Morgunblaðið - 12.07.1985, Síða 19

Morgunblaðið - 12.07.1985, Síða 19
Fræðsluþættir frá Fósturfélagi íslands MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. JÚLt 1985 19 Samskipti Gluggaveður Á vordögum fyllast stræti og torg af börnum í gáskafullum leik. Þetta er sá tími sem daginn lengir hratt og þetta er sá tími sem börn nota hvað best til útileikja. Búið er að taka hjólin út eftir vetrar- hvíldina og rykið hefur verið dust- að af brenniboltunum og sippu- böndunum. Hver man ekki eftir að hafa eytt dögum og kvöldum í leiki eins og „fallin spýtan", „yfir“ og „stórfisk- aleik“ eða að laumast var yfir í næstu garða í leit að nývöxnum rabarbara. Flestir þekkja vorkippinn sem stundum fylgir sólarglætu að vori og börnin vilja helst fara út í stuttbuxum og stutterma bol. En þó að sólin skíni veldur köld norð- an golan því oft að úti er ískalt, það er sem sagt bara „gluggaveð- ur“ en einmitt það freistar barn- anna til að fara léttklædd út. Þá hljóma setningar eins og þessi oft „Þú getur ekki farið svona út það er ekkert hlýtt úti“, „Þú verður að fara í buxur og peysu“, „Þú mátt ekki fara húfulaus út, þú færð kvef“. Bandaríski sálfræðingurinn Tomas Gordon hefur skrifað um samskipti foreldra og barna, með- al annars „P.E.T. Parent Effective- ness Training, Peter H. Wyden Inc. New York 1970: Gordon leggur að- aláherslu á þrjú atriði sem hann telur að stuðli að betri samskipt- um og ánægjulegri samtölum milli fullorðinna og barna. í fyrsta lagi leggur hann áherslu á að við lítum meira í eigin barm og notum oftar setningar sem byrja á „Ég... “ heldur en setn- ingar sem byrja á „þú ... “ . Þetta þýðir í raun að við segjum barninu hvaða tilfinningar við höfum gagnvart umræðuefninu eða því sem deilan snýst um í stað þess að gefa eingöngu fyrirmæli um hvað barnið eigi að gera eða að skamma það fyrir eitthvað sem það hefur gert. Það er sem sagt mikilvægt að við gefum barninu upplýsingar um hvað við erum að hugsa og hvernig okkur líður vegna þess sem barnið gerir, til dæmis: „Mér finnst kalt úti, þess vegna held ég að þú þurf- ir að fara í buxur og peysu“ eða „Ég er hrædd um að þú fáir kvef ef þú ferð svona illa klædd(ur) út“. I öóru lagi telur Gordon að mik- „Með því að gefa barn- inu tækifæri til að finna lausn á vandamálinu sjálft og taka ábyrð á því sem það gerir, þá íeysist málið trúlega á hagkvæmari hátt fyrir alla.“ ilvægt sé að hlusta á hvað barnið hefur um málið að segja. Barnið hefur tilfinningar og skoðanir sem okkur ber að virða og það fær meiri þjálfun í að meta sjálft hvort kröfur þess eru raunhæfar ef það fær að tjá sig um þær. Ef barn finnur að virkilega er hlust- að á það, verða samskiptin auð- veldari, samtalið opnara og barnið verður móttækilegra fyrir skyn- samlegum rökum frá hinum full- orðna. Barn er í mörgum tilvikum vel fært um að meta aðstæður sjálft ef það fær hvatningu til þess. Og ef vitnað er aftur í dæmið um „gluggaveðrið" og útiklæðnað þá hreyfa börn sig oft mun meira en fullorðnir. Flestir útileikir, til dæmis að sippa eöa hjóla, kalla á mikla hreyfingu sem tekur mikla orku, börn þurfa því oft ekki að klæða sig svo mikið. í þriðja lagi telur Gordon að þeg- ar samskiptin eru einhliða, það er að segja nær eingöngu boð og bönn frá hinum fullorðna, þá þarf barnið sífellt að lúta í lægra haldi. Sá fullorðni vinnur — barnið tap- ar. Að tapa er óþægileg tilfinning og hefur slæm áhrif á sjálfsmynd þess sem tapar. Fyrstu viðbrögð barnsins verður þá ef til vill þrjóska og stífni og það verður enn ákveðnara í að fara út á stuttbuxunum. Með því að gefa barninu tæki- færi til að finna lausn á vanda- málinu sjálft og taka ábyrð á því sem það gerir, þá leysist málið trúlega á hagkvæmari hátt fyrir alla. Líkur eru til að barnið verði ekki eins vonsvikið og biturt eins og hætta er á ef það er alltaf í hlutverki „taparans" og samskipt- in verða ef til vill hlýrri og betri. HAPPDRÆTTI SJALFSBJARGAR 5. JÚLÍ1985 Aðalvinningur: Bifreiö, PAJERO 5D Super Wagon, á miða nr. 22038. 49 vinningar: Vöruúttekt, að verömæti kr. 5.000 hver. 207 11724 23224 48176 527 11752 25682 49006 1847 12229 29114 50066 1953 15980 29579 50194 2582 17281 30024 51688 3473 18644 30732 52538 4770 19706 35026 53005 6981 20235 37277 53297 8027 21960 38987 53762 10210 22038 39822 54834 11020 (bifreiö) 41636 55424 11131 22609 44607 56065 11376 23017 45216 Sjálfsbjörg - landssamband fatlaðra Hitúm 12 - Sími 29133 - Pósthólf 5147 - 105 Reykjavik • tsland Með því að hvetja barnið til að meta aðstæður sjálft, í þessu til- viki að fara út í viðeigandi fötum og koma inn og sækja sér föt verði því kalt, þá vekjum við með barn- inu áhuga á að leysa vandann með tilliti til aðstæðna. Þegar svo barnið finnur að því er treyst þá eykst sjálfstraustið og sjálfs- myndin verður betri. Mjóddnnn^- Sú^að'^.ogPoto ,va\a -^nutníS^vn-- _ AÐEINS Lundi^jfi00 glænýr *%*§ Hamflettur ^pr.stK. Glæsilegt úrval af svínakjöti NÝSLÁTRUÐU Hamborgarar m/brauði mm nn —75^ Glænýr LAX ■= LÆKKAÐ VERÐ. Ódýrustu 3 kg. grillkolin ® í bænum!! lAQ.IH) 1. FLOKKS. lAjy Spennandi grillpinnar Pylsugrillteinn Heitur matur til að taka með sér: Heilsteikt svínalæri og svínasíða._________ Heilsteikt lambalæri. Nýsteiktir kjúklingar. Einnig í matarbökkum með meðlæti. til að taka með sér. Nautagrillteinn Laukur nautakjót i'autakjöt _ Paprika Tomatur Paprika B«con-Pyl»a-B»con Kryddlegið Kryddlegið nautakjöt nautakjöt Svínagrillteinn ca. 200 gr. Svlnakjot * Svlnakjol - Svinakjöl Svinakjöl-Svinakjðl Kebabgrillteinn ca. 200 gr. Kryddlegið Kryddtegiö svinakjot nautakjot Kryddtegið Kryddlegið nautakjðt lambakjöt Papnka Ananas - Ananas Ananas - Ananas Agurka Agurka Paprika Opið tilkl.21 í Mjóddinni - en til kl. 19 í Starmýri og Austurstræti Ath. Lokað á laugardögum í sumar. AUSTURSTRÆTI 17 - STARMÝRI 2 MJÖDDINNI

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.