Morgunblaðið - 12.07.1985, Síða 12

Morgunblaðið - 12.07.1985, Síða 12
MORGUNBLAÐID, FÖSTUDAGUR 12. JÚLÍ1985 Æ Morgunblaðið/Emilía Guttorm Guttormsgaard við verk sín sem hann sýnir í andyri Norræna hússins. Listin á ekki að vera eingöngu til skrauts - segir norski myndlistarmaðurinn Guttormsgaard sem sýnir verk sín í Norræna húsinu l'o.sxa dagana stendur yfir í and- dyri Norræna hússins sýning á grafíkmyndum norska listamanns- ins Guttorm Guttormsgaard. Sýning- in er opin á venjulegum opnunar- tíma Norræna hússins og stendur til 22. júlí. Guttorm Guttormsgaard er fædd- ur árið 1938. Hann nam listir í Osló og Kaupmannahöfn og hefur einnig kennt mikið sjálfur. Nú er hann prófessor við listaakademíuna í Osló en hyggst láta af því starfi á næsta ári. f stuttu spjalli sem blaðamaður átti við Guttormsgaard í Norræna húsinu á dögunum sagði hann þetta vera fyrstu heimsókn sína til fslands. En hann hefur ferðast mikið, m.a. dvalist langdvölum í Austurlöndum fjær og fyrir botni Miðjarðarhafs. „Eg hef alltaf kunnað mjög vel við Islendinga, mér hefur virst þeir vera meðal þeirra fáu, sem ég hef kynnst um dagana, sem hafa trausta fótfestu í eigin landi,“ sagði Guttormsgaard og kvaðst m.a. hafa kennt íslenskum stúd- entum við Oslóarakademíuna. Á sýningunni í Norræna húsinu eru um 100 verk, bæði landslags- og mannamyndir. „Ég er í raun alltaf að reyna að segja þaö sama í verkum mínum,“ sagði Gutt- ormsgaard, „gera einhverskonar tilraun til að víkka út landamæri raunveruleikans og andæfa þeirri hugmynd að listin eigi eingöngu að vera til skrauts." Millisvæðamótið í Biel: Van der Wiel teflir leikandi létt Frá Braga Kristjánasyni, fréttaritara Morgunbl Það sem af er mótinu hefur Hollendingurinn Van der Wiel teflt af miklu öryggi enda hefur hann ekki tapað skák, hlotið 4 '/2 vinning úr sex skákum. Van der Wiel hefur þó ekki þurft að hafa mikið fyrir hlutunum því flestar skákir hans hafa verið stuttar. Sem dæmi má nefna að eftir 5 um- ferðir hafði hann aðeins leikið 122 leiki eða 22,4 að meðaltali í skák. Van der Wiel verður því að teljast til þess hóps sem ætla mætti að kæmust áfram og hefur hann til þess alla burði s.s. mikla þekkingu í listinni. í þriðju umferð mætti hann argentínska stórmeistaran- un. Quinteros sem ætlaði að tefla hið umdeilda eitraðapeðsafbrigði gegn Van der Wiel. Hollendingur- inn brá út af í 8. leik og við það hætti Quinteros við peðsránið en tapaði dýrmætum tíma. Slíkt er hættulegt gegn ungum og metn- aðarfullum mönnum. Hvítt: Van der Wiel Svart: Quinteros Sikileyjarvörn. 1. e4 — c5, 2. Rf3 — d6, 3. d4 — cxd4, 4. Rxd4 — Rf6, 5. Rc3 — a6, 6. Bg5 — e6, 7. f4 — Db6 Quinteros ætlar á peðaveiðar á b2, en 8. Dd3. hættir við eftir þetta óvenjulega svar Hollendingsins. Hvítur leikur venjulega hér 8. Dd2, en textaleik- «ins í Biel. urinn hefði ekki átt að breyta þeirri staðreynd að fyrst svartur leikur Db6 er best að taka á b2. Eins og kemur í ljós verður drottningin úr spilinu. 8. — Rbd7?, 9. 0-0-0 Be7,10. Dh3 — Rc5 Svartur er þegar orðinn langt á eftir í liðsskipan, og gefur sér þess vegna ekki tíma til að leika. 10. — Dc7,11. — b5 o.s. frv. 11. e5 — dxe5, 12. fxe5 — Rd5, 13. Bxe7 — Rxe7, 14. Bd3 — Bd7, 15. Dg3 — Rxd3+ Eftir 15. — 0-0 vinnur hvítur peð eftir 16. Bxh7+Kxh7, 17. Dh4+ ásamt 18. Dxe7. 16. Hxd3 — 0-0 17. Re4 — Kh8 Eða 17. - Rg6, 18. h4 - Dc7, 19. h5 — Rxe5, 20. Hc3 — Da5, 21. Rf6+ - Kh8, 22. h6 - g6, 23. b4 ásamt 24. Dxe5 og vinnur. 18. Rf6! 18. — gxf6 Taki svartur ekki manninn nær hvítur vinnandi sókn t.d. 18. — Bb5, 19. Dh4 - h6, 20. Hh3 - Hfh8, (20. — Rg8, 21. De4 — gxf6, 22. Df4 - Kh7, 23. exf6 - e5, 24. Df5 - Kh8, 25. Hxh6+ - Rxh6, 26. Dg5 og mátar. 21. De4 — gxf6, 22. Hxh6+ - Kg7, 23. Dh7+ - Kf8, 24. Hxf6 - Ke8 (eða 24,- Be8, 25. Dh8+ - Rg8, 26. Rfö - exf5, 26. Hxb6 og hvítur vinnur létt. 25. Dxf7+ — Kd7, 26. Hxe6 o.s.frv. 19. Dh4 — Rg8, 20. Hg3 og Quinter- os gafst upp því hann er mát eftir 21. Dg5 — g4 til g7 Van der Wiel hafði hvítt gegn Martin í fimmtu umferð og lenti sá síðarnefndi í einhverri óskemmtilegustu reynslu sem nokkur skákmaður getur orðið fyrir, að trúa í blindni á byrjunar- bækur. Martin tefldi flókið af- brigði í spænska leiknum og eftir 15 Ieiki kom upp staða, sem í al- fræðiorðabók um byrjanir er af sovéska meistaranum, Mikaelits- isin, talinn mun betri fyrir svart- an. Fjórum leikjum síðar mátti Spánverjinn gefast upp manni fá- tækari. Hvítt: Van der Wiel Svart: Martin Spænski leikurinn 1. e4 — e5, 2. Rf3 — Rc6, 3. Bb5 — a6, 4. Ba4 — Rf6, 5. (M) — b5, 6. Bb3 — Bb7, 7. d4 — Rxd4, 8. Rxd4.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.