Morgunblaðið - 12.07.1985, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. JÚLl 1985
43
Fyrirspurnir um Tjarnarskólann
Margrét Þorvaldsdóttir skrifar:
Þessa daga er mikið rætt um
nýjan einkaskóla í Reykjavík fyrir
unglinga á aldrinum 12—15 ára. f
allri umræðunni er eins og vænt-
anlegir nemendur hafi gleymst,
þar sem öll skrif og vangaveltur
hafa snúist um kostnaðarhliðina.
Það sem skiptir auðvitað mestu
máli er hvers konar menntun
þessi skóli muni veita væntanleg-
um nemendum sínum, en um þann
þátt segja stofnendur skólans að-
eins (í fjölmiðlum), að hann eigi
að vera skemmtilegur skóli tengd-
ur atvinnulífinu.
Yfirlýsing sem þessi segir nán-
ast ekki neitt um þá kennslu sem
boðið verður upp á, umfram þá
sem nú er veitt í hinum almennu
skólum borgarinnar. Fremur gef-
ur hún til kynna, að þarna verði
um einhverskonar leikskóla að
ræða með sérhæfingu fyrir at-
vinnulífið. Það er ekki slíkur skóli
sem áhugasamir foreldrar hafa
verið að ræða um í sambandi við
umbætur í grunnskólamenntun.
Umræðan hefur fyrst og fremst
verið um meiri og markvissari
grunnmenntun barna og unglinga,
sem nauðsynlega undirstöðu fyrir
sérmenntun eða sérhæfingu síðar.
Nú hljóta að hafa verið lagðar
fram fastmótaðar hugmyndir um
námsefni og kennsluhætti áður en
leyfi var veitt fyrir stofnun skól-
ans. Það væri því mjög áhugavert
að fá nokkrum spurningum svarað
um fyrirhugaða starfsemi skólans.
1. Á hvern hátt verður Tjarnar-
skóli frábrugðinn hinum almenna
skóla?
2. Verður meiri áhersla lögð á
grunn námsgreinar eins og ís-
lensku, stærðfræði, eðlis- og efna-
fræði en gert er í íslenskum skól-
um í dag?
3. Á hvern hátt á skólinn að tengj-
ast atvinnulífinu?
Þetta eru mjög mikilvæg atriði
sem foreldrar barna á grunnskóla-
stigi ræða um þessa daga.
Spurningunni er beint til stofn-
enda hins nýja Tjarnarskóla.
Allt of lítið af íslenskri tónlist
Jóhann Þórólfsson skrifar: þakka ég Bjarna Marteinssyni, íslenska harmonikkuleikara í
Ég hlustaði á harmonikkuþátt- hann er sá eini sem býður upp á þættinum.
inn laugardaginn 29. júní sl. sem
Högni Jónsson stjórnaði. Hann
bauð ekki upp á eitt einasta lag
með íslenskum harmonikkuleikur-
um. Hvers eiga þeir að gjalda? Við
eigum heimtingu á að fá að hlusta
á íslenska harmonikkusnillinga.
Það eru skattgreiðendur sem
borga starfsfólki ríkisútvarpsins
kaup og þess vegna ber stjórnend-
um útvarpsþátta skylda til að fara
að óskum hlustenda. Tónlistar-
deildin býður upp á allt of lítið af
íslensku efni, það er til stór-
skammar og móðgun við okkar
listafólk hvað þessir menn snið-
ganga það. Þessu .verður tafar-
laust að breyta. Fylgist ekki tón-
listarstjórinn með hvað starfsfólk
hans ber á borð fyrir hlustendur?
Við eigum nóg af íslenskum lista-
mönnum og þurfum þess vegna
ekki að sækja svona mikið af tón-
list til útlanda og raun ber vitni.
Ég óska þess að hinn ágæti út-
varpsstjóri lengi harmonikkuþátt-
inn i eina klukkustund. Einnig
Illyrmislegir
tónar í útvarpinu
Þorleifur Kr. Guðlaugsson
skrifar:
Velvakandi góður. Ég vil enn
gera athugasemd við þessa ill-
yrmislegu tóna sem útvarpið
sendir út með tilkynningunum.
Manni dettur stundum í hug
að tilkynningalesarar séu svo
taugaveiklaðir að þeir verði ann-
að hvort að reka upp öskur eða
hamra á hljóðfæri til að halda út
lesturinn. Sumir hafa líka sagt
að tilkynningar séu heilaþvottur.
Ekki get ég samsinnt því.
Að þessu slepptu vil ég benda
auglýsendum á að athuga sinn
gang þar sem farið er að loka
fyrir tilkynningarnar. Fólk hef-
ur enga aðra vörn. Engin bót er
að breytingum á þessu glamri.
Fyrir utan allar kvartanirnar
yfir þessum töktum vil ég segja
að þeir eru engum til gleði eða
gagns og mætti því vera þögn
þessar 10 sekúndur sem þetta
gengur yfir.
Ríkisútvarpið ber ábyrgð á því
ef áríðandi tilkynningar fara
framhjá fólki vegna þessa uppá-
tækis.
Þessir hringdu . .
Eru stjórnmála-
menn eins og
síbrotamenn?
GJ. hringdi:
í grein sinni „Bandalag
kumpánaskaparins" í NT 9. júlí
segir Ingvar Gíslason alþingis-
maður m.a.: Blaðamenn eru i
sandkassaleik með stjórnmála-
mönnum í stað þess að vera í
hópi þeirra sem hafa gætur á
leiknum. Þetta er álíka eins og ef
hæstaréttardómarar eyddu frí-
stundum sínum í hópi síbrota-
manna.
Ekki kann ég að dæma um
hlut blaðamanna í þessu sam-
bandi, en var að velta því fyrir
mér hvort Ingvar telji stjórn-
málamenn og þá sjálfan sig hóp
af sama meiði og síbrotamenn.
Er Michael
Jackson öllum
gleymdur?
Michael Jackson-aðdáandi
hringdi:
Mér finnst vanta lög með
Michael Jackson í Skonrokki.
Það er eins og búið sé að gleyma
honum. En hann er sko ennþá til
og það eru margir sem halda upp
á hann. Ég þekki að minnsta
kosti tíu krakka sem halda upp á
hann. Ég vil biðja Skonrokk og
fleiri þætti að sýna meira með
Michael Jackson. Þá finnst mér
allt í lagi að sýna tónleika með
honum eins og með Duran Dur-
an.
Þvæla í morgun-
útvarpinu
Ein hneyksluð hringdi:
Ég get ekki orða bundist vegna
þeirrar þvælu sem manni er boð-
ið upp á i morgunútvarpi. Þvílíkt
bull og vitleysa. Þar á ég við þátt
sem þeir morgunmenn sendu út
fimmtudagsmorguninn 4. júlí og
fjallaði um skókaup, eða öllu
heldur símtöl við tvær skóversl-
anir í Reykjavík. Ég undrast þol-
inmæðina hjá afgreiðsludömun-
um að leggja ekki á.
Sýnið alla Band
Aid-tónleikana
Krissa hringdi:
Ég vil styðja tillögu Ásu, íris-
ar, Stinu og Dísu, sem skrifuðu í
Velvakanda hinn 4. júlí síðastlið-
inn um að allir Band Aid-tón-
leikarnir verði sýndir í sjónvarp-
inu 13. júlí. í fyrsta lagi er þetta
heimsfrægur atburður, sem
verður ekki endurtekinn. f öðru
lagi ættu flestir aldursflokkar að
hafa gaman af þessu því stór-
stjörnur eins og Paul McCartn-
ey, The Who og Bob Dylan koma
þarna fram. f þriðja lagi er mál-
efnið mjög gott og í fjórða og
síðasta lagi er þarna á ferðinni
mikill glaðningur fyrir unga
fólkið, nú á ári æskunnar. Eg
skora því á sjónvarpið aö athuga
hvað hægt er að gera i þessu
máli, með von um jákvæð við-
brögð.
Verksmiðjusala
Saumastofunni Skúlatúni 6, 3. hæö, fer fram í dag og
mánudag.
Kvenbuxur í yfirstæröum, blússur, pils, stórar skyrtur,
hvrtar kápur o.fl. Gott verö.
Optö frá kL 12—&
ÖUum sem glöddu miy á sjötuysafmæli mínit 30. júní sl.
med st&ryjöfum, blómum, skeytum oy hverskonar hlý-
huy sendi ég hjartans þakkir oy bestu óskir.
Elín Jóscfsdóttir
Hafnarfírði
námsmenn
Islenskir námsmenn á aldrinum
12-32 ára fá 25% afslátt af fullu fargjaldi
fyrir sig og fjölskyldu sína. Gildir
einungis milli heimilis og skóla. Fram-
vísa verður staðfestingu frá skóla, á
sérstökum eyðublöðum sem fást hjá
Flugleiðum, um að farþegi sé í fullu
námi.
Gefinn er afsláttur aftur í tímann ef
sótt er um innan 3 mánaða frá flugi.
Gildir til allra áfangastaða í Evrópu.
Hámarksdvöl er 1 ár.
Hringdu í síma 25100 eða komdu við
á næstu söluskrifstof u okkar
FLUGLEIÐIR /BT