Morgunblaðið - 04.07.1985, Side 38

Morgunblaðið - 04.07.1985, Side 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. jULÍ 1985 Konur á Akureyri og við Eyjafjörð: Borgarfjörður: Síðumúlakirkja klædd að utan Ljóða- og smásagna- samkeppni HÓPAR kvenna á Akurt vri og við Kyjafjörð hafa síðan sl. haust unnið saman að ýmsum málefnum í tilefni af því að nú er kvennaáratugi Sam- einuðu þjóðanna að Ijúka. Einn hópurinn, svokallaður bók- menntahópur, hefur leitað í blöð- um og tímaritum að skrifum eftir konur í Eyjafirði og gert spjald- skrá yfir það efni. Þessi vinna hef- ur að langmestu leyti farið fram á Amtsbókasafninu. Ýmsir hafa veitt aðstoð og sífellt fréttist af nýju efni í fórum fólks, oft eftir látnar konur. í upphafi var fyrir- hugað að halda sýningu í Amts- bókasafninu á verkum eyfirskra kvenna, en horfið hefur verið frá því. Hópurinn hefur hug á að gefa út sýnisbók er inniheldur verk kvenna og gæti hún ef til vill kom- ið út á næsta ári. Næsta verkefni bókmennta- hópsins er að efna til samkeppni meðal kvenna og veita góð verð- laun fyrir besta ljóðið og smásög- una. Konur á öllum aldri sem bú- settar eru við Eyjafjörð geta tekið þátt. Skilafrestur er til 15. sept- ember og verða úrslit kunngjörð á kvennafrídaginn, 24. október. Verkum þarf að skila undir dul- nefni og láta nafn höfundar fylgja í lokuðu umslagi. Hver kona má skila inn eins mörgum verkum og hún vill, hvort heldur sem er undir einu dulnefni eða fleirum. Engin skilyrði eru sett um lengd eða efni Ijóðanna eða smásagnanna. Ragn- heiður Bragadóttir, Þórunnar- stræti 132, Akureyri, mun taka við verkunum og veita allar nánari upplýsingar í síma 25798. Einnig verður efnt til myndlist- ar- og heimilisiðnaðarsýninga. Fleira verður gert til skemmtunar og fróðleiks. (Ur fréttatilkynningu) Síðumúlakirkja í Hvítársíðu. Boruarfirdi, I. júlí. FYRIR nokkru var lokið við að klæða Síðumúlakirkju í llvítársíðu að utan. Var sett bárað stál utan á veggi hennar og plasteinangrun und- ir stálið. Síðumúlakirkja er stein- kirkja og var farið að molna úr veggjum hennar sunnan og vestan, þar sem mest mæddi á. Sóknarnefndarformaður í Síðu- múlasókn er Ásbjörn Sigurgeirs- son á Ásbjarnarstöðum í Þverár- hlíð. Sagði Ásbjörn, að kirkjan hefði verið vígð 1926 á jóladag, og yrði kirkjan þvi 60 ára á næsta ári. Hafa menn huga á, að fyrir afmælið verði framkvæmdum lok- ið við að girða kirkjugarðinn að nýju og reisa við legsteina. Síðumúlakirkja er hituð upp með rafmagni allan ársins hring. Fyrir fámenna sókn eru það ærin útgjöld, og hamlar helgihaldi sums staðar í landinu, þar sem þvi er borið við, að ekki sé unnt að messa oft, því þá fari rafmagns- reikningurinn upp úr öllu valdi. Gjaldendur í Síðumúlasókn eru um 35 og þurfti að setja á auka- niðurjöfnun til að standa straum af kostnaði við viðgerðina. Sókn- arbörnin verða að standa straum af öllum kostnaði af viðgerð sem þessari. — PÞ- Millisvæðamótið í Biel: Sokolov með fullt hús eftir tvær umferðir Frá Kraga Kristjánssyni fréttaritara Morpinblaðsins í Biel. I’EGAK tveimur umferðum er lokið á millisvæðamótinu hér í Biel hefur Sovétmaðurinn Andrei Sokolov tekið forystu, unnið báðar skákir sínar. Hann hefur teflt af öryggi enda mun það hans aðalsmerki. í fyrstu umferð var lítið um óvænt úrslit. Það vakti þó at- hygli að Polugajevsky virkaði mjög taugaóstyrkur og lenti í heiftarlegu tímahraki. Staða hans gegn Martin var þó svo góð að hann náði að hala vinn- inginn í land. Li samdi gegn Ljubojevic eftir 21 leik og hafði þá ívið betri stöðu. Anderson tókst að ná vinningsstöðu gegn Short en missti hana niður í síðustu leikjunum fyrir bið. Heimamaðurinn Partos var tekinn illa í karphúsið af Jansa og að lokum féll Rodrigues á tíma gegn Gutman en staða hans var slæm engu að síður. Sax tapaði aftur og í aðeins tuttugu og fimm leikjum gegn Van der Wiel í annarri umferð. Vaganjan fékk verra gegn Short en tókst með baráttu- vilja að snúa taflinu við og hafði að lokum tvö peð yfir enda gafst Short þá upp. Lju- bojevic stendur til vinnings í biðskák sinni við Torre. En óvæntustu úrslit annarrar um- ferðar voru án efa sigur Gut- mans yfir fyrrverandi landa sínum Polugajevsky. Gutman, sem er mikill sérfræðingur í byrjunum, þjarmaði jafnt og þétt að andstæðingnum sem lenti í sínu venjulega tíma- hraki. Ekki tókst honum þó að losa um sig og sannfærandi sigur Gutmans var í höfn. Það er greinilegt að Polugajevsky er ekki í toppformi. Við skulum skoða skák þeirra Sax og Van der Wiel. Hvítt: Sax Svart: Van der Wiel Sikileyjarvörn. 1. e4 — c5, 2. RÍ3 — d6, 3. d4 — cxd4, 4. Kxd4 — Rf6, 5. Rc3 — Rc6, 6. Bg5 — e6, 7. Dd2 — Be7 — 0-0-0 — OO, 9. f4 — h6, 10. Bh4 — e5, 11. Rf5 — Bxf5, 12. exf5 — exf4, 13. Kbl — d5, 14. Dxf4 Eða 14. Bxf6 — Bxf6, 15. Rxd5 —Be5, 16. g3 — fxg3, 17. hxg3 — Re7, jafntefli 35. einvígis- skák Karpovs og Kasparovs. 14. — d4, 15. Bxf6 — Bxf6, 16. Ke4 — Be5, 17. DÍ3 — Hc8, 18. Bc4? Jóhann Hjartarson lék 18. a3 gegn Van der Wiel á afmæl- ismóti SÍ í febrúar. Leikurinn ætti þó ekki að duga til vinn- ings en eins og menn muna vann Jóhann að lokum. 18. — Ka5 Auðvitað. 19. Bd3 — Rc4, 20. f6 — g6, 21. h4 — Db6, 22. Bxc4 Svartur fær hættulega sókn eftir 22. b3 - Ra3+, 23. Kb2 —Hxc2+ 22. — Hxc4, 23. h4?? Sax sést algjörlega yfir ein- faldan mannvinning svarts. Eina vonin var 23. Hd3 en svartur hefur samt yfirburði t.d. 23. - Hfc8, 24. Hcl - Hb4, 25. Hb3 - d3, 26. Hxb4 - Dxb4, 27. c3 — Db5 o.s.frv. 23. — d3, 24. c3 — Hxe4 Einfalt og sterkt. 25. Dxe4 — Bxc3 og hvítur gafst upp. Eftir 26. b3 — Df2. Og mátar. Að lokum birtist hér ein skák úr fyrstu umferð þar sem Sovétmaðurinn Andrei Sokolov fer á kostum. Hvítt: Sokolov Svart: Sax Sikileyjarvörn. I. e4 — c5, 2. Rf3 — d6, 3. d4 — cxd4, 4. Rxd4 — Rf6, 5. Rc3 — 8® Drekaafbrigðið sem leiðir til flókinnar stöðu. 6. Be2 — Bg7, 7. 04) — Rc6, 8. Rb3 — 00, 9. Bg5 Óvenjulegur leikur, hefðbundið er 9. Be3 - Be6, 10. f4 - Dc8, II. Khl o.s.frv. 9. — a6, 10. a4 — Be6, 11. f4 — Ra5, 12. Khl — Hc8, 13. Rxa5 Áður hefur 13. f5 — Rxb3, 14. cxb3 — Hxc3,15. bxc3 — Rxe4, 16. f6 - exf6, 17. Bf4 - Rxc3, 16. Dd3 — f5 sést, og staðan er tvísýn. 13. — I)xa5, 14. Bd3 — Hc5 Ætlar að koma í veg fyrir f5 en það tekst ekki. 15. f5 — gxf5 16. Bd2! Sterkur leikur sem Sax yfir- sást. 16. — Dc7, 17. exf5 — Bc4, 18. Be3 — Hc6, 19. Hf3 — Kh8, 20. De2 — Bxd3, 21. cxd3 — Hxc3 Örvænting í tapaðri stöðu. 22. bxc3 — Dxc3, 23. Hafl — De5, 24. Hh3 — Dd5, 25. Bg5 — Hg8, 26. Hg3 — b5, 27. axb5 — axb5, 28. Dxe7 — He8, 29. Bxf6 og Sax gafst upp því staðan eftir 29. — Hxe7, 30. Hxg7 er gjörtöpuð. O/GORI 88 VIÐARVÖRN GORI 88, er þekjandi fúavörn sem slettist hvorki né drýpur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.