Morgunblaðið - 12.07.1985, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. JÚLl 1985
Islandsmet
Laugavegurinn breytir um svip
Morgunblaðið/Júlfus
Framkvæmdir við breytingar og endurbætur á Laugaveginum hófust í
gærmorgun. Eins og greint var frá í frétt Morgunblaðsins verður götunni
breytt frá Skólavörðustíg að Klapparstíg í fyrsta áfanga og verða þar
breikkaðar gangstéttir, umferð beint í eina akrein, lýsing bætt og trjá-
plöntur settar niður og miðast þessar framkvæmdir að því að gera götuna
vistlegri fyrir gangandi vegfarendur.
Kröfur Sambands fiskyínnslustöövanna:
Stjórnvöld beiti ströngu
aðhaldi í peningamálum
BREYTI stjórnvöld ekki um stefnu
hvað varðar almenna stjórn pen-
ingamála, verður ekki komið í veg
fyrir að fjárhagsstaða fyrirtækja í
sjávarútvegi versni meira en orðið
er. Þau hljóti því í auknum mæli í
framtíðinni að gefast upp á áfram-
haldandi rekstri. Þess má þegar sjá
merki, að sögn fulltrúa fiskvinnslu-
fyrirtækja á blaðamannafundi í gær,
sem Samband fiskvinnslustöðvanna
efndi til. Stjórn Sambandsins átti í
gær fund með forsætis-, sjávarút-
vegs- og viðskiptaráðherra um stöðu
fiskvinnslunnar, en fundir hafa und-
anfarið farið fram í öllum kjördæm-
um með fulltrúum hennar og þing-
mönnum kjördæmanna, þar sem
staða fiskvinnslunnar hefur verið
kynnt.
Kröfur fiskvinnslufyrtækjanna
eru þær að stjórnvöld beiti
ströngu aðhaldi í peningamálum á
þessu ári til þess að draga úr um-
frameftirspurn eftir vinnuafli,
þenslu og launaskriði, en þennsl-
unni er haldið uppi með erlendum
lántökum og óhagstæðum við-
skiptajöfnuði og skapar ójafnvægi
á vinnu- og fjármagnsmarkaði.
Eigin fjárhagsstaða fyrirtækja í
sjávarútvegi hefur stöðugt farið
versnandi og veldur því að eðlileg
endurnýjun getur ekki farið fram
og þau keppt um fjármagn og
vinnuafl, sem streymir yfir til
annarra atvinnuvega.
Auk þess gerir fiskvinnslan
kröfur um að fá gengishagnað
endurgreiddan, sem talinn er
nema 200 milljónum og að vaxta-
álag bankanna vegna afurðalána
verði lækkað; verðjöfnunarsjóði
verði gert kleift að greiða 250
milljónir vegna vaxtakostnaðar af
skreiðarbirgðum; heimildir verð-
lagsráðs sjávarútvegsins verði
rýmkaðar til að ákveða að fiskverð
verði frjálst; fiskmat verði endur-
skoðað sem og málefni fisk-
vinnslufólks; tekið verði á vanda
fiskvinnslunnar vegna hringorms
og sjávarútvegur fái eðlilegan hlut
í fjármagni, sem varið er til ný-
sköpunar.
Á fundinum kom fram að fisk-
vinnslan á við ýmsan vanda að
glíma heimafyrir, en stöðugt sé
unnið að því að bæta vinnsluna og
leysa þau vandamál sem upp koma
varðandi hana. Samræming veiða
og vinnslu sé ekki einfalt mál og
hægara um að tala en f að komast
að gera svo öllum líki.
„Undirtektir hafa verið mjög
jákvæðar. Þessir fundir sem við
höfum átt með þingmönnum að
undanförnu og í dag með ráðherr-
um gefa ekki tilefni til að ætla
annað, en orðið verði við þessum
tilmælum okkar og það hlyti að
koma okkar mjög á óvart ef svo
verður ekki,“ sagði Einar K. Guð-
finnsson, sem sæti á í stjórn Sam-
bands fiskvinnslustöðvanna.
Sji kröfur Sambands fiskvinnslu-
stöðvanna í heild á bls. 27.
í 400 metra
hlaupi kvenna
ODDNÝ Árnadóttir setti fslandsmet
í 400 metra hlaupi á frjálsíþrótta-
méti í Gautaborg í gær. Hún hljóp á
54,53 sekúndum og bætti eigid met
um V10 úr sekúndu og sigraöi í
hlaupinu. Unnur Stefánsdóttir hafn-
aði í öðru sæti, hljóp á 56,91 sek-
úndu.
íris Grönfeldt sigraði í spjót-
kasti, kastaði 55,46 metra. Frjáls-
íþróttakonurnar eru í hópi ís-
lenzkra íþróttamanna, sem taka
þátt í mótum í Gautaborg og Hels-
ingborg.
Rfldsútvarpið:
Hljómskála-
músík í stað
fíkniefnaþáttar
UMRÆÐUÞÁTTUR Ríkis-
útvarpsins um fíkniefnamál,
sem vera átti á dagskrá
klukkan 22.35 í gærkvöldi,
féll niður þar sem tæknimaö-
ur fékkst ekki til vinnu og
var hljómskálamúsík leikin í
staðinn. „Mannfæð og mikið
vinnuálag eru ástæður þess
að þátturinn féll niður,“
sagði Þórir Hermannsson,
formaður sveinafélags raf-
eindavirkja, í samtali við
Morgunblaðið í gærkvöldi.
„Tæknimenn útvarpsins
höfðu ekki í frammi nein mót-
mæli, heldur er ástæðan ein-
faldlega mannfæð. Að undan-
förnu hefur verið allt of mikið
vinnuálag á mönnum og þess
dæmi, að lögboðin hvíld hafi
verið virt að vettugi. Tækni-
menn útvarps hafa á undan-
förnum misserum hrökklast úr
starfi vegna lágra launa og ekki
fengist menn í staðinn," sagði
Þórir Hermannsson.
Millisvæðamótið
í Biel:
Erfið bið-
skák hjá
Margeiri
Frá Brmgi KrisíjÁiumyni, fré(UriUri Morgua-
bUúoios f Bíel.
SKÁK Margeirs Péturssonar og
Seirawan fór aftur í bið í gær-
kvöldi eftir að leiknir höfðu verið
56 leikir.
Margeir hafði svart og beitti
Tarrasch-vörn einu sinni enn.
Seirawan fór snemma út í mikil
uppskipti, þar sem staka peðið
gaf Margeiri örlítið verra tafl,
sem þó hefði átt að duga til
jafnteflis. í framhaldinu missti
Margeir peðið og í biðstöðunni
bíður erfið vörn, en ekki von-
laus. Biðstaðan: Hv: Kd5, Ha6,
g5, f3, a4. Sv: Ke7, Hdl, h7, g6,
Seirawan (hvítur) lék biðleik.
Önnur úrslit: Ljubojevié —
Rodrigues 1—0, Quinteros —
Gutman 1—0, Martin — Jansa
0—1, Torre — Anderson
Vi> —'Á>, Sax — Partos 1—0,
Sokolov — Van der Wiel 0—1,
Polugajevsky — Short 1—0, Li
— Vaganjan 0—1.
Vaganjan Ieiðir nú mótið
með 6'A vinning af 8 möguleg-
um.
Ástandið í efnahagsmálum
breytist ekki næstu mánuði
— segir Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegsráðherra
„Að sjálfsögðu er það aðalatriði
varðandi sjávarútveginn að efna-
hagsmálin í heild séu í góðu horfi,
því hann getur aldrei borið sig, ef
svo er ekki. Það sem hefur gert
sjávarútveginum erfitt fyrir, er sú
þensla sem hefur verið á ýmsum
sviðum þjóðlífsins og þá ekki hvað
síst mikií erlend lántaka til marg-
víslegra framkvæmda," sagði Hall-
dór Asgrímsson, sjávanítvegsráð-
herra, í samtali við Morgunblaðið
er hann var inntur eftir niöurstöð-
um fundarins með fulltrúum fisk-
vinnsiunnar í gær, en auk Halldórs
sátu hann einnig forsætis- og við-
skiptaráðherra.
„Það slþptir auðvitað mjög
miklu að bæði ríkisvald og aðrir
aðilar í þjóðfélaginu stilli kröf-
um sínum í hóf, meðan sjavarút-
veguririn er að komast út úr
þeirn vanda sem hann stendur
frammi fyrir. Svo hefur því mið-
ur ekki verið. Það virðist sem
þjóðfélagið sé ekki enn búið að
átta sig á þeim áföllum sem það
hefur orðið fyrir. Tekjur okkar
eru mun minni en til dæmis á
árinu 1981 og á góðu árunum þar
á undan vorum við að byggja hér
upp góð lífskjör. Menn gera samt
sem áður sömu kröfurnar og þá.
Ég hef margoft bent á að við
verðum að stilla kröfunum í hóf,
en því miður hefur ekki verið
nægilega á það hlustað. Með því
er ég ekki að kenna einum eða
öðrum um og að sjálfsögðu getur
ekki ríkisstjórn staðið þar ein á
móti, þó hún beri mesta ábyrgð.
Þar verður að koma til skilning-
ur bæði Alþingis og hinna ólíku
hagsmunahópa f þjóðfélaginu.
Við eigum öil þetta vandamál
sameiginlega. Við lifum hér á
sjávarútvegi og auðvitað vinna
stjórnvöld að því eins og þau
geta að koma á jafnvægi í efna-
hagsmálum. Það er búin að vera
glíma stjórnvalda til mjög
margra ára. Þar hefur vissulega
náðst mikill árangur síðustu ár-
in, en það er langt í land að hann
sé fullnægjandi og það breytist
ekki á næstu mánuðum. Það er
lengra starf framundan en svo,“
sagði Halldór Ásgrímsson, sjáv-
arútvegsráðherra að lokum.