Morgunblaðið - 04.07.1985, Page 51

Morgunblaðið - 04.07.1985, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. JULl 1985 51 Er hafnaröryggi framfylgt? Sigmar Þór Sveinbjörnsson skrif- ar: í hinni ágætu Árbók Slysavarnafélags íslands 1985 sem að þessu sinni er að nokkru leyti helguð öryggismálum sjómanna, er kafli er nefnist „Harmleikur við Grundartangabryggju". Þar er m.a. að finna útdrátt úr sjópróf- um, sem haldin voru vegna slyss sem varð 9. febrúar 1984 þegar fjórir skipverjar af Fjallfoss drukknuðu í höfninni á Grundar- tanga. Að líkindum vildi slysið þannig til að mennirnir duttu á milli skips og bryggju og voru þar með komnir í dauðagildru því hvergi var stigi á bryggjunni sem þeir gátu komist upp á. í umræddu sjóprófi segir m.a.: „Þrjú fríholt voru milli skips og bryggju og voru þau um einn og hálfur metri í þvermál. Tvö þeirra voru staðsett yfir stiga upp á bryggjunni svo að útilokað var að menn kæmust þar upp ef þeir dyttu í sjóinn." í Árbókinni er tafla fyrir bana- slys á sjó á árunum 1974 til 1983, alls 10 ár. Þar kemur fram að á þessum árum drukknuðu 20 menn í höfnum eða við land. Og á öðrum stað f bókinni er skrá yfir bana- slys á árinu 1984. Þar segir að sex menn hafi drukknað í höfnum eða við land á ellefu árum. í framhaldi af ofansögðu langar mig að spyrja hafnaryfirvöld á Grundartanga: Hefur eitthvað verið gert til úrbóta t.d. settir fleiri stigar á bryggjuna? Hafa fríholtin verið færð þannig að stigarnir, sem fyrir eru, séu not- hæfir ef menn detta milli skips og bryggju? Ef eitthvað hefur verið gert til að bæta öryggi hafnarinn- ar, getið þið talið það upp. Ein spurning til vita- og hafnar- málastjóra: Hvaða reglur gilda um neyðarstiga, bjarghringi, síma og aðra þætti öryggis í og við hafnarmannvirki hér við land? Ef einhverjar reglur eru til, hefur þeim verið fylgt eftir sem skyldi? P.s. Það munaði ekki mikla að alvarlegt slys hefði orðið í höfn- inni á Eyrarbakka nú fyrir nokkr- um dögum er bíll fór þar út af bryggjunni og lenti á fangalínu trillu og hékk þar meðan tvær manneskjur, sem í bílnum voru, komu sér út úr honum. Trillan, sem var aðeins 2xk tonn, hafði komið frá Vestmannaeyjum deg- inum áður og stoppaði 1 höfninni í aðeins þrjá daga. Þá má einnig minna á annað slys sem varð í Vestmannaeyjum nú á dögunum þegar lyftari fór út af bryggjunni og lenti ofan í trillu og sökkti henni. Mikil mildi var að menn urðu ekki fyrir lyftaranum er hann lenti ofan í bátinn. Spyrja má hvort góðir kantar á þessum bryggjum hefðu ekki kom- ið í veg fyrir þessi slys. Hreinsunarskylda á gangstéttum Sýnið alla „Band Aid“- tónleikana Ása, I)ísa, Stína og íris skrifa: Kæri Velvakandi. Okkur leikur mikil forvitni á að vita hvers vegna hin virta stofnun Ríkisútvarpið/Sjónvarp hefur ákveðið að sýna ekki alla „Band Aid“-tónleikana, sem verða haldn- ir hinn 13. júlí til styrktar svelt- andi fólki í Afríku. Gera forráð- amenn sjónvarpsins sér ekki grein fyrir hversu merkilegur þessi at- burður er fyrir æsku landsins á ári æskunnar. Þarna koma fram helstu átrúnaðargoð íslenskrar æsku og svona atburður gerist aldrei aftur ef marka má erlend dagblöð. Oft ber sjónvarpið fyrir sig fjár- skorti en í þessu tilviki er ekki eins og það sé verið að henda pen- ingum út um gluggann heldur er þessu fé varið til styrktar góðum málstað, sem allir vilja styðja. Er ekki í lagi að eyða einum laugardegi til styrktar góðu mál- efni? Okkur finnst frekar lítið hafa borið á ári æskunnar hér á landi og væri það ekki tilvalið að sýna þessa tónleika í tilefni af þessu ári og um leið hjálpa bágstöddum í Afríku? Við hvetjum alla þá, sem eru sammála okkur, að taka undir þetta og láta í sér heyra. Vegna fyrirspurnar Leifs Sveinssonar í dálkum Velvakanda Morgunblaðsins í gær 27. þ.m. um hreinsunarskyldu á gangstéttum, vill Pétur Hannesson, forstöðu- maður hreinsunardeildar, koma eftirfarandi á framfæri: „Ég tel að húseigendur eigi að hreinsa frá húseignum sínum og girðingum að gangstétt, en þar taki við skylda borgarinnar að annast hreinsun, þar með talinn gróður á gangstétt og við götu- kant. En sá galli er á að borgin hefur ekki nægan vinnukraft til að ann- ast þetta verkefni og því þarf að koma til aðstoð frá borgarbúum ef vel á að vera. Ég vil nota tækifærið og þakka Reykvíkingum gott framlag og samstarf í fegrunarvikunni." VIDSKIPTA VINIR Vinsamlega athugið að vegna sumarleyfa á verkstæöi okkar verða aðeins framkvæmdar bráða- viðgerðir á tímabilinu frá 5. júlí til 9- ágús. 1985 IflTDIMíV? HÓFÐABAKKA 9 REVKiAVlK SÍMI: 685656 og 84530 Ibúð óskast til leigu Reglusöm barnlaus hjón óska eftir aö taka á leigu íbúö á Reykjavíkursvæöinu í 1—2 mánuöi frá 1. ágúst nk. Uppl. í síma 51665 eftir kl. 19.00 <9 SALON Á PARIS Til viðskiptavina minna Vegna mikilla anna og sumarfrís starfsfólks míns vil ég vekja athygli á breyttum opnunartíma í sumar. Opið frá 9—18 mánudaga til miðvikudaga 9—20 fimmtudaga og föstudaga og 9—18 alla laugardaga. Öll almenn hársnyrtiþjónusta Meö vinsemd og virðingu Sveinbjörg Haraldsdóttir SALON A PARIS Hafnarstræti 20 (Lækjartorg) sími: 84376 Bviðgerðar og VATNSÞÉTTINGAR- EFNI SEM GERA MEIRA EN AÐ DUGA. THORITE Framúrskarandi viðgerðar- efni fyrir steypugalla. Þannig sparar það bæði tíma og fyrirhöfn við móta- uppslátt ofl. Thorite er til- valið til viðgerða á rennum ofl ACRYL60 Eftir blöndun hefur efnið tvöfaldan þenslueiginleíka, tvöfaldan þrýstieiginleika, þrefaldan sveigjanleika og áttfalda viðloðun miðað við venjulega steypu. WATERPLUG Sementsefni sem stöðvar rennandi vatn. Þenst út við hörnun og rýrnar ekki. Þetta efni er talið alger bylt- ing. THOROGRIP Thorogrip er sementsefni, rýrnar ekki, fljótharðnandi. Þenst út við þornun og er ætlað til að festa ýmsa málmhluti í stein og stein- steypu. BYGGINGAVORUR HF Nethyl 2, Ártúnsholti, Simi 687447 og Suðurlandsbraut 4, Simi 33331 5 steinprýði Stórhöfða 16, sími 83340. •T 4

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.