Morgunblaðið - 04.07.1985, Síða 50
50
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. JÚLÍ1985
UL
" Hvað rr\e% þig! Sást þú h\Jab
qer&ist f”
Haldið Hafnarbúðum
í núverandi mynd
Oddur H. Þorleifsson, Mávahlið
33, Rvík skrifar:
Þau ótíðindi bárust nýlega, að
líknarstofnun sjúkra gamal-
menna, Hafnarbúðir, yrði afhent
Landakotsspitala til umráða. —
Þótt flestum sé ljóst, að þörf
Landakotsspítala fyrir aukið
sjúkrarými sé aðkallandi, þá get
ég ekki séð að það réttlæti þessar
gerðir. í fyrsta lagi vantar aukið
sjúkrarými fyrir sjúk gamal-
menni. Hversu heitt sem börn og
aðrir aðstandendur blessaða
gamla fólksins þrá, að hafa það á
sínum eigin heimilum í sinni um-
sjá þá er það öllum ljóst sem til
þekkja, að slíkt er aðeins á færi
sjúkrahúss með sérþjálfuðu
starfsliði.
Hafnarbúðir eru nefnilega
meira en sjúkrahús, þetta er í
orðsins fyllstu merkingu heimili.
Ekki ber að skilja orð mín á þann
veg að það fari ekki vel um öldrun-
arsjúklinga á Borgarspítalanum,
enda get ég ekki betur séð en að
hjúkrunarfólk almennt láti kær-
leikann til náungans ráða gerðum
sínum með hlýju og umhyggju.
Ekki síst, þegar ellihrumleiki og
illvígir sjúkdómar herja án mis-
kunnar á skjólstæðinga þess. Lof
sé þeirri stétt.
Hafnarbúðir eru hvað rekstr-
arkostnað snertir einhver ódýr-
asta sjúkrastofnun hér í borg.
Vegna dvalar móður minnar
þarna um margra ára skeið varð
ég vitni að þeirri hófsemi sem
skipaði öndvegi í öllum rekstri
þessarar stofnunar og var þó
einskis vant að ég best veit til þess
að uppfylla þarfir slíkrar stofnun-
ar.
Undir ljúfri og jafnframt
sterkri stjórn Friðriks Einarsson-
ar læknis, er nú hefur látið af
störfum, varð þetta líknarheimili
þeirra er hin miskunnarlausi elli-
hrumleiki hafði leikið svo grátt.
Að lokum nokkur orð til þeirra,
hverjir sem þeir eru, er vald hafa
eða telja sig hafa til skikkunar í
þessu mannúðarmáli. Hlustið á
raddir aðstandenda, hlustið á
bænir blessaða gamla fólksins,
takið mark á óskum hins frábæra
húkrunarfólks, gerið þeim kleift
að sinna vinum sínum áfram í
Hafnarbúðum.
Mi ég hjálpa þér. Við skulum keypti þarna á útsölunni.
ekki koma of seint.
HÖGNI HREKKVtSI
/./VlLTU K.OMA MEÞMéR. Á GOLFV'ÖLL INN ?
ÉG ÆTLA AD FAfZA í ... "
Spurning-
ar til sjón-
varps
Halldór Gunnarsson skrifar.
Kæri Velvakandi.
Mig langar til að varpa tveimur
spurningum til þeirra sem ráða á
Lista- og skemmtideild Sjónvarps-
ins.
1. Á hvaða forsendu hefur sjón-
varpið nú sýnt þrjá langa þætti
með barnapoppsveitinni bresku
Duran Duran? Ekki er það vegna
gæðanna.
2. Getum við íslendingar átt von
á því að íslenska sjónvarpið fari
að sýna íslenskum músíköntum
sömu athygli og útlendu skalla-
poppurunum? í ár eru 5 ár liðin
frá því íslendingar eignuðust sína
stærstu poppstjörnu, Bubba
Morthens. Hann hefur haft yfir-
burði bæði hvað vinsældir og gæði
snertir alla tíð síðan. Samt hefur
íslenska sjónvarpið enn ekki gert
einn einasta þátt um Bubba, en
a.m.k. danska og sænska sjón-
varpið hafa gert þætti um Bubba.
Afþakka
ómerkileg-
ar myndir
Farmaður skrifar:
Kæri Velvakandi:
Föstudagskvöld 28. júní kl. 21.15
var myndin „Úr öskunni í eldinn"
í Sjónvarpinu. Ég undirritaður vil
hér með leyfa mér að afþakka og
fordæma allar ykkar stríðsmynd-
ir, (manndrápsmyndir og myndir
frá Víetnam-stríðinu, sem þið
virðist hafa töluverðan áhuga á að
sýna okkur. Og enn fremur sama
kvöld kl. 22.05 myndin „Með ljósa
lokka" var mjög ómerkileg. Ekki
eiga öll heimili myndbönd til að
horfa á þau kvöld sem þið bjóðið
okkur upp á svona dagskrá.
Myndir frá Englandi sem þið
hafið verið með eru yfirleitt mjög
góðar, enda mikið af góðum mynd-
um hjá öllum sjónvarpsstöðvum í
Englandi.
Bréfasam-
^band við
Islendinga
Guðbjörg Olsen,
Wrvadsvej 23,
8220 Brabrand,
Danmark, skrifar:
Kæri Velvakandi:
Vilt þú vera svo góður að koma
mér í bréfasamband við íslend-
inga. Ég bý í Danmörku og hef
gert það í u.þ.b. 30 ár. Ég er 52 ára
og farin að ryðga í málfræðinni.
Takk fynr Dallas
Ein, sem ekki á myndband skrif-
ar:
Kæri Velvakandi:
Ég vil þakka sjónvarpinu fyrir
að byrja að sýna Dallasþættina
aftur. Eg þekki marga sem hlakka
til að fá þá aftur á skjáinn. Ég vil
lýsa furðu minni á skrifum einnar
hafnfirskrar, sem skrifaði í Vel-
vakanda 19. júní sl.
Hún segir að hálf þjóðin sé búin
að sjá Dallas á myndböndum. Ég
er viss um að það er ekki hálf
þjóðin sem er búin að sjá þessa
þætti sem hún telur upp.
Sú hafnfirska spyr: „Eiga hinir
þá að fá Dallas að kostnaðarlausu
á meðan við hin þurfum að greiða
leigugjaldið?" Þetta er hlægilegt.
Ég vil bara spyrja hvort að við
sem ekki eigum myndband eigum
ekki rétt á að sjá góða framhalds-
þætti. Ef myndbandaeigendur
hafa efni á að taka alla þessa
þætti á leigu þá þeir um það. Við
hin njótum ekki góðs af því.
Að lokum, sjónvarpið mætti
gera meira af því að sýna gamlar
bíómyndir. Mig langar aö nefna
„Vopnin kvödd" eftir sögu Ernest
Hemingway. Rock Hudson lék að-
alhlutverkið í þeirri mynd. „Doct-
or Zhivago" með Omar Sharif er
einnig góð. Myndbandaeigendur
vilja kannski fá að ráða hvaða
myndir eru sýndar í sjónvarpi?
Safnar borðfánum
0545-0098 skrifar:
Göngugarpurinn Reynir Pétur
Ingvarsson safnar af áhuga borð-
fánum félaga, starfsmannafélaga
o.fl. — hann myndi vafalaust
fagna því að fá frá sem flestum
slíka borðfána í pósti.
Utanáskriftin er: Sólheimum,
Grímsneshr., Árn., 801 Selfossi.