Morgunblaðið - 12.07.1985, Side 10

Morgunblaðið - 12.07.1985, Side 10
10 MOflGUNBLAÐtft FÖSTUDAQUR 12. JÚL! 1985 Hreyfihömluð ungmenni vekja athygli á atvinnumálum sfnum 18. júlí Komast ekki á Öryrkjadeild Ráðningastofu Reykjavíkurborgar vegna útitrappanna 18. JÚLÍ næstkomandi gengst æskulýðsnefnd Sjálfsbjargar ISF fyrir aðgeró- um til að vekja athygli á atvinnumálum fatlaðra ungmenna. Að sögn Ásgeirs Sigurðsssonar formanns nefndarinnar er ætlunin að fara á fund fulltrúa öryrkjadeildar Káðningarstofu Reykjavíkurborgar, Ástu B. Schram og kynna henni hvernig atvinnuástandi hreyfihamlaðra framhaldsskólanema er hátt- að. „Æskulýðsnefnd Sjálf3bjargar hefur haft náið samband við hlið- stæð félög á hinum Norðurlöndun- um og á arí æskunnar viljum við vekja athygli á því ömurlega ástandi sem ríkir á sumrin í at- vinnumálum fatlaðra. I Reykjavík og reyndar líka úti á landi er nær vonlaust fyrir fatlaðan ungling að fá sumarvinnu eftir venjulegum leiðum. Það er ekki til fullkomin skrá yfir hreyfihamlaða framhalds- skólanema og því er ekki vitað með vissu hversu margir eru at- vinnulausir en það er ljóst að mjög hátt hlutfall þeirra hefur ekki sumarstarf." Ástæður þess að fötluð ung- menni fara út í þessar aðgerðir, sagði Ásgeir vera margþættar. „í fyrsta lagi viljum við vekja at- hygli opinberra aðila á því hörmu- lega ástandi sem ríkir í atvinnu- málum fatlaðra á höfuðborgar- svæðinu og hvernig er hægt að sporna við því. Það eru fordæmi fyrir að yfirvöld láti sig sumar- störf hreyfihamlaðra einhverju skipta og ber þar hæst vinnuskóla Kópavogs sem ræður fatlað fólk í sumarvinnu. Við vitum að hreyfi- hamlaðir geta unnið margvísleg störf og sem gott dæmi þess nefni ég að einn af flokkstjórum Vinnu- skólans situr í hjólastól og málar grindverk. Ófatlaður maður myndi bogra við þessa vinnu og Standandi er Ásgeir Sigurðsson formaður æskulýðsnefndar Sjálfsbjargar LS.F. og sitjandi er Jóhann Pétur Sveinsson, sem er í nefndinni. þannig eyðileggja bakið en þetta er leikur fyrir þann sem situr í hjólastól. í annan stað viljum við minna á stöðu þeirra sem starfa að vinnu- ráðningum hreyfihamlaðra. Þegar lögum um málefni fatlaðra var breytt 1. jánúr 1984 og Endurhæf- ingarráð lagt niður fækkaði stöðu- gildum er sáu um atvinnumál úr þremur og hálfu í eitt. Sá fulltrúi hefur með að gera ráðningar allra öryrkja, þroskaheftra, hjarta- sjúklinga auk margra annarra hópa og getur því engan veginn annað öllum sem sækja um vinnu. Annað er það sem við viljum fá breytt og það er húsnæði atvinnu- fulltrúans. Þótt hreyfihamlaðir vildu gjarnan ýta á eftir starfs- umsóknum sínum væri slíkt ekki mögulegt. Fatlaðir komast ekki á skrifstofu öryrkjadeildarinnar af þeirri einföldu ástæðu að þeir komast ekki upp útitröppurnar hjá Ráðningarstofu Reykjavíkur- borgar þar sem fulltrúinn er til húsa. Hún hefur reynt mikið til að fá hjólastólalyftu setta upp en það þykir of mikill kostnaður af hálfu hins opinbera." Að sögn Ásgeirs er vonast til að aðgerðirnar 18. júlí opni augu við- komandi aðila fyrir því að ýmissa aðgerða er þörf. „En við erum einnig að ýta við því hreyfihaml- aða fólki sem hefur reynt að ná í vinnu en gefist upp vegna þess að heppnin var ekki með þeim í það skiptið, þeim sem við köllum „at- vinnuöryrkja". Þetta fólk lætur örorkubæturnar nægja og hefur ekki kjark í sér að reyna aftur. Það er ljóst að öllum er nauð- synleg einhver starfsþjálfun og við viljum vekja athygli lands- manna á að svo er einnig með hreyfihamlaða." Tölvuvæðing heilsugæslustöðvanna: Fyrsta tölvukerfíð tek- ið í notkun í Búðardal Búdardal, 4. jálí. í DAG var tölvukerfi afhent og sett upp til notkunar í heilsugæslustöðinni í Búðardal. Landlæknir hefur fyrir hönd heilbrigðisráðherra samið við ís- lenska tölvuframleiðandann Atlantis hf. um sölu á vélbúnaði til heilsugæslu- stöðva, og var heilsugæslustöðin í Búðardal fyrst í röðinni. Við þetta tækifæri þakkaði Leif- I fréttatilkynningu frá heilsu- ur Steinn Elísson, forstjóri Atl- gæslustöðinni kemur fram að um antis, ráðamönnum heilbrigðis- mála þá ákvörðun að sýna í verki tiltrú á íslenskt hugvit með því að fela ísienskum aðilum tölvuvæð- ingu heilsugæslustöðvanna. nokkurra ára skeið hefur verið í undirbúningi að nota tölvur til ákveðinna verkefna á heilsugæslu- stöðvum. Á árunum fyrir 1980 var á Egilsstöðum búið til kerfi í þess- Morgunblaðið/Kristjana Ágústsd. Fyrsta tölvukerfið tekið í notkun í heilsugæslustöðinni f Búðardal: Skjöldur Stefánsson stjórnarformaður heilsugæslustöðvarinnar lengst til vinstri, ásamt læknunum Sigurbirni Sveinssyni og Gunnari Jóhannessyni og ritaran- um Vívi Kristóberts. um tilgangi jafnframt því, sem tekin var upp skráning á heilsu- gæsluvanda fólks með nýjum og skipulegum hætti. Norðurlanda- ráð styrkti þetta verkefni, sem oft hefur verið nefnt „Egilsstaða- rannsóknin". Var það unnið undir stjórn Guðmundar Sigurðssonar, núverandi aðstoðarlandlæknis. Læknar heilsugæslustöðvarinn- ar eru Sigurbjörn Sveinsson og Gunnar Jóhannsson, hjúkrunar- kona er Sonja Símonardóttir, rit- ari Víví Kristóberts og gjaldkeri Sigrún Halldórsdóttir. Stjórnar- formaður heilsugæslustöðvarinn- ar er Skjöldur Stefánsson. - Kristjana Sérstaklega vandaö hráefni og meistaraleg meöferö, gerir súpurnarað þeirri bragöljúfu gæöafæöu sem er svo eftirsóknarverð á borðum sælkera. Súpurnar njóta sín einnig vel í sjávarréttagratíni og sósum. Þú opnar ora dós og gæóin komaíljós!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.