Morgunblaðið - 12.07.1985, Side 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, POSTUDAGUR 12. JÚLÍ 1986
‘ t
>
Fáni Grænlands
í Reykjavík
HÉR blakta þeir hlið við hlið hinn
nýi þjóðfáni Grænlands og íslenski
fininn. Var Grænlandsfáninn dreg-
inn að húni við flugbækistöð Helga
Jónssonar á Reykjavíkurflugvelli í
sólskininu í gær. Mun þetta vera í
fyrsta skipti sem grænlenski fáninn
er dreginn að hún hér í Reykjavík og
jafnvel á öllu landinu.
Við munum flagga á venju-
legum flugdögum okkar til Kulus-
uk, sem eru tveir í viku yfir
sumarmánuðina, á þriðjudögum
og föstudögum, og oftar ef okkur
þykir tilefni til, sagði frú Jytte
Jónsson, kona Helga. Hann hefur
sem kunnugt er sérleyfið á flug-
leiðinni Reykjavík, Kulusuk við
Angmagssalik. Farþegaflutningar
á flugleiðinni eru í jöfnum vexti.
Geta má þess að á þriðjudögum
var fóru 25 manns af fjölmörgu
þjóðerni til Grænlands og höfðu
þar skemmri eða lengri viðdvöl.
Á myndinni sem Ól.K. Magnús-
son tók í gær eru Sigurjón Alfreðs,
flugmaður, frú Jytte, kona Helga.
Hún hefur atvinnuflugmanns-
réttindi og kennararéttindi, þá
Helgi Jónsson, yfirflugstjóri og
Þórhallur Magnússon, flugstjóri.
Á myndina vantar tvo af starfs-
mönnum við flugstöð Helga, þá
Ragnar Hauksson, flugmann og
Jón Helgason.
Megas að ljúka
hljómleikaferð
Hljómleikaferð Megasar og fé-
laga hans um landið lýkur um helg-
ina. Leika þeir á Hótel Akranesi í
kvöld klukkan 20.30. Þá fara þeir til
Eyja og leika þar í samkomuhúsinu
á sama tíma á laugardagskvöld. Á
sunnudagskvöld leika þeir í Garði,
einnig klukkan 20.30.
Næstkomandi miðvikudags-
kvöld klukkan 21 leika þeir félagar
síðan í Austurbæjarbíói og lýkur
þar með hljómleikaferðinni. Meg-
as mun síðan næstu tvær helgar
slást í för með Stuðmönnum og
spila með þeim í Húnaveri og í
Atlavík.
Undirleik hjá Megasi í þessari
tónleikaför annast þeir Björgvin
Gíslason gítarleikari, Ásgeir
Óskarsson trommari, Haraldur
Þorsteinsson bassisti og Jens
Hansson blásari.
Doktor í
tölvunarfræðum
í frétt í blaðinu í gær um dokt-
orsvörn dr. Snorra Agnarssonar
féll niður að ritgerð hans fjallaði
um tölvunarfræði eða nánar til-
tekið um fræðileg atriði í tengsl-
um við aðgerðir í forritunarsöfn-
un, eins og sagði í fréttinni.
Skrifstofa
RKÍ opin
um helgina
í TILEFNI af beinni útsendingu
sjónvarpsins á laugardagskvöld frá
hljómleikum til styrktar bágstödd-
um í Afríku verður skrifstofa Rauða
kross íslands í Reykjavík opin um
helgina.
A laugardag verður tekið á móti
Frá hjálparstarfinu í Eþíópíu.
INNLEN-T
framlögum milli kl. 14 og 17 á
skrifstofunni og á sunnudag á
sama tíma. Þá getur fólk einnig
hringt í síma RKÍ — 26722 og til-
kynnt um framlög. Tekið verður á
móti slíkum hringingum bæði á
laugardag og sunnudag frá kl.
14-17.
Vigdís sómir sér vel innan um dönsku vfkingana sem sóttu hana heim.
M
Morgunblaðisns Einar Valur
Danskir víkingar á íslandi
Koma fram á hátíð á
Laugarvatni um helgina
„ÉG ER kóngurinn," sagði Ole
Bröndum í flugstöðinni á Keflavík-
urflugvelli f gær. „Við erum komn-
ir hérna 104 leikarar og ætlum að
sýna íslendingum raunverulegt
víkingaleikrit. Við vonum bara að
veðrið verði gott svo við fáum
marga áhorfendur og þá er ég viss
um að allir sem koma skemmta
sér vel.“
„Kóngurinn" er ein persónan í
leikritinu Hagbard og Signe sem
þessi fjölmenni leikhópur frá
Fredriksund í Danmörku sýnir á
Laugarvatni um helgina. Leik-
ritið gerist á víkingatímanum og
fjallar um ástir og afbrýði,
hefndir og þung forlög. Leikhóp-
urinn hefur ferðast víða um
heiminn og sýnt hin ýmsu vík-
ingaleikrit við góðan orðstír. 1
leikritinu nota þeir sex íslenska
hesta og sagði Öle að þeir hefðu
æft sig á íslenskum hestum í
Danmörku áður en þeir héldu til
íslands.
Frá Keflavík hélt hópurinn til
Bessastaða og heilsaði upp á for-
seta íslands, Vigdísi Finnboga-
dóttur. Tók Vigdís vel á móti
gestunum og sagði meðal annars
að ánægjulegt væri að sjá svo
föngulega víkinga saman komna
á íslandi að nýju eftir margar
aldir. Var henni skemmt þegar
einn víkingurinn sýndi mikla
prúðmennsku, tók ofan voldugt
höfuðfatið og hneigði sig. Þótti
henni þó allur varinn góður og
tók fram að bannað væri að berj-
ast í stofum Bessastaða.
Borgarstjóri Fredriksunds
þakkaði góðar viðtökur og færðu
þeir Vigdísi forláta víkingasverð
að gjöf.
I dag heldur leikhópurinn svo
að Laugarvatni og reynir sviðið
og aðstæðurnar, þar sem þau
munu halda fjórar leiksýningar
um helgina á mikilli víkingahát-
íð.
=======
Eins og vfkinga er háttur hélt kóngurinn Ole Bröndum vel birgur
miði og öðrum dýrum veigum í íslandsferðina.
íslendingasögurnar
verdi færdar í leikbúning
— segir Pétur Sigurðsson alþingismaður
„Ég hafði virkilega gaman af víkingaleikritinu Hagbarður og Signý, sem ég
hafði tækifæri til að sjá nýverið f Danmörku." sagði Pétur Sigurðsson
alþingismaður, en hann er einn þeirra fjölmörgu Islendinga, sem farið hafa á
víkingahátíðina í Friðrikssundi, sem haldin hefur verið á hverju sumri í 33 ár.
„Þarna var leikið á stóru úti-
svæði þar sem leikendurnir, vik-
ingar, börn og hestar, gengu um á
meðal áhorfendanna. Sýningin gaf
ákaflega sannfærandi mynd af lffi
þessa sögutímabils á Norðurlönd-
um. Víkingarnir börðust „grimmi-
lega“.
Að sögn Péturs er tæknin, sem
þarna er beitt við að koma tali og
tón til skila undir berum himni
mjög góð. Allt hljóð er unnið
fyrirfram og leikarar fylgja upp-
tökunni með látbragði. Þessar ár-
legu sýningar vekja mikla athygli
og hrifningu ferðamanna, sem
koma til Danmerkur á hverju
sumri, og hefur orðið til þess að
vekja athygli á Friðrikssundi sem
ferðamannastað. En að auki hafa
víkingaleikirnir farið víða um
heim og hvarvetna vakið hrifn-
ingu.
„Á meðan ég var að horfa á vík-
ingasýninguna um daginn kom
upp í huga minn að ástæða væri til
að kanna hvort við íslendingar
gætum ekki gert eitthvað svipað
og var ég þá með tslendingasög-
urnar í huga og sögustaði þeirra.
Með hliðsjón af því hvað Danir
hafa náð langt með vikingaleikn-
um er ekkert líklegra en að ferða-
menn sem koma til íslands vilji
sjá íslendingasögurnar í leikbún-
ingi.
Ég vil því hvetja alla sem hefðu
áhuga á þessu máli, leikara, ferða-
frömuði og þá sérstaklega tækni-
menn, til að kynna sér hvernig
staðið er að dönsku víkingasýning-
unni á Laugarvatni nú um helg-
ina,“ sagði Pétur að lokum.