Morgunblaðið - 12.07.1985, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 12.07.1985, Qupperneq 6
MORGUNBLAÐIÐ, flöSTUDAGUB 12. JQLÍ 1985 « 3 konur Konur komu allmjög við sögu í nýgenginni miðvikudagsdag- skrá ríkisfjölmiðlanna og er það vel, því óðum afsannast nú hið fornkveðna ... konan er eyland ... nær væri að telja konuna meg- inlandið og okkur karlana eylönd og sker. Staðreyndin er nefnilega sú að konur ná mun betur saman en karlar, eins og sést best á því, að ungar konur fara gjarnan sam- an á klósett og það er áberandi hve konur eiga auðvelt með að tjá tilfinningar sínar, snerta hver aðra og rabba saman í síma og þá er ótalið hið óhugnanlega raunsæi kvenna. Allt ber þetta að sama brunni, konan er forystuafl fram- tíðarinnar. Ætli við karlarnir höfum raun- ar annað hlutverk í framtíðarrík- inu en mála varir og skrokk og hlaupa svo í bólið þegar gyðjunum þóknast að veifa litlafingri? Heimilisstörf og barnauppeldi verða að sjálfsögðu í höndum auð- sveipra vélþræla. Unnur Fyrsta konan er var leidd fram á sjónarsviðið í miðvikudagsdag- skránni var skáldkonan Unnur Ei- ríksdóttir. Þessi einstæða kona sem nú er því miður látin var ein 15 systra. Ég ræði ekki frekar kynni mín af þessari merku konu en þær RÚVAK-stöllur, Margrét Blöndal og Sigríður Pétursdóttir, röktu mjög lauslega æviferil hennar í þættinum fslenskar skáldkonur, sem var á dagskrá rásar 1 milli klukkan 10.45—11.15. Það er kannski ekki nema von að þær stöllur hafi haft úr litlu að moða, því upplýsingar um æviferil Unnar Riríksdóttur skáldkonu liggja ekki á lausu. Ég fann til dæmis ekki staf um þessa ágætu konu í þeim bókmenntauppfletti- ritum íslenskum er ég kíkti í. Kom mér raunar mjög á óvart að í fjór- um slíkum ritum var ekki getið einnar einustu skáldkonu. óþarfi er að taka fram að þessar fjórar bækur voru ritaðar af körlum. Ég vil svona undir lokin áður en ég skil alveg við Unni Eiríksdóttur birta smá glefsur úr ónefndum ritdómi um ónefnda bók er mér finnst lýsa dæmigerðu viðhorfi sumra karlkynsritdómara til skáldskaparverka konu: Höfundur hefir mikla unun af að lýsa lands- lagi og húsakynnum, heimilishátt- um og alls kyns dútli, og gerir það allvel, en kann sér ekki hóf. ... Líka kemur fram mikill áhugi fyrir hannyrðum og heimil- isiðnaði ýmis konar, enda verður bókin að teljast heimilisiðnaður fremur en skáldverk." Whisky-raddir Andrea Jónsdóttir hefir um all- langt skeið flutt á rás 2 fréttir af söng- og skáldskapariðkun kvenna í þætti er hún nefnir: Kvennabúrið. í miðvikudagsþættinum Voru sér- staklega teknar á beinið konur er höfðu svokallaðar „whiskiy-radd- ir“ en slíkar raddir hafa nú hingað til fremur verið taldar koma úr barka karlmanna. Andrea blessunin sannfærði mig hinsvegar um að kvenfrelsis- kórinn verður jafn hrjúfur og kór Útlendingahersveitarinnar. Og það verð ég að segja að ég vildi heldur mæta strákling úr þeirri sveit en Tinu Turner, Hallbjörgu Bjarnadóttur og Ninu Hagen á fullum dampi. Starrinn Skömmu eftir að kvennabúrið hafði lokað dyrum sínum á rás 2 hófst aftanstund barnanna i sjón- varpinu, þær mætti til leiks í söguhorni Iðunn Steinsdóttir rit- höfundur og sagði börnunum sög- ur af starra einum er hóf hreiður- gerð í ónefndu þakskeggi. Þrír litl- ir snáðar hlýddu opinmyntir á frásögn þessarar ljúfu konu, tja, þeir vita ekki hvað þeir eiga í vændum blessaðir! Ólafur M. Jóhannesson. UTVARP/SJONYARP Þrjár teikni- myndir í kvöld Að venju er 1 Q 25 barnaefni á ~~' dagskrá sjón- varpsins í kvöld kl. 19.25. Að þessu sinni verða sýndar þrjár teiknimynd- ir undir samheitinu „Dýrasögur". Tvær þeirra eru finnskar og heita þær „Refurinn og fiskimaður- inn“ og „Björninn fer á fiskiveiðar". Hin þriðja er sovésk og nefnist hún „Bangsi og býflugnabúið". Coco Chanel Tískudrottningin Coco Chanel ■■■■ í kvöld klukkan 91 35 21.35 er á A “ dagskrá sjón- varpsins heimildamynd um ævi og störf frönsku tískudrottningarinnar Coco Chanel, en hún var einn litríkasti og áhrifa- mesti tískuhönnuður þessarar aldar. Coco Chanel fæddist ár- ið 1883 og var af bænda- fólki komin. Móðir hennar dó þegar hún var í æsku og faðir hennar yfirgaf hana skömmu síðar og ólst hún upp á munaðar- leysingjahæli að því er talið er, en margt er á huldu um æskuár hennar. Hún var bæði fögur og framgjörn og tókst með aðstoð auðugra elskhuga að koma undir sig fótun- um í tískuheiminum skömmu fyrir upphaf fyrri heimsstyrjaldarinn- ar. Æ síðan hefur fyrir- tæki hennar verið meðal þeirra áhrifamestu í kvenfatatísku heimsins. Árið 1920 setti hún á markaðinn hið fræga ilmvatn Chanel nr. 5. Coco Chanel lést árið 1971. í myndinni er rakinn litríkur æviferill tísku- drottningarinnar í starfi og einkalífi og brugðið upp myndum af tískusýn- ingu í tískuhúsi hennar, þar sem hönnuðurinn Karl Lagerfel ræður nú ríkjum. Þýðandi myndarinnar um Chanel er Kristrún Þórðardóttir. Við heimilisarininn — bresk bíómynd ■I Biómynd sjón- 35 varpsins í kvöld ”" er bresk frá ár- inu 1970 og nefnist „Við heimilisarininn“ (Spring and Port Wine á frum- málinu). Leikstjóri er Pet- er Hammond, en með nokkur helstu hlutverk fara James Mason, Diana Coupland, Susan George og Rodney Bewes. Myndin fjallar um Rafe Cromton og fjölskyldu hans. Hann er verkstjóri í spunaverksmiðju. Þau hjónin eiga fjögur stálpuð börn og komast vel af þótt þau megi muna tímana tvenna. Rafe er góður heimilisfaðir en strangur og siðavandur. Af því myndast togstreita í fjöl- skyldunni þegar yngri dóttirin rís upp gegn vilja föður síns. Sýning myndarinnar hefst klukkan 22.35. Þýð- andi er Rannveig Tryggvadóttir. Morgunstund barnanna: „Ömmustelpa" — eftir Ármann Kr. Einarsson í dag klukkan 9 05 9.05 les Ár- — mann Kr. Ein- arsson rithöfundur annan lestur sögu sinnar „Ömmustelpa" i morg- unstund barnanna á rás 1. Sagan „Ömmustelpa" hlaut verðlaun Fræðslu- ráðs Reykjavíkur sem besta frumsamda barna- bókin árið 1977. Ármann sagði að aðalpersónur sögunnar væru dóttur- dóttir hans og frændi hennar. Hann sagðist hafa unnið söguna þannig að hann hefði fylgst náið með litlu stúlkunni, þegar hún var á aldrinum þriggja til fjögurra ára og punktað hjá sér ýmsar skondnar og hnyttnar at- hugasemdir hennar og til- svör, sem hann notaði síð- an í sögunni. „Enda eru börn oft meiri skáld en fullorðna fólkið,“ sagði Ármann. Eins og áður sagði les Ármann annan lestur sög- unnar í dag, en þeir verða alls tólf. Sérstök athygli skal vakin á því að sú villa er i prentaðri dagskrá að þar segir að lesin verði sagan „Litli bróðir og Kalli á þakinu“ eftir Astrid Lindgren, en lestri þeirrar sögu lauk sl. miðvikudag. ÚTVARP FÖSTUDAGUR 12. júll 7.00 Veöurfregnir. Fréttir. Bæn. Morgunútvarp. 7.20 Leikf- imi. Tilkynningar. 0.00 Fréttir. Tilkynningar. Dagskrá 8.15 Veðurfregnir. Morgunorð: — Jóna Hrönn Bolladóttir, Laufási, talar. 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barnanna: „Litli bróðir og Kalli á þak- inu“ eftir Astrid Lindgren. Siguröur Benedikt Bjðrnsson les þýðingu Sigurðar Gunn- arssonar (19). 9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynn- ingar. Tónleikar. Þulur velur og kynnir. 10.00 Fréttir. 10.10 Veður- fregnir. Forustugr. dagbl. (útdr.). Tónleikar. 10.45 „Mér eru fornu minnin kær”. Einar Kristjánsson frá Hermundarfelli sér um þátt- inn. RÚVAK. 11.15 Morguntónleikar. Leikin veröur tónlist eftir Kreisler, Mendelssohn, Brahms, Tsja- Ikovský og Rakhmaninoff. 12.00 Dagskrá. Tilkynningar. 12M Fréttir, 12.45 Veður- fregnir. Tilkynningar. Tónl- eikar 14.00 „Úti I heimi", endurminn- ingar dr. Jóns Stefánssonar. Jón Þ. Þór les (7). 14.30 Miðdegistónleikar. a. Pl- anókonsert I D-dúr eftir Maurice Ravel. Alicia de Larrocha og Fllharmónlusv- eit Lundúna leika; Lawrence Foster stj. b. Fiölukonsert nr. 1 eftir Bohuslav Martinu. Josef Suk og tékkneska filh- armónlusveitin leika; Vaclav Neumann stj. 15.15 Létt lög. 15.40 Tilkynningar. Tónleikar. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 A sautjándu stundu. Um- sjón: Sigrlöur O. Haraldsd- óttir og Þorsteinn J. Vilhj- álmsson. 17.00 Fréttir á ensku. 17.05 Barnaútvarpið. Stjórn- andi: Ragnheiöur Gyða Jónsdóttir. 17J5 7Frá A til B. Létt spjall um umferðarmál. Umsjón: Björn M. Björgvinsson og 19.25 Dýrasögur 1. Refurlnn og flskimaöurinn. 2. Björninn fer á fiskiveiðar. Finnskar teiknimyndir gerðar eftir þjóðsögum. (Nordvision — Finnska sjón- varpið). 3. Bangsi og býflugnabúiö. Sovésk teiknimynd. 19.50 Fréttaágrip á táknmáli 20.00 Fréttir og veöur 2030 Auglýsingar og dagskrá 20.40 Japanskt tónaflóð Bresk heimildamynd um dægurtónlist I Japan sem er snar þáttur I lifi ungu kyn- slóöarinnar. Þá er fjallaö um forna tónlistarhefð Japana sem hefur fariö halloka i Tryggvi Jakobsson. Tilkynn- ingar. 18.45 Veöurfregnir. Dagskrá kvöldsins 19.00 Kvöldfréttir. 19.40 Til- kynningar. Daglegt mál. Valdimar Gunnarsson flytur þáttinn. 19.55 Lög unga fólksins. Þóra Björg Thoroddsen kynnir. 20J5 Kvöldvaka. a. Minningar frá Möðruvöllum. Sigrlður Schiðth heldur áfram lestri slnum á frásögn Kristjáns H. Benjamfnssonar (2). b. Ha- fiö, bláa hafiö . . . Þorsteinn Matthlasson flytur frumsam- inn frásöguþátt. Umsjón: samkeppninni við vestræn dægurlög llkt og þjóðarrétt- urinn súkiakl hefur þokaö fyrir frönskum kartöflum. Þýðandi Bogi Arnar Finn- bogason. 21J5 Tlskudrottningin Coco Chanel Bresk heimildamynd um franska tiskuhönnuöinn Coco Chanel. Rakinn er lit- rlkur æviferill tlskudrottn- ingarinnar og brugðið er upp myndum af fatasýningum I Chanel-tlskuhúsinu þar sem Karl Lagerfeld mótar nú stefnuna. Þýðandi Kristrún Þórðar- dóttir. Helga Agústsdóttir. 21.25 Frá tónskáldum. Atli Heimir Sveinsson kynnir „Tuttugu og eina muslkmln- útu“ slna. 22.00 Hestar. Þáttur um hest- amennsku I umsjá Ernu Arn- ardóttur. 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð kvöldsins. 27.35 Ur blöndukútnum — Sverrir Páll Erlendsson. RÚ- VAK. 23.15 Ungir norrænir tónlist- armenn leika á tónleikum I Berwald-tónlistarhðllinni I Stokkhólmi 25. aprll sl. Si- 22.35 Við heimilisarininn (Spring and Port Wine) Bresk blómynd frá 1970. Leikstjófi Peter Hammond. Aðalhlutverk: James Mason, Diana Coupland, Susan George og Rodney Bewes. Rafe Crompton er verkstjóri I spunaverksmiöju. Þau hjónin eiga fjögur stálpuð börn og komast vel af þótt þau megi muna tlmana tvenna. Rafe er góöur heimilisfaðir en strangur og siöavandur. Af þvl myndast togstreita I fjðl- skyldunni, þegar yngri dóttir- in rls gegn vilja fööur slns. Þýðandi Rannveig Tryggva- dóttir. 00.15 Fréttir I dagskrárlok. nfónluhljómsveit sænska út- varpsins leikur. Stjórnandi: Harry Damgaard. Einleikari: Pyry Mikkola. Einsöngvari: Tina Kiberg. 00.50 Fréttir. Dagskrárlok. Næturútvarp frá Rás 2 til kl. 03.00. FÖSTUDAGUR 12. júll 10.00—12.00 Morgunþáttur Stjórnendur: Asgeir Tómas- son og Páll Þorsteinsson. 14.00—16.00 Pósthólfið Stjórnandi: Valdls Gunnars- dóttir. 16.00—18.00 Léttir sprettir Stjórnandi: Jón Ólafsson. Þriggja mlnútna fréttir sagð- ar klukkan: 11:00, 15:00, 16:00 og 17:00. Hlé 20:00—21:00 Lög og lausnir Spurningaþáttur um tónlist. Stjórnandi: Adolf H. Emils- son. 21:00—22:00 Bergmál Stjórnandi: Siguröur Grön- dál. 22:00—23:00 A svörtu nótun- um Stjórnandi: Pétur Steinn Guðmundsson. 23.00—03.00 Næturvakt Stjórnendur: Vignir Sveins- son og Þorgeir Astvaldsson. SJÓNVARP FÖSTUDAGUR 12. júll

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.