Morgunblaðið - 12.07.1985, Blaðsíða 10
10
MOflGUNBLAÐtft FÖSTUDAQUR 12. JÚL! 1985
Hreyfihömluð
ungmenni vekja
athygli á
atvinnumálum
sfnum 18. júlí
Komast ekki á Öryrkjadeild Ráðningastofu
Reykjavíkurborgar vegna útitrappanna
18. JÚLÍ næstkomandi gengst æskulýðsnefnd Sjálfsbjargar ISF fyrir aðgeró-
um til að vekja athygli á atvinnumálum fatlaðra ungmenna. Að sögn Ásgeirs
Sigurðsssonar formanns nefndarinnar er ætlunin að fara á fund fulltrúa
öryrkjadeildar Káðningarstofu Reykjavíkurborgar, Ástu B. Schram og kynna
henni hvernig atvinnuástandi hreyfihamlaðra framhaldsskólanema er hátt-
að.
„Æskulýðsnefnd Sjálf3bjargar
hefur haft náið samband við hlið-
stæð félög á hinum Norðurlöndun-
um og á arí æskunnar viljum við
vekja athygli á því ömurlega
ástandi sem ríkir á sumrin í at-
vinnumálum fatlaðra. I Reykjavík
og reyndar líka úti á landi er nær
vonlaust fyrir fatlaðan ungling að
fá sumarvinnu eftir venjulegum
leiðum.
Það er ekki til fullkomin skrá
yfir hreyfihamlaða framhalds-
skólanema og því er ekki vitað
með vissu hversu margir eru at-
vinnulausir en það er ljóst að
mjög hátt hlutfall þeirra hefur
ekki sumarstarf."
Ástæður þess að fötluð ung-
menni fara út í þessar aðgerðir,
sagði Ásgeir vera margþættar. „í
fyrsta lagi viljum við vekja at-
hygli opinberra aðila á því hörmu-
lega ástandi sem ríkir í atvinnu-
málum fatlaðra á höfuðborgar-
svæðinu og hvernig er hægt að
sporna við því. Það eru fordæmi
fyrir að yfirvöld láti sig sumar-
störf hreyfihamlaðra einhverju
skipta og ber þar hæst vinnuskóla
Kópavogs sem ræður fatlað fólk í
sumarvinnu. Við vitum að hreyfi-
hamlaðir geta unnið margvísleg
störf og sem gott dæmi þess nefni
ég að einn af flokkstjórum Vinnu-
skólans situr í hjólastól og málar
grindverk. Ófatlaður maður
myndi bogra við þessa vinnu og
Standandi er Ásgeir Sigurðsson formaður æskulýðsnefndar Sjálfsbjargar
LS.F. og sitjandi er Jóhann Pétur Sveinsson, sem er í nefndinni.
þannig eyðileggja bakið en þetta
er leikur fyrir þann sem situr í
hjólastól.
í annan stað viljum við minna á
stöðu þeirra sem starfa að vinnu-
ráðningum hreyfihamlaðra. Þegar
lögum um málefni fatlaðra var
breytt 1. jánúr 1984 og Endurhæf-
ingarráð lagt niður fækkaði stöðu-
gildum er sáu um atvinnumál úr
þremur og hálfu í eitt. Sá fulltrúi
hefur með að gera ráðningar allra
öryrkja, þroskaheftra, hjarta-
sjúklinga auk margra annarra
hópa og getur því engan veginn
annað öllum sem sækja um vinnu.
Annað er það sem við viljum fá
breytt og það er húsnæði atvinnu-
fulltrúans. Þótt hreyfihamlaðir
vildu gjarnan ýta á eftir starfs-
umsóknum sínum væri slíkt ekki
mögulegt. Fatlaðir komast ekki á
skrifstofu öryrkjadeildarinnar af
þeirri einföldu ástæðu að þeir
komast ekki upp útitröppurnar
hjá Ráðningarstofu Reykjavíkur-
borgar þar sem fulltrúinn er til
húsa. Hún hefur reynt mikið til að
fá hjólastólalyftu setta upp en það
þykir of mikill kostnaður af hálfu
hins opinbera."
Að sögn Ásgeirs er vonast til að
aðgerðirnar 18. júlí opni augu við-
komandi aðila fyrir því að ýmissa
aðgerða er þörf. „En við erum
einnig að ýta við því hreyfihaml-
aða fólki sem hefur reynt að ná í
vinnu en gefist upp vegna þess að
heppnin var ekki með þeim í það
skiptið, þeim sem við köllum „at-
vinnuöryrkja". Þetta fólk lætur
örorkubæturnar nægja og hefur
ekki kjark í sér að reyna aftur.
Það er ljóst að öllum er nauð-
synleg einhver starfsþjálfun og
við viljum vekja athygli lands-
manna á að svo er einnig með
hreyfihamlaða."
Tölvuvæðing heilsugæslustöðvanna:
Fyrsta tölvukerfíð tek-
ið í notkun í Búðardal
Búdardal, 4. jálí.
í DAG var tölvukerfi afhent og sett upp til notkunar í heilsugæslustöðinni í
Búðardal. Landlæknir hefur fyrir hönd heilbrigðisráðherra samið við ís-
lenska tölvuframleiðandann Atlantis hf. um sölu á vélbúnaði til heilsugæslu-
stöðva, og var heilsugæslustöðin í Búðardal fyrst í röðinni.
Við þetta tækifæri þakkaði Leif- I fréttatilkynningu frá heilsu-
ur Steinn Elísson, forstjóri Atl- gæslustöðinni kemur fram að um
antis, ráðamönnum heilbrigðis-
mála þá ákvörðun að sýna í verki
tiltrú á íslenskt hugvit með því að
fela ísienskum aðilum tölvuvæð-
ingu heilsugæslustöðvanna.
nokkurra ára skeið hefur verið í
undirbúningi að nota tölvur til
ákveðinna verkefna á heilsugæslu-
stöðvum. Á árunum fyrir 1980 var
á Egilsstöðum búið til kerfi í þess-
Morgunblaðið/Kristjana Ágústsd.
Fyrsta tölvukerfið tekið í notkun í heilsugæslustöðinni f Búðardal: Skjöldur
Stefánsson stjórnarformaður heilsugæslustöðvarinnar lengst til vinstri,
ásamt læknunum Sigurbirni Sveinssyni og Gunnari Jóhannessyni og ritaran-
um Vívi Kristóberts.
um tilgangi jafnframt því, sem
tekin var upp skráning á heilsu-
gæsluvanda fólks með nýjum og
skipulegum hætti. Norðurlanda-
ráð styrkti þetta verkefni, sem oft
hefur verið nefnt „Egilsstaða-
rannsóknin". Var það unnið undir
stjórn Guðmundar Sigurðssonar,
núverandi aðstoðarlandlæknis.
Læknar heilsugæslustöðvarinn-
ar eru Sigurbjörn Sveinsson og
Gunnar Jóhannsson, hjúkrunar-
kona er Sonja Símonardóttir, rit-
ari Víví Kristóberts og gjaldkeri
Sigrún Halldórsdóttir. Stjórnar-
formaður heilsugæslustöðvarinn-
ar er Skjöldur Stefánsson.
- Kristjana
Sérstaklega vandaö hráefni
og meistaraleg meöferö,
gerir súpurnarað þeirri
bragöljúfu gæöafæöu
sem er svo eftirsóknarverð
á borðum sælkera.
Súpurnar njóta sín einnig vel
í sjávarréttagratíni og sósum.
Þú opnar
ora
dós og gæóin
komaíljós!