Morgunblaðið - 12.07.1985, Síða 1
STOFNAÐ 1913
154. tbl. 72. árg.____________________________________FÖSTUDAGUR 12. JÚLÍ 1985 Prentsmiðja Morgunblaðsins
Morgunblaðið/Einar Falur
VIKINGARNIR KOMNIR
100 manna danskur leikflokkur heldur um helgina nokkrar sýningar á
leikritinu Hagbarður og Signý i Laugarvatni. Það var skrautleg sjón
þegar víkingarnir komu flugleiðis til landsins í gær. Tók þar enginn
annar á móti þeim en sterkasti víkingur í heimi, Jón Páll Sigmarsson.
Sjá nánar á bls. 28.
Rússar áreita
norskt skip
Ódó, ll.jálí. AP.
SOVÉSK freigáta skar á kapal norsks rannsóknarskips þar sem það vann að
jarðskjálftarannsóknum á óumdeilanlegu yfirráðarsvcði Norðmanna í Bar-
entshafinu snemma á fimmtudag.
Anders C. Sjástad, varnarmála-
ráðherra Noregs, sagði að hann
hefði afhent sovéska sendifulltrú-
anum, Alexander P. Smirnov, hörð
mótmæli Norðmanna gegn „þess-
um yfirgangi Rússa gegn norskum
visindamönnum, sem hefðu verið
við lögmætar jarðskjálftarann-
sóknir í landgrunni Noregs."
Sjástad vildi ekki fullyrða hvort
norska stjórnin teldi að Sovét-
menn hefðu skorið á kapalinn af
ásettu ráði.
Káre Kristiansen ráðherra
kvaðst vona að Sovétmenn sæju til
þess að slíkt kæmi ekki fyrir aft-
ur, svo að hægt yrði að viðhalda
góðu sambandi.
Norska rannsóknarskipið Mal-
ene Östervold sér eingöngu um að
framkvæma löglegar jarðskjálfta-
rannsóknir á óumdeilanlegum
norskum yfirráðasvæðum.
Malene östervold var u.þ.b. 50
km vestur af þeim mörkum sem
Sovétmenn segja að afmarki land-
grunn Noregs, og var því ekki inn
á svokölluðu „gráu svæði".
Skipstjóri norska skipsins til-
kynnti tveimur nærstöddum sov-
éskum freigátum um rannsókn-
arstarfsemi sína. Einnig reyndi
hann að ná tali af skipherrunum,
en þeir sinntu ekki merkjasend-
ingum og stillti önnur freigátan
sér upp við hlið kapalsins og skar
á hann.
Varnarmálaráðherrann sagði að
haldið yrði áfram rannsóknum á
þessu svæði þótt kapallinn væri
ónýtur.
Mexíkóbúar ákveða að
stórlækka hráolíuverð
Mexíkóborg, 11. júlí. AP.
MEXÍKÓ, fjórða mesta olíuframleiðsluiand heims, lækkaði í dag verð á
hráolíu um allt að 1,24 dollara á tunnuna. Er talið að verðlækkunin sé
svar við lágu olíuverði OPEC-ríkjanna.
Tilræði í
Kuwait
Kawmit, 11. júlí. AP.
FIMM manns biðu bana og níu
manns særðust í tveimur öflugum
sprengingum í Kuwait í dag. Enginn
hefur enn lýst ábyrgð sprenginganna
á hendur sér.
Að sögn sjónarvotta sprakk önn-
ur sprengjan á kaffihúsi við sjávar-
síðuna og biðu fimm manns bana í
þeirri sprengingu. Hin sprakk f
þéttbýlu hverfi og særðust níu
manns í henni. Lögreglan í Kuwait
bað íbúa í nágrenni kaffihússins að
yfirgefa hverfið af ótta við fleiri
sprengingar.
Báðar sprengingarnar voru mjög
öflugar og er talið að a.m.k. þrír
þeirra sem særðust í annarri
sprengingunni séu í lífshættu.
Hryðjuverkamenn shíta hafa
herjað í Kuwait um nokkurt skeið,
þar sem þeir telja Kuwaitstjórn of
hliðholla trökum, en Kuwait er rétt
Við víglínu íraka og írana.
Flugslysið við írland:
Flugritinn
líka fundinn
í'«rk, frlandi, ll.júll. AP.
FLDGRITINN úr indversku farþega-
þotunni, sem fórst undan ströndum
Irlands 23. júní, fannst í morgun á um
tveggja kílómetra dýpi. Flugritinn var
um 400 metra frá þeim stað þar sem
hljóðriti flugvélarinnar fannst í gær.
Flugritanum, sem hefur að
geyma upplýsingar um tækjabúnað
véíarinnar, var lyft upp á yfirborðið
með fjarstýrðum leitartækjum.
Hljóðritinn og flugritinn voru
látnir í hreint vatn, þar sem fram-
leiðendur ritanna segja að hreinsa
verði þá áður en lesið verði af þeim.
Fyrirhugað var að senda hljóðrit-
ann til Indlands skömmu eftir að
hann fannst í gær, en hætta varð
við það þar sem talið var nauðsyn-
legt að hreinsa hann.
Bresk yfirvöld hvöttu indversk
yfirvöld í dag til að láta rannsaka
flugritann og hljóðritann í Bret-
landi eða Bandaríkjunum i stað
þess að senda þá til rannsóknar f
Indlandi, svo hægt yrði að komast
að orsök flugslyssins sem fyrst.
Sendiráð Indlands í Bretlandi til-
kynnti hins vegar að ákvörðun
indversku yfirvaldanna yrði ekki
breytt og ritarnir yrðu sendir til
Nýju Delhí.
Fréttaskýrendur spá því að
verðlækkunin muni hafa umtals-
verð áhrif á óstöðugan olíumark-
aðinn, en eins og kunnugt er fóru
viðræður fulltrúa aðildarríkja
OPEC í Vín um síðustu helgi út
um þúfur. Saudi-Arabar hafa hót-
að að fjórfalda olíuframleiðslu
sína ef önnur aðildarríki OPEC
haldi áfram að selja olíu undir því
verði sem samtökin höfðu ákveðið.
Mexíkó er ekki aðili að OPEC,
en hefur fylgt oliuverðlagningu
samtakanna þar til nú. Ekki er
enn ljóst hvaða áhrif verðlækkun
Mexíkóbúa hefur á útsöluverð olíu
í löndum sem þeir selja til.
Oliumálaráðherra Mexíkó,
Francisco Labastida Ochoa, lét
þau orð falla sl. laugardag, að
kæmu OPEC-rfkin sér ekki saman
um ákveðið verð, yrði Mexíkó að
fara sínar eigin leiðir og standa
vörð um hagsmuni sina.
IUdeilur á
kvennaþingi
Nairobi, 11. jálí. AP.
ÍSKAELSKi'M og palestínskum
konum lenti saman á kvennaráð-
stefnunni í Nairobí í Kenýa í dag,
þar sem fjórum palestínskum
konum frá hernumdu svæðunum
á vesturbakka Jórdanar var mein-
að að koma á ráðstefnuna.
ísralesku fulltrúarnir halda
því fram að tvær palestínsku
kvennanna séu hryðjuverka-
menn, önnur flugræningi og hin
tilræðismaður.
Fulltrúar PLO á ráðstefnunni
sögðu á blaðamannafundi að
konunum fjórum hefði verið
neitað um vegabréfsáritun til
að geta sótt ráðstefnuna og
væru í stofufangelsi á vestur-
bakkanum.
Auk verðlækkunar tilkynnti
orkumáiaráðuneyti Mexíkó um
nýtt verðkerfi, sem stjórnin
hyggst taka í notkun. Samkvæmt
þvi fer olíuverð eftir landshlutum.
Fulltrúi ráðuneytisins kvaðst
vonast til þess að með nýja verð-
lagningarkerfinu næði Mexíkó
aftur fyrri mörkuðum, en oliusala
landsins hefur dregist saman á
siðari árum.
Mexíkó mun ekki auka fram-
leiðslu sína. Hámark hennar er 1,5
milljónir tunna á dag, en hún var
minnkuð i maí og júní í 800.000
tunnur á dag vegna samkeppni við
aðra oliuframleiðendur.
Verðlækkunin fer eftir tegund-
um af hráolíu og verður minnst
0,77 dollarar á tunnuna, en mest
1,24 dollarar á tunnu af hráoliu,
sem áður kostaði 27,50 dollara.
Saudi-Arabar itrekuðu i dag
hótun sína um að fjórfalda oliu-
framleiðslu sína ef ekki yrði farið
eftir áður gerðu samkomulagi um
verðlagningu.
Fréttaskýrendur segjast ekki
vissir um hvort Saudi-Arabar geri
alvöru úr hótun sinni, en ef þeir
auka framleiðsluna um tvær millj-
ónir tunna á dag, mun olíuverð
lækka úr um 27 dollurum tunnan i
15 dollara á næstu vikum. Slíkt
hefur ekki gerst síðan i oliukrepp-
unni i kringum 1970.
Formaður utanríkismálanefndar norska Stórþingsins:
Heimilisfang sovéska sendiráðsins í
Ósló verði „Andrei Sakharov Plass 1“
OsM, ll.júlf. AP.
JAKOB Aano, formaður uUnríkismálanefndar norska Stórþingsins, hef-
ur lagt tU, að nafni götunnar og torgsins, sem sovéska sendiráðið í Osló
stendur við, verði breytt. Heimilisfang sendiráðsins verði framvegis
„Andrei Sakharov Plass 1“ í stað „Drammensveien 74“, eins og nú er.
Aano, sem setið hefur á þingi í Washington. Þar er gert ráð
fyrir Kristilega þjóðarflokkinn f
tvo áratugi, skýrði frá tillögu
sinni í þætti í norska útvarpinu f
gær. Hann sagði, að hugmyndin
væri ættuð frá Bandaríkjunum,
þar sem sams konar tillaga ligg-
ur fyrir báðum deildum þingsins
fyrir því, að götunni, sem sov-
éska sendiráðið í Washington
stendur við, verði gefið nýtt
nafn, annað hvort „Andrei Sakh-
arov Avenue" eða „Andrei Sakh-
arov Plaza".
Aano kvaðst þegar hafa sent
örnefnanefnd Oslóborgar tillögu
sína og jafnframt látið norsku
vísindaakademíuna vita um
hugmyndina. Skrifstofur aka-
demíunnar eru í næsta húsi við
sovéska sendiráðið við Dramm-
ensveien og sagðist Aano hafa
óskað eftir stuðningi hennar við
tillöguna.
„Hugmyndin er sú,“ sagði
Aano, „að heiðra manninn sem
hlaut friðarverðlaun Nóbels árið
1975 og jafnframt minna Sovét-
stjórnina á það, að við munum
aldrei sætta okkur við ofsóknir
hennar á hendur Sakharov og
konu hans, Yelenu Bonner.“
Stórþingið hefur boðið Sakh-
arov-hjónunum, sem neydd hafa
verið til að búa f einangrun í
borginni Gorkf f Sovétrfkjunum,
að koma til Noregs og setjast þar
að. Þeim er ekki heimilað að
þiggja boðið.