Morgunblaðið - 04.07.1985, Side 31

Morgunblaðið - 04.07.1985, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. JÚLÍ 1985 31 Rafmagnsverð Landsvirkj- unar, eignir og skuldir TVÆR villur varðandi rafmagnsverð og skuldir Landsvirkjunar slæddust inn í frétt Morgunblaðsins í gær um 20 ára afmæli fyrirtækisins. Hér fer á eftir í heild nánari skýring Landsvirkjunar á þessum tveimur atriðum: 1. Rafmagnsverð til almenningsraf- veitna 1. ágúst 1983—31. desember 1985 Hinn 1. ágúst 1983 var meðal- gjaldskrárverð Landsvirkjunar á rafmagni til almenningsrafveitna 111,8 au/kWst. Síðan þá hefur gjaídskrá Landsvirkjunar aðeins hækkað tvívegis. í fyrra skiptið hinn 1. maí 1984 og þá um 5% og síðara skiptið um 14% hinn 1. janúar 1985. Hinn 1. þ.m. er meðal- verðið 85 au/kWst á verðlagi 1. ágúst 1983. Verðið hefur því lækk- að að raungildi frá 1. ágúst 1983 til dagsins í dag um 24%. Ekki er gert ráð fyrir því að til gjaldskrár- hækkunar þurfi að koma það sem eftir er ársins og ætti þá raungildi verðsins miðað við núverandi verð- bólguspár og óbreytta gjaldskrá að vera komið niður í um 77 au/kWst Opið hús í Norræna húsinu NORRÆNA húsið stendur í sumar fyrir vikulegri dagskrá fyrir ferða- menn. „Opið hús“ er haldið hvern fimmtudag og hefst dagskráin kl. 20.30. Dagskráin er yfirleitt með því sniði að fyrst er flutt erindi sem á einhvern hátt tengist ís- lenskri menningu, sögu eða nátt- úru og síðan sýnd einhver af ís- landsmyndum Osvaldar Knudsen. Heimir Pálsson menntaskóla- kennari mun í kvöld ræða um líf og bókmenntir í 1100 ár á „Opnu húsi“, eins og segir í fréttatiíkynn- ingu frá Norræna húsinu. Fyrir- lesturinn verður fluttur á sænsku. Á eftir verður sýnd kvikmyndin „Heyrið vella á heiðum hveri" með sænsku tali. Jenny Naschitz látin LÁTIN er í Tel Aviv í ísrael Jenny Naschitz, eiginkona dr. Fritz Naschitz, aðalræð- ismanns íslands þar. Jenny Naschitz fæddist 21. janúar 1903 í Búdapest, yngsta dóttir Arnolds de Hann, fyrrverandi aðstoðar- ráðherra. Jenny og Fritz Naschitz giftust árið 1931 og tókst að komast til ísraels níu árum síðar. Fritz Naschitz var aðal- ræðismaður íslands í Israel í áratugi. Margir íslendingar sem hafa heimsótt ísrael nutu gestrisni og hjálpfýsi þeirra Naschitz-hjóna, enda voru þau stakir íslandsvinir. Þau eignuðust einn son, Peter, sem er vararæðismað- ur íslands í Tel Aviv. Leiðrétting í FRÉTT Morgunblaðsins mið- vikudaginn 3. júlí, um nýtt skipu- lag í Sigtúnsreit, var rangt farið með nafn arkitektsins, sem vann skipulagið. Það er Helga Braga- dóttir, arkitekt hjá Borgarskipu- lagi, sem vann hið nýja skipulag í Sigtúnsreit. Mistökin leiðréttast hér með og eru hlutaðeigendur beðnir velvirðingar. í árslok miðað við verðlag 1. ágúst 1983 og hafa síðan þá lækkað um 30%. 2. Eignir og skuldir Um siðustu áramót nam heildar- eign Landsvirkjunar um 25,7 millj- örðum króna og langtímaskuldir 16,5 milljörðum króna. Eigið fé nam um 8,7 milljörðum króna, sem er um 34% af heildareign. Við stofnun Landsvirkjunar 1965 nam eigið fé Landsvirkjunar um 1,0 milljarði króna á verðlagi í árslok 1984 og hefur það því um það bil áttfaldast frá stofnun fyrirtækis- ins og er nú meir en nokkurs ann- ars fyrirtækis eða stofnunar hér á landi. Afborganir Landsvirkjunar á þessu ári áætlast nema alls um 900 milljónum króna og er stefna Landsvirkjunar sú að núverandi skuldir Landsvirkjunar verði að fullu greiddar um næstu aldamót. Fjármagnskostnaður er um 85% af rafmagnsverði Landsvirkjunar. Vegna verðlagshafta á árunum 1971—1982 fékk gjaldskrá Lands- virkjunar ekki að fylgja almennum verðlagsbreytingum. Afleiðingin varð óeðlilega mikil skuldasöfnun og mun hærri fjármagnskostnaður en hæfilegt má telja. Að verðstöðv- unartímabilinu loknu varð því að grípa til meiriháttar gjaldskrár- hækkana til að standa straum af hinum aukna fjármagnskostnaði. Leiddu þessar hækkanir til þess að gjaldskrá Landsvirkjunar varð hærri en hjá sambærilegum fyrir- tækjum á hinum Norðurlöndunum, sem fylgt hafa raunhæfari stefnu í verðlagningu orkunnar. Við höfum því verið að súpa seyðið af rangri stefnu í verðlagsmálum á áður- nefndum áratug og það var fyrst á sl. ári að um hagnað var að ræða hjá Landsvirkjun eftir rekstrar- halla í sex ár. Má því segja að nú sé um þáttaskil að ræða hjá fyrirtæk- inu hvað fjárhagsafkomuna snertir og hafa verðhækkanirnar gagnvart ÍSAL átt sinn þátt i bættri afkomu. Landsvirkjun er því að komast yfir erfiðasta hjallann í fyrrnefndri þróun, sem kemur fram bæði í bættri afkomu og lækkandi raun- verði til almenningsrafveitna, en verðlækkunin áætlast verða orðin um 30% í lok þessa árs frá því er gjaldskráin var hvað hæst hinn 1. ágúst 1983. Jafnframt er ekki ástæða til að ætla annað en að raungildi gjaldskrárverðsins haldi áfram að lækka á næstu árum með lækkandi fjármagnskostnaði. IBM SYSTEM/36 OG HUGBÚNAÐURINN ALVfS FRÁ KERFI HF. Skrifstofuvélar hf. bjóöa nú til sölu tölvubúnaöinn IBM System/36 ásamt notendahugbúnaðinum ALVÍS frá Kerfi hf. ALVÍS hugbúnaðurinn er sérhannaöur fyrir íslensk fyrirtæki á IBM System/36 tölvuna og nýtir kosti hennar til fullnustu. í ALVÍS er m.a. aö finna samtengd fjárhags- og viðskiptabók- haldskerfi, vörukerfi og tollakerfi ásamt fjölda hjálparkerfa viö útreikninga á pantanatillögum, arðsemiseftirliti, sölugreiningu, áætlanagerð o.fl. Pessari auglýsingu er ekki ætlað að sannfæra þig um að hjá okkur sé undantekningarlaust bestu tölvulausnir og þjónustu að finna. Hins vegar vinnur allt starfsfólk fyrirtækisins ötullega að því markmiði. Þess vegna m.a. eigum við samleið með IBM og hugbúnaðarfyrirtækinu Kerfi hf. Við hvetjum þig til að leita aðeins eftir því besta í tölvubúnaði og þjónustu, hvort sem er hjá okkur eða öðrum, því gæðin skipta öllu við rekstur tölvubúnaðar bæði í bráð og lengd. vJii % GÆÐIOG GÓÐ þJÓNUSTA TRYGGJA GOTT GENGI SKRIFSTOFUVÉLAR H.F. % Hverfisgötu 33 — Sími 20560 Pósthólf 377

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.