Morgunblaðið - 12.07.1985, Side 21

Morgunblaðið - 12.07.1985, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. JÚLl 1985 Sprengingin, sem eyðilagði Rainbow Warríon „Um skemmd- arverk að rædau — segir lögreglan í Auckland Auckland, Njj» Sjálmndi. II. júlf. AP. LÖGREGLAN í Auckland á Nýja Sjálandi segir, að sprengja hafi valdið því að Rainbow Warrior, skip Grænfriðunga, sprakk í loft upp í höfninni þar í gær. „Hér er um skemmdarverk að ræða,“ sagði talsmaður lögregL unnar. Lögreglan hefur ekkert látið uppskátt um það hver kunni að hafa komið sprengjunni fyrir og enginn aðili hefur lýst ábyrgð verknaðarins á hendur sér. David Lange, forsætisráðherra Nýja Sjálands, sagði á fundi með fréttamönnum i dag, að landið væri sýnilega ekki lengur óhult fyrir hermdarverkastarfsemi. Grænfriðungar eru ein kunn- ustu umhverfisverndarsamtök í GENGI GJALDMIÐLA Dollar styrkist Lundúnum, 11. júlí. AP. DOLLARINN styrktist dálítið í dag á gjaldeyrismörkuðum, en síðustu fjóra daga hafði hann lækkað verulega gagnvart evr- ópskum gjaldmiðlum. Gull lækk- aði í verði. í Lundúnum fengust 1,3755 pund fyrir dollar í dag. Er það hækkun dollarans frá því í gær, en þá kostaði hann 1,3842 pund. Gengi dollars gagnvart helstu gjaldmiðlum var sem hér segir: 2,9410 vestur-þýsk mörk (2,9395), 2,4582 svissneskir frankar (2,4435), 3,9450 franskir frankar (9,150), 3,9450 hollensk gyllini (3,3065), 1.894,00 ítalskar lírur (1.983,00) og 1,3540 kanadískir dollarar (1,3520). Gullúnsan lækkaði i dag frá þvi í gær í Lundúnum, úr 315,25 doll- urum í 314,40 dollara. Veður víða um heim Laogst HáMt • Akurayri 10 múkt Ammlmrdatn 1« 22 heióakírt Aþmtm 20 34 heióakirt Bmrcatonm vantar Bmrtin 12 22 akýjaó BrUmmcl 14 28 heiómkirt Chicmgo 18 27 heiöakírt Dublin 10 18 heiðakirt Fenoyiar 25 léttakýjað Frmnklurt 13 20 mkýjaö Ganl 17 23 haiðakírt Halminki 13 21 mkýjað Hong Kong 27 31 heidtktrl Jerumalem 18 28 h«iOskírt Jóhannoaarborg 7 20 Iwitekirt Kaupmannah. 14 21 h«idskírt Lam Patmam vantar Limmabon 17 28 haiöskírt London 15 23 •kfimö Lom Angotam 22 34 heiöakírt Luxemborg vantar Malaga 28 rykmiatur MaHorca 29 léttskýjað Miami 25 31 mkýjaö Momkva 13 23 mkýjaó Nýja Delhi 21 31 heiðmkirt New York 23 31 heiðmkfrt Omló 13 21 mkýjaö Parím 13 21mkýjaó Peking 20 30 mkýjaö Perth 12 19 rigning Reykjavík 11 mkýjaö Rió de Janeiro 15 28 tkýjað Rómaborg 18 33 heiðmkírt San Francíaco 18 21 heiömkfrt Stokkhótanur 13 23 heiðakfrt Sydney 12 17qr. mkýjaö Tókýó 23 30 mfcýjaó Toronto 12 24 heiðefcfrt Vancouver 12 23 heiömkirt Varajá 9 22 mkýjaö Vinarborg 16 20 mkýjaö Þórmhötn 10 múkt heimi og var fyrirhugað að Rain- bow Warrior, sem er eitt af sex skipum þeirra, tæki þátt í fjög- urra mánaða mótmælasiglingu umhverfis Mururoa-eyjar í Kyrra- hafi, þar sem Frakkar hafa verið að gera tilraunir með kjarnorku- sprengingar neðanjarðar. Þykir einsýnt að ekkert verði af mót- mælunum vegna atviksins. Hins vegar er orðrómur á kreiki um það á Nýja Sjálandi, að David Lange, forsætisráðherra, hafi boðist til þess að senda herskip á vettvang við Mururo-eyjar til að hafa for- ystu um mótmæli þar, en stjórn hans hefur margsinnis mótmælt kjarnorkutilraunum Frakka harð- lega. Grænfriðungar kannast ekki við slíkt boð, en segjast mundu taka því fagnandi ef það bærist. Sendiráð Frakka í Wellington, höfuðborg Nýja Sjálands, hefur lýst harmi sínum vegna spreng- ingarinnar, sem eyðilagði Rain- bow Warrior, og tekið skýrt fram að Frakkar eigi þar engan hlut að máli. Formælendur Grænfriðunga sögðu í dag, að þeir hefðu ákveðið að safna 100 þúsund bandaríkja- dollurum (jafnvirði rúmlega fjög- urra milljóna ísl. króna) til að kaupa nýtt skip í stað Rainbow Warrior og styrkja fjölskyldu Portúgalans, sem fórst í spreng- ingunni. Grænfriðungar hafa m.a. á stefnuskrá sinni, að varðveita stofna hvala, höfrunga, sela og kengúra. Jafnframt hafa þeir bar- ist gegn tilraunum með kjarn- orkuvopn og gegn því að kjarn- orkuúrgangur verði losaður á hafi úti. Þeir hafa mótmælt hvalveið- um íslendinga og sendu Rainbow Warrior m.a. hingað til lands til að spilla fyrir veiðunum. Ferðamenn hafa tekið verðlækkuninni í fríhöfninni á Kastrup vel. Frihöfnln í Kastrup: Verðlækkun styrkir samkeppnisstöðuna Fjölgun fríhafnarverzlana FLUGHÖFNIN í Kastrup við Kaupmannahöfn hefur kunngjört umtalsverða verðlækkun á svokölluðum frí- hafnarvörum, sem raunar kom til framkvæmda um sl. mánaðamót. Verðlækkun þessi nemur allt að 50%. Nýr rekstraraðili, sem SAS hefur 40% eignaraðild að, hefur framtíðarrekstur fríhafnarverzlana í Kastrup á hendi. Hann hyggst styrkja samkeppnisstöðuna, m.a. gagnvart Schiphol-flugstöðinni við Amsterdam, sem og að sækja aukinn hagnað um aukna sölu með verð- lækkun. Rekstraraðili fríhafnarverzlana hefur skuld- bundið sig til að greiða flughöfninni tilteknar fjár- hæðir á ári, sem m.a. verða nýttar til að rýmka verzlunarsvæði flughafnarinnar, en þar er fyrir- hugað að koma fyrir 20 nýjum verzlunum næstu 18 mánuðina. Sem dæmi um verðlækkun fríhafnarinnar í Kastrup, samkvæmt dönskum blaðafréttum, má nefna: • 1. Smirnoff vodki kostaði áður d.kr. 72.- (ísl. kr. 278.-) en nú d.kr. 45.- (ísl. kr. 174.-). Verð á þessari vöru í flughöfninni í Amsterdam er $3.65 (ísl. kr. 150.-). Samkvæmt verðskrá fríhafnarinnar í Kefla- vík er verðið $5,- (ísl. kr. 205.-). • 2. Johnny Walker, red label, viskí kostaði áður d.kr. 88.- (ísl. kr. 340.-) nú d.kr. 70.- (ísl. kr. 270.-). Verð í fríhöfninni í Amsterdam er ísl. kr. 233.- og á Keflavíkurflugvelli ísl. kr. 298.-. • 3. Remy Martin VSOP-koníak kostaöi áður d.kr. 186,- (ísl. kr. 719.-) nú d.kr. 161,- (ísl. kr. 623.-). Verð í fríhöfninni f Amsterdam er ísl. kr. 545.- og í Keflavík ísl. kr. 534.-. • 4. Sígarettur (Prince, 200 stk.) kostuðu áður d.kr. 105.- (ísl. kr. 406.-) nú d.kr. 76,- (ísl. kr. 294.-). Verð í Amsterdam kr. 250.- og í Keflavík kr. 216.-. Innflutningur Beneluxlanda 28. JÚNÍ síðastliðinn komu starfsmenn heilbrigðiseftirlita og landbún- aðarráðuneyta Hollands, Belgíu og Lúxemborgar sér saman um reglu- gerð varðandi innflutning á rækju til landanna. Eftir að þessi reglugerð hefur gengið í gildi verður eingöngu leyfður innflutningur á rækju frá viðurkenndum fyrirtækjum. á rækju til háður leyfum Rækjunum verður að fylgja heilbrigðisvottorð þar sem greini- lega kemur fram að varan full- nægi þeim hreinlætiskröfum sem Alþjóða landbúnaðarstofnunin (FAO) og Alþjóða heilbrigðis- stofnunin (WHO) gera. Þau fyrir- tæki sem sjá um innflutninginn verða að vera viðurkennd af yfir- völdum Benelúxlandanna. Þau fyrirtæki sem koma til með að reyna að flytja inn rækju án til- skilinna leyfa eiga það á hættu að réttindi fyrirtækisins til þess að versla með þessa viðkvæmu mat- vælavöru verði afturkölluð fyrir fullt og allt. Fyrir íslendinga kemur þessi reglugerð að öllum líkindum til með að opna að nýju möguleikann hér á markaðinum. Flest stærri rækjuinnflutningsfyrirtæki hér svo sem Heyploeg, hafa flutt inn rækjuna frá Asíulöndum. Nokkur af þeim fyrirtækjum sem þeir hafa skipt við síðustu árin koma án efa til með að eiga erfitt með að fá viðurkenningu heilbrigðiseftir- lita Benelúxlandanna. Gert er ráð fyrir að reglugerðin gangi í gildi innan skamms. Fulltrúadeild Bandaríkjaþings fordæmir fóstureyðingar í Kína Afskipti af innanríkismálum, segir Li Xiannaian forseti Wamhinipon, 11. jnll AP. FULLTRÚADEILD Bandaríkjaþings samþykkti í gær með 289 atkvæö- um gegn 130 ályktun um að fordæma þá stefnu Kína að knýja fram takmarkanir við fólksfjölgun með því að neyða fólk til fóstureyðinga og ófrjósemisaðgerða. Forseti Kína, Li Xiannian, sem er í þann veginn að leggja upp í ferðalag til Bandaríkjanna, vísaði í dag harðlega á bug þessari álykt- un fulltrúadeildarinnar. Sagði hann, að með þessu væri algerlega verið að rangtúlka það, sem verið væri að gera í Kína í þessu tilliti og hlyti ályktun fulltrúadeildar- innar að vekja almenna reiði á meðal kínversku þjóðarinnar. „Ég tel, að með þessu sé verið að skipta sér af innanlandsmálum Kína og slíkt getum við ekki þol- að,“ sagði Li Xiannian. Hann kvaðst þó ekki telja, að þetta ætti eftir að hafa áhrif á fyrirhugað ferðalag hans, sem er ætlað að efla skilning og vináttu milli Kína og Bandaríkjanna. í síðasta mánuði sökuðu Kín- verjar Bandaríkjamenn um „róg- burð“ og „tilhæfulausar ásakanir", er dregið var úr framlögum Bandaríkjanna í fólksfjöldasjóð Sameinuðu þjóðanna vegna frétta um, að í Kína væri fólk neytt til fóstureyðinga til þess að koma í veg fyrir offjölgun. I ferðalagi sínu nú fer Li Xi- annian fyrst í opinbera heimsókn til Kanada en síðan til Bandaríkj- anna, þar sem hann dvelst í eina viku.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.