Morgunblaðið - 04.07.1985, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 04.07.1985, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. JÚLl 1985 AUTTIL PIPULAGNA RB. BYGGINGAVÖRUR HF SUÐURLANDSBRAUT 4. SÍMI 33331. John Legate Iramkvæmdastjóri Industrial and Trade Fairs International Ltd. og Patricia Foster sölustjóri sama fyrirtækis. r Islenska fískeldissýningin 1985: „Hér eru allar að- stæður til fisk- eldis frábærar“ — segir John Legate, forstjóri bresks sýningarfyrirtækis FISKELDISÝNING verður haldin hérlendis í september næstkomandi. I’að er breska sýningafyrirtækið Industrial and Trade Fairs Ltd. sem stendur fyrir sýningunni. Sjávarútvegssýningin sem haldin var hér á landi í fyrra var einnig haldin á vegum þess. Að sögn John Legate fram- kvæmdastjóra fyrirtækisins verður þessi sýning að flestu leyti frá- brugðin sjávarútvegssýningunni; smærri í sniðum og sérhæfðari. Sagði hann undarlegt hve lítið ís- lendingar hefðu enn sem komið væri hafst að í fiskiræktarmálum, hér væru aðstæður allar frábærar til að gera fiskeldi öfluga atvinnu- grein. „íslendingar búa yfir nægri þekkingu og ættu auðveldlega að geta komið sér upp fiskeldisstöðv- um sem gætu framleitt mikið magn af fiski í háum gæðaflokki," sagði hann. Vonaðist hann til að þessi sýning gæti orðið hvati fyrir íslensk stjórnvöld að sinna þessum málum betur. Milli 60 og 70 fyrirtæki munu taka þátt í sýningunni og taldi Leg- ate að framleiðsla þeirra gæfi góða þverskurðarmynd af þeim tækja- búnaði sem nú sé fáanlegur á þessu sviði. 30 til 40 fyrirtækjanna eru íslensk, ýmist framleiðslufyrirtæki eða umboðsaðilar erlendra fyrir- tækja. Bjóst hann við að sýningin þótt smá væri gæti haft mikil áhrif í þá átt að vekja athygli manna á þeim möguleikum sem fiskeldið hafi upp á að bjóða, því flestir séu nú uggandi um að fiskinn sé að þrjóta í höfunum. Patricia Foster söiustjóri ITFI sagði að það lægi beint við að halda þessa sýningu hér á íslandi. Vegna þess hve allar aðstæður hér væru góðar væri mjög líklegt að erlendir aðilar fengju áhuga á samstarfi við Islendinga í fiskeldismálum. Enn- fremur þyrfti að hvetja íslendinga sjálfa til dáða. í tengslum við sýninguna verður haldin ráðstefna um fiskeldi í Nor- ræna húsinu. Þar verða haldnir 15 fyrirlestrar sem fjalla um fiskirækt frá ýmsum hliðum. Öllum áhuga- mönnum um fiskeldi er heimil þátttaka. Morgunblaðid/Þorkell Hallmar Sigurðsson afhendir Helgu Bachmann styrkinn, kr. 28.000 til upp- færslu á verkum Ástu Sigurðardóttur. Helga Bachmann hlaut styrk úr Menningarsjóði Félags leikstjóra á íslandi STYRK ÚR Menningarsjóði Félags leikstjóra á íslandi var úthlutað 1. júlí og var þá í fyrsta skipti úthlutað eftir nýrri reglugerð frá nóvember 1984. Að þessu sinni bárust 8 umsóknir frá 9 félagsmönnum, en tveir stóðu saman um eina umsóknina. í frétt frá Félagi leikstjóra á ís- landi segir að sjóðsstjórn hafi verið sammála um að ekki væri ráðlegt að skipta því litla fé sem til ráðstöf- unar var í tvo eða fleiri staði. Sjóðs- stjórn ákvað að styrkinn hlyti að þessu sinni Helga Bachmann, en hún sótti um styrkinn vegna leik- gerðar að sögum Ástu Sigurðar- dóttur, sem fyrirhugað er að sýna á Listahátíð 21. september til 8. október og verður í tilefni af síðasta ári kvennaáratugarins. Munu 4 at- vinnuleikarar taka þátt í sýning- unni. Sjóðsstjórn skipa Hallmar Sigurðsson formaður og Stefán Baldursson og Sigrún Valbergs. Styrkurinn er 28.000 kr.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.