýpi. Enn
eru ófundin lík 1% þeirra sem um
borð í þotunni voru.
Sérfræðingur indverskra flug-
málayfirvalda sagði engan vafa
leika á því að þotan hefði splundr-
ast á flugi, en of snemmt væri að
segja til um hvort sprenging hefði
orðið um borð.
Air India aflýsti öllu flugi til
Kanada um ókomna framtíð vegna
slyssins og sagði að þangað yrði
ekki flogið fyrr en öryggisgæzla á
flugvöllum hefði verið aukin. Flug-
félagið hætti við að fljúga með ætt-
ingja þeirra er fórust til Irlands af
ótta við að það kynni að tefja rann-
sókn slyssins.
Talsmaður Lloyd’s-tryggingafé-
lagsins í London sagði að tjónið í
indversku þotunni myndi líklega
hafa í för með sér mestu bóta-
greiðslur í flugsögunni. Þotan var
tryggð fyrir milli 75 og 80 milljónir
dollara, en bætur til fjölskyldna
þeirra 329, sem fórust með þotunni,
verða ákvarðaðar af dómstólum.
Sjá nánar fréttir á bls. 21.
AP/Símamynd
Helmut Kohl, kanzlari Vestur-Þýzkalands, (Lh.) og George Bush, varaforseti
Bandaríkjanna, heilsast í upphafl fundar þeirra í Bonn í gær. Þeir ræddu um
leiðir til að hindra hryðjuverk.
Samstarf um að
hindra hryðjuverk
Bonn. 25. júní. AP.
HELMUT Kohl kanzlari V-Þýzkalands og George Bush varaforseti Bandaríkj-
anna hétu að beita sér fyrir samstarfí og samvinnu vestrænna ríkja gegn
hryðjuverkum hvers konar. Vestrænir sérfræðingar koma saman í Bonn í næsta
mánuði til að gera tillögur um leiðir í baráttu gegn alþjóðahryðjuverkum.
AP/Símamynd
Blaðamenn leita skjóls á flugvellinum í Beirút í gær. Shítarnir, sem hafa þotu TWA á valdi sínu á flugvellinum, hófu
skothríð á blaðamennina, en engan þeirra sakaði.
Bandaríkjamenn þrýsta á um lausn gísladeilunnar:
Bush er nú á ferðalagi um ríki
V-Evrópu og leitar eftir stuðningi
við aðgerðir til að hindra hryðju-
verk af því tagi, sem verið hafa í
íhuga nú hafnbann og
lokun Beirút-flugvallar
WaHhington, Beirút, 25. júnf. AP.
REAGAN Bandaríkjaforseti íhugaði í
kvöld aðgerðir til að þrýsta frekar á
um að 40 gíslar líbanskra flugræn-
ingja verði látnir lausir. í því skyni
Soares biðst
lausnar
LLsNabon, 25. júni. AP.
MARIO Soares forsætisráðherra
gekk í dag á fund Antonio Ram-
alho Eanes forseta og baðst lausn-
ar fyrir sig og ríkisstjórn sína.
Þrjár vikur eru frá því sósíaldemó-
kratar hættu stjórnarsamstarfi við
flokk Soaresar.
Eanes verður nú að ákveða
hvort hann fallist á lausnar-
beiðnina og hvort þing verður
leyst upp og nýjar kosningar
boðaðar.
Soares biðst lausnar daginn
fyrir mikilvægan fund ríkis-
ráðsins, sem gera mun tillögur
til forsetans um leiðir út úr
stjórnarkreppunni í Portúgal.
hyggjast Bandaríkjamenn stöðva öll
aðfong Líbana með því að loka flug-
vellinum í Beirút og öllum höfnum
landsins.
Larry Speakes, formælandi for-
setans, útilokaði hernaðaraðgerðir
í þessu sambandi. Forsetinn hefði
heitið því að gera ekkert sem stofn-
að gæti lífi þeirra í hættu. Aðgerð-
irnar myndu ekki einvörðungu
beinast gegn flugræningjunum,
heldur einnig Iran, Sýrlandi, Líbýu
og öðrum ríkjum, eða samtökum,
sem styddu ræningjana.
Sýrlendingar skárust í leikinn í
dag og kveðast munu reyna að
beita áhrifum sinum til að binda
endi á rán TWA-þotunnar, sem
rænt var fyrir 12 dögum, og
tryggja frelsi bandarísku gíslanna.
Ræningjarnir, sem heimildir
herma að séu nánir stuðningsmenn
Nabih Berri shitaleiðtoga, skutu í
dag að fréttamönnum á flugvellin-
um i Beirút, en engan sakaði.
Stefnubreyting hefur orðið i af-
stöðu ísraela til flugránsins. Shim-
on Peres forsætisráðherra hefur
sent Reagan bréf þar sem hann
hvetur til þess að ríkin tvö hefji
fullt og óskorað samstarf um að
binda endi á flugránið. ísraelar
hafa til þessa sagt ránið sér óvið-
komandi, jafnvel þótt aðalkrafa
ræningjanna sé að á áttunda
hundrað shíta í ísraelskum fang-
elsum verði látnir lausir.
fréttum síðustu daga. Hann er nú
kominn til Hollands.
Bush sagði ýmsa valkosti til, m.a.
skipti á upplýsingum um hryðju-
verkamenn og aukna öryggisvörzlu
á flugvöllum. „Það er tími til kom-
inn aö allar siðmenntaðar þjóðir
taki saman höndum gegn plágu
vorra daga, hryðjuverkunum,"
sagði Kohl eftir fund þeirra Bush.
Bæði Bandaríkjamenn og V-Þjóð-
verjar hafa orðið fyrir barðinu á
hryöjuverkamönnum að undan-
fömu. Ránið á TWA-þotunni, sem
enn er i haldi í Beirút, beinist gegn
Bandaríkjunum, og í síöustu viku
týndu þrír menn lífi er öflug
sprengja sprakk í flugstöðinni í
Frankfurt í V-Þýzkalandi.
Auk ráðstafana til að hindra
fiugrán og önnur hryðjuverk ræddu
Kohl og Bush um geimvarnaáætlun
Bandaríkjamanna. Kvaðst Bush
ekki með nein loforð af hálfu Þjóð-
verja um þátttöku í rannsóknum
vegna áætlunarinnar.
Handtaka höfuðpaur í
sprengjuárásum IRA
London, 25. júní. AP.
BREZKA lögreglan handtók um
helgina höfuópaur í sprengjuárás
IRA, frska lýóveldishersins, gegn
Thatcher forsætisráðherra sl. haust,
að sögn BB(’, brezka útvarpsins.
Maðurinn, sem er sprengjusér-
fræðingur IRA, bjó um tíma undir
fölsku nafni á Grand-hótelinu f
Brighton, þar sem 5 menn fórust í
sprengingu er landsfundur
Ihaldsflokksins stóð þar yfir.
Thatther slapp naumlega. Höfuð-
paurinn var handtekinn i Glasg-
ow, þar sem hann var i felum.
Hann er 33 ára Norður-íri og hef-
ur hans verið leitað frá 1979.
t þingræðu i dag hrósaði
Thatcher lögreglunni fyrir árang-
urinn i baráttunni við hryðju-
verkamenn síðustu daga. Hún
sagði lögregluna hafa afstýrt
hroðalegum hörmungum er gerð
var óvirk sprengja í Rubens-hót-
elinu í London, er ætlað var að
drepa og lemstra tugi saklausra
manna. Handteknir hafa verið 13
menn úr leynisellum ÍRA vegna
þessa máls.
Leitað var að sprengjum í hót-
elum enskra strandbæja í dag.
Lögreglan kom í gær upp um
fyrirætlanir IRA um sprengju-
herferð í bæjum þessum.