Morgunblaðið - 04.07.1985, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 04.07.1985, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. JÚLÍ1985 15 Við lærðum það í Noregi að fylgja vörunni eftir alla leið inn í verksmiðjuna. Nú erum við komn- ir með svo mikinn búnað í Kanada að það var annað hvort að hrökkva eða stökkva. Fjarlægðin við mark- aðinn hafði líka sitt að segja. Það gefur augaleið að við gætum ekki sinnt viðskiptavinum okkar eins vel ef ekki væri okkar maður á staðnum. Einnig höfum við gott af því að vinna á erlendum mörkuð- um og þjálfa okkar fólk.“ íslensk framleiðsla Þorsteinn sagði að á þessu ári yrðu 2/3 hlutar framleiðslunnar fluttir út, annars vegar til Noregs og hins vegar til Kanada. „Það hefur verið stefna okkar frá upp- hafi að framleiða búnaðinn hér heima og við ætlum okkur að halda því áfram svo framarlega sem samkeppnisaðstaðan leyfir slíkt. Með því móti hefur tekist að skapa atvinnu og nýja þekkingu. Okkur er það einnig metnaðarmál að geta bætt við störfum fyrir þann vaxandi hóp tæknimenntaðs fólks sem útskrifast árlega úr há- skólanum og finnur ekki störf við sitt hæfi.“ Við leystum þau vandamál fyrir mörgum árum sem erlend fyrirtæki eru nú að kljást við „Hvað varðar erlenda sam- keppni er hun óveruleg. Hún kem- ur frá bandariskum fyrirtækjum og dönskum en hjá þeim er ekki um að ræða heildarkerfi svipuð okkar. Að baki okkar tækja liggur margra ára þróunarstarf sem önnur lönd búa ekki yfir. Þau vandamál sem kanadísk fyrirtæki eru að kljást við þessa stundina leystum við fyrir mörgum árum og þannig getum við haldið okkar forskoti. Við vinnum einnig mikið á því að kerfin eru byggð upp í eining- um sem auðveldar mjög aðlögun að vissum aðstæðum. Þegar farið er fram á breytingar getum við skipt um ákveðna einingu og sinnt óskum viðskiptavinarins fljótt og vel sem er mjög óalgengt í þessum viðskiptum því oftast þarf að um- skrifa allt forritið þegar einhverj- ar breytingar eru gerðar." Marel er ánægjulegur vottur um nýsköpun í ís- lenskum iðnaði „Séð í breiðara samhengi held ég að Marel sé ánægjulegur vottur um nýsköpun í íslenskum iðnaði á því sviði sem margir binda miklar vonir við. Við erum í þriðju iðn- byltingunni hvað varðar hátækni- iðnað, tölvuvæðingu, líftækni og fleira í þeim dúr og við hjá Marel erum stolt af þeim árangri sem við höfum náð“, sagði Þorsteinn að lokum. í veislu með börnum á Eskifirði Eskifírói, i. jnii. var að sumarleyfi era að hefjast og var þetta síðasti MIKIÐ fjör var á dagheimilinu á Eskifirði fyrir helg- dagur fyrir leyfi sem barnaheimilið var opið. Allir ina. Stórveisla var hjá börnunum. Fóstrurnar héldu máhiðu sig í skrautlegum litum og báru fallega hatta. þeim grillveislu. Grillaðar voru pylsur og kók drukkið Var mikið líf í börnunum þegar fréttaritari Morgun- með. Síðan var ýmislegt góðgæti á eftir. í tilefni dags- blaðsins bar að garði. Svo sem sjá má skemmtu börn- ins skreyttu börnin sig og fóstrurnar einnig. Tilefnið in sér konunglega. Ævar í dag kemur míní-serían Deceptions á mynd- bandaleigur. Deceptions er einn besti mynda- flokkur sem komiö hefur út hér á landi, enda fara úrvalsleikarar meö aöalhlutverkin. Step- hanie Powers (Mistral’s Daughter, Hart á móti höröu) leikur tvíburasysturnar Stephanie og Sabrinu af stakri snilld. Barry Botswick (A Woman of Substance, Summer Girl) leikur eiginmann Stephanie, Gina Lollobrigida leikur Alessöndru prinsessu og Brenda Vaccaro leikur hina slóttugu vinkonu Stephanie. Stephanie og Sabrina eru eineggja tví- burasystur. Þær ákveöa aö skipta um hlutverk í eina viku. Þær eru svo líkar aö engan grunar neitt. En þrátt fyrir aö þetta sé aöeins saklaus leikur í fyrstu, gerast óvænt atvik sem valda því aö systurnar eiga erfitt meö aö snúa aft- ur til fyrra lífs þegar vikan er liöin. Er vafamál hvort Stephanie getur nokkru sinni snúiö til baka til eig- inmanns síns og barna, eöa hvort Sabrina fær nokkru sinni aö handleika demanta sína á nýjan leik. Reyndar æxlast málin þannig aö systurnar eru báöar í bráöri lífshættu. Byggt á samnefndri metsölu- bók eftir Judith Michael. Deceptions er á tveimur spólum íslenskur texti Einkaréttur á íslandi Eínkaréttur á ísiandi: Seinni h/uti wants to live omarfs life. best selling novel b\ ith Michael. Dreifing sUlnarhf
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.