Morgunblaðið - 04.07.1985, Page 53

Morgunblaðið - 04.07.1985, Page 53
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. JÚLl 1985 53 Morgunblaöið/Bjarni • Guðmundur Torfason skorar hérna jöfnunarmark Fram gagn Víkingum í gær. Guðmundur skoraði þrjú mörk í gær og lék vei. Sjö gullfalleg mörk — enn einu sinni misstu Víkingar niöur gott forskot Töpuðu nú f bikarkeppninni — komust í 2K) og 3:1 VÍKINGAR máttu enn einu sinni bíta í það súra epii að vera með örugga forystu í leikhléi en tapa síöan leiknum. Aö þessu sinni voru það Framarar sem sigruöu þá í Bikarkeppninni eftir fram- lengingu. Eftir venjulegan leik- tíma var staöan jöfn, 3:3, en í framlengingunni skoraði Guð- mundur Torfason úr vítaspyrnu sitt þriöja mark í leiknum og sig- urmark Fram. Þeir tæplega eitt þúsund áhorf- endur sem lögöu leiö sína á Val- bjarnarvöll uröu ekki fyrir von- brigöum, mikil spenna, mörg mörk og í einu oröi sagt hörkuleikur. Víkingar byrjuöu leikinn mun betur og böröust eins og Ijón, gáfu létt- leikandi leikmönnum Fram engan griö, alltaf tveir í hverjum manni og uppskáru tvö mörk í fyrri hálfleikn- um. Fyrra markið var stórglæsilegt. Andri Marteinsson fékk knöttinn rétt utan viö vitateig og sendi hann meö fallegu skoti efst í markhorn- iö, gjörsamlega óverjandi. Ein- staklega fallegt mark sem sjást allt Víkingur — Fram 3:4 of sjaldan hér á landi. Seinna markiö var einnig ágætt. Aöal- steinn Aöalsteinsson skaut þá yfir Friörik í markinu, sem var komin allt of langt út úr því. Aöalsteinn var þarna fljótur aö átta sig en vörn Fram illa á veröi. Þegar fimmtán mínútur voru liönar af siöari hálfleik gaf Ómar Torfason hárnákvæma sendingu á kollinn á Guömundi Torfasyni sem skallaöi laglega i netiö. Gullfallegt mark. Víkingar gáfust ekki upp viö þetta heldur bættu viö þriöja markinu og var Andri þar aftur á feröinni. Trausti Ómarsson, fyrrum Bliki, átti þá skot aö marki, boltinn lenti i varnarmanni og þaöan til Andra sem afgreiddi hann snyrti- lega í markiö. Á 76. mínútu minnkaöi Guö- mundur Steinsson muninn fyrir Fram. Viöar átti þá fallega send- ingu á Guðmund Torfason inn í vinstra horniö, Guömundur gaf fyrir markiö þar sem nafni hans Steinsson kom á fleygiferö og sneiddi knöttinn glæsilega í netiö. Enn eitt glæsimarkiö. Eftir þetta sóttu Framarar mikiö og áttu nokkur góö marktækifæri án þess þó að skora. Fariö var aö fara um stuöningsmenn Fram þeg- ar aöeins ein mínúta var eftir af leiknum og staöan enn 3:2 fyrir Víkinga. Guömundur Torfason skoraöi jöfnunarmark Fram þegar tæp ein minúta var eftir af venju- legum leiktíma. Ormarr gaf þá góöan bolta inn í vítateig þar sem Ómar Torfason stökk hæst, skall- aöi fallega fyrir fætur Guðmundar Torfasonar, sem negldi í marknet- ið. Framlenging. Lítið markvert geröist í fyrri hálf- leik framlengingarinnar annaö en Guömundur Torfason átti skalla ofan á markslá Víkingsmarksins. f síðari hálfeik framlengingarinnar skoraði Guömundur Torfason úr vítaspyrnu. Björn Bjartmars felldi þá Guömund Steinsson innan víta- teigs og úr vítaspyrnunnii skoraöi Guömundur Torfason af miklu ör- yggi meö stórglæsilegu skoti. Þrennan í höfn og sigurinn líka. Víkingar léku þennan leik flestir mjög vel, en áberandi þótti mór hversu góöan leik Björn Bjartmars átti í öftustu vörninni, sérstaklega þegar haft er í huga aö þetta er einn af fyrstu leikjum hans. Hjá Fram vor þeir Viöar, Ásgeir, Pótur Ormslev og Guömundur Torfason góöir og þaö sama má reyndar segja um alla leikmenn vallarins. Dómari í leiknum var Þorvaröur Björnsson og hefur hann oftast dæmt betur. Hann haföi þó í nógu aö snúast, bókaöi fimm leikmenn. Þóröur og Andri hjá Víkingi voru bókaöir og þeir Ásgeir, Þorsteinn og Steinn hjá Fram. —sus. Boniek fór til Roma DINO Viola, forseti ítalska knattspyrnufélagsins AS Roma, tilkynnti í gær að félagið heföi ákveðiö að selja Brasilíumann- inn Paolo Roberto Falcao. Roma keypti í gær pólska framherjann Zbigniew Boniek frá Juventus — og forráðamenn félagsins hafa ákveöið að halda Toninho Cereze, hinum Brasilíumannin- um sem leikiö hefur með félag- inu undanfarin ár — og selja því Falcao. Falcao hefur átt viö þrálát meiösli aö stríöa undanfariö og lék lítið með liöinu í vetur. Hann hefur aö vísu náö sér aö fullu nú aö sögn lækna — en engu aö síöur var ákveöiö aö hann yröi seldur. Taliö var aö Cerezo færi ef Boniek kæmi — og höfðu viöræður veriö í gangi viö Atlanta og Avellino. Ekki er vitað hvaöa liö kaupir Falcao — en víst er aö slegist veröur um kappann. Þess má geta aö Daninn ungi og frábæri Michael Laudrup veröur hjá Juventus næsta keppnistímabil i staö Bonieks, en ítölsku félögin mega hafa tvo erlenda leikmenn hvert. Hinn erlendi leikmaöurinn hjá Juve er Michel Platini, Frakk- inn frábæri. Juve keypti Laudrup frá Danmörku fyrir síöasta keppn- istímabil en leigöi hann svo til Laz- io. Guðmundur Torfason: Reglulega gaman nÞETTA eru sko bikarleikir. Það er reglulega gaman aö þessu, sérstaklega þegar vel gengur eins og núna í sumar hjá okkur,“ sagöi Guömundur Torfason, hetja Framara eftir leikínn við Víkinga í gær. „Þessi leikur var erfiöur en mjög ánægjulegur þegar upp var staðið, þaö eina sem maöur er svekktur yfir er að Víkingar skuli vera svona neöarlega í deildinni, þeir eru alltof góöir til þess,“ sagöi Guðmundur og var aö vonum kátur eftir erfiö- an leik og sætan sigur. ttVivað s-,gtún»3S«w 03075 OPNUNARTIMI: Mánud. — miövikud. kl. 10—18. Fimmtud. — föstud. kl. 10—20. Laugardaga kl. 10—14 —— ó aö oav«« norn'ö verö' trá 10 to- $85

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.