Morgunblaðið - 12.07.1985, Side 3

Morgunblaðið - 12.07.1985, Side 3
MORGUNBLAÐIP, FÖSTUPAGUR 12. JOlI 1985 3 Starfsstúlka _ Hótel Borgar vió smábarinn. Áfengió hefur verió fjarlegt og aðeins boóið upp á svaladrykki og kartöfluflögur. Smábarir á Hótel Borg: „Stangast á við áfengis- löggjöfina“ — segir fulltrúi lögreglustjóra „VIÐ LÍTUM svo á, aó áfengiss- ala á herbergjum stangist á vió áfengislöggjöflna og gáfum for- ráðamönnum Hótel Borgar kost á að fjarlægja áfengi úr ísskáp- um á herbergjum," sagði Arn- grímur ísberg, fulltrúi lögreglu- stjórans í Reykjavík, vegna frétt- ar Morgunblaðsins í gær um að áfengi á svokölluðum mínibör- um á herbergjum Hótel Borgar hefói verið fjarlægt að kröfu lögreglustjóra. Áfengið var selt á litlum flöskum, svokölluðum „miniature“-flöskum. „Hótel Borg hefur vínveit- ingaleyfi á ákveðnum tímum sólarhrings, en boðið var upp á áfengi allan sólarhringinn. Auk þess er aðeins héimilt að veita 20 ára og eldri áfengi og ómögulegt að hafa eftirlit með því að það ákvæði laganna væri virt,“ sagði Arngrímur fsberg. Bein útsend- ing frá frjáls- íþróttakeppni SJÓNVARPIÐ mun sýna frjáls- íþróttalandskeppni Norðurlands og Sovétríkjanna í Osló í beinni út- sendingu á þriðjudag og miðviku- dag í næstu viku. í liði Norðurland- anna eru þrír íslendingar, Einar Vilhjálmsson, Helga Halldórsdóttir og Oddur Sigurðsson. Að sögn Bjarna Felixsonar íþróttafréttamanns er þetta fyrsta beina sjónvarpsútsending- in frá Norðurlöndum. Hefst hún klukkan 17 báða daga. Bjarni verður i Osló og lýsir keppninni. Bjarni þurfti að gera ýmsar ráðstafanir í sambandi við þessa útsendingu. Meðal annars fékk hann mótshaldarana að til að flýta spjótkastskeppninni um klukkustund svo að íslendingar gætu séð Einar Vilhjálmsson kasta spjótinu. Hátíð í Kópavogi HLÍÐAGARÐSHÁTÍÐIN í Kópa- vogi hefst klukkan þrjú í dag og stendur til klukkan 20. Ýmislegt verður til skemmtunar, boðið upp á veitingar, hestaleiga verður á svæðinu og leiktæki ýmiss konar. Vinnuskóli Kópavogs gengst fyrir hátíðinni og hefur gert nokkur undanfarin ár. Eldur í norskum togara ELDUR kom upp í norska togaran- um Scalloper í Reykjavíkurhöfn um kl. hálfátta ( gærkvöldi. Slökkviliðið var kvatt á vettvang og logaði í vinnslulcst skipsins. Slökkvistarf gekk vel og tók tæp- lega klukkustund að slökkva eld- inn. Unnið var að uppsetningu vinnslukerfis i togaranum þegar eldur kviknaði. Skemmdir eru ekki miklar og tókst að koma í veg fyrir að eldur bærist úr lest skipsins. Skemmdir eru einkum af sóti og reyk. Morgunblaðið/Júlíus Flug og bíll Hágæða hljómtæki Amsterdam 14.957 k, Broltfarardagar mán . ftmmtud., föatud. og sunnud Barnaafsl 0.500 kr. , Zurich Brottfarardagur sunnud Barnaafsl. 7J57 kr. Vtr6 fré 17.729 kr 0D ( París Brottfarardagur föstud Barnaafsl 5J00 kr Veröfrá 15.443 kr. /TíN CAL k Salzburg 12.244 ». ' Brottfarardagur rrúövlkud Barnaafsl 0.700 kr CÐ Glasgow Brottfarardagur: flmmtud Barnaafsl. 5.000 kr. Veröfrá 13.256 kr. Sanyo vasadiskó Verö frá kr. - í ” “i.~ “J*3 Sanyo bíltæki Verö frá kr. 8.620 Helgarinnkaupin í Vörumarkaðinum othuolis Paté og kæfur frá íslensku-frönsku eldhúsi. Jensen hátalarar Veröfrákr. lÖMTSiol Sanyo stereo feröatæki meö lausum hátölurum Verð frá kr. 8.468 I Agúrkur 66.20 Tómatar 88.00 Græn paprika 154.00 Stórútsala á barnafatnaði 30—50% afsláttur Sanyo útvarpstæki Verö frá kr. 2.625 (2\ Gunnar Ásgeirsson hf. Suóurtandsbraut 16 Sfrni 9135200 Kynning Beckers, sænska gæöamálningin Kryddlegin Sirloin steik 15% 219 kr./kg. kynningarafsláttur Hámarksgæði — Lágmarksverö t\ London Brottfaiardagur manud Barnaafsl S.700 kr Verö frá 15.072 kr Luxembourg V«ÍM 14.592 kr Brotttarardagar laugard Barnaafsl 0.700 kr Ódýrar nautasteikur og kryddlegiö lambakjöt í ótrúlegu úrvali Frankfurt Verö frá 14.548 k, Brottfarardagur sunnud Barnaafsl 0.700 kr Kaupmannahöfn L°r,r,*síkrud —16-750 k, © Vörumarkaðurinn hí. i Ármúla 1 A S.: 686111 Eiöistorgl 11 S.: 622200 Allt verö er mlöaö vtö 4 t bil i eina viku. Innifalið. Flug, bíll, ótakmarkaöur kilómetrafjöldl, sölusk. og kaskótrygglng. I lúshílar: Fáanlegir i Luxembourg og Dusseldorf. Kinnig: Flug og bíll i Osló, Bergen, Gautaborg og Stokkhótmi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.