Morgunblaðið - 04.07.1985, Qupperneq 56

Morgunblaðið - 04.07.1985, Qupperneq 56
FIMMTUDAGUR 4. JÚLÍ 1985 VERÐ í LAUSASÖLU 30 KR. HHI .. Morgunblaðið/Friðþjófur Heyskapur ( fullum gangi í Eyjafiröi í gær. A Ytra-Laugarlandi í öngulstaðahreppi voru bræðurnir Hjörleifur og Aðalbjörn Tryggvasynir að hirða bagga ásamt sínu fólki og krökkum af næsta bæ. Á myndinni er Aðalbjörn lengst til vinstri, þá er Jón Elvar Hjörleifsson, Ari Fannar Vilbergsson, Finnur Aðalbjörnsson, Guðrún Aðalbjörg Árnadóttir, Vilborg Hjörný ívarsdóttir, Jóhannes Helgi Hjörleifsson, Víðir Starri Vilbergsson og hundurinn Skuggi. Heyskapur í fullum gangi Akureyri, 3. júlí. Frá Helga Bjarnasyni, blaðamanni MorgunbUAsina. HEYSKAPURINN hefur gengið vel í Eyjafirði það sem af er sumri, einkum í þurrkunum síðustu daga. Innan Akureyrar eru flestir bændur komnir vel af stað og einhverjir búnir að hirða meira en helming. í dag voru allir sem vettlingi geta valdið, jafnt börn sem fullorðnir, í heyskapnum til að nýta þurrkinn út í ystu æsar, enda slegið grimmt. Bændur, sem blaðamaður ræddi við í dag hér Eyjafirði, voru heldur bjartsýnir á gott heyskaparár. Ólafur G. Vagnsson, ráðunautur hjá Búnaðarsambandi Eyjafjarð- ar, sagði að ef þessi góði þurrkur héldist í viku enn myndu margir bændur komast langt með heyskapinn og einstaka ljúka honum. Hann sagði að tún væru yfirleitt vel sprottin og næðu menn góðu fóðri með því að slá svo snemma. Hann taldi að hey yrðu ekki mjög mikil að vöxtum en þó alveg í meðallagi. Hann bjóst við að flest tún yrðu slegin aftur síðar í sumar. Út með Eyjafirði er heyskapurinn heldur styttra á veg kominn. Eigendur Landsvirkjunar ræða kaup á Krftfluvirkjun á 1,2 milljarða: Lagt til að ríkið yfirtaki 2,2 milljarða kr. skuld Heildarskuldir 3,2—3,4 milljarðar Þórkatla II: Skipverji slasast á höfði SKIPVERJI á Þórkötlu II, GK 197, slasaðist alvarlega á höfði er skipið var að veiðum suð-vestur af Stafnesi um miðjan dag í gær. Þyrla frá varnarliðinu sótti mann- inn um borð í Þórkötlu II og flutti hann í Borgarspítalann. Slysavarnafélagi íslands barst tilkynning frá skipinu um klukkan 16.00, að einn skipverja hefði slasast alvarlega á höfði og hlotið slæma áverka á and- liti, þar sem skipið var statt suð-vestur af Stafnesi. Var skip- inu snúið tafarlaust til lands og jafnframt haft samband við varnarliðið, sem sendi þyrlu með lækni innanborðs áleiðis á slysstað. Þyrlan var komin að skipinu laust fyrir klukkan 17.00 og seig læknir um borð til að gera að sárum hins slasaða, sem síðan var fluttur um borð í þyrl- una. Þyrlan lenti við Borgarspít- alann um klukkan 18.00, þar sem maðurinn gekkst undir læknisaðgerð. Þristur Landgræðslunnar: Missti stél- hjól við áburð- ardreifingu Sauóárkróki, 3. júif. FLUGVÉL Landgræðslunnar, af gerðinni DC 3, missti stélhjól er hún var að dreifa áburði við Þrístiklu á Auðkúluheiði í gærkvöldi. Flugmennirnir urðu ekki varir við er hjólið datt fyrr en þeir lentu vélinni á flugvell- inum á Sauðárkróki síðar um kvöldið enda enginn Ijósa- búnaður í mælaborði vélarinn- ar, sem gefur til kynna bilun í stélhjóli. Lendingin tókst áfalla- laust og var viðgerð á vélinni lokið um eftirmiðdag i dag. Að sögn Stefáns Sigfússon- ar, sem annast yfirumsjón með áburðardreifingunni, verður dreift rúmlega 460 tonnum af áburði og fræi á Auðkúlu- og Eyvindastaða- heiði. Unnið hefur verið við dreifinguna í rúma viku og var þetta fimmta ferð vélar- innar er óhappið varð. Sagði Stefán að dreifingin hefði gengið vel að undanskildu þessu óhappi, sem raunar tafði lítið fyrir, þar sem við- gerð er nú lokið á vélinni. Bú- ist er við að dreifingu hér ljúki á næstu fjórum dögum og verður þá haldið til Húsa- víkur, þar sem unnið verður við dreifingu i um það bil vikutíma. Kári Samninganefnd um sölu Kröfluvirkjunar til Landsvirkj- unar hefur komist að þeirri niðurstöðu, aö heildarskuldir Kröfluvirkjunar nemi 3,2—3,4 milijörðum króna. Nefndin gerir tillögur um aö Landsvirkjun yf- irtaki virkjunina fyrir um það bil GARÐAB/ER OG Hafnarfjarðar- bær hafa ákveðið að segja upp samningi við Brunabótafélag Is- lands um skyldutryggingar fast- eigna. Bæjarstjórn Garðabæjar hefur þegar tekið ákvörðun um að bjóða þessar tryggingar út, en ekki liggur enn fyrir ákvörðun um það hvort Hafnarfjörður semur 1,2 milljarða króna en að ríkis- sjóður taki að sér að greiða niður aðrar skuldir, skv. upplýs- ingum Morgunblaðsins. Skýrsla nefndarinnar, sem er trúnaðarmál, liggur fyrir ríkis- stjórninni, stjórn Landsvirkjun- ar, Reykjavíkurborgar, Akureyr- aftur við Brunabótafélagið eða leiti tilboða. Ágreiningur er á milli Bruna- bótafélagsins og Garðabæjar vegna þessa. Tryggingarfélagið heldur því fram að samningnum hafi ekki verið sagt upp með til- skyldum fyrirvara. Jón Gauti Jónsson bæjarstjóri sagði hins arbæjar, fjármálaráðuneytinu og iðnaðarráðuneytinu. Ríkis- sjóður á 50% í Landsvirkjun, Reykjavíkurborg um 45% og Ak- ureyrarbær um 5%. Af hálfu Reykjavíkurborgar var i vetur mörkuð sú stefna í þessu máli, að ekki komi til greina að fallast á kaup Lands- virkjunar á Kröfluvirkjun leiði vegar að uppsögnin hefði borist á réttum tíma. Nú er verið að ganga frá útboðsgögnum og fer útboðið fram innan tíðar. Hafnarfjarðarbær bauð út í desember allar tryggingar bæjar- félagsins og stofnana þess og var tekið tilboði frá Sjóvá. Einar Ingi Halldórsson bæjarstjóri sagði að iðngjöld hefðu lækkað. Hilmar Pálsson, aðstoðar- það til hækkunar raforkutaxta eða komi í veg fyrir að fyrirhug- uð verðlækkun komi til fram- kvæmda. Samþykki eigendur Lands- virkjunar að kaupa Kröfluvirkj- un þarf Alþingi að samþykkja lög er heimili ríkinu að selja virkjunina. framkvæmdastjóri Brunabótafé- lags íslands, sagöi að félagið fengi rúmlega 94% allra iðngjalda skyldutrygginga fasteigna utan Reykjavíkur greitt, eða um 77 milljónir króna. Tekjur tryggingarfélaga af starfsemi, samkvæmt samningi um skyldutryggingar, eru undan- þegnar sköttum til ríkissjóðs og sveitarfélaga. Sjá einnig bls. B2. Garðabær og Hafnarfjörður segja upp skyldutryggingum — Garðabær mun bjóða tryggingarnar út

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.