Morgunblaðið - 12.07.1985, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 12.07.1985, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. JÚLÍ 1985 23 AP/Símamynd Svikahrappar dæmdir Dómstóll í Hamborg í Vestur-Þýskalandi sakfelldi á mánudag þá Gerd Heidemann, fyrrum blaðamanna hjá vikuritinu Stern (t.v. í aftari röð) og Konrad Kujau, minjasala (lengst Lh.) fyrir að hafa falsaö hinar svonefndu „dagbækur Hitlers“ og selt þær fyrir offjár. Þeir voru báðir dæmdir í tæplega fimm ára fangelsi. Kujau viðurkenndi að hafa falsað bækurnar, en Heidemann kvaðst vera saklaus. Hann sagðist hafa komið bókunum á framfæri í þeirri trú, að þær væru ósviknar. Sri Lanka: Upplýst um sam- særi til að fyrir- koma forsetanum? Colombo, Sri Unka, 11. jnli. AP. TALSMAÐUR ríkisstjórnar Sri Lanka sagði í dag, að komist hefði upp um samsæri aöskilnaðarsinna tamíla um landsins, af dögum. f tilkynningu, sem lesin var fyrir fréttamenn, sagði að lögregla hefði í gær fundið mjög öfluga sprengju í bifreið skammt frá stað nokkrum, sem búist var við að for- setinn færi um á leið til ríkis- stjórnarfundar. Tveir ungir tamíl- ar hefðu verið handteknir, en einn hefði komist undan. Hinir hand- teknu hefðu játað að ætlunin hafi verið að myrða forsetann. Jayawardene forseti, sem er á áttræðisaldri, hefur verið rúm- fastur upp á síðkastið vegna inflú- ensu. Af þeim sökum var ákveðið að hann sæti ekki fund ríkis- stjórnarinnar í gær og vekur fréttin um samsærið því nokkra furðu. Eftir fundi ríkisstjórnar Sri Lanka í gær var tilkynnt, að fyrir- hugað væri að láta lausa 643 tam- íla, sem verið hafa í varðhaldi að ráða Junius Jayawardene, forseta vegna grunsemda um aðild að hryðjuverkum. Jafnframt ákvað stjórnin að aflétta útgöngubanni í fimm héruðum á norðurhluta eyj- arinnar. Fréttaskýrendur segja, að ákvörðun ríkisstjórnarinnar sé til marks um að samningaviðræðum fulltrúa hennar og leiðtoga að- skilnaðarhreyfingar tamíla, sem hófust í Thimbu, höfuðborg Bhut- an, á mánudag, miði vel áfram. Anandatissa de Alwis, upplýs- ingamálaráðherra Sri Lanka, sagði fréttamönnum i Colombo í gær, að hann ætti von á því að viðræðurnar í Bhutan yrðu mjög gagnlegar. Ekki væri að vænta endanlegrar niðurstöðu í deilu sin- halesa og tamíla, en báðir aðilar virtust nú skilja aðstæður hvors annars betur en áður. Grænland: Áframhaldandi mótmæli gegn sölu á veiðikvótum Nuuk, 11. júlí. Frá frétUriUra Morgunbladeins, J. N. Bruun. MÓTMÆLUM er haldið áfram í Grænlandi gegn þeirri ákvörðun land- stjórnarinnar að selja fiskkvóta til portúgalskra og japanskra togaraútgerða, án þess að það væri gert að skilyrði, að grænlenzkir sjómenn yrðu hafðir með á skipunum. Samtök grænlenzkra sjómanna hafa frá upphafi verið mjög and- víg þessum samningum og hóta nú vinnustöðvunum gegn grænlenzk- um fiskiðnaði. Um 100 græn- lenzkir sjómenn eru atvinnulausir og það er ástæðan fyrir því, að samtök þeirra hafa gert kröfu um, að þeir fái að starfa um borð í erlendu skipunum. Sú regla gildir á Grænlandi, að minnst 70% áhafnarinnar séu Grænlendingar á þeim togurum, sem skráðir eru þar. Portúgalar stað- festa EB-aðild Lisubon, II. júlf. AP. PORTÚGAISKA þingið staðfesti í morgun, fimmtudag, aðild Portúgala að Evrópubandalaginu. Fulltrúar Sósíalista, Sósíal- demókrata og Miðdemókrata greiddu atkvæði með samningnum við bandalagið. Fjörutíu og fjórir þingmenn kommúnista flokksins voru á móti og eini þingmaður UDP, sem er vinstri flokkur greiddi ekki atkvæði. Á portúg- alska þinginu sitja 250 fulltrúar. Eins og fram hefur komið í fréttum mun Eanes forseti nú rjúfa þing formlega, að líkindum á morgun, og þingkosningar verða svo í landinu í öndverðum október. Kornframleiðsla eykst í Sovét Wubington. II. júll. AP. í FRÍrri'UM frá Sovétríkjunum seg- ir í dag, að útlit sé fyrir tólf prósent meiri kornuppskeru í Sovétríkjunum í ár en í fyrra. Búist er við að magnið verði um 190 milljónir tonna. Þrátt fyrir þetta hefur ekki tekizt að auka framleiðsluna jafn mikið og áætlað hafði verið og til dæmis var sagt að júnfuppskera hefði verið rýrari en vonast hafði verið til. Á markaðsárinu 1985—1986 sem hófst 1. júlí er talið að Sov- étmenn muni flytja inn að minnsta kosti 39 milljónir tonna af komi og er það um 16 milljón- um tonna minna en á síðasta ári. ÞAÐ ER ENGIN SPURMNG, HJÓLIN FFÁ ERNINUM SDANDA UPPUR nmnm Reiðhjólaverslunin_ ORHIHH Spítalastíg 8 og vió óóinstorg símar: 14661,26888

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.