Morgunblaðið - 13.07.1985, Síða 31

Morgunblaðið - 13.07.1985, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ1985 31 Ásbjörn Sigur- jónsson - Kveðja Ásbjörn Sigurjónsson, fyrsti formaður Handknattleikssam- bands íslands er látinn. Undir forystu Ásbjarnar efldist handknattleiksíþróttin á íslandi og samskipti landsliða okkar við útlönd. Undir hans forystu var mörkuð sú stefna stjórnar Hand- knattleikssambandsins að stefna ávallt að því að eiga landslið á heimsmælikvarða, þó svo að við séum fámenn þjóð. Hefur frammi- staða landsliðs okkar ávallt verið landi og þjóð til sóma og getum við verið Ásbirni þakklát fyrir þann stórhug og framsýni, sem hann og samstarfsmenn hans í handknattleikshreyfingunni höfðu. Hefur hin frábæra frammi- staða landsliðs okkar hvatt marga unglinga til íþróttaiðkana með það markmið að stefna ávallt að því að gera sitt besta. Núna þegar landslið okkar í handknattleik undirbýr sig í sjöunda sinn undir þátttöku í Á-heimsmeistarakeppni, þar sem landsliðið mætir liðum frá fimmt- án öðrum þjóðum í þessari íþróttagrein, sem iðkuð er af mikl- um áhuga i 130 löndum, þá megum við vera þakklát fyrir þann mikla tíma sem Ásbjörn varði til að byggja upp handknattleikshreyf- inguna á Islandi. Stjórn Handknattleikssam- bands íslands, fyrir hönd allra handknattleiksiðkenda á íslandi fyrr og síðar, sendir Ingunni, ekkju Ásbjarnar, fjölskyldu hans og vinum sínar innilegustu sam- úðarkveðjur. Jón Hjaltalín Magnússon, formaður Handknattleiks- sambands íslands. Þórhildur S. Friðfinns- dóttir - Kveðjuorð Fædd 5. október 1945 Dáin 26. júní 1985 Þegar ungir eiga í hlut ber dauðinn ótimabært að dyrum. Löng og erfið barátta við banvæn- an sjúkdóm gat aðeins endað á einn veg. Þó er kveðjustundin allt- af tregabundin og þó vitað sé að hverju dregur virðist kallið óviðbúið og erfitt að sætta sig við orðinn hlut. Kynni okkar Þórhildar hófust þegar bróðir minn, Kolbeinn, og Þórhildur kynntust fyrir nokkrum árum. Kolbeinn kynnti hana sem góða og duglega. Hún sannaði það rækilega ásamt ómælanlegri þrautseigju í erfiðum veikindum. Fagurt heimili bar vott um mikla smekkvísi. Þau Kolbeinn og Þór- hildur voru samhent í að byggja upp. Fyrir fjórum árum fæddist sonurinn Bjarni, en Þórhildur átti fyrir Sigríði Völu frá fyrra hjóna- bandi. Sár söknuður sækir að og það er fátt um svör þegar litli Bjarni spyr: „Hvernig komst mamma svona langt og hvenær kemst hún aftur til min?“ Á kveðjustund sækja minn- ingarnar að og góðar stundir rifj- Leiðrétting í minningargrein um Sigurð Bjarnason smið hér í blaðinu í gær féll niður þessi setning: Hversu mikið sem Siggi hafði að gera voru vandvirknin og smekk- vísin alltaf í fyrsta sæti. Hann varð því mjög eftirsóttur smiður og eftir að hann fluttist til Kópa- vogs varð hann eftirsóttur til lag- færingar á gömlum húsgögnum. ast upp, heimsóknir á Tómasar- haga 57, góði maturinn hennar Þórhildar, skemmtilegar samverustundir. Dugnaður og þrautseigja Þórhildar vöktu að- dáun okkar. Hún vann fram að því að hún fór á spítala í hinsta sinn og á meðan hægt var. Við kveðjum með aðdáun og þakklæti og vottum þeim sem eftir standa samúð okkar. Ég vildi að ég hefði fengið að þekkja Þórhildi lengur og betur. Guð blessi minningu þessarar góðu konu. R.jj. Borin er til grafar Þórhildur Sigrún Friðfinnsdóttir hár- greiðslumeistari, sem um árabil starfrækti Hárgreiðslustofu Kristínar Ingimundardóttur hér í borg. Þórhildur fæddist á Sauðár- króki en ólst upp á Sleitustöðum í Skagafirði. Þórhildur lauk námi frá húsmæðraskólanum að Laug- um og starfaði m.a. um tíma sem matráðskona að Hólum í Hjalta- dal. Að því loknu fluttist hún suð- ur til Reykjavíkur og hóf nám og störf við hárgreiðslu, sem hún síð- ar starfaði við uns yfir lauk. Þórhildur eignaðist strax stóran hóp fastra viðskiptavina sem kunnu vel að meta þessa atorku- sömu ungu konu, sem mat starf sitt og viðskiptavini svo mikils. Stærstan hluta af sér gaf hún þó fjölskyldu sinni og heimili sínu sem var einstaklega myndarlegt og vinalegt. Það var ætíð tilhlökk- unarefni að heimsækja Þórhildi og Kolbein sambýlismann hennar á heimili þeirra á Tómasarhagan- um, ekki sízt ef í vændum var eitthvað úr „tilraunaeldhúsinu", en þar var hún snillingur á sínu sviði, ætíð tilbúin að reyna eitt- hvað nýtt og óvenjulegt. Fyrir þremur árum þegar fjöl- skyldan var stödd erlendis í sumarleyfi kenndi Þórhildur sér fyrst meins og eftir rannsókn kom í ljós að um alvarlegan sjúkdóm var að ræða. Þegar mikil aðgerð var yfirstaðin fór hún fljótlega til starfa að nýju og þrátt fyrir skerta starfsorku gekk starfið fyrir öllu og ráðleggingar um að vinna minna og taka sér hvíld lét hún eins og vind um eyru þjóta og aldrei heyrðist kvörtunarorð frá þessari sterku konu. En í byrjun þessa árs dró ský fyrir sólu er í ljós kom að sjúk- dómurinn hafði tekið sig upp að nýju. Þrátt fyrir það brást aldrei trú hennar á lífið og framtíðina og allt fram á síðasta dag var hún að skipuleggja nýjar framkvæmdir og hluti sem betur máttu fara á heimili hennar. Að leiðarlokum þökkum við Þórhildi margar ánægjustundir og vottum aðstandendum hennar, Guðrúnu móður hennar og Kol- beini, samúð okkar jafnframt því sem við biðjum Guð að styrkja og blessa börn hennar í sorginni, þau Sigríði Völu sem studdi móður sína ómetanlega í lokin og Bjarna litla. Vinir Stjórn leigjendasamtakanna lýsir fullum stuðningi við íbúa Hjónagarða MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi yfirlýsing frá stjórn leigjendasamtakanna. Eins og komið hefur fram í fjöl- miðlum, er komin upp deila milli leigjenda á Hjónagörðum Háskóla íslands og stjórnar Félagsstofn- unai stúdenta. Hefur hagsmuna- félag íbúa Hjónagarðanna leitað til Leigjendasamtakanna eftir upplýsingum og aðstoð og hafa Leigjendasamtökin kynnt sér deiluefnið með aðstoð lögmanns. Vegna hlutdrægs fréttaflutn- ings, a.m.k. sumra áhrifamestu fjölmiðlanna, vilja Leigjenda- samtökin taka eftirfarandi fram: 1. Uppsagnir og meðfylgjandi hótanir um útburð koma ekki til vegna vanskilaskulda leigj- endanna. Deiluefnið er sá kostnaður sem leigan skal reiknuð eftir. Deilt er um hvað sé rétt upphæð og neita leigj- endur að greiða þá hækkun sem stjórn Félagsstofnunar fer fram á vegna skorts á sönnun- um fyrir nauðsyn hennar. 2 Leiga á Hjónagörðum lýtur lög- um um húsaleigusamninga nr. 44 frá 1. júní 1979 sbr. lög nr. 70 frá 30. maí 1984. Ber því að gera leigusamninga í samræmi við þau, sem ekki hefur verið gert. Einnig skal meta réttindi og skyldur aðila leigumála í sam- ræmi við lögin. 3. Það er álit stjórnar Leigjenda- samtakanna að í þessu máli gildi ákvæði 8. gr. fyrrgreindra laga. í 1. málsgrein segir m.a.: „Skilmálar framlengds leigu- mála skulu vera hinir sömu og í upphaflegum leigumála að öðru leyti, m.a. um fjárhæð húsa- leigu.“ Einnig álítur stjórnin að eðlilegt sé að ákvæði 8. gr. og 16. gr. fyrrnefndra laga um for- gangsrétt eigi við og rökstyður þá skoðun með tilvísun í 11. gr. sömu laga, þar sem segir: „Ákvæði í leigumála má meta ógild ef þau munu leiða til niðurstöðu sem væri bersýni- lega ósanngjörn. Sama gildir ef ákvæði í leigumála brýtur í bága við góðar venjur I húsa- leigumálum.“ Telur stjórn Leigjendasamtak- anna að samningar um leigu á íbúðum Hjónagarða og þar með ákvörðun um hækkun leigu, sé þannig háttað að hún brjóti í bága við góðar venjur og reynt sé að skerða réttarstöðu leigjendanna. Lýsir stjórnin því yfir fullum stuðningi við málflutningi leigj- enda í þessari deilu. t Maöurinn minn, STEFÁN SIGURÐSSON, Akurgeröi 32, lést í Borgarspítalanum miövikudaginn 10. júlí. Jaröaförin auglýst síöar. Fyrir hönd barna, tengdabarna og barnabarna. Ása ingólfsdóttir. t Eiginkona mín og móöir okkar, SIGRÍOUR GUÐMUNOSDÓTTIR, Þórsgötu 10, Reykjavík, andaöist í Borgarspítalanum 6. júlí. Útförin hefur fariö fram í kyrrþey aö ósk hinnar látnu. Valdimar Kristjánsson, Erla K. Valdimarsdóttir, Guömundur Stefénsson, Sigurþór G. Valdimarsson, Sigrún Guöjónsdóttir, Bjarney G. Valdimarsdóttir, Lárus Ægir Guömundsson, og barnabörn. t Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö viö andlát og útför móöur okkar, GUÐRÚNAR ÓLAFfU ÁSBJÖRNSDÓTTUR frá Hvammi í Dýrafiröi. Fyrir hönd aöstandenda. Börnin. t Alúöarþakkir fyrir auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og útför móöur minnar, fósturmóöur, tengdamóöur, systur, ömmu og langömmu, JÓHÖNNU HALLDÓRSDÓTTUR, Esjugrund 51, Kjalarnesi, áöur Hrísateig 21. Hulda Þorgrímsdóttir, Jóhanna Þorgrímsdóttir, Ólafur Halldórsson, Sigrún Lára Shánko, Guörún S. Gunnarsdóttir, Sigríður B. Gunnarsdóttir, og barnabarnabörn. Gunnar Hermannsson, Ólafur Garöarsson, Sigurbjörg Albertsdóttir, Ólafur Ólafsson, t Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö viö andlát og útför eigin- manns míns, fööur okkar og tengdafööur HALLGRÍMS BOGASONAR, Dalbraut 25. Kristrún Jónasdóttir, Guóný Hallgrímsdóttir, Bjarni Pétursson, Bogi G. Hallgrímsson, Helga Helgadóttir, Dagbjört Hallgrímsdóttir, Garöar Arnkelsson, Jóna Hallgrímsson, Hulda Erlingsdóttir, Sigurjón Hallgrímsson, Þórkatla Albertsdóttir. Birting afmælis- og minningargreina ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minn- ingargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í mið- vikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. í minn- ingargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Þess skal einnig getið, af marggefnu tilefni, að frumort ljóð um hinn látna eru ekki birt á minningarorðasíð- um Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili. Legsteinar granít — - marmari Opéö tUi digit ^^UmÁÍ x(. einnig kvökf Unnarbraut 19, S«ttjamarnMi, og helgsr.. símar 620609 og 72818. <r €

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.