Morgunblaðið - 04.07.1985, Blaðsíða 56
FIMMTUDAGUR 4. JÚLÍ 1985
VERÐ í LAUSASÖLU 30 KR.
HHI ..
Morgunblaðið/Friðþjófur
Heyskapur ( fullum gangi í Eyjafiröi í gær. A Ytra-Laugarlandi í öngulstaðahreppi voru bræðurnir Hjörleifur og Aðalbjörn Tryggvasynir að hirða bagga
ásamt sínu fólki og krökkum af næsta bæ. Á myndinni er Aðalbjörn lengst til vinstri, þá er Jón Elvar Hjörleifsson, Ari Fannar Vilbergsson, Finnur
Aðalbjörnsson, Guðrún Aðalbjörg Árnadóttir, Vilborg Hjörný ívarsdóttir, Jóhannes Helgi Hjörleifsson, Víðir Starri Vilbergsson og hundurinn Skuggi.
Heyskapur í fullum gangi
Akureyri, 3. júlí. Frá Helga Bjarnasyni, blaðamanni MorgunbUAsina.
HEYSKAPURINN hefur gengið vel í Eyjafirði það sem af er sumri,
einkum í þurrkunum síðustu daga. Innan Akureyrar eru flestir bændur
komnir vel af stað og einhverjir búnir að hirða meira en helming.
í dag voru allir sem vettlingi geta valdið, jafnt börn sem fullorðnir,
í heyskapnum til að nýta þurrkinn út í ystu æsar, enda slegið
grimmt. Bændur, sem blaðamaður ræddi við í dag hér Eyjafirði, voru
heldur bjartsýnir á gott heyskaparár.
Ólafur G. Vagnsson, ráðunautur hjá Búnaðarsambandi Eyjafjarð-
ar, sagði að ef þessi góði þurrkur héldist í viku enn myndu margir
bændur komast langt með heyskapinn og einstaka ljúka honum.
Hann sagði að tún væru yfirleitt vel sprottin og næðu menn góðu
fóðri með því að slá svo snemma. Hann taldi að hey yrðu ekki mjög
mikil að vöxtum en þó alveg í meðallagi. Hann bjóst við að flest tún
yrðu slegin aftur síðar í sumar. Út með Eyjafirði er heyskapurinn
heldur styttra á veg kominn.
Eigendur Landsvirkjunar ræða kaup á Krftfluvirkjun á 1,2 milljarða:
Lagt til að ríkið yfirtaki
2,2 milljarða kr. skuld
Heildarskuldir 3,2—3,4 milljarðar
Þórkatla II:
Skipverji
slasast
á höfði
SKIPVERJI á Þórkötlu II, GK
197, slasaðist alvarlega á höfði er
skipið var að veiðum suð-vestur af
Stafnesi um miðjan dag í gær.
Þyrla frá varnarliðinu sótti mann-
inn um borð í Þórkötlu II og flutti
hann í Borgarspítalann.
Slysavarnafélagi íslands
barst tilkynning frá skipinu um
klukkan 16.00, að einn skipverja
hefði slasast alvarlega á höfði
og hlotið slæma áverka á and-
liti, þar sem skipið var statt
suð-vestur af Stafnesi. Var skip-
inu snúið tafarlaust til lands og
jafnframt haft samband við
varnarliðið, sem sendi þyrlu
með lækni innanborðs áleiðis á
slysstað. Þyrlan var komin að
skipinu laust fyrir klukkan 17.00
og seig læknir um borð til að
gera að sárum hins slasaða, sem
síðan var fluttur um borð í þyrl-
una. Þyrlan lenti við Borgarspít-
alann um klukkan 18.00, þar
sem maðurinn gekkst undir
læknisaðgerð.
Þristur
Landgræðslunnar:
Missti stél-
hjól við áburð-
ardreifingu
Sauóárkróki, 3. júif.
FLUGVÉL Landgræðslunnar, af
gerðinni DC 3, missti stélhjól er
hún var að dreifa áburði við
Þrístiklu á Auðkúluheiði í
gærkvöldi. Flugmennirnir urðu
ekki varir við er hjólið datt fyrr
en þeir lentu vélinni á flugvell-
inum á Sauðárkróki síðar um
kvöldið enda enginn Ijósa-
búnaður í mælaborði vélarinn-
ar, sem gefur til kynna bilun í
stélhjóli. Lendingin tókst áfalla-
laust og var viðgerð á vélinni
lokið um eftirmiðdag i dag.
Að sögn Stefáns Sigfússon-
ar, sem annast yfirumsjón
með áburðardreifingunni,
verður dreift rúmlega 460
tonnum af áburði og fræi á
Auðkúlu- og Eyvindastaða-
heiði. Unnið hefur verið við
dreifinguna í rúma viku og
var þetta fimmta ferð vélar-
innar er óhappið varð. Sagði
Stefán að dreifingin hefði
gengið vel að undanskildu
þessu óhappi, sem raunar
tafði lítið fyrir, þar sem við-
gerð er nú lokið á vélinni. Bú-
ist er við að dreifingu hér
ljúki á næstu fjórum dögum
og verður þá haldið til Húsa-
víkur, þar sem unnið verður
við dreifingu i um það bil
vikutíma.
Kári
Samninganefnd um sölu
Kröfluvirkjunar til Landsvirkj-
unar hefur komist að þeirri
niðurstöðu, aö heildarskuldir
Kröfluvirkjunar nemi 3,2—3,4
milijörðum króna. Nefndin gerir
tillögur um aö Landsvirkjun yf-
irtaki virkjunina fyrir um það bil
GARÐAB/ER OG Hafnarfjarðar-
bær hafa ákveðið að segja upp
samningi við Brunabótafélag Is-
lands um skyldutryggingar fast-
eigna. Bæjarstjórn Garðabæjar
hefur þegar tekið ákvörðun um að
bjóða þessar tryggingar út, en
ekki liggur enn fyrir ákvörðun um
það hvort Hafnarfjörður semur
1,2 milljarða króna en að ríkis-
sjóður taki að sér að greiða
niður aðrar skuldir, skv. upplýs-
ingum Morgunblaðsins.
Skýrsla nefndarinnar, sem er
trúnaðarmál, liggur fyrir ríkis-
stjórninni, stjórn Landsvirkjun-
ar, Reykjavíkurborgar, Akureyr-
aftur við Brunabótafélagið eða
leiti tilboða.
Ágreiningur er á milli Bruna-
bótafélagsins og Garðabæjar
vegna þessa. Tryggingarfélagið
heldur því fram að samningnum
hafi ekki verið sagt upp með til-
skyldum fyrirvara. Jón Gauti
Jónsson bæjarstjóri sagði hins
arbæjar, fjármálaráðuneytinu
og iðnaðarráðuneytinu. Ríkis-
sjóður á 50% í Landsvirkjun,
Reykjavíkurborg um 45% og Ak-
ureyrarbær um 5%.
Af hálfu Reykjavíkurborgar
var i vetur mörkuð sú stefna í
þessu máli, að ekki komi til
greina að fallast á kaup Lands-
virkjunar á Kröfluvirkjun leiði
vegar að uppsögnin hefði borist á
réttum tíma. Nú er verið að ganga
frá útboðsgögnum og fer útboðið
fram innan tíðar.
Hafnarfjarðarbær bauð út í
desember allar tryggingar bæjar-
félagsins og stofnana þess og var
tekið tilboði frá Sjóvá. Einar Ingi
Halldórsson bæjarstjóri sagði að
iðngjöld hefðu lækkað.
Hilmar Pálsson, aðstoðar-
það til hækkunar raforkutaxta
eða komi í veg fyrir að fyrirhug-
uð verðlækkun komi til fram-
kvæmda.
Samþykki eigendur Lands-
virkjunar að kaupa Kröfluvirkj-
un þarf Alþingi að samþykkja
lög er heimili ríkinu að selja
virkjunina.
framkvæmdastjóri Brunabótafé-
lags íslands, sagöi að félagið fengi
rúmlega 94% allra iðngjalda
skyldutrygginga fasteigna utan
Reykjavíkur greitt, eða um 77
milljónir króna.
Tekjur tryggingarfélaga af
starfsemi, samkvæmt samningi
um skyldutryggingar, eru undan-
þegnar sköttum til ríkissjóðs og
sveitarfélaga. Sjá einnig bls. B2.
Garðabær og Hafnarfjörður
segja upp skyldutryggingum
— Garðabær mun bjóða tryggingarnar út